Ægir - 01.03.2017, Síða 27
27
hugsa um kvótann. Báturinn
hefur engu að síður fengið upp-
lyftingu og er að fara til Noregs,
þar sem hann var smíðaður
upphaflega. Maður hefði haldið
að hans tími væri búinn en svo
var ekki.“
Með góðan kvóta
„Við fengum borgað fyrir gamla
bátinn og kvótann að mestu
leyti með heimildum í króka-
aflamarkskerfinu og við erum
nú með meiri kvóta á þessum
bát en var á gamla bátnum því
heimildir í litla kerfinu eru ódýr-
ari en í því stóra. Við áttum líka
eitthvað á gamla Indriða Krist-
ins. Maður er búinn að upplifa
það að vera á bát með litlum
kvóta og nú erum við hinum
megin á bitanum, höfum úr
nógum heimildum að spila. Það
er allt annað og betra þó það sé
meira puð að vera á þessum
smærri bátum. Við löndum öllu
óslægðu og kvótinn svarar til
um 1.500 tonna af óslægðu,“
segir Magnús.
Þeir landa öllu á markað og
hafa ekki verið í neinum bein-
um viðskiptum síðan þeir byrj-
uðu með þennan bát.
Þeir bræður réru frá Nes-
kaupstað frá því í ágúst og fram
eftir hausti og líkaði vel þar. „Við
fengum góða þjónustu þar og
vorum ánægðir með lífið og til-
veruna. Við fiskuðum mjög vel
og gekk allt í haginn. Verðin
voru þokkaleg en þó slakari en
verið hafði, enda krónan alltof
sterk. Síðan fórum við til Tálkna-
fjarðar í desember og mokfisk-
uðum þar. Staðreyndin er sú að
við erum með það mikinn
kvóta, að ef við ætlum að ná
honum verðum við að vera þar
sem er einhver fiskur. Það er
ekkert hægt að hanga í ein-
hverjum nöturlegheitum. Við
vorum fyrir vestan fram til 10.
mars. Þá var loðnan komin í
Breiðafjörðinn og ekkert að
hafa nema steinbít. Við erum
með einhvern smávegis stein-
bítskvóta en bara til að taka
með þorskinum. Við höfum
engan áhuga á að liggja í stein-
bít. Það er svo lágt verðið á
honum.“
Þeir eru því með bátinn í
Grindavík núna en þar búa báð-
ir bræðurnir og eru giftir systr-
um; dætrum Hjálmars heitins
Haraldssonar, sem var með
Oddgeir í áratugi.
Bara hálftíma stím
Indriði Kristins er með beitning-
arvél með 17.000 króka. Magn-
ús segir að stímið sé 3 til 4 tímar
og fari alveg sólarhringurinn í
að leggja og draga eins þetta
hafi verið fyrir vestan. Svo þurfi
menn aðeins að leggja sig og
það sé gert eftir að línan er
komin í sjóinn og er farin að
vinna.
„Við erum svona tvo tíma að
leggja og sjö tíma að draga, 2
tíma að landa og með löngu
stími rétt hrekkur sólarhringur-
inn í þetta. En hér frá Grindavík
er bara hálftími í stím og það er
mun þægilegra,“ segir Magnús
Guðjónsson.
Myndir og texti:
Hjörtur Gíslason.
Indriði Kristins kemur til hafnar í Grindavík.
Thomas Branson tekur við körunum, sem skipstjórinn hífir í land.
Guðmundur Einar kom á bryggjuna til að hjálpa pabba sínum.