Ægir

Årgang

Ægir - 01.08.2017, Side 18

Ægir - 01.08.2017, Side 18
18 hrundi veiðin og svæðinu var lokað. Sennilega hefur veiðin hrunið vegna breyttra skilyrða í hafinu. Við Grænland austan- megin kom upp einhver veiði síðasta vetur, en fiskiríið þar er nokkuð gloppótt. Eitt árið get- ur verið fínt en það næsta nærri ekkert. Vestanmegin er veiði stöðugri og sveiflurnar minni. Veiðin hefur verið frekar „sta- bíl“ í Smugunni undanfarin ár þó að alltaf séu einhverjar sveiflur. Árið í fyrra var frekar lé- legt en árið í ár er miklu betra, bara gott og kom skemmtilega á óvart. Fyrir norðan Svalbarða var mjög rólegt í fyrrahaust, en við vonum að þar verði sama þróun og í Smugunni núna og veiðin verði meiri í ár en í fyrra,“ segir Viktor. Draugagildrur í trollið Hann segir að fyrir tveimur ár- um hafi verið mikið um krabba- báta í Smugunni, en þeir veiða í gildrur. Fyrir vikið var erfiðara að stunda togveiðar á svæðinu. „Þetta voru mest bátar frá Rúss- landi og Noregi. Þeim var svo bannað að vera þarna fyrir ári síðan og þá komumst við um allt og það er auðvitað betra fyrir veiðarnar. Það hefur verið talað um að veiðar í krabba- gildrur séu mjög vistvænar, en við erum ekki sammála því. Við erum ennþá að fiska upp draugagildrur um allt á þessu svæði. Þær eru fullar af fiski og eru enn að veiða þó bátarnir hafi farið burt fyrir meira en ári. Það virðist sem sumir bátarnir hafi hreinlega skilið gildrurnar eftir þegar veiðunum var hætt, eða þeir tapað svona miklu af þeim og ekki hirt um að reyna að ná þeim upp aftur. Við erum að koma með hundruð af gildr- um eftir túrinn.“ Íslendingarnir taka túrana til skiptis, einn úti og næsta í fríi. Viktor segir að misjafnt sé hvernig aðrir í áhöfn vilji hafa það. Sumir taki tvo túra og tvo í frí og jafnvel þrjá og þrjá. Svo séu um borð menn sem séu þrír um störf, svokallaðir trollmeist- arar. Þeir skipta á sig túrunum og taka tvo túra í beit og einn í frí. Þetta sé bara eins og þeir vilji hafa það. Byrjaði 12 ára í fiski Viktor er frá Vestmannaeyjum og byrjaði í fiskvinnslu með skóla 12 ára eins og gekk á þeim tíma. Svo fór hann rétt fyrir tvítugt á sjóinn og er búinn að vera þar síðan með einhverj- um smástoppum. „Ég byrjaði á bátum frá Eyjum og fór síðan í Stýrimannaskólann 1990 og að prófi loknu hef ég að mestu verið stýrimaður og skipstjóri á togbátum og togurum. Ég var lengi hjá Jóhanni Halldórssyni á Andvara og á Suðurey, sem hann átti líka.“ Fjölskyldan er nú að flytja búferlum til Spánar en það breytir litlu fyrir Viktor. Hann þarf hvort eð er alltaf að fljúga til Noregs til að fara um borð og þaðan aftur heim. Hvort heima er á Íslandi eða Spáni breytir litlu. Betra veður í Barentshafinu Viktor segir að hann kunni þessum veiðum og fyrirkomu- lagi mjög vel. Mjög gaman sé á þessum veiðum nema þegar eitthvað bras sé í gangi eða veiðin lítil. „Sjórinn er í sjálfu sér alltaf eins, en í Barentshafinu er yfirleitt betra veður heldur en á öðrum veiðisvæðum. Flæmski hatturinn er mjög leiðinlegur á veturna og veður geta orðið slæm á Grænlandssundi. Við lentum til að mynda í slæmri ís- ingu á Andvara á Miklabanka á leið til hafnar í Kanada. Í Bar- entshafinu eru meiri stillur og ég hef haft mjög gaman af því að fiska þarna norðurfrá. Ég hef yfirleitt bara gaman af þessu starfi. Auðvitað fylgja því óvæntar uppákomur eða jafn- vel slys og það er auðvitað ekk- ert skemmtilegt við það, en þegar allt gengur sinn gang er bara gaman að takast á við þetta. Það er mjög sérstakt að vera þarna norðurfrá, bæði á vet- urna og sumrin. Á sumrin er bjart allan sólarhringinn og svo- lítið sérstakt að sjá þegar snjóar þar um hásumarið, því það er kalt þó bjart sé og sólskin um miðnættið. Á veturna er myrkur „Þetta er spurning sem að maður fær stundum: „Hvernig er að vinna með Eistunum“. Hún getur verið tvíræð þessi spurning. En okkur hefur yfirleitt gengið mjög vel að vinna saman, Eistum og Íslendingum um borð í þessum togurum. Það er auðvitað munur á vinnubrögðum hjá þessum þjóðum en það má segja að með tímanum höfum við mæst á miðri leið. Tungumálaörðuleikar eru þónokkrir og ég veit ekki hversu oft ég hef beðið einhvern úr áhöfninni að gera eitthvað. Það er kinkað kolli og skilningurinn skín úr andlitinu fyrir framan mann. Svo er farið af stað og eitthvað allt annað gert en maður var að biðja um. Það er gott að vera frekar rólegur á þessum stundum, taka þessu af æðruleysi og anda með nefinu. En eitt verður maður að segja um þá, að þeir eru góðir sjómenn. Kokkaríið er auðvitað öðruvísi en við eigum að venjast. Það eru einfaldlega aðrar matarvenjur hjá þeim en okkur, eins og gengur. Til dæmis eru oft heilu hvítlaukarnir í skál á borðinu. Þeir sem eru hvað harðastir í því að naga hvítlaukinn eru ekki eins góðir gestir í brúnni og aðrir. Ég hef heyrt marga Íslendinga kvarta yfir fæðinu á þessum skipum. Þeir sem að endast í þessu starfi sætta sig við að matarmenningin er önnur og tækla það þannig að ef að áhöfnin er ánægð með kokkinn þá er allt í himnalagi.“ Að vinna með Eistunum Steffano er glæsilegur togari en hann var upphaflega smíðaður fyrir Pétur Stefánsson útgerðarmann og hét þá Pétur Jónsson RE. Þegar verið er langt úti í hafi er skipið stundum griðastaður fyrir fugla sem hafa villst of langt frá landi. Hér er einn gesturinn að háma í sig hrátt kjöt.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.