Ægir - 01.08.2017, Blaðsíða 54
54
Færeyingar selja hluta af sjávarafurðum sínum til Rússlands. Á fyrri
helmingi þessa árs fór meira þangað en til nokkurs annars lands.
Verðmæti útflutnings þangað jókst um 5,7 milljarða íslenskra króna
miðað við sama tíma í fyrra. Útflutningurinn á þessu tímabili í ár
skilaði alls 18,8 milljörðum króna, eða 27% af heildinni.
Þar njóta Færeyingar þess að hafa ekki tekið þátt í refsiaðgerð-
um ESB og Bandaríkjanna gegn Rússlandi vegna átakanna í Úkra-
ínu. Fyrir vikið hefur Rússland ekki sett innflutningsbann á fiskafurð-
ir frá Færeyjum, eins og á Ísland, sem fylgdi ESB og Bandaríkjunum
að máli í refsiaðgerðunum.
Langt er í næstu útflutningslöndin, en næst koma Bretland og
Bandaríkin. Útflutningur til hvors lands fyrir sig skilaði á fyrri helm-
ingi þessa árs um 7,5 milljörðum íslenskra króna. Þar á eftir koma
Danmörk og Þýskaland með 5,8 milljarða í útflutningsverðmæti
hvort land og loks Kína með 4,4 milljarða.
Laxinn verðmætur
Lax er langverðmætasta útflutningsvaran, sem flutt er utan til sex
helstu viðskiptalandanna. Af því sem selt er til Rússlands er helm-
ingurinn lax og þar á eftir koma makríll og síld. Til Bandaríkjanna,
Þýskalands og Kína fer nær eingöngu lax. Af þorski, ýsu og öðrum
botnfiski fer mest til Bretlands.
Frá aldamótum hafa orðið miklar breytingar á útflutningum eftir
löndum. Mesta breytingin er hinn gífurlegi vöxtur í útflutningi til
Rússlands, en sala til Bandaríkjanna og Kína hefur einnig aukist. Þá
hefur meira farið til Þýskalands og Hollands og Belgíu. Útflutningur
til þeirra landa sem voru efst á listanum um aldamótin; Danmerkur,
Bretlands, Ítalíu, Spánar og Frakklands hefur minnkað nokkuð, en er
enn töluverður.
K
rossg
á
ta
F
réttir
Rússland stærsti fisk-
afurðamarkaður Færeyja
Hér má sjá hvernig þróun hefur orðið í verðmætum útfluttra sjávaaf-
urða frá Færeyjum á fyrri helmingi áranna 2000-2017. Risastökk hefur
orðið í sölu til Rússlands.