Feykir - 24.05.2012, Blaðsíða 1
Hraun á Skaga
Kollurnar kúra á hreiðrum sínum
Ástin svífur yfir vötnin á Hrauni á Skaga þar sem
æðarvarpið er hafið. Æðarkollurnar kúra nú á hreiðrum
sínum sínu og blikarnir standa hjá, kollum sínum til halds
og trausts. Á varpsvæðinu hafa verið útbúin skýli af ýmsu
tagi fyrir fuglana og svæðið skreytt með litríkum fánum og
má þar einnig heyra óm af klukknahljdm.
„Pabbi hengdi bjöllu við varpið sem hann fann úr skipi
sem strandaði hér á bilinu 1914 - 1920. Alla tíð síðan hafa
kollurnar fremur kosið að verpa í grennd við bjölluna,“
útskýrir Rögnvaldur Steinsson æðarbóndi á Hrauni. Hvað
varðar fánana þá er það gert til að laða kollurnar að, en
samkvæmt Rögnvaldi eru þær afar glysgjarnar.
Rögnvaldur segir að hretið sem skall á um daginn ekki
hafa komið að sök, þar sem lítið settist af snjó. Verra var
þó þegar tófur komust í varpið á dögunum en það getur
fælt fuglinn alveg af varpsvæðinu.
Að sögn Rögnvaldar hefur aldrei verið meira um tófú
en um 60 tófur hafa veiðst á Skaganum undangenginn
vetur og er það því þónokkuð áhyggjuefni fyrir æðar-
bændur. /BÞ
Norðurlandamót í körfubolta
Helga valin í landsliðið
í gærmorgun hélt A-landslið kvenna í
körfuknattleik af stað á
norðurlandamótið sem fram fer í Ostó
að þessu sinni. Fyrsti leikur liðsins á
mótinu er f dag, fimmtudag, gegn
heimastúlkum í liði Noregs.
Helga Einarsdóttir frá Sauðár-
króki var valin í liðið en hún hefur
verið leikmaður KR undanfarin
misseri. Þetta er sérstaklega ánægju-
legt fyrir Helgu sem hefur átt við
meiðsl að stríða í vetur.
Leikirnir verða í beinni tölfræði-
lýsingu á heimasíðu KKÍ í gegnum
BasketHotel. Mótinu lýkur á laugar-
dag ,/PF
Munda og Tóti eru
matgæóingar vikunnar
Pizzasnúðar og
pasta úr því
sem til er
Inga Birna Friðjónsdóttir
svarar Rabb-a-babbi
Áfulluí
fatahönnun og
fótbolta
Ljóóa-, smásögu- og
Ijósmyndakeppni Húss
frítímans
Sigursæl Edda
—CTcm^ÍII eh|3—
GRÆJUBÚÐIN ÞÍN
KJARNANUM HESTEYRI 2 SAUÐÁRKRÓKI © 455 9200
Við þjónustum bílinn þinn!
Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla,
vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun.
jdíBÍLA VERKSTÆÐI
Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570
Glæsilegir FULL HD skjáir frá BenQ
með 1920x1080 upplausn
ásamt SensEye tækni sem tryggir
ótrúlega skerpu og litadýpt.
STEINSMIÐJA
ÆT AKUREYRAR