Feykir


Feykir - 24.05.2012, Blaðsíða 4

Feykir - 24.05.2012, Blaðsíða 4
4 Ö^yÍL^I? 20/2012 ( RABB-A-BABB ) ni^"" .............................. nafn: Inga Birna Friðjónsdóttir. ÁRGANGUR: 1987. fjölskvlduhagir: Búin að vera í longdistanee sambandi í vetur en fæ að vera með mínum heitt elskaða fram á haustið, legg skype tímabundið á hilluna. Foreldrar og yngri bróðir á Króknum ásamt hundinum og svo er Elva systir í Reykjavík. búseta: Búin að vera í Danmörku undanfarinn vetur og verð búsett þan áfram næsta árið fyrir utan sumarið þar sem ég mun búa í Reykjavík. HVERRA MANNA ERTU: Auður SjÚM þjálfari Og oli@feykir.is listmáiari er móðir mín og Friðjón læknir með nýju mjöðmina er faðir minn. Mamma er hálfur skoti og hálfur Hafnfirðingur en pábbi er afkomandi Egils SkaJlagrimssonar úr Mýrarsýslu Starf / NÁM: Fatáhönmm í TEKOI Danmörku og svo er alveg hægt að telja fótboltann sem hlutastarf ef ekki fullt. bifreið: Opel Astra. hestöfl: Hef ekki hugmynd, ekki mörg allavega. hvað er í deiglunni: Klára skólann og svo er spennandi knattspyrnusumar framundan og Meistaradeild í haust. Inga Birna FRÁ LESENDUM I ÞÓRHILDUR SYLVÍA MAGNÚSDÓTTIR Hugsum vel um dýrin eins og okkar eigin börn Hvernig hefurðu það? -Alveg ofsalega gott. Hvernig nemandi varstu? -Ég var verðlaunuð fyrir alhliða náms- árangur í 10. bekk. Það kom mér og ekki síður foreldrum mínum reyndar alveg svakalega á óvart en ég hlýt að hafa verið að gera eitthvað rétt. Það var auðvelt að ná mér í chattið samt. Hvað er eftirminniiegast frá fermingardeginum? Að Anna Ragna fékk meiri pening en ég í sameiginlegu veislunni okkar... Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Móðir mín sagði einu sinni við mig að ég hafi látið það útúr mér á unga aldri að ég hafi bara ætlað að verða það sem yrði eftir, þegar allir aðrir væru þúnir að velja sér starf. Eftir það ætlaði ég að verða skúringakona en sá draumur fórst með bakmeiðslunum mínum. Mig langaði líka alltaf soldið mikið að verða lögga. Hvað hræðistu mest? Ég óttast ekki um eigið líf eða hagi, ég hræðist frekar að eitthvað slæmt komi fyrir þá sem standa mér næst. ABBA eða Rolling Stones? ABBA. Hver var fyrsta platan sem þú keyptir (eða besta)? Pabbi leyfði mér alltaf að kaupa eina og eina dansskífu þegar við þjuggum í Svíþjóð en þegar égflutti á Krókinn 10 ára að aldri sagði ég við hann að nú langaði mig í svona rapp disk. Við fórum í Skaffó og ég gekk glöð út með Big Willie Style með Will Smith. Hvaða lag er líklegast að þú takir í Kareókí? Hardest Part með Coldplay. Hverju missirðu helst ekki af í sjónvarpinu (fyrir utan fréttir)? Pepsi mörkunum. Besta bíómyndin (af hverju)? Alltaf að breyta, en ég fer í bíó til að upplifa hluti sem ekki er hægt að upplifa í raunveruleikanum svo ég elska myndir sem eru gerðar eftir ævintýrabókum. Hvað gerir þú betur en allir aðrir á þínu heimili? Ég er rosalega góð í að nota fólkið í kringum mig til að gera það sem ég nenni ekki að gera sjálf, sem er hrikalegur galli og ég er að vinna íhonum! Hvert er snilldarverkið þitt í eldhúsinu? Hef ekki fundið mína köllun í eldhúsinu ennþá. Hvað fer helst í innkaupakörfuna sem ekki er skrifað á tossamið- ann? Girnilegir ávextir. Hvað er í morgunmatinn? Hafra- gautur eða komflex með soya mjólk. Hvernig er eggið best? Eins og pabbi gerir það, steikt báðum megin og gert ofboðslega djúsí með einhverri aðferð sem ég er ekki enn búin að ná tökum á. Uppáhalds málsháttur? Googlaði og fann einn góðan: Nær ein kýrin pissar, pissa þær aliar. Ég er ekki málsháttamanneskja. Hvaða teiknimyndapersóna höfð- ar mest til þín? Tvíhöfða drekinn í Töfrasverðinu. Hver er uppáhalds bókin þín? Ég er Harry Potter lúði. Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og réðir hvert hún færi, þá færirðu...til Tælands. Hvað fer mest i taugarnar á þér í fari þínu? Þegar ég tala of mikið og þegar ég fresta hlutunum í staðinn fyrir að takast á við þá. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Óheiðarleiki, metnaðarleysi og þröngsýni. Enski boltinn - hvaða lið og af hverju? Manchester United - besta liðið með mesta hjartað. Hvaða íþróttamanni hefurðu mestar mætur á? Hef ákveðið að færa Paul Scholes upp í efsta sætið. Hvaða fræga manneskja mundir þú helst vilja vera og af hverju? Held ég verði að segja Beyonce. Hún virðistvera ífullkomnu jafnvægi ogvirkilega hamingjusöm ogfærað gera það sem hún elskar að gera, er ógeðslega falleg, alltof rík og nær að þroskast sem einstaklingur þrátt fyrir allt áreitið sem fylgir því að vera íhennarsporum. Hver var mikilvægasta persóna síðustu 100 ára að þínu mati? Ég ætla að segja hátísku hönnuðurinn Cristobal Balenciaga heitinn. Faðir hátískunnar, allir sem komu á eftir litu upp til hans. Ef þú ættir að dvelja alein/n á eyðieyju, hvaða þrjá hluti tækirðu með þér? Vagn á hjólum, exi og boga með örvum. Hver væri titillinn á ævisögu þinni? Sár, brjósklos og takkaskór. Ég á mjög erfitt með að melta það að sumir sem kalla sig bændur, svelti dýrin sín, vegna áhugaleysis. Þá spyr ég: Hvers vegna að hafa dýr? Sumir nenna ekki að smala og hugsa „tja, sldptir ekki um nokkrar kindur“ en jú, það skiptir máli, þær þurfa að borða eins og við. Ég tel að við eigum að hugsa um okkar dýr, stór sem smá, eins og við viljum láta hugsa um okkur og hvernig viljum við hugsa um börnin okkar. Við viljum hugsa vel um þau og viljum að þau hafi nóg að borða og þannig á að hugsa um dýrin oldcar. Þau eru máleysingjar sem geta lítið tjáð sig með orðum og það stingur mig svo innilega i hjartað að fólk geti verið svona viðbjóðslegt við dýrin sín. Ég held að það sé fyrir bestu, sérstaklega fyrir dýrin, að þeir sem engan áhuga hafa á að hugsa um sín dýr af fullri alvöru, eigi hreinlega að selja sinn búskap og snúa sér að einhverju öðru í lífinu því Skagfiróingurinn Axel Kárason hefur verió aó leika í dönsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik við mjög góðan orðstír en hann var kjörinn Bosman leikmaður ársins á dögunum af hinum þekkta körfuboltamiðli Eurobasket.com. Þá er átt við besta erlenda leikmanninn, að frátöldum bandarískum leikmönnum sem jafnan eru mjög áberandi. Axel leikur nú með Værlöse í Danmörku og samkvæmt búnaðarstarfsgrein er elcki þeirra starf. Ég veit það er takmarkað hvað hægt er að fylgjast með hvernig farið er með dýrin EN ef kvartað er og nauðsynlegt reynist að fylgjast með þeim sem kvartað er yfir, þá er rétta leiðinn að taka dýrin af þeim. Það hefur sýnt sig að þegar fylgst er með bændum taka þeir sig á, en svo fer þetta allt í sama farið og áður. Þetta er bara svo ómannlegt að koma svona fram við þessa yndislegu máUeysingja. Til er gott mál- tæki sem segir: „Komdu fram við aðra eins og þú vilt láta koma fram við þig“. Svo eru það útigangshross- in, þau þurfa umönnun yfir hörðustu mánuðina og það þarf að gefa þeim, þetta eru lifandi verur eins og við. Endilega tökum okkur öll saman og hugsum um okkar yndislegu dýr með kærleika. Þakka ykkur fyrir lesturinn. Þórhildur Sylvía Magnúsdóttir Hlíðarenda Körfúnni.is var hann með 11,4 stig að meðaltali í leik og tók 6,8 fráköst. Þá lék hann að jafnaði 32,33 mínútur í hverjum leik liðsins. Værlöse, lið Axels, hafn- aði í 7. sæti í dönsku úrvals- deildinni en í 1. umferð úrslita- keppninnar voru þeir sigraðir af Svendborg Rabbits, 3-0. Það má segja að Axel sé uppalin hjá Tindastóli en hann hóf körfuboltaferilinn hjá liðinu og lék með þeim til fjölda ára. Hann var einnig leikmaður hjá Skallagrími um tíma./BÞ Z»3« g;^a Viltu taka þátt í Rabb-a-babbi? Langar þig að vera með eða þekkirðu einhvern sem þér finnst að ætti að vera i Rabb-a-babbi? Sendu okkur póst á feykir@feykir.is Axel Kárason í dönsku úrvalsdeildinni Valinn Bosman- leikmaður ársins

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.