Feykir - 24.05.2012, Síða 4
4 Ö^yÍL^I? 20/2012
( RABB-A-BABB )
ni^"" ..............................
nafn: Inga Birna Friðjónsdóttir.
ÁRGANGUR: 1987.
fjölskvlduhagir: Búin að vera í longdistanee
sambandi í vetur en fæ að vera með mínum
heitt elskaða fram á haustið, legg skype
tímabundið á hilluna. Foreldrar og yngri
bróðir á Króknum ásamt hundinum og svo er
Elva systir í Reykjavík.
búseta: Búin að vera í Danmörku undanfarinn
vetur og verð búsett þan áfram næsta árið
fyrir utan sumarið þar sem ég mun búa í
Reykjavík.
HVERRA MANNA ERTU: Auður SjÚM þjálfari Og
oli@feykir.is
listmáiari er móðir mín og Friðjón læknir
með nýju mjöðmina er faðir minn. Mamma
er hálfur skoti og hálfur Hafnfirðingur en
pábbi er afkomandi Egils SkaJlagrimssonar úr
Mýrarsýslu
Starf / NÁM: Fatáhönmm í TEKOI Danmörku
og svo er alveg hægt að telja fótboltann sem
hlutastarf ef ekki fullt.
bifreið: Opel Astra.
hestöfl: Hef ekki hugmynd, ekki mörg allavega.
hvað er í deiglunni: Klára skólann og svo er
spennandi knattspyrnusumar framundan og
Meistaradeild í haust.
Inga Birna
FRÁ LESENDUM I ÞÓRHILDUR SYLVÍA MAGNÚSDÓTTIR
Hugsum vel um dýrin
eins og okkar eigin börn
Hvernig hefurðu það? -Alveg
ofsalega gott.
Hvernig nemandi varstu? -Ég
var verðlaunuð fyrir alhliða náms-
árangur í 10. bekk. Það kom mér
og ekki síður foreldrum mínum
reyndar alveg svakalega á óvart
en ég hlýt að hafa verið að gera
eitthvað rétt. Það var auðvelt að ná
mér í chattið samt.
Hvað er eftirminniiegast frá
fermingardeginum? Að Anna
Ragna fékk meiri pening en ég í
sameiginlegu veislunni okkar...
Hvað ætlaðir þú að verða þegar
þú yrðir stór? Móðir mín sagði
einu sinni við mig að ég hafi látið
það útúr mér á unga aldri að ég
hafi bara ætlað að verða það
sem yrði eftir, þegar allir aðrir
væru þúnir að velja sér starf.
Eftir það ætlaði ég að verða
skúringakona en sá draumur fórst
með bakmeiðslunum mínum. Mig
langaði líka alltaf soldið mikið að
verða lögga.
Hvað hræðistu mest? Ég óttast
ekki um eigið líf eða hagi, ég
hræðist frekar að eitthvað slæmt
komi fyrir þá sem standa mér
næst.
ABBA eða Rolling Stones? ABBA.
Hver var fyrsta platan sem þú
keyptir (eða besta)? Pabbi leyfði
mér alltaf að kaupa eina og eina
dansskífu þegar við þjuggum í
Svíþjóð en þegar égflutti á Krókinn
10 ára að aldri sagði ég við hann
að nú langaði mig í svona rapp
disk. Við fórum í Skaffó og ég gekk
glöð út með Big Willie Style með
Will Smith.
Hvaða lag er líklegast að þú
takir í Kareókí? Hardest Part með
Coldplay.
Hverju missirðu helst ekki af í
sjónvarpinu (fyrir utan fréttir)?
Pepsi mörkunum.
Besta bíómyndin (af hverju)?
Alltaf að breyta, en ég fer í bíó til
að upplifa hluti sem ekki er hægt
að upplifa í raunveruleikanum svo
ég elska myndir sem eru gerðar
eftir ævintýrabókum.
Hvað gerir þú betur en allir aðrir
á þínu heimili? Ég er rosalega góð
í að nota fólkið í kringum mig til að
gera það sem ég nenni ekki að gera
sjálf, sem er hrikalegur galli og ég er
að vinna íhonum!
Hvert er snilldarverkið þitt í
eldhúsinu? Hef ekki fundið mína
köllun í eldhúsinu ennþá.
Hvað fer helst í innkaupakörfuna
sem ekki er skrifað á tossamið-
ann? Girnilegir ávextir.
Hvað er í morgunmatinn? Hafra-
gautur eða komflex með soya
mjólk.
Hvernig er eggið best? Eins og
pabbi gerir það, steikt báðum
megin og gert ofboðslega djúsí með
einhverri aðferð sem ég er ekki enn
búin að ná tökum á.
Uppáhalds málsháttur? Googlaði
og fann einn góðan: Nær ein kýrin
pissar, pissa þær aliar. Ég er ekki
málsháttamanneskja.
Hvaða teiknimyndapersóna höfð-
ar mest til þín? Tvíhöfða drekinn í
Töfrasverðinu.
Hver er uppáhalds bókin þín? Ég
er Harry Potter lúði.
Ef þú gætir hoppað upp í flugvél
og réðir hvert hún færi, þá
færirðu...til Tælands.
Hvað fer mest i taugarnar á þér í
fari þínu? Þegar ég tala of mikið og
þegar ég fresta hlutunum í staðinn
fyrir að takast á við þá.
Hvað fer mest í taugarnar á
þér í fari annarra? Óheiðarleiki,
metnaðarleysi og þröngsýni.
Enski boltinn - hvaða lið og af
hverju? Manchester United - besta
liðið með mesta hjartað.
Hvaða íþróttamanni hefurðu
mestar mætur á? Hef ákveðið
að færa Paul Scholes upp í efsta
sætið.
Hvaða fræga manneskja mundir
þú helst vilja vera og af hverju?
Held ég verði að segja Beyonce.
Hún virðistvera ífullkomnu jafnvægi
ogvirkilega hamingjusöm ogfærað
gera það sem hún elskar að gera,
er ógeðslega falleg, alltof rík og nær
að þroskast sem einstaklingur þrátt
fyrir allt áreitið sem fylgir því að vera
íhennarsporum.
Hver var mikilvægasta persóna
síðustu 100 ára að þínu mati? Ég
ætla að segja hátísku hönnuðurinn
Cristobal Balenciaga heitinn. Faðir
hátískunnar, allir sem komu á eftir
litu upp til hans.
Ef þú ættir að dvelja alein/n á
eyðieyju, hvaða þrjá hluti tækirðu
með þér? Vagn á hjólum, exi og
boga með örvum.
Hver væri titillinn á ævisögu
þinni? Sár, brjósklos og takkaskór.
Ég á mjög erfitt með að melta
það að sumir sem kalla sig
bændur, svelti dýrin sín,
vegna áhugaleysis. Þá spyr ég:
Hvers vegna að hafa dýr?
Sumir nenna ekki að smala og
hugsa „tja, sldptir ekki um
nokkrar kindur“ en jú, það
skiptir máli, þær þurfa að
borða eins og við. Ég tel að við
eigum að hugsa um okkar dýr,
stór sem smá, eins og við
viljum láta hugsa um okkur og
hvernig viljum við hugsa um
börnin okkar. Við viljum hugsa
vel um þau og viljum að þau
hafi nóg að borða og þannig á
að hugsa um dýrin oldcar. Þau
eru máleysingjar sem geta lítið
tjáð sig með orðum og það
stingur mig svo innilega i
hjartað að fólk geti verið svona
viðbjóðslegt við dýrin sín.
Ég held að það sé fyrir
bestu, sérstaklega fyrir dýrin,
að þeir sem engan áhuga hafa á
að hugsa um sín dýr af fullri
alvöru, eigi hreinlega að selja
sinn búskap og snúa sér að
einhverju öðru í lífinu því
Skagfiróingurinn Axel
Kárason hefur verió aó leika
í dönsku úrvalsdeildinni í
körfuknattleik við mjög
góðan orðstír en hann var
kjörinn Bosman leikmaður
ársins á dögunum af hinum
þekkta körfuboltamiðli
Eurobasket.com.
Þá er átt við besta erlenda
leikmanninn, að frátöldum
bandarískum leikmönnum
sem jafnan eru mjög áberandi.
Axel leikur nú með Værlöse í
Danmörku og samkvæmt
búnaðarstarfsgrein er elcki
þeirra starf. Ég veit það er
takmarkað hvað hægt er að
fylgjast með hvernig farið er
með dýrin EN ef kvartað er og
nauðsynlegt reynist að fylgjast
með þeim sem kvartað er yfir,
þá er rétta leiðinn að taka dýrin
af þeim. Það hefur sýnt sig að
þegar fylgst er með bændum
taka þeir sig á, en svo fer þetta
allt í sama farið og áður. Þetta
er bara svo ómannlegt að koma
svona fram við þessa yndislegu
máUeysingja. Til er gott mál-
tæki sem segir: „Komdu fram
við aðra eins og þú vilt láta
koma fram við þig“.
Svo eru það útigangshross-
in, þau þurfa umönnun yfir
hörðustu mánuðina og það
þarf að gefa þeim, þetta eru
lifandi verur eins og við.
Endilega tökum okkur öll
saman og hugsum um okkar
yndislegu dýr með kærleika.
Þakka ykkur fyrir lesturinn.
Þórhildur Sylvía Magnúsdóttir
Hlíðarenda
Körfúnni.is var hann með 11,4
stig að meðaltali í leik og tók 6,8
fráköst. Þá lék hann að jafnaði
32,33 mínútur í hverjum leik
liðsins. Værlöse, lið Axels, hafn-
aði í 7. sæti í dönsku úrvals-
deildinni en í 1. umferð úrslita-
keppninnar voru þeir sigraðir af
Svendborg Rabbits, 3-0.
Það má segja að Axel sé
uppalin hjá Tindastóli en hann
hóf körfuboltaferilinn hjá liðinu
og lék með þeim til fjölda ára.
Hann var einnig leikmaður hjá
Skallagrími um tíma./BÞ
Z»3« g;^a
Viltu taka þátt
í Rabb-a-babbi?
Langar þig að vera með eða
þekkirðu einhvern sem þér finnst að ætti að vera i Rabb-a-babbi?
Sendu okkur póst á feykir@feykir.is
Axel Kárason í dönsku úrvalsdeildinni
Valinn Bosman-
leikmaður ársins