Feykir - 24.05.2012, Side 5
20/2012
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR FEYKIS
Knattspyrna :: Drangey - KFG 3-3
Glutruðu niður
forystunni
Benjamín Jóhannes Gunnlaugarson fagnar eftir að hafa skorað annað mark Drangeyinga.
Þriðjudeildarliðið Drangey á
Sauðárkróki lék sinn fyrsta
deildarleik í knattspyrnu á
sunnudag er KFG úr
Garðabæ kom í heimsókn.
Leikið var við ágætar
aðstæður, fínt veður og
stemningin góð.
Hilmar Þór Kárason kom
Drangey yfir strax á 6. mínútu
leiksins og voru Drangeyingar
líklegri til að setja annað en
gestirnir að jafna. Ekki dró þó
til tíðinda fyrr en komið var að
lokum fyrri hálfleiks er Benja-
mín Jóhannes Gunnlaugarson
þrumaði boltanum af öryggi í
net Garðbæinganna og allt
útlit fyrir góða 2-0 stöðu
heimamanna í hálfleik. Ekki
leið þó mínúta frá því gestirnir
tóku miðju að þeir ná að koma
boltanum í net heimamanna
og dómarinn flautaði til
hálfleiks.
Seinni hálfleikur var á
svipuðum nótum, heima-
menn virtust sterkari aðihnn í
leiknum og svo fór að Hilmar
Þór náði að skora sitt annað
mark í leiknum og staðan
orðin 3-1 fyrir heimamenn
sem þóttu vera með unnin leik
í höndunum. En eins og
gömul speki segir þá er
leikurinn ekki búinn fyrr en
dómarinn flautar hann af. Og
dómarinn notaði flautuna í
fleiri verkefni. Á 78. mínútu
fékk Bjarni Smári áminningu
og svo aðra til tíu mínútum
seinna fyrir kjaftbrúk og það
þýddi rautt spjald og hann því
rekinn af velli.
í millitíðinni dæmdi dóm-
arinn umdeilt brot á Bjarka
Árna innan vítateigs og
gestirnir fá víti sem þeir nýta
vel og minnka muninn í eitt
mark. Nú vonuðu áhorfendur
sem flestaUir voru á bandi
heimaliðsins að leiktíminn
rynni út án þess að fleiri áfoll
dyndu yfir, en svo gott var það
ekki. Á síðustu mínútu Ieiksins
ná gestirnir að jafna leikinn og
stela dýrmætu stigi.
-Við vorum rnikið sterkari
aðilinn í þessum leik og áttum
að vinna hann, sagði Donni
þjáfari eftir leikinn.- Við erum
mjög sterkt lið í þessari deild
og framhaldið verður feykilega
skemmtilegt og strákarnir eiga
eftir að standa sig vel. Frábært
Íið./PF
Landslið U16 í körfubolta
Pétur Rúnar meiddist
Tindstælingurinn Pétur Rúnar
Birgisson, landsliðsmaður
U-16 í körfubolta varð fyrir þvf
óhappi að meiðast á læri f
leik gegn Svíum á Norður-
landamótinu í Solna á
mánudaginn.
Meiðslin voru þess eðlis að
hann gat ekki verið með í síðasta
leik liðsins á mótinu gegn
Dönum. Fyrstu þrjá leikina var
Pétur byrjunarliðsmaður en
íslenski hópurinn steig vel upp í
fjarveru Péturs og unnu Danina
66 -58.
Pétur fékk högg á lærið í
leiknum á móti Svíunum en gat
spilað áfram meðan hann var
heitur. Þrátt fyrir þetta varð
Pétur stigahæstur í liðinu með
12 stig, aukþess sem hann spil-
aði mest allra íslensku strák-
anna, tæpar 32 mínútur. Því
miður fýrir okkar ágæta
landslið tapaðist leikurinn 52-
59. /PF
> www.feykir.is/ithrottir
Steinar og Bára á Norðurlandamótinu í Boccia
Kepptu fyrir íslands hönd
kappi við Norðmenn, Finna og
Dani og varð hún líka að játa sig
sigraða og komst ekki í úrslit.
Á sunnudeginum keppti
Bára í liðakeppni og var fyrri
umferð haldin fýrir hádegi og
seinni eft ir hádegi en hennar lið
komst ekki áfrarn í úrslit.
íslendingar komust í 3. sæti í
einum riðli en Svíar hirtu flest
gullin. Norðurlandaþjóðirnar
halda mótin til skiptis og verður
næsta mót haldið í Svíþjóð 2014.
Bocciaæfingar hjá Grósku
hafa verið haldnar einu sinni í
viku í íþróttahúsinu á
Sauðárkróki og hefur um tíu
manna hópur fatlaðra auk eldri
borgara stundað þær af kappi.
Norðurlandamótsfararnir Bára
og Steinar hafa verið sigursæl í
sínum riðlum og hefur Bára oft
orðið íslandsmeistari í sinum
riðli. Fleiri Gróskukeppendur
hafa einnig náð góðum árangri
enda áhuginn hjá félögum
mikill og umgjörðin góð hjá
þeim sem halda utan um
félagið. /PF
Norðurlandameistaramót í
boccia fór fram í Reykjavík
dagana 12. -13. maí sl. en
þar kepptu 79 einstaklingar
frá íslandi, Noregi,
Danmörku, Svíþjóð og
Færeyjum auk þjálfara og
fararstjóra, alls um 120
erlendir gestir.
Meðal keppenda voru þau
Steinar Þór Björnsson og
Aðalheiður Bára Steinsdóttir
frá íþróttafélaginu Grósku í
Skagafirði.
Á laugardeginum kepptu
þau Bára og Steinar hvort í
sínum flokknum í einstakl-
ingskeppninni. Steinar keppti í
riðh pc-1 bæði við Svía og
Norðmann en varð að láta í
minni pokann í þetta skiptið en
Bára keppti í riðli pc-2 og atti
Bára og Steinar stóðu sig vel á NorðurianrJamótinu íboccia þó ekki kæmust þau á verðiaunapallinn.
Knattspyrna :: Tindastóll - Víkingur 0.0-1
Ólafsvíkingar voru
sterkari á Króknum
Lið Tindastóls fékk Víking
Ólafsvík í heimsókn á
Sauðárkróksvöll á
laugardaginn. Leikið var við
sæmilegar aðstæður á
Króknum þó svo hitinn hafi
ekki verið uppá margar
gráðurnar.
Stólarnir léku undan vindi í
fýrri hálfleik og voru heldur
sterkari aðilinn frarnan af. Þeim
tókst þó ekki að skora og það
voru gestirnir sem fengu betri
færi en nýr markvörður
Tindastóls, Sebastian Furness,
varði vel. Hann kom hins vegar
engum vörnum við þegar Guð-
mundur Hafsteinsson komst
inn fyrir vörn Stólanna á 28.
mínútu og skoraði af öryggi,
setti boltann í fjærhornið.
Tindastólsmenn virtust heillum
horfnir effir þetta áfall og voru
heppnir að sleppa inn í klefa
aðeins einu marki undir.
Varnarleikur Stólanna batn-
aði í síðari hálfleik en illa gekk
að skapa færi en lið Ólafsvíkinga
er vel skipað og það reyndist
ekki hlaupið að því að koma
þeim í opna skjöldu. Tinda-
stólsmenn gátu því ekki kvartað
undan úrslitunum í leikslok,
þeir voru lakari aðilinn að þessu
sinni.
Þrátt fyrir töp í fyrstu
tveimur umferðunum eru
Stólarnir í 10. sæti deildarinnar
en Þróttur R. og Leiknir R. hafa
einnig tapað sínum leikjum en
eru með lakara markahlutfall. í
næstu umferð fara strákarnir til
Bolungarvíkur þann 26. maí en
næsti heimaleikur er gegn ÍR
laugardaginn 2. júní kl. 14:00.
-Við áttum í rauninni ekkert
meira skilið en við fengum í
leiknum. Þeirvorubetri sóknar-
lega en við. Við vörðumst ágæt-
lega fannst mér en þeir opnuðu
okkur samt með beinskeyttum
sóknarleik, sagði Halldór Jón
Sigurðsson eða Donni þjálfari
um leikinn. /ÓAB & PF