Morgunblaðið - 02.01.2018, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
„Okkur líður bara rosa vel,“ sagði
Sara Rut Unnarsdóttir, móðir fyrsta
barns ársins, drengs sem fæddist á
Sjúkrahúsinu á Akureyri klukkan
3:15 á nýársnótt, í samtali við mbl.is í
morgun.
Drengurinn er annað barn Söru
Rutar og Garðars Marvins Haf-
steinssonar, en fyrir eiga þau dóttur
á fjórða aldursári. Fjölskyldan er
búsett á Akureyri, en Sara Rut er
Garðbæingur og Garðar Marvin er
frá Vopnafirði.
Þau segjast hafa þurft að bíða
töluvert eftir komu drengsins, en
rúmar tvær vikur eru liðnar frá áætl-
uðum fæðingardegi.
„Settur dagur var 17. desember,
svo við erum búin að bíða alveg í sex-
tán daga.“
Sara segir að þau hafi verið að
vonast eftir því að drengurinn léti
ekki sjá sig fyrr en á nýju ári. Það
gekk eftir. „Það var eiginlega stefn-
an frá upphafi, að ná þessu,“ segir
hin lukkulega móðir nýársdrengsins.
Drengurinn lét bíða eftir sér
Fyrsta barn árs-
ins 2018 fæddist á
Akureyri
Morgunblaðið/Skapti
Tímamót Gleðin leyndi sér ekki þegar stóra systir fékk bróður sinn í fangið.
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhann-
esson, sæmdi í gær tólf Íslendinga
riddarakrossi íslensku fálkaorð-
unnar. Þeir eru: Albert Albertsson
fv. aðstoðarforstjóri Hitaveitu Suð-
urnesja, fyrir framlag á vettvangi
jarðhitanýtingar; Álfrún Gunn-
laugsdóttir rithöfundur og fv. pró-
fessor, fyrir framlag til bókmennta,
Brynhildur Guðjónsdóttir leikkona,
fyrir framlag til íslenskrar leik-
listar; Gunnar V. Andrésson ljós-
myndari, fyrir störf á vettvangi
fjölmiðla; Halldóra Björnsdóttir
íþróttafræðingur, fyrir framlag til
lýðheilsu, Haukur Ágústsson fv.
skólastjóri, Akureyri, riddarakross
fyrir framlag á vettvangi skólamála
og fjarkennslu; Lárus Blöndal for-
seti Íþrótta- og Ólympíusambands
Íslands, fyrir störf í þágu íþrótta;
Ólafur Dýrmundsson fv. ráðunaut-
ur, fyrir störf á vettvangi íslensks
landbúnaðar; Ólöf Nordal myndlist-
armaður, fyrir framlag til mynd-
listar; Sigfús Kristinsson trésmíða-
meistari á Selfossi, fyrir framlag til
atvinnulífs og iðnmennta; Sig-
þrúður Guðmundsdóttir for-
stöðukona Kvennaathvarfs, fyrir
störf að velferð og öryggi kvenna
og Vilborg Oddsdóttir félagsráð-
gjafi, fyrir framlag til samhjálpar
og baráttu gegn fátækt.
Forseti Íslands sæmdi Íslendinga riddarakrossinum venju samkvæmt á nýársdag
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Tólf fengu
fálkaorðu
Axel Helgi Ívarsson
axel@mbl.is
Miðnæturbátsferðir á gamlárskvöld njóta sífellt meiri
vinsælda. Merki um það eru að á bilinu 350-400 manns
voru um borð í þremur bátum fyrirtækisins Special To-
urs og um 130-140 manns í borð í bát Eldingar í slíkum
ferðum á gamlárskvöld.
Fyrirtækið Special Tours hefur boðið upp á slíkar sigl-
ingar á gamlárskvöld í nokkur ár og njóta þær mikilla
vinsælda að sögn Hilmars Stefánssonar, framkvæmda-
stjóra Special Tours. „Við höfum aldrei farið með eins
marga og núna,“ segir Hilmar í samtali við Morgunblað-
ið.
Einstakt sjónarhorn frá hafinu
Siglingin gefur farþegum einstaka sýn á flugeldasýn-
ingarnar á höfuðborgarsvæðinu og voru aðstæður með
besta móti á gamlárskvöld. „Við siglum út um klukkan
ellefu og erum til hálf eitt eftir miðnætti þannig að við
sjáum mestu skotlætin. Svo er talið niður í nýtt ár fyrir
miðnætti og skálað um borð.“ Þá segir Hilmar að það séu
eingöngu erlendir ferðamenn sem sæki í siglingarnar.
Mjög góð stemning var um borð í skipi hvalaskoðunar-
fyrirtækisins Eldingar á gamlárskvöld, að sögn Ragn-
heiðar Grétarsdóttur, framkvæmdastjóra. Mikið var um
Íslendinga í ferðinni, ólíkt því sem gengur og gerist í öðr-
um skoðunarferðum Eldingar, segir Ragnheiður enn-
fremur í samtali við Morgunblaðið um siglinguna. Er
þetta þriðja árið sem Elding býður upp á skoðunarferð
sem þessa á gamlárskvöld.
Auðvelt að manna vaktir
Þau Hilmar og Ragnheiður segja bæði aðspurð að vel
gangi að manna vaktir um jólin og á gamlárskvöld. „Við
héldum að þetta yrði vandamál þegar við fórum af stað
með þessar ferðir fyrir þremur árum en þegar á hólminn
var komið var þetta ekkert mál,“ segir Ragnheiður. Þá
segir hún að eini tíminn sem lokað sé hjá Eldingu um jól-
in sé aðfangadagskvöld. Hilmar svarar aðspurður að
enginn frídagur sé hjá Special Tours um jólin.
Hefur aðsókn í ferðir yfir hátíðarnar hjá bæði Eldingu
og Special Tours verið afar góð. Er það sérstaklega rakið
til þess hve vel hefur viðrað á landi og sjó.
Fjölmargir fögnuðu nýári úti á hafi
Miðnætursiglingar á gamlárskvöld njóta mikilla vinsælda
Aðstæður á sjó voru með allra besta móti yfir hátíðarnar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fegurð Einstök sýn fæst með því að fylgjast með flugeldum af hafi úti.