Morgunblaðið - 02.01.2018, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 02.01.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2018 Meira til skiptanna Í áramótaávarpi sínu réttlættiforsætisráðherra skattahækk- anir á fjármagnseigendur með vís- un í ójöfnuð og að hér á landi væri hann mestur í eignatekjum.    Nú er það án efasvo að ójöfn- uður er víðar mest- ur í eignatekjum. Það gefur augaleið. En það sem meira máli skiptir er að ójöfnuður er óvíða minni en hér á landi.    Þá skiptir máli að skattheimta áÍslandi er sú þriðja hæsta hjá ríkjum OECD. Sú staðreynd, ásamt því að jöfnuður er með mesta móti hér á landi, ætti að vega afar þungt þegar fjallað er um skattkerfið.    Slíkar staðreyndir ættu að gefaríkisstjórn til kynna að hér þarf að lækka skatta en ekki hækka þá.    En ef tekið væri mark á röksemdforsætisráðherra og litið til hennar í samhengi við áðurnefndar staðreyndir, að skattheimta hér sé með því mesta og jöfnuður sömu- leiðis, þá blasir við að nauðsynlegt er að hraða lækkun annarra skatta en þess sem forsætisráðherra hefur haldið fram að nauðsyn hafi borið til að hækka.    Það getur tæpast verið sérstaktmarkmið ríkisstjórnarinnar að Ísland klifri áfram upp listann yfir þau ríki sem búa við þyngstu skatt- byrðarnar.    Vinstri grænir gætu að vísumögulega litið á slíkt klifur sem góðan árangur, en eru ekki fleiri flokkar í ríkisstjórninni? Katrín Jakobsdóttir Öllum „rökum“ beitt til skatta- hækkana STAKSTEINAR Veður víða um heim 1.1., kl. 18.00 Reykjavík -5 léttskýjað Bolungarvík -2 alskýjað Akureyri 1 snjókoma Nuuk -17 heiðskírt Þórshöfn 4 alskýjað Ósló 5 alskýjað Kaupmannahöfn 5 rigning Stokkhólmur 2 þoka Helsinki 1 súld Lúxemborg 4 rigning Brussel 5 rigning Dublin 7 skýjað Glasgow 4 rigning London 6 skúrir París 8 skúrir Amsterdam 7 súld Hamborg 6 skýjað Berlín 7 heiðskírt Vín 6 þoka Moskva 0 alskýjað Algarve 16 heiðskírt Madríd 10 skýjað Barcelona 14 heiðskírt Mallorca 15 heiðskírt Róm 12 léttskýjað Aþena 13 heiðskírt Winnipeg -24 léttskýjað Montreal -23 léttskýjað New York -10 heiðskírt Chicago -21 heiðskírt Orlando 14 þoka Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 2. janúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 11:18 15:46 ÍSAFJÖRÐUR 12:00 15:14 SIGLUFJÖRÐUR 11:45 14:55 DJÚPIVOGUR 10:56 15:07 Met var slegið í heitavatnsnotkun á höfuðborgar- svæðinu á milli klukkan 16:30 og 17:30 á gamlárs- dag. Svo virðist sem fólk hafi bókstaflega flykkst í bað á þessari einu klukkustund þegar rennslið í hitaveitu Veitna varð alls 16.384 rúmmetrar. Með því var slegið met í klukkustundarrennsli á heitu vatni frá þrettándanum 2014, en það var 16.087 rúmmetrar. Raunar stappaði nærri á aðventunni og alveg fram að jólum, að því er kemur í tilkynningu frá Veitum, að hið þriggja ára gamla met yrði sleg- ið, enda hefur verið kuldatíð suðvestanlands að und- anförnu og stundum brunagaddur. Mikil orka er í þessum tæplega sextán og hálfri milljón lítra af heitu vatni og sé aflið reiknað til kunnuglegri stærða svarar það til hátt í þúsund megavatta. Það er á við Kárahnjúka- og Búrfells- virkjanir, segja Veitur. Rúmlega helming heita vatnsins fá Veitur frá jarðgufuvirkjunum Orku náttúrunnar á Hengils- svæðinu, það er Nesjavalla- og Hellisheiðarvirkj- unum. Um 40% eru sótt í jarðhitasvæði að Reykjum í Mosfellsbæ og tíundi hluti í jarðhitasvæði í Laug- arnesi og Elliðaárdal í Reykjavík sbs@mbl.is Heitavatnsmetið féll á gamlársdag  16.384 rúmmetrar runnu á klukkustund Morgunblaðið/Sigurður Bogi Nesjavellir Jarðhitastaður sem er mikilvægur orkubrunnur fyrir allt höfuðborgarsvæðið. Alls létust 15 manns í 13 banaslys- um í umferðinni árið 2017. Var rútuslysið á Kirkjubæjarklaustri 27. desember síðastliðinn það þrett- ánda en í slysinu lést ein kona. Þá voru tólf fluttir alvarlega slasaðir á á Landspítalann. Atvikaðist slysið með þeim hætti að rúta með á fjórða tug kínverskra ferðamanna lenti utan vegar og valt eftir árekstur við fólksbifreið. Eru banaslys síðasta árs færri en á síðustu tveimur árum á undan þegar litið er á slysatölur Sam- göngustofu. Árið 2016 urðu 18 banaslys þar sem 18 manns létu líf- ið. Árið 2015 voru 16 banaslys þar sem 16 manns létust. Árið 2014 sker sig úr mynstri síðustu ára en þá létu fjórir lífið í þremur bana- slysum. axel@mbl.is 15 létust í umferðinni Morgunblaðið/Sigurður Bogi Umferðarslys Minningarskiltið sem er við Suðurlandsveg í Svínahrauni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.