Morgunblaðið - 02.01.2018, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 02.01.2018, Blaðsíða 25
Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Til sölu Askalind 4, Kóp. Sími 564 1864 www.vetrarsol.is B&S mótor með rafstar, 249cc Dreing 1 – 10 metrar 69cm vinnslubreidd Með ljósum og á grófum dekkjum Frábær í mikinn og erðan snjó Snow Blizzard snjóblásari Til sölu sauðfjárkvóti 50 ærgildi. Upplýsingar í síma 849 6347. Tilboð óskast sent á netfang borgarg@simnet.is Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Bátar      Flatahrauni 25 - Hafnarfirði Sími 564 0400 www.bilaraf.is Mikið úrval í bæði 12V og 24V. Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD . Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 696 0042, Raðauglýsingar Styrkir Virk starfsendurhæfingarsjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki sem veittir eru til virkni- úrræða, rannsóknarverkefna og uppbyggingar- og þróunarverkefna. VIRK úthlutar styrkjunum tvisvar á ári og þurfa umsóknir um styrkina að hafa borist sjóðnum fyrir 15. janúar eða 15. ágúst ár hvert. Ákvarðanir um styrkveitingar eru teknar í fram- haldinu af framkvæmdastjórn VIRK, í mars og október, að fenginni umsögn frá sérfræðingum VIRK. Nánari upplýsingar, stefnur og reglur varðandi umsóknir á styrkjum til VIRK og umsóknar- eyðublöð má finna á www.virk.is Umsóknarfrestur er til 15. janúar 2018. Styrkir VIRK fasteignir MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2018 ✝ AðalbjörgKristjánsdóttir fæddist 25. október 1923 á Seljalandi undir Vestur- Eyjafjöllum í Rang- árvallasýslu. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Seljahlíð 24. desember 2017. Foreldrar Að- albjargar voru Arn- laug Samúelsdóttir húsfreyja, f. 26. september 1887 í Hvammi undir Vestur- Eyjafjöllum, d. 11. desember 1968, og Kristján Þóroddur Ólafsson bóndi, f. 15. apríl 1890 í Dalsseli undir Vestur- Eyjafjöllum, d. 6. apríl 1945. Systkini Aðalbjargar voru Ólafur, f. 1915, Magnús, f. 1918, Sigríður, f. 1920, Þuríður, f. 1921 (dó ung), Högni, f. 1923 (dó ung- ur), Þuríður, f. 1926, og Marta, f. 1929. Uppeldissystir hennar var Svanlaug Kristjana, f. 1937. Eiginmaður Aðalbjargar var Andrés Haukur Ágústsson, f. 16. október 1923 í Hemlu í Vestur- Landeyjum, d. 10. júní 2016. Dóttir Aðalbjargar og fóst- urdóttir Andrésar var Björg Arndís Baldvinsdóttir, f. 22. sept- ember 1947, d. 29. september 2011. Eiginmaður Bjargar var Friðrik Karl Friðriksson, f. 1953. Þau skildu. Sambýlismaður Bjargar var Helgi Magnússon, f. 1946. Sonur Bjargar og Friðriks Dokic, f. 1942, er Georg Bergþór Friðriksson, f. 1969. Eiginkona Eiginmaður Ingibjargar er Hreinn Guðmundsson, f. 1941. Börn þeirra eru: a) Andrés Hauk- ur Hreinsson, f. 1969. Eiginkona Andrésar Hauks er Kristín Rós Björnsdóttir, f. 1971. Börn þeirra eru: Björn Kristinn, f. 1998, Ingi- björg, f. 1998, Andrés Haukur, f. 11. nóvember 2004, og Guð- mundur Ingi, f. 11. nóvember 2004, d. 11. nóvember 2004. b) Rakel Ósk Hreinsdóttir, f. 1981. Eiginmaður Rakelar er Hans Adolf Hjartarson, f. 20. 1977. Börn þeirra eru: Helena Ósk, f. 2004, og Hjörtur, 2007. 3) Arndís Rós Hreinsdóttir, f. 4. 1989. Aðalbjörg ólst upp við venju- leg bústörf á búi foreldra sinna á Seljalandi og stundaði skóla- göngu eftir því sem þá tíðkaðist. Veturinn 1945-1946 stundaði hún nám í Kvennaskólanum á Blönduósi. Veturinn 1946-1947 starfaði hún í gróðurhúsum Hér- aðsskólans á Laugarvatni. Aðal- björg gekk í hjónaband með Andrési Ágústssyni árið 1950 og þau settust að í Ásgarði í Hvol- hreppi en byggðu sér síðan hús á Hvolsvelli, fluttu þangað 1951 og voru meðal frumbyggja þar. Andrés var langleiðabílstjóri og var burtu langa daga en Aðal- björg sinnti auk húsmóðurstarf- ans ýmsum tilfallandi verkefnum á Hvolsvelli. Haustið 1967 fluttu þau Andrés til Reykjavíkur, Að- albjörg fór síðan að vinna í Heyrnleysingjaskólanum og starfaði þar næstu 20 árin. Þau Andrés fluttu á hjúkrunarheim- ilið Seljahlíð árið 2009 og áttu þar góða vist saman uns Andrés lést 2016. Útför Aðalbjargar fer fram frá Seljakirkju í dag, 2. janúar 2018, og hefst athöfnin klukkan 13. Georgs var Hrönn Ólína Jörunds- dóttir, f. 1978. Þau skildu. Börn þeirra eru: Eiríkur Freyr, f. 2005, Ásdís Rún, f. 2007, og Iðunn Ragna, f. 2011. Sambýliskona Berg- þórs var Jóhanna Rós Norðfjörð Guð- mundsdóttir, f. 1974. Barn þeirra er Salka Björg Norðfjörð Berg- þórsdóttir, f. 2014. Börn Aðalbjargar og Andrés- ar eru: 1) Ágúst Ingi Andrésson, f. 22. febrúar 1950. Eiginkona Ágústs Inga er Bryndís Jóns- dóttir, f. 1951. Börn þeirra eru: a) Aðalbjörg Inga, f. 1970. Sam- býlismaður Aðalbjargar var Guð- mundur Andersson, f. 1963. Þau slitu samvistum. Börn þeirra eru: Sindri Snær, f. 1994, Eik, f. 1996, og Birkir Snær, f. 1999. 2) Viðar, f. 18. janúar 1973. Sonur Viðars og Ingu Óskar Rúnarsdóttur, f. 1969, er Ágúst Halldór, f. 1999. Eiginkona Viðars er Lilja Hall- dóra Sturludóttir, f. 1973. Fóst- urbörn Viðars og börn Lilju eru Alma Dögg Gunnarsdóttir, f. 1993, og Sturla Páll Gunnarsson, f. 1998. Dóttir Viðars og Lilju er Brynja Dís, f. 2007. 3) Elfa Björk, f. 16. maí 1982. Sambýlismaður Elfu er Björgvin Pálmar Jóns- son, f. 1975. Börn þeirra eru: Þórey, f. 2007, Hildur, f. 2008, og Jón Ingi, f. 2011. 2) Ingibjörg Andrésdóttir, f. 17. ágúst 1951. Þú varst alltaf svo góð við mig, ég fékk athygli þína óskipta, þú lifðir fyrir mig, hlustaðir á mig, talaðir við mig, leiðbeindir mér, lékst við mig, sýndir mér þolinmæði, agaðir mig í kærleika, sagðir mér sögur, fræddir mig og baðst með mér. Þú varst alltaf svo nærgætin og skilningsrík, umhyggjusöm og hjartahlý. Þú varst skjól mitt og varnarþing. Við stóðum saman í blíðu og stríðu, vorum sannir vinir. Mér þótti svo undur vænt um þig, elsku mamma mín. (Sigurbjörn Þorkelsson) Guð geymi þig elsku mamma mín, ég veit að þú ert í góðum höndum ásamt elsku pabba og Bjöggu systur. Þín Ingibjörg. Ingibjörg Andrésdóttir. Elsku amma mín. Nú þegar þú ert farin rifjast upp svo margar góðar minning- ar af þér og elsku afa. Ferðalög- in sem við fórum í þegar ég var lítil. Dásamlegu pönnukökurnar sem þú bakaðir alltaf þegar við komum í heimsókn á Háaleit- isbrautina. Þegar við kíktum á hestana hans afa öll saman og ég fékk að fara á bak. Hlýju hend- urnar og yndislegu faðmlögin. Ég er viss um að þú hafir heyrt í mér og Rakel systur þeg- ar við komum til þín á Þorláks- messu. Ég er svo fegin að við fengum að sjá þig, tala við þig og kyssa og mun alltaf hugga mig við það þegar söknuðurinn læðist yfir mig. Það var sárt að fá fréttir af því að þú værir farin frá okkur á aðfangadag. „Af öllum dögum?“ spurði ég sjálfa mig. En fljótlega áttaði ég mig á því að þetta væri fallegur dagur til að þú fengir að kveðja því að héðan í frá munum við minnast þín á þeim degi og allrar þeirrar hlýju og fegurð sem einkenndi þig. Við kveðjum þig elsku amma mín, í upphæðum blessuð sólin skín, þar englar þér vaka yfir. Með kærleika ert þú kvödd í dag, því komið er undir sólarlag, en minninga ljós þitt lifir. Leiddu svo ömmu góði guð í gleðinnar sælu lífsfögnuð, við minningu munum geyma. Sofðu svo amma sætt og rótt, við segjum af hjarta góða nótt. Það harma þig allir heima. (Halldór Jónsson frá Gili) Ég elska þig amma mín, kysstu afa og Bjöggu frænku frá mér. Þín, Arndís Rós. Á aðfangadagsmorgun yfirgaf elsku amma mín þennan heim og sameinaðist afa á ný. Elsku besta amma sem bakaði bestu pönnukökurnar og bestu flat- kökurnar og var mér alltaf svo óendanlega hlý og góð. Fyrir mér voru afi og amma eitt. Ein stök eining sem ég gat ekki ímyndað mér hvort án ann- ars. Afi dó 10. júní 2016. Síðan þá er búið að vera erfitt að horfa upp á ömmu hálfpartinn veslast upp og rýrna fyrir augunum á okkur öllum sem elskum hana og horfa upp á hana bíða eftir að ljúka þessu lífi sem hún náði að lifa í 94 ár. Ég veit, ég er ótrúlega heppin að hafa átt ömmu og afa eins lengi að og ég átti og minning- arnar um þau mun ég varðveita í hjarta mínu að eilífu. Vegna þeirra tveggja finnst mér hestar vera ein fallegustu dýr í heimi og ég elska allar minningarnar sem ég á um útreiðartúrana sem ég fór í með afa, þar sem að sjálfsögðu voru alltaf teknar nestispásur með ofurnesti frá ömmu. Það var amma sem kenndi mér Faðir vorið og barnabæn- irnar þegar ég var lítil og það skemmtilegasta sem ég gerði þegar ég fór í heimsókn til þeirra var að setjast við snyrti- borðið hennar ömmu, laumast í litla bleika boxið hennar sem geymdi fallegu perlurnar henn- ar og fleira skart og máta það og virða mig fyrir mér í snyrti- speglinum hennar. Í dag á ég þetta fallega snyrtiborð og litla bleika boxið fékk ég líka að eiga og það er mér svo ótrúlega kært. Hjarta mitt mun ávallt geyma minninguna um yndislega ömmu og afa og endalaust þakklæti fyrir allt sem þau hafa gefið mér. Rakel Ósk Hreinsdóttir. Aðalbjörg Kristjánsdóttir kom í heiminn fjórða barnið af sex systkinum á fjölmennu ann- áluðu myndarheimili. Þar voru mikil umsvif í mörgu; myndar- legur búrekstur, símstöð og oft margt um manninn enda við- komustaður nánast allra sem áttu leið austur eða vestur yfir Markarfljót, sér í lagi áður en brú kom á fljótið 1934. Oft voru annir við að fylgja fólki yfir fljót- ið en Kristján, faðir Aðalbjargar, var ötull vatnamaður og harð- duglegur að hverju sem hann gekk. Það var mikið áfall þegar hann féll frá, vorið 1945, eftir alllanga sjúkrahúslegu í Reykja- vík, en það sýndi best hug Ey- fellinga til hans að þeir fjöl- menntu út að Þjórsá til að taka á móti honum þegar hann var fluttur andaður austur í sveitina sína. Aðalbjörg var einn vetur í Húsmæðraskólanum á Blöndu- ósi sem var þá undir stjórn hinn- ar rómuðu skólastýru Huldu Stefánsdóttur. Sá tími var henni eftirminnilegur og varð mjög sýnilegur í fögrum hlutum sem prýddu heimili hennar síðar. En þarna leið brátt að því að hún hitti þann mann sem varð far- sæll lífsförunautur hennar í hartnær 70 ár. Hann var Andrés Haukur Ágústsson, ungur bóndasonur frá Hemlu í Austur- Landeyjum, og þau gengu í hjónaband árið 1950. Aðalbjörg kom ekki tómhent í hjónabandið, henni fylgdi ljúf lítil stúlka sem hún hafði eignast árið 1947, Björg Arndís Baldvinsdóttir, en síðar bættust við tvö myndar- börn, Ágúst Ingi 1950 og Ingi- björg 1951. Andrés valdi sér starfsvett- vang á sviði nýrrar samgöngu- tækni og fór að aka flutningabíl- um fyrir Kaupfélag Rangæinga. Þau Aðalbjörg bættust í hóp þess unga harðduglega fólks sem á þessum árum var að byggja upp kauptúnið í Hvols- velli og reistu sér hús þar. Andr- és var mikið í burtu, var horfinn að morgni og sást sjaldan aftur fyrr en seint á kvöldin. Aðal- björg stýrði heimilinu og sinnti að auki ýmsum verkefnum á Hvolsvelli. Haustið 1967 fluttu hjónin til Reykjavíkur. Aðal- björg fann sér starfsvettvang þar, í Heyrnleysingjaskólanum, og vann þar í 20 ár. Þau Andrés stunduðu hestamennsku af lífi og sál og nutu samvistanna við hina ferfættu vini og góða félaga í hópi hestamanna meðan bæði höfðu heilsu til. Árið 2009 fluttu þau á hjúkrunarheimilið Selja- hlíð. Ég kynntist Aðalbjörgu Krist- jánsdóttur þegar við Björg, dótt- ir hennar og fósturdóttir Andr- ésar, tókum upp kynni og síðan sambúð. Eftir það var oft litið inn á Háaleitisbraut 14 og þang- að var alltaf jafnánægjulegt að koma. Fyrst og fremst voru þau hjón gagnvönduð og prúð í fram- göngu og höfðu á sér eilítið hefð- arsnið, í bestu merkingu þess orðs, prýðilegum gáfum gædd og vel fróð. Húsfreyja var held- ur hlédrægari en umvafði hvern gest hlýrri nærveru sinni, vel að sér og stálminnug og hafði frá mörgu að segja. Og svo töfraði hún fram hinar ágætustu veit- ingar. Það var mannbætandi að eiga félag með þeim hjónum og mér eru ekki síst minnisstæðar all- nokkrar ferðir okkar Bjargar með þeim í sumarleyfisferðir út á land, þar sem dvalið var í eina viku eða svo í orlofshúsi og ekið þaðan, oft langar dagleiðir, til að skoða umhverfið. Þá voru þau Aðalbjörg og Andrés nokkuð komin á aldur en hugurinn frjór og lifandi áhugi á öllu sem fyrir augu bar. Með Aðalbjörgu Kristjáns- dóttur kveður eftirminnileg kona, merkur fulltrúi þeirrar kynslóðar sem nú er óðum að hverfa, sem lagði grunn að því Íslandi sem við þekkjum, sem umvafði umhverfi sitt hlýju og vandaði orð sín og verk sem mest hún mátti. Blessuð sé minning hennar. Helgi Magnússon. Aðalbjörg Kristjánsdóttir Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.