Morgunblaðið - 02.01.2018, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 02.01.2018, Blaðsíða 27
Hann fékk allar bókasendingar heim til sín til að bera bækurnar saman við reikningana. Þar komst ég í feitt og las allt sem ég komst yfir. Ég lá alltaf í bókum og fannst það mun skemmtilegra en að leika mér eins og önnur börn. Ævistarfið átti því vel við mig.“ Þórdís sat í stjórn Bókavarða- félags Íslands 1973-81 og 1987-91 og var formaður þess 1974-81 og 1987-89, var annar tveggja fulltrúa Íslands í Nordiska litteratur och bibliotekskommittén, nefnd á veg- um Nordisk Ministerråd 1989-97, fulltrúi Bókavarðafélags Íslands í ráðgjafanefnd um málefni almenn- ingsbókasafna frá 1987, fulltrúi Bókavarðafélags Íslands í stjórn Blindrabókasafns Íslands 1982-97, tilnefnd af Rithöfundasambandi Íslands í stjórn Launasjóðs rithöf- unda 1987-90, í stjórn og fram- kvæmdaráði Norræna félagsins á Íslandi 1977-81, í stjórn Suomi- félagsins 1987-91 og varamaður í stjórn Menningarsjóðs Íslands og Finnlands frá 1987. Þórdís hefur skrifað greinar um bókasafnsmál í málgögn Bóka- varðafélags Íslands og grein um Norræna húsið í The Collected Papers of the Fitfth Northen Libraries Colloquy, Rovaniemi 1975. Þórdís var sæmd sænsku norð- urstjörnunni 1975 og veittur minn- ispeningur, útgefinn í tilefni 150 ára afmælis finnsku Kalevala- þjóðkvæðanna 1985. Fjölskylda Þórdís giftist 10.9. 1949 Jóni G. Hallgrímssyni, f. 15.1. 1924, lækni. Hann er sonur Hallgríms J. Bach- mann, ljósameistara við Þjóðleik- húsið í Reykjavík, og k.h., Guð- rúnar Þ. Jónsdóttur klæðskera. Börn Þórdísar og Jóns eru 1) Þorvaldur, f. 14.11. 1951, skurð- læknir, kvæntur Aðalbjörgu Þórð- ardóttur, grafískum hönnuði og eiga þau þrjú börn; 2) Guðrún, f. 5.10. 1953, kynningarstjóri við HÍ, gift Leifi Haukssyni og eiga þau þrjú börn; 3) Gunnar Þór, f. 26.6. 1960, bifreiðastjóri og á hann tvö börn; 4) Sigrún Lára, f. 11.10. 1963, kennari, og á hún tvö börn, og 5) Sveinn, f. 19.8. 1966, d. 6.12. 1966. Foreldrar Þórdísar voru Þor- valdur H. Þorsteinsson, f. 19.9. 1887, d. 27.3. 1928, skipstjóri, og Lára Pálsdóttir, f. 20.2. 1901, d. 9.9. 1985, húsmóðir og safnvörður. Þórdís Þorvaldsdóttir Margrét Pétursdóttir húsfr. á Þóreyjarnúpi Elínborg Stefánsdóttir húsfr. í Þingmúla og í Tungu Lára Pálsdóttir húsfr. í Hrísey, Hafnarfirði og í Rvík og gæslukona á Þjóðminjasafninu Páll Þorsteinsson b. í Þingmúla í Skriðdalshreppi og í Tungu í Fáskrúðsfirði Sigurbjörg Hinriksdóttir húsfr. í Víðivallagerði Þorsteinn Jónsson b. í Víðivallagerði í Fljótsdal, af Melaætt Björn Th. Björnsson listfræðingur Baldvin Björnsson gullsmiður í Rvík Sigríður Þorláksdóttir húsfr. á Ísafirði Hólmfríður Þorvaldsdóttir húsfr. í Fagra nesi Jóhann Sigurjónsson skáld Snjólaug Þorsteinsdóttir húsfr. á Laxamýri Freysteinn Jóhanns son fyrrv. fréttastjóri við Morgunblaðið Jóhann Þorvaldsson skólastj. á Siglufirði Þorvaldur Baldvinsson b. á Tungu felli í Svarfaðardal Baldvin Þorvaldsson b. á Böggvisstöðum í Svarfaðardal Kristín Þorsteinsdóttir húsfr. á Siglufirði Þorsteinn Hannesson óperu- söngvari og tónlistarstj. RÚV Jóhann Hannesson skólameistari á Laugarvatni Wincie Jóhannsdóttir kennari og fyrrv. form. HÍK Hallfríður Hannesdóttir Árdal húsfr. á Akureyri Dr. Páll S. Árndal heimspeki- prófessor í Kanada Jón Pálsson dýralæknir á Selfossi Sigursteinn Pálsson b. á Blikastöðum Ólafur Björnsson stofnandi og ritstj. Morgunblaðsins Sveinn Björnsson fyrsti forseti íslenska lýðveldisins Elísabet Guðný Sveinsdóttir ráðherrafrú í Rvík Guðrún Jónsdóttir húsfr. á Staðastað Katrín Ólafsdóttir BA í íslensku og þýsku Ólafur Mixa læknir Björn Ólafsson konsertmeistari Ólafur B. Thors fyrrv. framkvstj. Sjóvár-Almennra Elísabet Ólafsdóttir húsfr. í Rvík Þórdís Þórðardóttir húsfr. á Upsum Stefán Baldvinsson b. á Upsum í Svarfaðardal Margrét Stefánsdóttir húsfr. á Stóru-Hámundarstöðum og í Hrísey Þorsteinn Þorvaldsson útvegsb. og hákarlaform. á Stóru-Hámundarstöðum og í Hrísey Snjólaug Baldvinsdóttir húsfr. á Krossum á Árskógsströnd, bróðurdóttir sr. Hallgríms, föður Jónasar skálds Þorvaldur Gunnlaugsson b. á Krossum og ættfaðir Krossaættar Úr frændgarði Þórdísar Þorvaldsdóttur Þorvaldur H Þorsteinsson skipstj. í Hrísey Stefán Jónsson b. á Þóreyjarnúpi, af Bólstaðarhlíðarætt ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2018 Sveinn Torfi Sveinsson fæddistá Hvítárbakka í Borgarfirði2. janúar 1925, en ólst upp í Reykjavík. Foreldrar Sveins Torfa voru hjónin Gústaf Adolf Sveinsson, f. 7.1. 1898, d. 5.1. 1971, hrl. í Reykjavík, og Olga Dagmar Sveins- son, f. Jónsdóttir, f. 15.8. 1898, d. 27.8. 1981, húsmóðir. Sveinn lauk stúdentsprófi frá MR 1944, fyrrihluta-verkfræðiprófi frá HÍ og seinnihluta-verkfræðiprófi frá Danmarks Tekniske Höjskole 1949. Sveinn Torfi var verkfræðingur við Hitaveitu Reykjavíkur 1949, deildarverkfræðingur þar 1950-61 en starfrækti eigin verkfræðistofu frá 1961. Verkfræðistörf hans lutu fyrst og fremst að hönnun gatna- kerfa og svo teikningu hitalagna í fjölmargar íbúðir og verksmiðjuhús. Sveinn var í ritnefnd Ökuþórs, tímarits FÍB 1950-52, var formaður FÍB 1952-56, í bygginganefnd Garðabæjar og formaður hennar í nokkur ár, í almannavarnanefnd Hafnarfjarðarumdæmis frá 1971 og formaður þar frá 1986, í stjórn Hag- tryggingar hf. frá 1965-86, í lands- þjónustunefnd AA-samtakanna frá 1994. Hann gekk í Rótarýklúbbinn Görðum 1965, í Frímúrararegluna 1951, í stúkuna Eddu, varð síðan stofnfélagi stúkunnar Hamars í Hafnarfirði og fékk heiðursorðu. Sveinn hlaut fjöldann allan af við- urkenningum, þ.á m. frá Lagna- félagi Íslands fyrir frumkvöðuls- starf við endurnýtingu varma með hönnun varmaskipta í hita- og loft- ræstikerfum. Eiginkona Sveins Torfa var Elísabet Hinriksdóttir, f. 8.4. 1925, d. 19.8. 2007, húsmóðir. Hún var dóttir hjónanna Henriks Schumann Wagle, vélgæslumanns af norskum ættum er varð íslenskur ríkisborg- ari og Önnu Árnadóttur húsmóður. Börn Sveins Torfa og Elísabetar: Vilborg Elín, f. 23.10. 1954, óskírður sonur, f. 7.6. 1958, d. 18.6. 1958, og Ingibjörg Ásdís, f. 22.5. 1959. Sveinn Torfi eignaðist dótturina Ingibjörgu Ernu, f. 16.7. 1962, með Þórunni Árnadóttur ljósmóður. Sveinn Torfi lést 20. október 2009. Merkir Íslendingar Sveinn Torfi Sveinsson Nýársdagur 90 ára Erla Magnúsdóttir Þórdís Þorvaldsdóttir 85 ára Jóhanna Sigrún Ingvarsdóttir Ragnheiður Ragnarsdóttir 80 ára Erna Hallbera Ólafsdóttir Xuyen Thi Ngo 75 ára Friðrik Björnsson Guðbjörg Lilja Ingólfsdóttir Lamyai Phromachat Pétur Joensen Rafnhildur Björk Eiríksdóttir Sjöfn Ólafsdóttir Steinunn Gunnarsdóttir 70 ára Dýrleif Eggertsdóttir Guðjón Ólafsson Guðrún Ágústa Eggertsdóttir Ingibjörg Eiríksdóttir Jesús Sigfús H. Potenciano Kathleen Anna Guðmundsson Lovísa Símonardóttir Luis Fernando Gonzalez Parra Miljka Pavlica Ósk Davíðsdóttir Sigurður Steinarsson Tryggvi Sveinn Jónsson Vigdís Sævaldsdóttir Þorvaldur Bragason 60 ára Aðalsteinn Viðar Aðalsteinsson Aldís Árnadóttir Ágústa Jóna Jónsdóttir Ásta Vuong Thi Nguyen Brynjar Örn Ragnarsson Erlingur Þór Guðjónsson Jórunn Elsa Ingimundardóttir Vasile Nicolae Wieslaw Jan Marczuk 50 ára Ahmad Al Muhamad Aljazem Árdís Dögg Orradóttir Áslaug Ásmundsdóttir Birna Björk Þorbergsdóttir Finnbogi Helgi Karlsson Guðmar Guðmundsson Hólmfríður Kristjánsdóttir Margrét Pétursdóttir Ómar Jónsson Sólrún Bjarnadóttir Zakaria Elías Anbari Zeynep Özcan Kristjánsson 40 ára Brynjar Ingi Magnússon Gunnar Lúðvík Gunnarsson Helga Erla Gunnarsdóttir Jóhanna Kristín Steinsd. Marcin Pieczka Monther Alfaraj Sara Dögg Ólafsdóttir Sigurgeir T. Höskuldsson Tuna Dís Metya 30 ára Abdimatin H. Abdimalik Brynjar Jónsson Chukwuma Ernest Okereke Hanna María Guðbjartsd. Helga Dagný Sigurjónsd. Helga Karlsdóttir Hildur Kristín Stefánsdóttir Kristinn Agnarsson Laufey Sif Ingólfsdóttir Regina Osarumaese Róbert Szabó Shiba Kohi Sigfús Jónsson Sæmundur Þór Leifsson Þriðjudagur 85 ára Helga Sigurðardóttir Ingibjörg Sigjónsdóttir Karen Sigurðardóttir Ragnhildur Lárusdóttir 80 ára Dagga Lis Kjærnested Jón Ármann Jónsson 75 ára Ármann Ásgeir Hallbertsson Guðrún Mánadóttir Hans Indriðason 70 ára Guðrún Gunnlaugsdóttir Helgi Magnússon Hrefna Þorbjörnsdóttir Sigurbjörg Bjarnadóttir Snæbjörn B. Jóhannsson Svanfríður Kjartansdóttir 60 ára Anna Wasilczuk Guðjón Ingimundarson Gullveig Ósk Kristinsdóttir Hafdís Njálsdóttir Halldór Svanur Olgeirsson Jósteinn G. Guðmundsson Knútur Kristinsson Leifur Aðalgeir Benediktsson Lilja Ingvarsson Malgorzata Genowefa Stachow Metta Kristín Friðriksdóttir Rut Petersen Þorsteinn Sigurbjörnsson 50 ára Ásta Skúladóttir Dagný Hrund Gunnarsdóttir Erlendur Guðmundsson Gestur Reynir Sveinbjarnarson Páll Óskar Jóhannsson Stefán Hrafn Jónsson Þorgeir H. Kristmannsson Þór Hreinsson Örn Þór Guðjónsson 40 ára Eva Maria Bonet Catala Gunnar Sveinn Magnússon Hildur Hjálmarsdóttir Hulda Sif Þorsteinsdóttir Ingveldur Ægisdóttir Jose Luis Pinto Da Silva Kjartan Sveinsson Margrét Pálsdóttir Ólöf Ólafsdóttir Ratchanai Saenyot Sigrún Margrét Gústafsdóttir Supatta Soodchit Þórir Aðalsteinsson 30 ára Anna Karen Þóroddsdóttir Arnar Georgsson Arnór Gunnarsson Ásþór Tryggvi Steinþórsson Baldur Ævar Hauksson Brynjar Árnason Cristina Mba Nfono Daníel Ellertsson Friðrik Örn Eyjólfsson Gyða Dröfn Grétarsdóttir Helga Katrín Stefánsdóttir Hlynur Smári Halldórsson Hrefna Rós Matthíasdóttir Jónfríður Esther Friðjónsd. Lubos Zborovancík Marcin Ruminski Miroslav Potkrajac Rúnar Geir Ólafsson Steinar Grettisson Til hamingju með daginn Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Skútan GÆÐA BAKKAMATUR Sjá heimasíðu www.veislulist.is Veislulist afgreiðir hádegismat í bökkum alla daga ársins, bæði fyrir fyrirtæki og stofnanir. Í yfir 40 ár hefur Veislulist lagt áherslu á góða þjónustu og framúrskaran matreiðslu. Hádegismatur Verð kr. 1.370 Lágmark 3 bakkar + sendingargjald d MisMUnAndi RéTTiR AllA dAGA viKUnnAR EldUM EinniG fyRiR MöTUnEyTi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.