Morgunblaðið - 02.01.2018, Síða 4

Morgunblaðið - 02.01.2018, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2018 B irt m eð fy rir va ra um p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja sé r ré tt til le ið ré tt in g a á sl ík u. A th .a ð ve Bókunar- afsláttur til 31. janúar SUMAR 2018 Allt að 25.000kr. afsláttur á mann Bókaðu sól Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Farið var um víðan völl í nýárs- ávörpum Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, Guðna Th. Jó- hannessonar, forseta Íslands, og Agnesar M. Sigurðardóttur, biskups Íslands, í gær og í fyrradag. Þó mátti greina áherslu á sameiginleg málefni sem einkennt höfðu árið 2017 í ræðum þeirra allra. Þar má helst nefna baráttuna gegn lofts- lagsbreytingum og byltinguna sem varð í umræðu um kynferðislegt of- beldi með metoo-hreyfingunni svo- kölluðu. Einnig var sjónum beint fram á veg í öllum þremur ræð- unum og máls vakið á fullveldishá- tíðinni sem Íslendingar eiga í vænd- um undir lok árs. Ávarp forsætisráðherra Katrín Jakobsdóttir, forsætisráð- herra, ávarpaði þjóðina á gamlárs- kvöld. Hún vakti máls á því að þótt langt væri síðan Ísland varð full- valda væru enn um 80 Íslendingar á lífi sem fæddir voru árið 1918 og að ef mannkynið héldi rétt á spöðunum gætu börn sem fæðast í ár fengið að upplifa 200 ára afmæli fullveldisins árið 2118. Forsætisráðherra veik að árinu 1918 og sagði hinar erfiðu að- stæður Íslands í aðdraganda full- veldissáttmálans vera til áminn- ingar um að miklu megi áorka þrátt fyrir óhagstæðar ytri aðstæður. Sagði hún sögu fullveldisins hafa einkennst af stórhug sem skilað hefði miklum framförum og ger- breytt samfélagi Íslendinga frá því sem þekktist árið 1918. Rík ástæða væri til þess að minnast fullveldishátíðarinnar árið 2018. Katrín beindi máli sínu síðan að framtíðarsýnum og að því hve erfitt gæti verið að ráða í framtíðina. Eitt helsta verkefni sem blasti við væri að stemma stigu við vaxandi ójöfn- uði í heiminum og að full ástæða væri til að gera betur þótt Ísland stæði sig hlutfallslega vel í þeim efnum. Tók Katrín þá sérstaklega fyrir ójöfnuð í eignatekjum, skattsvik og skattaundanskot. Einnig kom hún að jafnrétt- isbaráttu kynjanna og fór já- kvæðum orðum um þá bylt- ingu sem orðið hefði á liðnu ári með hinum fjölmörgu frá- sögnum kvenna af því kyn- ferðislegu ofbeldi og áreitni sem þær hafa sætt. Næst vakti forsætis- ráðherra athygli á loftslagsmálum og á þeirri baráttu sem mannkynið þyrfti að heyja óháð þjóðerni og samfélagshópum til að vinna bug á hlýnun jarðar. Ísland væri ekki stórveldi en gæti þó sett mikilvægt fordæmi með metnaðarfullum áætl- unum ríkisstjórnarinnar um að gera Ísland að kolefnishlutlausu sam- félagi ekki seinna en árið 2040. Loks vék forsætisráðherra að tækniframförum sem heimsbyggðin stæði frammi fyrir og hvatti til þverpólitískrar framtíðarsýnar um viðbrögð við síaukinni sjálfvirkni. Katrín lauk ræðunni á persónu- legri nótum og minntist áramóta- kvölds síns fyrir tíu árum. Þá hefði hún verið stödd á fæðingardeildinni og gamlárskvöldið hefði verið hið hamingjuríkasta í lífi hennar þótt ekki hefði það verið áreynslulaust. Ræðunni lauk með hamingjuóskum ráðherra til Íslendinga og óskum um farsælt komandi ár. Ávarp forseta Guðni Th. Jóhannesson flutti ný- ársávarp sitt í gær og byrjaði með upprifjun á harmleiknum sem greip þjóðina síðastliðinn janúar við hvarf Birnu Brjánsdóttur. Forseti vék jafnframt að öðrum sem hefðu orðið valdníðslu að bráð á árinu og harm- aði hve mikið miskunnarleysið gæti verið í heiminum. Hann lagði þó áherslu á að miskunnarleysið væri ekki bundið við tiltekinn eða tilbú- inn hóp fólks; hvorki við þjóðir né við trúarhópa. Guðni hvatti hlust- endur til að leyfa voninni að lifa og minntist orða Martins Luther King um að sönn umhyggja yrði að lokum allri illsku yf- irsterkari. Næst vakti for- setinn máls á byltingnni sem orðið hefði á árinu í umræðu um kynferðisof- beldi. Hvatti hann til samstöðu um samfélag sem hafnar ráðríki og áfergju hinna freku. Vék Guðni síðan að fullveld- ishátíðinni og minntist harðindaárs- ins sem Íslendingar hefðu lifað árið 1918 áður en kom að gildistöku full- veldissáttmálans. Vonarljós hefði þó lifað í gegnum spænsku veikina og fimbulveturinn og í dag væri ís- lenska ríkið vel stætt. Ástæða væri því til bjartsýni þótt gæta yrði að hógværð og raunsæi um leið. Guðni sagði einn lærdóm fullveldisaldar þann að hlúa yrði að náttúru og menningu landsins. Í þeim efnum hefði árangri verið náð en vandi blasti hins vegar við í mengun, hlýnun og súrnun sjávar. Íslendingar ættu að láta til sín taka á alþjóðavettvangi og láta rödd sína heyrast með þekkingu og heil- indum. Forseti sagði þjóðmenningu geta lifað góðu lífi þrátt fyrir að hin nýja öld væri öld hátækni og alþjóða- væðingar. Hvatti hann til fjöl- breytni og að ungviði væri leyft að njóta kvikmynda og tölvuleikja á ensku en njóta þó um leið bóka, kvikmynda og dægurlaga á ís- lensku. Íslenskri tungu yrði jafn- framt að tryggja sess í rafrænum heimi. Guðni vakti næst máls á þeirri hagsæld sem ríkir nú á Íslandi en varaði jafnframt við óhófsemi. Sagði hann að horfa mætti öfundaraugum til Noregs, þar sem olíuauður rynni í þjóðarsjóð, en sagði jafnframt áform stjórnvalda um þjóðarsjóð fyrir arð auðlinda í nýsköpun og endurbætur lofa góðu. Guðni óskaði landsmönnum að endingu gleðilegs nýs árs fyrir hönd þeirra Elizu Reid forsetafrúar. Samhljómur í áramótaávörpum  Jafnréttis- og loftslagsmál áberandi í nýársávörpum íslenskra stjórnmála- og trúarleiðtoga  Athygli jafnframt beint að fullveldishátíðinni sem haldin verður síðla árs og horft yfir liðna öld Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Glaðbeitt Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra býr sig undir nýársávarp sitt á gamlárskvöldi 2017. Henni á hægri hönd er Björn Emilsson upptökustjóri hjá Ríkisútvarpinu með áramótakórónu á höfði. Þau slógu á létta strengi. Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, flutti nýárs- predikun sína í Dómkirkjunni í gær. Hún byrjaði á að leggja áherslu á umhyggju fyrir sköpunarverkinu og verndun umhverfisins. Áhersla á heimsþingi lútherska heimssambandssins árið 2017 hefði verið lögð á að endurhugsa þyrfti hagfræði til að takast á við vistræn vandamál. Í predikun sinni sagði Agnes að allar fræði- greinar gætu lagt sitt af mörkum til að finna lausn- ir á umhverfisvandamálum líkt og loftslagsbreyt- ingum. Biskup vakti sérstaklega máls á mikilvægi þess að viðhalda Parísarsáttmálanum og sagði undarlegt að nokkrum dytti í hug að hundsa hann. Ráðstefna Alkirkjuráðsins hefði verið haldin í boði þjóðkirkjunnar á Íslandi síðastliðinn október og sameiginleg ályktun hefði verið á þá leið að sem trúarleiðtogar kölluðu þau eftir viðhorfsbreytingum til að varð- veita umhverfi jarðarinnar. Siðferðislegar spurningar sem vöknuðu í ljósi umhverfisvandans hlytu að beinast bæði að hlutverki okkar gagnvart náttúrunni og náunganum. Agnes sagði kristni boða jafnrétti og að Jesús Kristur hefði boðað jafnrétti í verki. Næst vék biskup máli að jafnréttisbaráttu kvenna og að metoo-byltingunni sem svo áberandi var árið 2017. Agnes sagði flestar konur hafa fundið sam- sömun með reynslusögum kvenna af kynferðislegri áreitni og að hún og aðrar konur innan kirkjunnar væru þar engin undantekning. Hvatti hún til þess að horfst væri í augu við raunveruleikann og viðurkennt að loftslagsbreytingar og kynbundið ofbeldi væru staðreyndir. Loks hvatti Agnes til samstöðu gegn hvers kyns ógnum og áföllum og lýsti því yfir að kirkjunni bæri að vera vettvangur slíkrar samstöðu. Biskup Íslands hvetur til viðhorfsbreytinga PREDIKUN AGNESAR M. SIGURÐARDÓTTUR Í DÓMKIRKJUNNI Á NÝÁRSDAG Agnes M. Sigurðardóttir Guðni Th. Jóhannesson Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Mjög hvasst gæti orðið á Suðurlandi, það er frá Eyja- fjöllum og austur fyrir Öræfajökul, í dag, 2. janúar. Veðurhæðin gæti einnig náð til Vestmannaeyja. Vegna þessa gaf Veðurstofan út gula stormviðvörun í gær, og samkvæmt henni verður fólk að hafa varann á sér og undirbúa sig vel þegar lagt er upp í ferðir. Gert er ráð fyrir austan og norðaustan 20-25 m/s sunnan Eyjafjalla- jökuls og Mýrdalsjökuls og í hviðum gæti vindstyrkur farið yfir 35 m/s. Varasamt er því fyrir fólk sem er á bílum sem taka á sig mikinn vind að vera mikið á ferð- inni. Hlýtt loft streymir að Ef ástæða þykir til varar Veðurstofan almannavarnir Ríkislögreglustjóra við aðsteðjandi hættu. Annars eru viðbrögð við náttúruvá metin og ráðstafanir gerðar samkvæmt aðstæðum á hverri stundu en um lokun vega gildir það viðmið að slíkt kemur til skoðunar nálg- ist vindstyrkur 20 metra á sekúndu Storminum fylgir heitt loft á suðurströndinni og þar mun hitinn fara yfir frostmarkið, sem eru viðbrigði eftir frostakafla með stillum sem ríkt hefur að undanförnu. Venjulegur vetrarstormur „Þetta er bara venjulegur vetrarstormur eins og stundum kemur syðst á landinu. Svo gæti eitthvað snjó- að, til dæmis á Reynisfjalli þar sem er m.a. mikil um- ferð bílaleigubíla þar sem óvanir ökumenn eru á ferð- inni. Því gætu áhrifin af veðrinu orðið talsvert meiri en styrkur þess gefur kannski tilefni til,“ sagði Teitur Ara- son veðurfræðingur í samtali við Morgunblaðið í gær- kvöldi. Vetrarstormur við jöklana  Viðvörun var gefin út í gærdag  Áhrifin ná til Eyja Morgunblaðið/Sigurður Bogi Suðurland Varað er við stormi svo sem við Öræfajökul.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.