Morgunblaðið - 02.01.2018, Side 16
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
„Við tókum þá ákvörðun að lækka
verð um 25% á þessu ári og það hefur
m.a. leitt til þess að veltan hefur auk-
ist mjög mikið. IKEA metur alla sölu
í rúmmáli og hún fór á árinu 2017 í 60
þúsund rúm-
metra úr 49 þús-
und árið á und-
an.“ Þannig lýsir
Þórarinn Ævars-
son nýliðnu ári
hjá IKEA á Ís-
landi. Hann bend-
ir á að þéttpakk-
aður 40 feta
gámur rúmi um
40 tonn og því
megi áætla að fyrirtækið hafi flutt
inn vörur til landsins sem jafngildi að
minnsta kosti 1.500 gámum.
Þórarinn segir fyrirtækið meðvit-
að um að hin miklu umsvif hafi áhrif á
umhverfið og að af þeim sökum
standi nú yfir vinna við að meta svo-
kallað kolefnisfótspor starfseminnar.
„Við höfum fengið fyrirtækið
Klappir til þess að meta þessi áhrif og
í kjölfarið hyggjumst við grípa til að-
gerða til að mæta fótsporinu og jafna
það.“
Raunar hafa Þórarinn og sam-
starfsmenn hans nú þegar tekið
fyrstu skrefin í þessa veru og snýr
það að uppbyggingu hleðslustöðva
fyrir rafbíla.
„Við höfum tekið stór skref á sviði
rafbílavæðingarinnar. Nú eru 50
stæði fyrir viðskiptavini búin hleðslu-
stöðvum, bæði hæghleðslu og hrað-
hleðslu. Þá höfum við tekið fyrsta
hleðslustæðið sérmerkt fötluðum í
notkun og ég held að það sé það
fyrsta sinnar tegundar á landinu.“
Þá hefur fyrirtækið einnig sett upp
10 stæði við starfsmannainngang og
þar geta starfsmenn hlaðið sína eigin
bíla meðan þeir eru að störfum.
„Það eru ríflega 10 starfsmenn
komnir á rafbíla og þeir geta nýtt
þessa aðstöðu. Núna ætlum við hins
vegar að gera tilraun með að láta sól-
arrafhlöður anna rafmagnsþörf þess-
ara stæða,“ segir Þórarinn.
Vilja nýta sólarorkuna
Nú hefur Ikea tekið ákvörðun um
að nýta orku sólarinnar í starfsem-
inni og innan nokkurra vikna verður
hafist handa við að koma sólarsellum
fyrir á þaki einnar byggingar fyrir-
tækisins.
„Við höfum ákveðið að setja upp
sólarsellur á þak húss sem stendur
aftan við aðalbygginguna. Það er flöt-
ur sem telur um 160 fermetra. Sér-
fræðingar segja okkur að við ættum
að geta náð um 80% af þeirri orku-
söfnun sem fólk á suðlægari slóðum
nær út úr búnaði sem þessum,“ segir
Þórarinn.
Hann segir að fyrirtækið taki þetta
skref til þess að öðlast reynslu af
tækninni og búnaðinum en vonandi
sé þetta fyrsta skrefið af fleiri og
stærri skrefum.
„Við ætlum að nýta orkuna frá
þessari uppbyggingu til hleðslu á raf-
bílum starfsmanna og höfum trú á að
búnaðurinn anni því nokkurn veginn.
Þá viljum við líka sjá hvernig bún-
aðurinn virkar í íslensku veðri og ætl-
um því að fylgjast með frammistöðu
hans í heilt ár áður en næstu skref
verða ákvörðuð.“
Sparar hátt í hálfa milljón
Þórarinn segir það vel koma til
greina að koma búnaði af þessu tagi
fyrir á aðalbyggingu fyrirtækisins í
Kauptúni ef reynslan af tilrauna-
verkefninu kemur vel út.
„Það er draumurinn. Þakið er um
14 þúsund fermetrar og það væri frá-
bært ef hægt væri að þekja stóran
hluta þess með búnaði sem þessum.
Það yrði hagkvæmt af ýmsum ástæð-
um. Í fyrsta lagi þyrftum við að
kaupa mun minni orku en við gerum í
dag en þessi búnaður er einnig þess
eðlis að hann kemur í veg fyrir tjón af
völdum höggs sem komið getur á
kerfið, rétt eins og gerðist ekki alls
fyrir löngu vegna eldingar sem sló
niður í álverið í Straumsvík. Sú uppá-
koma olli okkur milljóna tjóni sem við
fáum ekki bætt.“
Hann segist búast við því að til-
raunauppsetningin muni spara fyrir-
tækinu rafmagn upp á 400 til 500 þús-
und á ári. Búnaðurinn sé hins vegar
mun ódýrari en hann hafði gert ráð
fyrir.
„Búnaðurinn ásamt tengingum
kostar um 3 milljónir og við gerum í
raun ráð fyrir að þetta borgi sig niður
á um 10 árum þegar allt er til tekið.“
Hætta ekki við svo búið
En Ikea hyggst stíga önnur skref
samhliða þessu í þeirri viðleitni að
jafna kolefnisfótspor sitt.
„Við eigum eftir að fá greiningu á
umfangi kolefnisfótsporsins en við
horfum til ýmissa leiða til að jafna
það. Við ætlum að koma upp safn-
tönkum hér fyrir utan þar sem við
söfnum saman matarafgöngum. Úr
því verður svo framleitt metan. Við
erum einnig að skoða möguleika á því
að kosta fjármagni til endurheimtar
votlendis og þá skoðum við einnig
tækifæri í aðkomu að skógrækt.
Kannski kaupum við einfaldlega land
undir hana. En það verður að koma í
ljós,“ segir Þórarinn.
Stefna á kolefnisjöfnun
Morgunblaðið/Golli
Rafmagn Á bílastæði IKEA eru fleiri hleðslustöðvar fyrir rafbíla en á nokkrum öðrum stað á landinu.
IKEA á Íslandi greinir nú kolefnisfótspor sitt og stefnir á aðgerðir í kjölfarið
Salan jókst um rúm 22% á nýliðnu ári Sólarsellur settar upp síðar á árinu
Leiðir til jöfnunar
» Ikea leggur áherslu á öfluga
þjónustu við rafbílaeigendur.
» Fyrirtækið hyggst hagnýta
sér sólarorku í starfseminni.
» Til stendur að matar-
afgangar verði nýttir til fram-
leiðslu metans.
» Til greina kemur að kosta
endurheimt votlendis hér á
landi.
» Skógrækt er einnig inni í
myndinni.
Þórarinn
Ævarsson
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2018
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Forstjóri breska fyrirtækisins
Compass Group fórst í flugslysi í
Ástralíu á gamlárskvöld. Richard
Cousins var á ferð í lítilli flugvél
með fjórum fjölskyldumeðlimum
sínum sem fórust einnig í slysinu
ásamt flugmanni vélarinnar. Rann-
sókn á tildrögum slyssins stendur
enn yfir.
Compass Group er í hópi 500
stærstu fyrirtækja heims og er hluti
af FTSE 100 vísitölunni. Fyrirtækið
er með starfsemi í meira en 50 lönd-
um og eru starfsmenn þess um hálf
milljón talsins. Compass Group fæst
einkum við veitingaþjónustu af ýms-
um toga, ræstingu, rekstur sjálfsala
og veitingastaða og framleiðir ár-
lega um fjóra milljarða máltíða.
Compass Group hefur m.a. starf-
að á Íslandi og gerði árið 2004
tveggja milljarða króna samning
um rekstur vinnubúða við byggingu
álvers Alcoa á Reyðarfirði.
ai@mbl.is
Forstjóri stórfyrir-
tækis ferst í flugslysi
2. janúar 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 104.17 104.67 104.42
Sterlingspund 140.64 141.32 140.98
Kanadadalur 83.08 83.56 83.32
Dönsk króna 16.747 16.845 16.796
Norsk króna 12.691 12.765 12.728
Sænsk króna 12.675 12.749 12.712
Svissn. franki 106.77 107.37 107.07
Japanskt jen 0.9251 0.9305 0.9278
SDR 148.23 149.11 148.67
Evra 124.7 125.4 125.05
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 152.2544
Hrávöruverð
Gull 1285.4 ($/únsa)
Ál 2241.0 ($/tonn) LME
Hráolía 66.43 ($/fatið) Brent
Evrópski flugvélaframleiðandinn
Airbus afhenti fleiri flugvélar á síð-
asta ári en nokkru sinni áður í sögu
félagsins. Airbus hafði stefnt að því
að afhenda 700 vélar á árinu en FT
greinir frá að afköstin hafi orðið
meiri en það enda hafi verið unnið
viðstöðulaust í verksmiðjum fyrir-
tækisins í Tolouse, Hamborg, Mobile
og Tianjin í desember til að halda í
við ört fjölgandi pantanir.
Pöntunum fjölgaði á síðasta ári,
áttunda árið í röð, og bættust meira
en 1.000 pantanir við árið 2017. Þar
af bárust pantanir í 705 vélar á síð-
ustu fjórum vikum ársins. Þetta er
mikil aukning frá síðasta ári en þá
voru nýjar pantanir hjá Airbus 731
talsins. Pöntunum hefur einnig fjölg-
að hjá Boeing; voru 668 í fyrra en
voru komnar upp í 844 þann 19. des-
ember síðastliðinn.
Airbus átti ekki von á svona mörg-
um pöntunum, og hafði áður spáð því
að fjölgun pantana myndi ekki halda
í við afhendingar nýrra véla. Munaði
einkum um góðar viðtökur flug-
félaga við nýrri tveggja sætaraða vél
sem Airbus kynnti til sögunnar í
nóvember, en borist hafa 430 pant-
anir í þá vél. ai@mbl.is
Metár hjá Airbus
Pöntunum fjölg-
aði úr 731 upp í
rúmlega 1.000
AFP
Álag Pantanirnar streymdu inn á
síðustu vikum ársins. Frá sýningu.
John Cryan, bankastjóri Deutsche
Bank, sagði í viðtali um helgina að
bankinn mundi byrja að greiða
starfsmönnum sínum rausnarlegri
bónusa. Cryan, sem tók við stjórn-
artaumunum árið 2016, hafði áður
skorið niður árangurstengda bón-
usa hjá bankanum um 80%, og var
það m.a. gert til að létta rekstur
bankans sem hefur gengið í gegn-
um kostnaðarsama endur-
skipulagningu undanfarin ár og
þurft að greiða sektir sem hlaupa á
mörgum milljörðum evra.
„Við höfum alltaf sagt að við
myndum taka upp okkar hefð-
bundna bónusgreiðslukerfi fyrir ár-
ið 2017,“ sagði Cryan í viðtali við
Börsen-Zeitung og bætti við að laun
yrðu hækkuð hjá sumum deildum
bankans. ai@mbl.is
Bónusar
hækka hjá
Deutsche
AFP
Umbun Aðhaldið virðist á enda hjá-
Deutsche. John Cryan bankastjóri.