Morgunblaðið - 02.01.2018, Side 26

Morgunblaðið - 02.01.2018, Side 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2018 SKOÐAÐU ÚRVALIÐ Á VEFSÍÐUNNI OKKAR www.skornirthinir.is ÖRUGG SKREF ÚT Í LÍFIÐ í fyrstu skónum frá Biomecanics Biomecanics-skórnir auðvelda börnum að taka fyrstu skrefin. Aukinn stuðningur frá hliðunum bætir jafnvægi og eykur stöðugleika. Börnin komast auðveldar áfram og af meira öryggi þökk sé sveigjanlegum sóla og sérstyrktri tá. Stærðir: 18–24 Verð: 7.995 Margir litir Stefán Hrafn Jónsson, prófessor í félagsfræði við Háskóla Ís-lands, á 50 ára afmæli í dag. Hann er þessa dagana að undirbúakennslu vormisseris, en þar mun hann sjá um tölfræðinámskeið og námskeið um spurningalistakannanir. „Það eru margar hættur í því að gera spurningakannanir og maður rekst á þær í könnunum sem fólk hefur skellt sér í að gera án þess að kanna fræðin á bak við spurningalistagerð.“ Spurður um dæmi sem þarf að varast nefnir Stefán atriðið þegar spurt er um kyn. „Mér finnst áhugavert hvernig það er stundum gert. Ef það eru bara notaðar skammstafanirnar kk og kvk eða einfaldlega þegar skrifað er „kyn:“ án spurningarmerkis og sagnar þá er það merki um að margt annað sé að í viðkomandi könnun. Oftast er ljóst um hvaða kyn er spurt en þegar líða tekur á kannanirnar geta skammstafanir og knappar setningar valdið ruglingi. Ef spyrjandi nennir ekki að klára spurninguna af hverju ætti þátttakandi að gefa sér tíma til að svara?“ Stefán hefur tekið virkan þátt í félagsmálum og er nú varafor- maður Neytendasamtakanna. „Viðburðaríku ári var að ljúka, en eftir að við fengum nýjan og öflugan framkvæmdastjóra hefur starfið þar verið með eðlilegum hætti og dregið úr álagi á stjórnina eftir átök sumarsins. Ég hef verið í stjórn Félagsfræðingafélagsins um árabil og það eru allaf áhugaverð efni sem við drögum fram, t.d. með málþingi og með útgáfu fagtímarits.“ Stefán heldur upp á afmælið sitt föstudaginn 5. janúar í Akóges- salnum þar sem hann býður vinum og ættingjum. „Sögulega hefur gengið illa að halda upp á afmælið stuttu eftir áramótafagnað. Börn Stefáns eru Íris, sem er nýorðin 25 ára, og Vilhjálmur, sem verður 18 ára síðar í janúar. Afmælisbarnið Stefán er prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands. Býður ekki í afmæli strax eftir áramótin Stefán Hrafn Jónsson er fimmtugur í dag Þ órdís Þorvaldsdóttir fæddist í Hrísey í Eyjafirði 1.1. 1928 og ólst þar upp til þriggja ára aldurs en síðan í Reykjavík og í Hafnarfirði frá fjögurra ára aldri. Þórdís var í Barnaskóla Hafn- arfjarðar og í Flensborg, lauk stúdentsprófi frá MR 1947, prófi í forspjallsvísindum frá HÍ 1948, fyrrihlutaprófi í íslenskum fræð- um frá HÍ 1950, 3. stigs prófi í ensku þaðan 1955, BA-prófi í bókasafnsfræði og sænsku frá HÍ 1974 og hefur sótt fjölda nám- skeiða og ráðstefna innan starfs- greinar sinnar, hér á landi og er- lendis. Þórdís var ritari hjá Náttúru- gripasafni Íslands, síðan Náttúru- fræðistofnun 1950-56, yfirbóka- vörður Norræna hússins í Reykja- vík 1973-85, yfirbókavörður Nordens folkliga akademi í Kung- älv í Svíþjóð 1980-82 og borgar- bókavörður Reykjavíkur 1985-97 er hún lét af störfum fyrir aldurs sakir. „Ég hef alltaf elskað bækur, kunni kornung stafrófið, var orðin fluglæs fjögurra ára og byrjaði snemma að raða bókum eftir stærð, lit, heiti eða efni. Ég eign- aðist mínar fyrstu bækur þriggja ára. Þær hétu Ungi litli og Litli kútur og labbakútur. Móðir mín varð svo ráðskona hjá kennara í Hafnarfirði sem var jafnframt gjaldkeri bæjarbókasafnsins. Þórdís Þorvaldsdóttir, fyrrv. borgarbókavörður – 90 ára Kátur hópur Þórdís og Jón með hluta af börnum sínum og barnabörnum á heimili sínu fyrir nokkrum árum. Var fluglæs fjögurra ára Hjónin Þórdís með eiginmanni sínum, Jóni G. Hallgrímssyni lækni. Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl. is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á „Íslendinga“ síðum Morgunblaðsins er meðal annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða öðrum tímamótum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.