Morgunblaðið - 02.01.2018, Page 36
ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Fyrsti stormur ársins væntanlegur
2. Risaterta sprakk í Vesturbænum
3. Bílvelta í Ártúnsbrekku
4. Tólf fengu fálkaorðu
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Hljómsveitin Nýdönsk heldur
þrenna tónleika í Bæjarbíói fimmtu-
dag, föstudag og laugardag kl. 20.30.
Á nýliðnu ári fagnaði sveitin 30 ára
starfsafmæli og því rata inn á efnis-
skrána mörg af vinsælustu lögum
hennar í gegnum tíðina.
Morgunblaðið/Eggert
Nýdönsk í Bæjarbíói
Valgerður
Guðnadóttir og
Kolbeinn Ketilsson
syngja einsöng og
Karen Kamensek
stjórnar fernum
Vínartónleikum
Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands í
Hörpu fimmtudag
til laugardags. Á efnisskránni er óper-
ettutónlist og valsar eftir Franz von
Suppé, Emile Waldteufel, Johann
Strauss yngri og Franz Lehár.
Vínartónleikar
Sinfóníunnar í Hörpu
Hljómsveitin Mammút heldur nokk-
urs konar heimkomutónleika í Gamla
bíói á fimmtudag kl. 21. Þar með
enda þau margra mánaða tónleika-
ferðalag sitt sem hefur staðið yfir frá
útgáfu breiðskífunnar Kinder Ver-
sions sem fyrst kom út
hérlendis á vegum Re-
cord Records, en var í
framhaldinu gefin út
um allan heim gegn-
um breska plötu-
fyrirtækið Bella
Union.
Mammút fagnar heim-
komu með tónleikum
Á miðvikudag og fimmtudag Norðaustan og austan 5-13 m/s,
en 13-18 syðst. Dálítil él á SA- og A-landi, annars þurrt og víða bjart
veður. Frost 0 til 8 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Gengur í austan 10-15 m/s en 18-25 m/s
undir Eyjafjöllum og í Öræfum. Skýjað, él A-lands og slydda eða
snjókoma fram eftir degi á SA-landi. Frost 0 – 5 stig.
VEÐUR
„Japanska landsliðið er vel
samstillt vegna þess að
leikmenn þess hafa verið
mikið saman síðustu mán-
uði og nánast ekkert gert
annað en að æfa saman og
leika vináttu- og æfinga-
leiki,“ segir Björgvin Páll
Gústavsson, markvörður ís-
lenska landsliðsins í hand-
knattleik sem mætir jap-
anska landsliðinu í
vináttulandsleik í Laug-
ardalshöll. » 1
Samstillt jap-
anskt landslið
„Aðalbreytingin er sú að nýr þjálfari
kom með mjög skýra stefnu um
hvernig liðið eigi að leika. Það virðist
virka afar vel. Varnarleikurinn er öfl-
ugri en áður og þar af leiðandi hefur
markvarslan fylgt með eins og oft vill
verða,“ segir Rúnar Kárason, lands-
liðsmaður í handknattleik og leik-
maður Hannover-Burgdorf. Liðið hef-
ur staðið sig framar
vonum og er í þriðja
sæti þýsku 1. deild-
arinnar með 29
stig eftir 19
leiki. »4
Nýr þjálfari með skýra
stefnu fyrir liðið
Fyrsta deildarmark Jóhanns Bergs
Guðmundssonar fyrir Burnley
nægði liðinu ekki í viðureign við
Liverpool í gær í ensku úrvals-
deildinni í knattspyrnu. Jóhann
jafnaði metin skömmu fyrir leiks-
lok. Leikmenn Liverpool létu það
ekki slá sig út af laginu og Ragnar
Klavan skoraði sigurmarkið á ell-
eftu stundu í uppbótartíma. »2
Mark Jóhanns dugði
ekki gegn Liverpool
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Rétt fyrir áramótin kom Bjarni
Sveinsson á Húsavík úr sinni síðustu
ferð á flutningabíl úr Reykjavík, eft-
ir að hafa verið á ferðinni í 41 ár og
fimm mánuðum betur. Ferillinn hef-
ur verið langur og gifturíkur og
ferðir Bjarna milli Húsavíkur og
höfuðborgarinnar eru orðnar um
4.500. „Ég ætlaði alltaf að hætta eft-
ir fjörutíu ár á ferðinni sem var í
fyrra. Svo hins vegar tekur tíma að
gíra sig niður og leggja í stæðið ef
svo má að orði komast,“ sagði Bjarni
í samtali við Morgunblaðið.
Sumt í tilverunni virðist skrifað í
skýin eins og það að Bjarni Sveins-
son yrði bílstjóri; liðlega tvítugur
tók hann meiraprófið og byrjaði að
keyra steypubíl og 1976 – þá 25 ára –
hóf hann störf hjá Aðalgeiri Sigur-
geirssyni sem þá var með bíla í flutn-
ingum á Húsavíkurleiðinni. Það var
svo fyrir tólf árum sem Eimskip –
Flytjandi tók við þeirri útgerð og þá
fylgdi Bjarni með.
Betri bílar og breytt veðrátta
„Ég hafði stundum farið með Að-
algeiri suður mér til gamans svo ég
vissi um hvað þetta starf snerist. Í
tímans rás hef ég langmest verið í
ferðum til Reykjavíkur, oft tvær til
þrjár ferðir í viku, þó svo annað hafi
dottið inn líka. Flutningar að norðan
eru meðal annars afurðir frá kjöt-
vinnslum þar, sjávarútvegsfyr-
irtækjum og fiskeldinu en norður er
þetta mest almenn neysluvara,“ seg-
ir Bjarni og bætir við að á ferli sín-
um hafi orðið miklar breytingar; bíl-
arnir séu betri og öruggari og
sömuleiðis vegirnir. Þá sé veðráttan
önnur en var.
„Fyrr á árum gat vegurinn yfir
Vaðlaheiði lokast strax í fyrstu snjó-
um á haustin svo fara varð leiðina
um Dalsmynni sem stundum lok-
aðist líka. Seinna kom vegurinn yfir
Víkurskarð, sem reyndar lokast
mjög fljótt ef gerir norðvestanátt.
Fyrr á árum var leiðin norður aðeins
mokuð tvisvar í viku, það er á þriðju-
dögum og fimmtudögum og flutn-
ingar tóku mið af því. Því lenti mað-
ur í ýmsu og að vetrarlagi rétt upp
úr 1980 var ég tæplega eina viku að
komast úr Reykjavík norður á Húsa-
vík,“ segir Bjarni og heldur áfram:
Gríðarstór floti á siglingu
„Breytingin á veðráttunni er sú að
hríðarveður og snjókoma svo dögum
skiptir kemur ekki lengur. Hins veg-
ar fáum við núna oft langvarandi
storma og frost svo hálka á vegunum
er viðvarandi. Því er mjög inngróið í
mig að fylgjast vel með veðurspám í
útvarpinu og á leiðinni framundan
erum við bílstjórarnir alltaf í góðu
sambandi og miðlum okkar á milli
hver færðin sé. Ég gæti trúað að á
ferðinni milli Norður- og Suðurlands
séu frá Eimskip, Samskipum og
Vörumiðlun einhvers staðar á milli
60 og 70 bílar svo þetta er gríðarstór
floti sem er á siglingunni á milli
landshluta á kvöldin. Það er svo allt-
af fastur póstur hjá okkur bílstjór-
unum að stoppa í mat í Staðarskála.
Til Húsavíkur er ég svo oft kominn
fljótlega eftir miðnætti. Þá er eftir
að losa bílinn og skila af mér svo oft
er vinnudeginum ekki lokið fyrr en
klukkan að ganga fjögur á nótt-
unni.“
Eftir 41 ár í starfi og 4.500
Reykjavíkurferðir segist Bjarni láta
af störfum sáttur við allt og alla.
„Mér hefur alltaf fundist gaman að
vera á ferðinni; sjá og upplifa landið.
Allir staðir eru fallegir á góðum degi
á sumrin. Svo hef ég líka unnið með
frábæru fólki og góðir trukkar verið
settir undir mig; Benzarnir eru
margir og Volvo 500 sem ég hef ver-
ið á síðustu árin er sjálfskiptur og
mjúkur eins og fólksbíll,“ segir
Bjarni bílstjóri að síðustu. Lands-
hornaflakkinu er lokið.
Landshornaflakki er lokið
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Bílstjóri „Mér hefur alltaf fundist gaman að vera á ferðinni,“ segir Bjarni.
Bjarni Sveinsson Húsavíkurbílstjóri
er hættur eftir 41 ár á vegunum Að
baki eru alls 4.500 Reykjavíkurferðir
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Floti Tugir bíla frá ýmsum fyrirtækjum fara daglega milli suðvesturhorns-
ins og Norðurlands, þar með talið frá Eimskip þar sem Bjarni hefur unnið.