Morgunblaðið - 16.01.2018, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 2018
Félagsfundur verður haldinn í dag,
16. janúar 2018, kl. 18 í Fáksheimilinu
(Guðmundarstofu) í Víðidal.
Dagskrá.
Heimild fyrir stjórn til að kaupa fasteignina Brekknaás 9,
Reykjavík, sbr. 14. gr. í lögum félagsins.
Önnur mál
Stjórnin.
FÉLAGSFUNDUR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Davíð Oddsson ritstjóri verður sjö-
tugur á morgun, miðvikudaginn 17.
janúar. Árvakur, útgefandi
Morgunblaðsins, mbl.is og K100,
mun af því tilefni halda afmælishóf
honum til heiðurs í húsakynnum fé-
lagsins í Hádegismóum.
Davíð á langan og farsælan feril
á opinberum vettvangi. Hann sett-
ist ungur í borgarstjórn og tók við
embætti borgarstjóra árið 1982 og
gegndi því til ársins 1991 þegar
hann settist á þing og tók við emb-
ætti forsætisráðherra. Davíð lét af
embætti forsætisráðherra árið 2004
og tók þá við embætti utanríkis-
ráðherra sem hann gegndi í rúmt
ár þar til hann tók við embætti
seðlabankastjóra.
Davíð var seðlabankastjóri þar
til snemma árs 2009 en þá um
haustið tók hann við starfi ritstjóra
Morgunblaðsins og mbl.is.
Eins og áður segir heldur Árvak-
ur hóf í tilefni sjötugsafmælisins til
heiðurs Davíð og eru allir vinir og
velunnarar boðnir velkomnir í
húsakynni Árvakurs, Hádegis-
móum, á morgun á milli kl. 16 og
18.
Davíð Oddsson sjötugur
Morgunblaðið/Golli
Afmælishóf Davíð Oddsson 70 ára.
Árvakur býður til móttöku kl. 16 á morgun í Hádegismóum
Sigurður Bogi Sævarsson
Höskuldur Daði Magnússon
Erla María Markúsdóttir
Aukið magn jarðvegsgerla hefur greinst í
neysluvatni höfuðborgarbúa og mælst er til
þess að í flestum hverfum borgarinnar sjóði
fólk með veikt ónæmiskerfi, foreldrar ung-
barna, aldraðir eða fólk með undirliggjandi
sjúkdóma allt vatn sem það drekkur. Þetta
gerist vegna hláku að undanförnu í kjölfar
langs frostakafla. Hefur yfirborðsvatnið þá
borist niður í grunnvatn sem svo er tekið upp í
gegnum borholur á vatnsverndarsvæðinu.
Niðurstöður mælinga úr sýnum sem starfsfólk
Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur tók úr neyslu-
vatni fyrir helgina lágu fyrir í gær og stað-
festu þær að gerlamagnið er helmingi meira
en viðmið í reglugerð segir til um.
Mengun yfir mörkum
„Þetta er frekar lítil mengun, en yfir mörk-
um samkvæmt íslensku neysluvatnsreglu-
gerðinni, og okkur þótti rétt að láta almenning
vita, eins og rétt er,“ sagði Árný Sigurðardótt-
ir, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits
Reykjavíkur, í samtali við mbl.is
Fólk lítur þó misjöfnum augum á málið og á
Landspítalanum er staðan talin alvarleg. Í til-
kynningu frá sýkingavarnadeild sjúkrahússins
er því beint til starfsfólks að sjóða allt neyslu-
vatn fyrir jafnt sjúklinga sem starfsfólk „þar
til þessu neyðarástandi hefur verið aflétt“.
Einfaldasta leiðin sé að nota hraðsuðukatla á
öllum deildum, hella í vatnskönnur og kæla.
Sýkingavarnadeild er í nánu samstarfi við
sóttvarnalækni hjá embætti landlæknis og
heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur. Er þess jafn-
framt getið að Landspítala hafi ekki verið til-
kynnt sérstaklega um málið og stjórnendum
hafi borist fyrstu fréttir í fjölmiðlum.
Holur teknar úr notkun
Fyrir helgina tók starfsfólk Veitna sýni úr
borholum, eins og jafnan er gert til dæmis í
hlákutíð. Samkvæmt útkomunni sem þá
fékkst voru nokkrar holur teknar úr notkun
enda aukið magn jarðvegsgerla í vatninu. Ná-
ið hefur verið fylgst með ástandi vatnsins síð-
an og daglegar mælingar gerðar. „Núna bíð-
um við eftir næstu niðurstöðum úr sýnum og
mælingum og vonum að þetta sé afstaðið,“
sagði Ólöf Snæhólm Baldursdóttir, upplýs-
ingastjóri Veitna, í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi.
Vegna mengunar í vatninu mælir Heilbrigð-
iseftirlit Reykjavíkur í varúðarskyni með því
að neysluvatn sé soðið ef í hlut á fólk með
veikt ónæmiskerfi, ungbörn, aldraðir eða fólk
með undirliggjandi sjúkdóma. Þetta á við um
öll hverfi borgarinnar og Seltjarnarnes vestan
Elliðaáa auk Bryggjuhverfis, Grafarvogs utan
Húsahverfis, Ártúnshöfða og Kjalarness.
„Ábending okkar til fólks um að sjóða neyslu-
vatnið er fyrst og fremst varúðarráðstöfun,“
sagði Ólöf Snæhólm.
Hjá Veitum gildir sú regla að ef gerlamagn í
borholu mælist yfir mörkum er vatnstöku úr
henni hætt. „En einmitt núna er sú staða kom-
in upp að búið er að taka það margar holur úr
rekstri Veitna vegna fjölda jarðvegsgerla að
ekki er hægt að anna vatnsþörf viðskiptavina
ef fleiri holur yrðu teknar úr notkun eða þær
fjórar sem nú eru ekki virkar. Ef kæmi til
dæmis upp stórbruni í borginni og vantaði
vatn inn á kerfið gætum við þurft að grípa til
aðgerða,“ sagði Ólöf Snæhólm.
Reykvíkingar eiga heimtingu á að fá
greinargóðar skýringar
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í
Reykjavík, sagðist í samtali við mbl.is vera
kominn með gögn víðvíkjandi málinu og
myndi kynna sér þau vel. Brugðist yrði við
með viðeigandi hætti.
Eyþór Arnalds framkvæmdastjóri, sem
sækist eftir að leiða lista Sjálfstæðisflokksins í
borgarstjórnarkosningunum, segir í samtali
við Morgunblaðið að Reykvíkingar eigi heimt-
ingu á að fá greinargóðar skýringar á því
hvernig þetta gat gerst. ,,Getur verið að fyr-
irbyggjandi viðhaldi hafi verið ábótavant?
Hver ber ábyrgð á þessu?“ segir hann. Bæði
sé um að ræða mengað neysluvatn og mögu-
legan vatnsskort. Orkuveita Reykjavíkur hafi
unnið samkvæmt „plani“ um aðhald og vera
kunni að skortur á fyrirbyggjandi viðhaldi
kosti sitt á endanum, að mati Eyþórs.
Ljóst má vera að hjá matvælavinnslufyr-
irtækjum getur mengun í vatni haft mikil
áhrif á starfsemina. „Mitt fyrsta verk í fyrra-
málið verður að kynna mér málsatvik. En það
er alveg ljóst að fyrr munum við loka en senda
mengaða vöru frá okkur,“ sagði Andri Þór
Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar.
Jarðvegsgerlar mælast í vatninu
Mælt með að neysluvatn í nær öllum hverfum borgarinnar sé soðið ef neytendur þess eru viðkvæmir
Landspítalinn sendir út áríðandi tilkynningu vegna neyðarástands Reykvíkingar fái skýringar
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Vatnsveitan Hér sést dælustöð Veitna í Heið-
mörkinni skammt ofan við Reykjavík.
Góðir félagar voru heiðraðir og margir af bestu tónlist-
armönnum landsins komu fram á hátíð í Hörpu í gær-
kvöldi þar sem 100 ára afmælis Læknafélags Íslands
var minnst. Fram undan eru svo Læknadagar 2018 með
fjölbreyttri og árlegri dagskrá þar sem reifað verður
allt það nýjasta í deiglu læknavísindanna.
Morgunblaðið/Eggert
Ljúfir tónar á Læknadögum
Aldarafmæli Læknafélags Íslands haldið hátíðlegt
Alexander Gunnar Kristjánsson
agunnar@mbl.is
Eldur kom upp að nýju í glæðum
milli þilja á kjúklingabúi á Oddsmýri
á norðanverðri Hvalfjarðarströnd
undir kvöld í gær og var slökkvilið þá
kallað á vettvang þar í annað sinn
þann daginn. Að sögn Þráins Ólafs-
sonar, slökkviliðsstjóra hjá Slökkvi-
liðinu á Akranesi, tók slökkvistarf í
seinna sinnið einungis um tíu mín-
útur og tjón lítið.
Tíu milljóna króna tjón
Slökkviliðið var fyrst kallað að
Oddsmýri um þrjúleytið í gær vegna
elds sem talið er að hafi kviknað út
frá hitablásara. Fimmtán manns á
fjórum slökkvibílum fóru á staðinn
til að slökkva eldinn, sem drap um
tólf þúsund kjúklinga.
Björn Fálki Valsson, bústjóri á
kjúklingabúinu, taldi í samtali við
mbl.is í gær að meta mætti tjónið á
um 10 milljónir króna. Alls eru um 55
þúsund kjúklingar í fimm húsum í
búinu, sem er rekið á vegum Reykja-
garðs, en meginstarfsemi þess fyrir-
tækis er þó á Suðurlandi. Kjúkling-
arnir sem drápust höfðu komið á
búið fyrr um daginn en til stóð að
þeir yrðu aldir þar í fimm vikur eða
fram að sláturtíðinni.
12 þúsund kjúk-
lingar drápust
Eldsvoði í hænsnabúi í Hvalfirði
Kjúklingar Þúsundir drápust í elds-
voða á Oddsmýri í gærdag.