Morgunblaðið - 16.01.2018, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 2018
Skattadagur Deloitte, í samstarfivið Viðskiptaráð og Samtök
atvinnulífsins, er haldinn í dag
með fundi um eitt og annað sem
tengist sköttum.
Vonandi verðurþessi dagur til
góðs fyrir almenn-
ing og atvinnulíf,
ekki væri vanþörf á.
Skattar eru allt of háir hér álandi og hafa lítið lækkað frá
því að þeir náðu hæstu hæðum í
tíð vinstristjórnarinnar á árunum
2009 til 2013.
Það er með ólíkindum að lands-menn skuli enn sitja uppi með
megnið af skattahækkunum
vinstristjórnarinnar þó að nú sitji
þriðja ríkisstjórnin frá því að sú
skattaglaða var hrakin frá völdum
við lítinn orðstír.
Óskandi er að óheillaþróun ískattamálum hér á landi og
hægagangur í að vinda ofan af of-
ursköttunum verði til umræðu á
skattafundi skattadagsins, en í
dagskránni er raunar ekkert að
sjá sem bendir til þess.
Það er þess vegna hætt við aðskattadagurinn verði ekki til
að stuðla að lækkun skatta, brýn-
asta verkefninu á sviði skattamála
og að minnsta kosti einu því brýn-
asta á sviði stjórnmálanna.
Vonandi verður tækifærið þónotað til að ræða það sem
máli skiptir í sambandi við skatt-
ana og þá gæti jafnvel komið að
því að skattadagar almennings
yrðu ögn bærilegri, en eins og
skattlagningu er háttað á Íslandi í
dag má segja að allir dagar séu
skattadagar.
Hér eru allir dagar
skattadagar
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 15.1., kl. 18.00
Reykjavík -3 léttskýjað
Bolungarvík -4 alskýjað
Akureyri -1 skýjað
Nuuk -15 skýjað
Þórshöfn 2 rigning
Ósló -1 snjókoma
Kaupmannahöfn 1 skýjað
Stokkhólmur -1 skýjað
Helsinki -7 snjókoma
Lúxemborg 4 rigning
Brussel 6 rigning
Dublin 6 skúrir
Glasgow 4 skúrir
London 9 skúrir
París 8 rigning
Amsterdam 6 súld
Hamborg 3 rigning
Berlín 2 skýjað
Vín -1 alskýjað
Moskva -4 snjókoma
Algarve 15 heiðskírt
Madríd 7 heiðskírt
Barcelona 10 léttskýjað
Mallorca 13 léttskýjað
Róm 6 skýjað
Aþena 11 skýjað
Winnipeg -26 léttskýjað
Montreal -20 snjókoma
New York -3 snjókoma
Chicago -6 snjókoma
Orlando 12 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
16. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:53 16:24
ÍSAFJÖRÐUR 11:24 16:02
SIGLUFJÖRÐUR 11:08 15:44
DJÚPIVOGUR 10:28 15:47
Greiðsluáskorun
Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna
gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga frá
dagsetningu áskorunar þessarar:
Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur í eindaga
til og með 15. janúar 2018, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5. janúar
2018 og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og
með 15. janúar 2018, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds, virðisaukaskatti,
virðisaukaskatti í tolli, vanskilum launagreiðenda á gjöldum í og utan staðgreiðslu, fjármagns-
tekjuskatti á skilaskylda aðila, áfengisgjaldi, bifreiðagjaldi, úrvinnslugjaldi, olíugjaldi,
kílómetragjaldi, gistináttaskatti, fjársýsluskatti, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri
framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, árgjöldum, aðflutningsgjöldum,
skilagjaldi á umbúðir, fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum, jarðarafgjaldi, sektum
skattrannsóknarstjóra, ofgreiddri uppbót á eftirlaun, eftirlitsgjaldi Fjármálaeftirlitsins, árgjaldi
handhafa markaðsleyfis, veiðigjaldi og álögðum þing- og sveitarsjóðsgjöldum, sem eru:
Tekjuskattur og útsvar ásamt álagi á ógreiddan tekjuskatt og útsvar, útvarpsgjald,
gjald í framkvæmdasjóð aldraðra, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa,
auðlegðarskattur og viðbótar auðlegðarskattur, fjármagnstekjuskattur ásamt álagi á
ógreiddan fjármagnstekjuskatt, ógreiddur tekjuskattur af reiknuðu endurgjaldi ásamt
álagi, búnaðargjald, sérstakur fjársýsluskattur, sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki,
jöfnunargjald alþjónustu, ofgreiddar barnabætur og ofgreiddar vaxtabætur.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum
gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að
leiða, á kostnað gjaldenda.
Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir
gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 19.100 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald
er 2.000 kr. auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem
fyrst til að forðast óþægindi og kostnað.
Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald,
afdreginn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald, fjársýsluskatt, gistináttaskatt og virðisaukaskatt,
búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er skulda
bifreiðagjöld og kílómetragjald mega eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum
þeirra án frekari fyrirvara og þeir gjaldendur sem skulda gjöld þar sem lögveð fylgir mega
búast við að send verði út sérstök greiðsluáskorun fyrir gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin
hefur ekki áhrif á þessi innheimtuúrræði þannig að fyrrgreindur 15 daga frestur frá dagsetningu
áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum.
Reykjavík, 16. janúar 2018
Tollstjóri
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
Sýslumaðurinn á Vestfjörðum
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra
Sýslumaðurinn á Austurlandi
Sýslumaðurinn á Suðurlandi
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
Sýslumaðurinn á Suðurnesjum
Tjón vegna elds sem upp kom í
Hellisheiðarvirkjun sl. föstudag er
að mestu bundið við inntaksrými
loftræsibúnaðar, að því er fram
kemur í tilkynningu frá Orku nátt-
úrunnar (ON), dótturfélagi Orku-
veitu Reykjavíkur.
Samkvæmt upplýsingum frá ON
liggur fjárhagstjón ekki nákvæm-
lega fyrir. Er tjónið talið minna en
óttast var í fyrstu, en geti þó skipt
milljónum króna.
Virkjunin skilaði fullum afköstum
innan sólarhrings frá því eldurinn
kom upp.
Brunahólfun kom í veg fyrir að
eldur bærist í loftræsibúnaðinn sjálf-
an í aðliggjandi rými. „Inntaksrýmið
er gróft og fátt búnaðar þar inni.
Þannig er gólf rýmisins hellulagt.
Beðið verður eftir betri tíð með við-
gerð á þaki rýmisins, hugsanlega
fram á vor. Þá þarf að kanna hvort
eldurinn hefur haft áhrif á burð þak-
bita,“ segir m.a. í tilkynningunni.
Sýningin opnuð 22. janúar
Lögreglan á Suðurlandi fer með
rannsókn á upptökum eldsins. Svart-
ur reykur sem lagði frá eldinum, er
rakinn til þakpappa sem brann og
einangrunar á nokkrum rafmagns-
og stýristrengjum sem liggja um
inntaksrýmið.
Jarðhitasýning Orku náttúrunn-
ar, sem rekin er í Hellisheiðar-
virkjun, er lokuð vegna viðgerða á
gólfi sem skemmdist af slökkvivatni.
Stefnt er að því að opna hana að
nýju mánudaginn 22. janúar nk.
Milljónatjón
í eldinum á
Hellisheiði
Morgunblaðið/Hanna
Hellisheiði Bruninn í stöðvarhús-
inu er enn til rannsóknar.