Morgunblaðið - 16.01.2018, Side 11
11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 2018
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
Bakteríuvörn
Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum.
Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri
bakteríu- og sveppavörn.
Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone.
Blettaþolið Sýruþolið
Högg- og
rispuþolið
Kvarts steinn
í eldhúsið
silestone.com
Sími 775 1832 | Happie furniture - húsgögn
Sérsmíðuð húsgögn
fyrir heimili og fyrirtæki
Happie furniture
Draumasmíði
Við erum á facebook
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Vatteruð
vesti
Kr. 7.900.-
Str. M-XXXL
3 litir
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, kveðst afar
þakklát öllum þeim sem hafa stigið fram og sagt frá
reynslu sinni.
„Það er mikilvægt að enginn loki augunum gagnvart
þeirri samfélagslegu meinsemd sem kynbundin áreitni
og ofbeldi sannarlega er, að því er virðist í öllum kimum
samfélagsins,“ segir Agnes í pistli á heimasíðu sinni.
„Frásagnir prestvígðra kvenna komu mér ekki á
óvart. Ég hef sjálf starfað innan kirkjunnar í nær 40 ár
og bæði upplifað og séð ýmislegt á þeim tíma. Hitt er
svo öllum ljóst, að kirkjan hefur um langa hríð reynt að
vinna úr áreitnis- og ofbeldismálum þar sem sumt hefur tekist vel en
annað síður,“ segir biskup og rifjar upp að fyrir 20 árum hafi kirkjan sett
vinnureglur um meðferð áreitnismála sem kynnu að koma upp. Í
tengslum við þær sé nú verið að taka upp verklag í viðkvæmum að-
stæðum.
„Markmiðið er að tryggja rétta málsmeðferð hverju sinni og styðja við
þolendur, t.d. hvetja þá til að kæra mál til lögreglu séu þau þess eðlis og
veita hverjum og einum faglegan stuðning, og eftir atvikum einnig ger-
endum. Í sumum málum er kveðið á um skilyrðislausa tilkynningaskyldu
til yfirvalda, frávísun úr starfi – ýmist tímabundna á meðan rannsókn
stendur yfir eða varanlega – svo dæmi séu nefnd. Reglurnar hafa reynst
vel en þarfnast stöðugrar rýni, ekki síst hvað varðar forvarnir og
fræðslu,“ segir biskup.
„Ég tek hjartanlega undir þá sanngjörnu og eðlilegu kröfu sem prest-
vígðar konur hafa sett fram. Ég mun leggja mig alla fram við að bæta
starfsumhverfi kvenna og samskiptin milli fólks í kirkjusamfélaginu.“
Frásagnir koma ekki á óvart
BISKUP ÍSLANDS FAGNAR YFIRLÝSINGU PRESTVÍGÐRA KVENNA
Agnes M.
Sigurðardóttir
„Ég er mjög
ánægður
með þetta
framtak sem
leitt hefur
verið af fé-
lögum í Fé-
lagi prest-
vígðra
kvenna. Þær
hafa unnið
þetta mjög
vel,“ segir sr. Kristján Björns-
son, formaður Prestafélags Ís-
lands.
Kristján segist vera feginn
því að vakningin í kringum
#metoo-byltinguna hafi náð inn
í kirkjuna.
„Sögurnar eru hins vegar
dapurlegur vitnisburður um það
hvernig menn hafa farið yfir
mörk sem eiga að vera í sam-
skiptum,“ segir hann.
„Þær leggja til og fara fram á
aðgerðir og breytt vinnu-
umhverfi þannig að þær verði
öruggari. Það er rétt að taka
undir þær kröfur. Við þurfum að
hreinsa okkur af svona fram-
komu. Kirkjan á að vera hundr-
að prósent öruggur staður.“
Dapurlegur
vitnisburður
PRESTAFÉLAG ÍSLANDS
Kristján
Björnsson
#metoo
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Konur í prestastétt sendu í gær frá
sér yfirlýsingu vegna #metoo-
byltingarinnar. Undir yfirlýsinguna
rita 67 konur sem segjast, líkt og
aðrar konur, hafa búið við kynbund-
ið ofbeldi, áreitni og mismunun á
vinnustöðum sínum. Skora konurnar
á biskup og stofnanir kirkjunnar að
beita sér fyrir siðbót hvað varðar
vinnuumhverfi kvenna innan kirkj-
unnar. Með áskoruninni fylgja sögur
kvenna sem sýna hvernig áreitni
hefur viðgengist innan kirkjunnar.
Konur í prestastétt bætast í sí-
stækkandi hóp kvenna sem sagt
hafa sögur sínar og krafist aðgerða í
tengslum við #metoo-byltinguna.
Áður höfðu þrettán hópar kvenna
stigið fram með þessum hætti; kon-
ur í íþróttum, konur innan mennta-
geirans, konur í læknastétt, konur í
heilbrigðisþjónustu, konur í fjöl-
miðlum, konur í flugi, konur í rétt-
arvörslukerfinu, konur í hugbún-
aðar- og tækniiðnaði, konur í sviðs-
listum og kvikmyndagerð, konur í
vísindasamfélaginu, konur í tónlist,
konur í verkalýðshreyfingunni og
konur í stjórnmálum. Ríflega fimm
þúsund konur hafa ritað undir þess-
ar yfirlýsingar og sögurnar eru vel á
sjöunda hundrað.
Breytinga er þörf
Yfirlýsing kvenna í prestastétt er
svohljóðandi: „Konur í prestastétt
búa, líkt og aðrar konur, við kyn-
bundið ofbeldi, áreitni og mismunun
á vinnustöðum sínum. Gerendur eru
yfirmenn, samstarfsfólk, sjálfboða-
liðar og þau sem nýta sér þjónustu
kirkjunnar.
Allar konur eiga rétt á að starfa í
öruggu umhverfi, vera lausar við
kynbundið ofbeldi, áreitni og mis-
munun af öllu tagi í sínum störfum.
Frásagnir prestvígðra kvenna sem
starfa í þjóðkirkjunni sýna svart á
hvítu að breytinga er þörf.
Þjóðkirkjan hefur líkt og mörg
önnur félagasamtök og stofnanir
markað stefnu og búið til úrræði í
þessum málum en sögur kvenna í
kirkjunni sýna að mikið verk er
óunnið þar sem annars staðar í sam-
félaginu.
Við undirritaðar skorum á biskup
Íslands, kirkjuráð, kirkjuþing,
presta og sóknarnefndir að beita sér
fyrir siðbót hvað varðar vinnu-
umhverfi kvenna, prestvígðra og
annarra, í kirkjunni.“
Nuddaði kynfærum við prest
Samhliða áskorun sinni birtu kon-
ur í prestastétt ríflega sextíu sögur
úr starfi sínu. Sögurnar eru mis-
jafnar en hér fylgja dæmi af nokkr-
um þeirra.
„Eftir messu kom sóknarnefndar-
maður til mín til að þakka mér með
faðmlagi fyrir messu – eins og við
gerum svo oft í kirkjunni. Nema í
þetta skipti fannst honum við hæfi í
miðju faðmlagi að reka snöggt fram
miðju sína, já kynfærin, og nudda
þeim upp við mig. Og um leið og
faðmlaginu lauk horfði hann á mig
glottandi og gekk í burtu. Hvað ger-
ir kona? Frýs, fyllist óhug og verður
algerlega miður sín … og þegir.“
„Áður en ég hlaut vígslu vann ég á
stað þar sem mörg vígð áttu erindi.
Flest þeirra þekkti ég vel og einn
þeirra hafði verið sóknarpresturinn
minn til margra ára og ég unnið ým-
is störf í kirkjunni okkar. Eitt sinn
þegar hann kemur til að vinna emb-
ættisverk á vinnustað mínum víkur
hann sér að mér, tekur fast utan um
mig og kyssir mig beint á munninn.
Ég ýtti honum frá mér og sagði hon-
um að þetta skyldi hann láta vera, ég
kærði mig ekki um slíkt. Ég hafði
aldrei verið „vöruð“ við þessum
manni eins og margar í okkar stétt
höfðu verið. Ég kom alveg af fjöllum
og taldi að um einangrað tilvik hefði
verið að ræða.“
„Í nokkur skipti á starfsferli mín-
um hefur það komið fyrir að fólk hafi
ákveðið að þiggja ekki þjónustu
mína við útför vegna þess að ég er
kona. Útskýringar eins og: „Mamma
hefði ekki viljað að kona jarðaði sig“,
„bróðir minn er svo mikið á móti
kvenprestum að hann getur ekki
hugsað sér að þú jarðir fyrir fjöl-
skylduna“ og „systir mín heyrir ekk-
ert í kvenprestum svo það gengur
ekki að þú jarðir“.
„Ég minnist mannsins sem sagði
að hann hefði farið inn á klósettið í
kirkjunni eftir að ég var þar. Hann
vildi vita hvernig prestur gæti bless-
að söfnuðinn þegar hún væri á túr.
Fyrstu mánuðina og árin eftir að
þetta gerðist hugsaði ég um þetta í
hvert skipti sem mér blæddi. Ég sá
andlitið á honum fyrir mér og fannst
ég skítug.“
„Mamma hefði ekki vilj-
að að kona jarðaði sig“
Konur í prestastétt vilja siðbót í vinnuumhverfi sínu
Morgunblaðið/Ómar
Prestastefna 67 konur í prestastétt sendu í gær frá sér yfirlýsingu í
tengslum við #metoo. Þær krefjast siðbótar í starfsumhverfi sínu.