Morgunblaðið - 16.01.2018, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 2018
S JÁ L F S TÆÐ I S F L O KKUR I N N
Fyrir okkur öll
Hádegisfundur með Bjarna
Samtök eldri Sjálfstæðismanna boða til hádegisfundar í Valhöll,
miðvikudaginn 17. janúar, kl. 12.00 á hádegi, en húsið verður opnað
kl. 11:30.
Gestur fundarins verður Bjarni Benediktsson, fjármála- og
efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Boðið verður upp á súpu
gegn vægu gjaldi, 900 krónur.
Allir velkomnir!
SAMTÖK ELDRI SJÁLFSTÆÐISMANNA
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Áætlanir gera ráð fyrir að í ár verði
seld yfir 20 þúsund tonn eða um 120
milljón dósir af skyri víða um heim.
Salan hefur aukist með hverju árinu
og ýmislegt er í farvatninu, en skyr er
nú markaðssett undir alþjóðlega vöru-
merkinu ÍSEY skyr. Mjólkursam-
salan reiknar með að vinna í 27 mark-
aðslöndum á þessu
ári, að sögn Jóns
Axels Péturs-
sonar, fram-
kvæmdastjóra
sölu- og markaðs-
sviðs MS.
Finnland er það
land þar sem mest
er selt af skyri og
var vöxturinn þar
ævintýralegur
fyrstu árin. Alls
voru seld um 4.900 tonn af skyri í
Finnlandi í fyrra í 30 milljón dósum
fyrir tæplega tvo milljarða króna. Mið-
að við sölu á hvern íbúa er Ísland þó
enn í efsta sæti með um 2.800 tonn.
Tollkvótar Evrópusambandsins
setja útflutningi verulegar skorður, en
nú er þakið 390 tonn en mun á næstu
fjórum árum hækka í 4.000 tonn.
Kvótinn hefur til þessa einkum verið
nýttur í útflutning til Finnlands og
Bretlands, en hann hefur ekki dugað
til og hefur skyr einnig verið framleitt
í Danmörku fyrir þessa markaði. Árið
2017 var fyrsta heila árið í sölu og
markaðssetningu á skyri í Bretlandi
og Sviss og var árangur umfram áætl-
anir.
Óvissa í Bretlandi
Á miðju þessu ári er reiknað með að
tollkvótar á skyri verði auknir í 900
tonn samkvæmt samningi Íslands og
ESB, en á móti verði m.a. leyfður inn-
flutningur á tollfrjálsum ostum frá
ESB. Í ljósi óvissunnar vegna útgöngu
Breta úr Evrópusambandinu ákvað
MS hins vegar að hefja viðræður við
mjólkurbú í Wales um framleiðslu á
skyri og er reiknað með að sú fram-
leiðsla hefjist á miðju þessu ári.
„Þetta er gert til að anna framtíðar-
eftirspurn eftir ÍSEY-skyri í Bretlandi
og til að taka út þá áhættu sem er
samfara útgöngu Breta úr Evrópu-
sambandinu en við það mun tollkvót-
inn inn á ESB ekki nýtast,“ segir Jón
Axel. „Hugmyndin var alltaf að nota
þennan væntanlega 4.000 tonna kvóta
sem koma átti á næstu fjórum árum til
að selja íslenskt skyr í Bretlandi sem
var hluti af ESB þegar þessir tvíhliða
tollasamningar voru gerðir. Nú er
óvíst hvort þessi kvóti muni ganga í
Bretlandi í framtíðinni vegna útgöngu
Breta úr ESB.
Þarna hefur því á samningstíman-
um um þessa tvíhliða tollasamninga
Íslands og ESB orðið ákveðinn for-
sendubrestur þegar markaður með 60
milljón neytendur verður ekki lengur
hluti af ESB. Vegna fjarlægðarinnar
frá Íslandi og vegna þess hversu
mjólkurmarkaðurinn þar er móttæki-
legur fyrir skyri var Bretland alltaf
hugsað sem aðal-útflutningsmarkaður
fyrir þennan 4.000 tonna framtíð-
arkvóta sem átti að vera kominn að
fullu í gildi árið 2022. Nú hefur orðið
breyting á því.“
Aukinn kvóti getur nýst víða
Í Finnlandi er sama fyrirkomulag
og í öðrum löndum ESB, en mark-
aðirnir í Sviss og Færeyjum eru ekki
háðir tollkvótum ESB. Aukinn toll-
kvóti ESB getur mögulega nýst í
Finnlandi og fjölmörgum öðrum Evr-
ópulöndum þar sem undirbúnings-
starf er nú þegar í gangi.
Á fjarlægari mörkuðum þar sem
ekki er hægt að selja skyr frá Íslandi
er stefna MS að gera ÍSEY-
vörumerkja- og framleiðsluleyfis-
samninga. Undirbúningur og samn-
ingaviðræður um slíka samninga eru
nú í fullum gangi í stórum markaðs-
löndum eins og Rússlandi, Kína og
Japan. Þegar eru í gildi slíkir samn-
ingar í 13 löndum.
Skyrið í útrás og yfir
20 þúsund tonn í ár
MS vinnur í 27 markaðslöndum Framleiðsla hefst í Wales
Söluþróun í Evrópu 2012-2017
tonn
Noregur Finnland Danmörk
Ísland Svíþjóð Sviss
Bretland Samtals tonn
Jón Axel
Pétursson
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Alþjóða bridsmótið „Reykjavík-
bridgefestival 2018“ verður haldið
dagana 25.-28. janúar næstkom-
andi. Þau tímamót verða nú að mót-
ið verður haldið í Hörpu eftir að
hafa verið haldið 36 ár samfleytt á
Hótel Loftleiðum, nú Hótel Natura.
Alþjóðlega Reykjavíkurskákmótið
hefur verið haldið í Hörpu frá árinu
2012 og og því má segja að Harpa
sé orðin heimili tveggja af vinsæl-
ustu hugaríþróttum í heimi.
Fram kemur á vef Bridge-
sambands Íslands að spilað verði í
sýn- ingarsalnum Flóa á 1. hæð
Hörpu. Það er sama svæði og skák-
menn sitja að tafli. Skráning stend-
ur yfir og samkvæmt yfirliti á vefn-
um gengur hún vel. Fjöldi þekktra
spilara, erlendra sem innlendra,
hefur skráð sig til leiks. Þátttak-
endur í mótinu hafa oftast verið á
bilinu 350-400 talsins.
Mótið verður sett klukkan 19
fimmtudaginn 25. janúar. Para-
keppni verður á fimmtudag og
föstudag sen sveitakeppni á laug-
ardag og sunnudag. Mótinu á að
ljúka klukkan 17.45 á sunnudeg-
inum.
„Harpa er langbesti staðurinn til
að hafa svona viðburði. Útlendingar
elska þennan keppnisstað í skákinni
og það munu bridsmenn væntan-
lega gera einnig,“ segir Gunnar
Björnsson, forseti Skáksambands
Íslands.
Minningarmót um Fischer
GAMMA Reykjavíkurskákmótið
fer að þessu sinni fram 6.-14. mars.
Mótið núna er jafnframt minning-
armót um Bobby Fischer. Í tilefni
þess verður frídagur tekin 9. mars,
afmælisdag Fischers, og haldið
Fischer-random skákmót. Það mót
er jafnframt Evrópumót í Fischer-
random skák, það fyrsta í sögunni
að sögn Gunnars. Hann gerir ráð
fyrir að þátttakan verði svipuð í ár
og undanfarin ár, einhvers staðar á
milli 220-250 keppendur. Stigahæsti
skráði keppandinn sem stendur er
Pavel Eljanov en hann hefur 2711
Elo-stig.
Morgunblaðið/Ómar
Harpa Hefur verið vettvangur Reykjavíkurskákmótsins síðan 2012.
Harpa er heimili
hugaríþróttanna
Bridsmenn kveðja Hótel Loftleiðir
eftir 36 ára samfellda spilamennsku
Nokkrar aðferðir eru við fram-
leiðslu og markaðssetningu á
ÍSEY skyri, sem nú er selt víða um
heim. Það er ýmist framleitt hér á
landi, erlendis fyrir MS sam-
kvæmt sérstökum samningi vegna
takmarkaðs tollkvóta eða erlendis
með sérstökum vörumerkja- og
framleiðsluleyfissamningi og loks
er MS hluthafi í Iceland Provision
sem sér um sölu og markaðs-
setningu á skyri í Bandaríkjunum.
ÍSEY skyr/skyrdrykkir
frá Íslandi
Færeyjar.
b. England/Írland fram á mitt ár.
c. Sviss.
d. Finnland.
Vörumerkja- og
framleiðslusamningar
a. Noregur frá 2010.
b. Danmörk frá 2006.
c. Ástralía/Nýja Sjáland og átta
önnur lönd – samningur gerður
2017 við íslenskan fjárfesti bú-
settan í Nýja-Sjálandi – fram-
leiðsla hefst 2018.
d. Japan. Stefnt að því að ljúka
samningi á fyrri hluta ársins 2018,
tvö fyrirtæki eru til skoðunar.
e. Kína. Samningaviðræður eru í
gangi við þriðja stærsta mjólk-
urfyrirtæki Kína. Sendinefnd frá
Kína væntanleg í mars/apríl 2018.
f. Rússland. Samningar verða und-
irritaðir í lok janúar.
Eigin sala og framleiðsla
erlendis vegna
kvótatakmarkana
a. Finnland.
b. England/Írland. Framleiðsla
hefst á miðju ári 2018.
c. Belgía/Holland/Lúxemborg.
Sala hefst í mars 2018 á þessum
mörkuðum.
d. Ítalía. Byrjað að selja á þessum
markaði í nóvember 2017.
e. Spánn. Samningarviðræður við
dreifingaraðila í gangi. Stefnt að
því að byrja sölu á árinu 2018.
f. Frakkland. Leit að samstarfs-
aðilum stendur yfir. Stefnt að því
að byrja sölu á árinu 2018.
g. Portúgal. Samningaviðræður
við dreifingaraðila standa yfir.
Stefnt að því að byrja sölu á árinu
2018.
Framleitt heima og erlendis
BREYTILEGAR AÐFERÐIR EFTIR MARKAÐSSVÆÐUM