Morgunblaðið - 16.01.2018, Side 18

Morgunblaðið - 16.01.2018, Side 18
BAKSVIÐ Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Um 130 nemendur í grunn-skólum Reykjavíkursýna samnemendum sín-um og starfsfólki skól- anna ógnandi hegðun og valda tölu- verðri truflun á skólastarfi. Þau úrræði, sem hingað til hafa verið í boði fyrir þennan hóp hafa ekki dug- að sem skyldi, en nú hefur verið ákveðið að teymi fagfólks taki fljót- lega til starfa og er því ætlað að fara á milli skólanna og vinna með þessi börn. „Hugmyndin er að skipta borg- inni upp í tvö svæði og í hvoru þeirra verður sex manna teymi sem fer inn í skólana og vinnur með nemandanum í hans umhverfi,“ segir Helgi Gríms- son, sviðsstjóri skóla- og frí- stundasviðs borgarinnar. „Teymið mun laga sig að aðstæðum barns- ins.“ Að sögn Helga verða m.a. sál- fræðingar, félagsráðgjafar, atferl- isfræðingar og þroskaþjálfar í teym- unum. Auk þess að vinna með einstökum nemendum er teyminu ætlað að veita kennurum og öðru starfsfólki leiðsögn. Hann segir að ef inngrip teymisins dugi ekki til, geti þurft að senda barnið í aðrar að- stæður ýmist utan skólans eða innan hans og nefnir þar sem dæmi Brúar- skóla. Þau ógna og trufla Síðasta vor var gerð könnun meðal skólastjóra í grunnskólum Reykjavíkur og þar var spurt hvort í skólanum væru nemendur sem sýndu mikla ógnandi hegðun, eink- um líkamlega, og hvort þeir yllu verulegri truflun á skólastarfi. Nið- urstaðan var að í þeim hópi eru sam- tals um 130 nemendur í 1.-10. bekk og í kjölfarið var skipaður starfs- hópur um skipulag úrræða fyrir þennan hóp grunnskólanemenda. Tillögur hópsins voru kynntar á fundi skóla- og frísundaráðs Reykja- víkur í síðustu viku og þar var sam- þykkt að vísa þeim til umsagnar skólastjóra- og kennarafélaga í borg- inni og skólaþjónustu velferðarsviðs. „Þetta er reyndar mjög mis- munandi eftir skólum. Í sumum þeirra eru 4-5 nemendur sem falla í þennan hóp og öðrum skólum er eng- inn,“ segir Helgi sem ekki vildi til- greina hvernig skiptingin væri á milli skóla. Spurður um kynjahlutföll í þessum 130 barna hópi segir hann þau ekki liggja fyrir, en segist telja að í honum séu ívið fleiri drengir en stúlkur. Ýmsar ástæður hegðunar Helgi segir að ýmsar ástæður séu fyrir þessari hegðun nemend- anna. Hann segir að sumir séu með greiningar eins og t.d. ADHD og jafnvel fleiri en eina. Aðrir eru ekki með greiningu, en greining er ekki forsendan fyrir því að njóta þjónustu farteymisins. „Teymið mun vinna með þau börn sem bregðast við ýmsum að- stæðum með truflandi hegðun og/ eða líkamlegri áreitni. Þegar ég var í grunnskóla, sem var reyndar fyrir allnokkru, voru þessi börn kölluð hrekkjusvín. En þetta eru einfald- lega börn sem meiða aðra misoft og misalvarlega. Þetta er breiður hóp- ur; allt frá því að vera með einstakar ýtingar og hrindingar og í það að slá og sparka nánast daglega.“ Tími kominn á nýja nálgun Spurður hvort áður hafi verið unnið á þennan hátt innan skólakerf- isins segir Helgi svo ekki vera en þetta sé rökrétt nálgun á þennan vanda sem verði sífellt umfangs- meiri. Tími sé kominn til að reyna nýjar leiðir. „Í staðinn fyrir að setja börn í einhver sérstök úrræði verður það alltaf að vera fyrsti valkostur að vinna með barnið í daglegu umhverfi þess, Þar eru þeir sem þekkja barnið best, þar er forsaga sem getur varp- að ljósi á aðstæður og fleira. Þetta vinnulag hefur verið að þróast innan barnaverndarinnar og núna erum við að taka það upp,“ segir Helgi. „Þau voru áður fyrr kölluð hrekkjusvín“ Morgunblaðið/Eggert Börn í vanda „Þetta eru börn sem meiða aðra misoft og misalvarlega. Þetta er breiður hópur,“ segir Helgi Grímsson, sviðsstjóri hjá borginni. Helgi Grímsson 1% nemenda » Samkvæmt mati skóla- stjóra í Reykjavík þurfa um 130 nemendur sem beita ofbeldi og trufla skólastarf, á þjónustu sérhæfðs teymis að halda. » Þetta er um 1% nemenda í grunnskólum borgarinnar. » Borginni verður skipt í tvö svæði og mun sex manna teymi fagfólks sinna nem- endum á hvoru svæði fyrir sig. 18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Sá óskemmti-legi atburð-ur varð á Havaíeyjum á laugardaginn, að loftvarnaflautur ríkisins gullu fyrir handvömm starfs- manns almanna- varna. Fengu íbú- ar ríkisins þar með þau skilaboð, og einnig í síma sína, að eldflaugaárás væri yfirvof- andi. Atvikið olli eðlilega al- mennri skelfingu, þar sem fólk taldi stórhættu á ferðum. Svo var sem betur fer ekki en þessi hörmulegu mistök hafa orðið til þess að traust Havaíbúa til loftvarnakerf- isins hefur nú minnkað veru- lega. Gagnrýnendur segja að loftvarnaflauturnar, sem sett- ar voru upp á síðasta ári, hafi lítið gert annað en að auka á kvíða fólks, sér í lagi þar sem ljóst er að það mun nær engan viðbragðstíma fá til þess að koma sér í öruggt skjól, ef um alvöruárás yrði að ræða. Þá hefur atvikið eflaust rist dýpra í meðvitund Havaíbúa í ljósi þess að þar var gerð ein frægasta skyndiárás sög- unnar, árásin á Pearl Harbor. Í því samhengi þarf að hafa í huga að ástæða þess að loft- varnaflauturnar voru yfirhöf- uð settar upp voru eldflauga- æfingar Norður-Kóreumanna, sem og ítrekaðar hótanir þeirra um að þeir muni þróa kjarnorkueldflaug, sem geti náð til Bandaríkjanna. Viðvör- unarbúnaðurinn getur því ekki talist ónauðsynlegur, þrátt fyrir að svo óhönduglega hafi tekist til við meðhöndlun hans nú. Málið undir- strikar þó fyrst og fremst nauðsyn þess að þjóðir heims taki höndum saman um að knýja Norður- Kóreu, með góðu ef nokkur kostur er, til þess að láta af hendi kjarnorkuvopn sín og hætta við allar kjarnorku- áætlanir. Engin önnur lausn er ásættanleg í kjarnorkudeil- unni á Kóreuskaganum en að Norður-Kóreumenn afvopnist. En það eru ekki bara Norð- ur-Kóreumenn sem hafa sýnt af sér stórfellt gáleysi með sókn sinni í gjöreyðingarvopn. Við sjóndeildarhringinn bíða Íranar spakir eftir því að kjarnorkusamningurinn, sem undirritaður var við ríkið árið 2015, renni úr gildi. Eftir árið 2030 munu engar kvaðir vera á stjórnvöldum þar sem geta hindrað þau í að verða sér úti um kjarnorkuvopn á tiltölu- lega skömmum tíma. Deila annarra þjóða við Norður-Kóreu er því meðal annars prófsteinn á það, hvort mögulegt er að koma í veg fyr- ir að útbreiðsla kjarn- orkuvopna verði almennari en hún er nú. Það er brýnt mark- mið, því að auðvitað væri æskilegast að engin þörf væri á loftvarnaflautum eins og þeim, sem blésu til ótíma- bærra Ragnaraka í Havaí um helgina. Það markmið mun hins vegar ekki nást ef sífellt fleiri ríkjum, sér í lagi þeim sem hafa sýnt að þau eru hættuleg öðrum, tekst að koma sér í hóp kjarnorku- væddra ríkja. Loftvarnaflautur gullu fyrir mistök, sem mætti verða áminning um að hefta útbreiðslu kjarnorkuvopna} Blásið til ótímabærra ragnaraka Í fyrrasumar varupplýst um það, sem borgar- yfirvöld höfðu þagað um, að skolpdælustöð hefði bilað og dælt gríðarlegu magni af úrgangi í fjöruna við Faxaskjól. Saur- gerlamengunin fór langt yfir viðmiðunarmörk og upplýsti starfsmaður borgarinnar að hann mundi ekki fara með börn sín í fjöruferð við slíkar aðstæður. Engu að síður sýndi borgin og borgarstjóri málinu engan áhuga og dróst úr hömlu að leysa vandann. Í gær gerðist það svo að borgaryfirvöld sendu frá sér viðvörun – það er þó þakk- arvert að þau skyldu ekki reyna að þegja málið í hel að þessu sinni – um að neysluvatn í borginni væri mengað. Greint var frá því að borgarbúar skyldu sjóða neysluvatnið, sem er með miklum ólíkindum að borg- arbúum skuli boðið upp á í landi sem hingað til hefur get- að verið stolt af hreinu og tæru vatni. Skýringarnar sem gefnar eru verða að teljast ótrúverð- ugar og allt bendir til að þetta sé enn eitt dæmið um að inn- viðir borgarinnar hafa verið látnir drabbast niður á und- anförnum árum á kostnað gæluverkefna meirihlutans. Þetta hlýtur að vera dropinn sem fyllir mælinn. Reykjavíkurborg varar við neyslu- vatninu sem hún selur borgarbúum} Dropinn sem fyllir mælinn Þ að er mikið fagnaðarefni að íslensk- an muni verða fullgild í stafrænum heimi árið 2022. Ríkisstjórnin mun verja á næsta ári 450 milljónum króna til máltækniáætlunar. Með máltækniáætluninni eru sett fram verkefni til að byggja upp nauðsynlega innviði svo að við getum notað íslenskuna í tækni framtíðarinnar og hún sé þannig gjaldgeng í samskiptum sem byggjast á tölvu- og fjarskiptatækni. Máltækni er tækni sem gerir hugbúnaði kleift að fást við tungumál. Mikil bylting hefur átt sér stað á sviði máltækni og með nýrri tækni verður tungumálið meira notað í samskiptum við tæki. Tölvur eiga erfiðara með tungumál en flókna útreikninga þar sem tungumál taka stöð- ugum breytingum og eiginleikar fólks til að tala, skilja og þróa tungumálið eru meðfæddir. Í áætluninni sem er til fimm ára er lögð áhersla á þróun talgreinis, talgervils, þýðingarvélar og málrýni. Lausnirnar verða notaðar af almenningi, fyrirtækjum og stofnunum. Aðferðir til máltækni hafa þó lengi verið þróað- ar og það hefur sýnt sig að búnaðurinn hefur náð gríð- arlegri dreifingu. Ef íslenskan verður ekki þar á meðal tungumála er mikil hætta á einangrun og stöðnun. En hvernig virkar öll þessi nýja tækni? Talgreinar breyta töluðu máli í ritmál en mikil tækifæri eru í radd- stýrðum samskiptum t.d. við akstur. Þýðingarvélar munu auka framleiðni þýðenda og gera efni á öðrum tungu- málum aðgengilegt á íslensku. Talgervlar munu gera fleiri bækur aðgengilegar á hljóðbókaformi. Málrýni aðstoðar við villur í textum. Þá munu sjálfvirk samtals- og fyrirspurnakerfi bæta þjónustu fyrirtækja og stofnana og stuðla að mikilli hagkvæmni. Einnig mun máltækni bæta líf margra ein- staklinga sem vegna sjúkdóma eða fötlunar geta ekki talað eða skrifað, hugbúnaður sem gerir þeim það kleift gjörbreytir lífi þeirra. Það er þó ekki nóg að byggja upp innviði fyr- ir máltæknina heldur er mikilvægt að ýta undir nýsköpun og tækniþróun í kjölfarið, líkt og áætlunin gerir ráð fyrir. Þróunin er hröð og frumkvæði atvinnulífsins og einstaklinga því mikilvægt svo tæknin fylgi framförum og breytingum sem verða. Á ógnarhraða hefur samfélagið þróast svo að gögn og upplýsingar eru aðgengilegri og mikilvægari en áður. Það er mikilvægt markmið að koma íslenskunni í aukna notkun á öllum sviðum samfélagsins, þar á meðal í tækninni sem verður sífellt stærri partur af tilverunni okkar. Til að íslenskan sé valkostur verður að fjárfesta í tækniþróun. Við hefðum getað valið glötuð tækifæri og litla sem enga tækni fáanlega á íslenskri tungu, en við völd- um að fjárfesta í íslenskunni til að bæta lífsgæði og sam- keppnishæfni samfélagsins, tungumálsins og atvinnulífs- ins. Eins og segir í Íslenskuljóði Þórarins Eldjárns ,,Að gæta hennar gildir hér og nú, það gerir enginn – nema ég og þú.“ Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir Pistill ,,Að gæta hennar gildir hér og nú“ Höfundur er formaður utanríkismálanefndar og ritari Sjálfstæðisflokksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.