Morgunblaðið - 16.01.2018, Síða 19

Morgunblaðið - 16.01.2018, Síða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 2018 Á undanförnum sjö árum hafa ríkisútgjöld aukist um 170 millj- arða án þess að fram- leiðni eða virðis- aukning hafi átt sér stað hjá ríkinu. Ennþá berast fréttir af aukn- um ríkisútgjöldum án þess að krafist sé hag- ræðingar á móti. Fáar fréttir eru frá ráðherr- um og stjórnmálamönnum um hag- ræðingu í ráðuneytum, stofnunum og fyrirtækjum ríkisins. Það væri tilbreyting að heyra af 50-100 millj- arða hagræðingu í rekstri ríkisins með aukinni framleiðni og nýsköp- un, en hagræðing í ríkisrekstri er verðmætasköpun. Stjórnmálamenn og embættismenn þurfa að móta langtímastefnu um aukna framleiðni og nýsköpun í rekstri ríkisins á næstu árum. Skattstofnar eru full- nýttir og í raun alltof háir horft til framtíðar. Núverandi staða á rekstri ríkisins er óviðunandi og grípa þarf til róttækra aðgerða til að stöðva þessa óheillaþróun. Mikl- ar launahækkanir, aukning lífeyris- skuldbindinga, há vaxtagjöld og hugmyndafátækt í nýsköpun í rekstri í stafrænni veröld benda til þess að ekki sé búið að stöðva þessa þróun. Það sem einkennir yfirleitt slaka stjórnmálamenn, stjórnmála- flokka og embættismenn eru skatta- hækkanir, aukning útgjalda og skuldasöfnum. Áður hefur verið fjallað um Reykjavíkurborg og skuldahalann en heild- arskuldir sem hlutfall af reglulegum tekjum nema 187% sem er töluvert fyrir ofan lagaskyldu. Til þess að ná árangri í hagræð- ingu og aukinni fram- leiðni hjá ríkissjóði þarf að byrja strax. Hægt væri að byrja á einkavæðingu RÚV sem myndi spara strax 5-6 milljarða á ári, en sú ríkisstofnun hefur þurft að nýta lóðasölu til að ná niður skuldsetningu, vegna slæms rekstr- ar til fjölda ára. RÚV fær um 4 milljarða frá skattgreiðendum á hverju ári auk þess að fá um 2 millj- arða af auglýsingamarkaði í sam- keppni við einkaaðila. Það þarf ekki mikið ímyndunarafl til að fá mjög góðar hagræðingarhugmyndir sem myndu lækka ríkisútgjöld strax um 15-20%. Það þarf einungis vilja til að framkvæma þær aðgerðir. Á sama tíma og tekjur ríkissjóðs hafa aukist mikið á undanförnum árum vegna hagvaxtar hafa ríkisútgjöld aukist án nokkurs aðhalds. Í stað hagræðingar í rekstri rík- isins og niðurgreiðslu skulda t.a.m. með því að auka inngreiðslur inn á áfallnar lífeyrisskuldbindingar sem nema nú um 855 mö.kr. eða 35% af landsframleiðslu. Lífeyrisskuldbind- ingar ríkissjóðs hafa tvöfaldast á undanförnum 10 árum þrátt fyrir að ríkissjóður hafi greitt 207,8 ma.kr. aukagreiðslur inná vegna bak- ábyrgðar ríkissjóðs. Fjármálastjóri og hagræðing- arstjóri til ríkissjóðs Undanfarin ár hefur ríkissjóður ekki nýtt fengið svigrúm til hagræð- ingar og aukinnar framleiðni í rík- isrekstrinum. Aldrei hefur verið mikilvægara að rekstur ríkissjóðs sé rekinn eins og framúrskarandi fyrirtæki í ljósi þess að skattgreið- endur þurfa að greiða óhagkvæman ríkisrekstur í framtíðinni. Mikil- vægasta aðgerð í hagstjórn á Ís- landi á næstu árum er að lækka út- gjöld ríkissjóðs, auka framleiðni í ríkisrekstri og greiða niður skuldir. Auglýsa þarf eftir tveimur öflugum aðilum til að manna tvær mik- ilvægar stöður í fjármála- ráðuneytinu. Annarsvegar fjár- málastjóra (CFO) sem myndi reka ríkissjóð með sama hætti og fram- úrskarandi fyrirtæki og hinsvegar hagræðingarstjóra (COO) ríkissjóðs sem myndi hagræða ásamt sinni víkingasveit þannig að úreltar stofn- anir og fyrirtæki innan ríkisgeirans væru lögð niður eða einkaaðilar látnir sjá um reksturinn þar sem það á við. Í stafrænni veröld og með aukinni sjálfvirkni ætti að vera mögulegt að hagræða enn frekar í ríkisrekstri, bæta úrelt skipulag á mörgum sviðum og í rekstri stofn- ana ríkissjóðs. Auka þarf framleiðni og samkeppni í heilbrigðismálum og menntamálum með sama hætti og gerist annars staðar á Norður- löndum og ná þannig fram hagræð- ingu og samkeppnishæfni. Það þarf að eiga sér stað hugarfarsbreyting þar sem ekki er bara óskað eftir auknu fjármagni frá skattgreið- endum heldur þarf að fara fram á hagkvæmari rekstur á sama tíma og betri nýtingu fjármuna. Skattgreið- endur upplifa marga forsvarsmenn stofnana og fyrirtækja ríkisins sem aðila sem óska alltaf eftir meira fjármagni en þurfa sjaldan að sýna fram á hagkvæmari og betri rekstur á sama tíma. Þessu þarf að breyta. Það þyrfti að setja forstjóra yfir út- gjaldamestu málaflokka ríkisins og reka þá með tilliti til árangurs og áætlana um framtíðarárangur með meiri tekjum, lægri kostnaði og meiri forvörnum þannig að hægt sé að lækka framtíðarútgjöld. Stjórn- málamenn, embættismenn og rík- isstarfsmenn eru í vinnu hjá skatt- greiðendum landsins og það er krafa um að árangur í rekstri rík- isins og meðferð fjármuna sé fram- úrskarandi. Ekkert rými er fyrir farþega í rekstri ríkissjóðs. Einnig þurfa þeir, sem veljast til aðstoðar hjá ráðherr- um og stjórnmálamönnum, að hafa framúrskarandi rekstrarþekkingu þannig að meðferð opinbers fjár sé ávallt með tilliti til þess að nýting og skilvirkni sé með sem bestum hætti. Mikilvægt er að búa í haginn þegar vel árar Fáar hugmyndir eða tillögur koma fram um aukningu tekna rík- issjóðs með uppbyggingu í atvinnu- málum með stofnun nýrra fyrir- tækja eða með því að laða frumkvöðla til góðra verka. Miklar samfélagsbreytingar eiga sér stað í heiminum með örri tækniþróun og breytingum á samfélögum. Mikill hagvöxtur hefur verið á Íslandi á undanförnum árum meðan hag- vöxtur hefur verið lítill í Evrópu á sama tíma. Á Íslandi hefur góðærið ekki verið nýtt til búa í haginn þeg- ar vel árar. Ríkissjóður er enn að greiða háar vaxtagreiðslur þrátt fyrir niðurgreiðslur skulda en hag- ræðing í ríkisrekstri er lítil eða eng- in á sama tíma. Nú þegar þarf að hefja tímabil hagræðingar og auk- innar skilvirkni á öllum sviðum í ríkiskerfinu að hætti hinnar hag- sýnu húsmóður sem hefur verið kjölfestan í rekstri flestra heimila á Íslandi sem hafa náð árangri. Eftir Albert Þór Jónsson » Í stafrænni veröld og með aukinni sjálfvirkni ætti að vera mögulegt að hagræða enn frekar í ríkisrekstri, bæta úrelt skipulag á mörgum sviðum og í rekstri stofnana ríkissjóðs. Höfundur er viðskiptafræðngur með MCF í fjármálum fyrirtækja og 30 ára starfsreynslu á fjármálamarkaði. Albert Þór Jónsson Hagræðing í ríkisrekstri er verðmætasköpun Á leið í sjóinn Sundgarpar á göngu á leið í sjósund við Nauthólsvík í Reykjavík. Sjósund nýtur vaxandi vinsælda og sundfólk getur nýtt sér aðstöðu Ylstrandarinnar í Nauthólsvík allt árið. Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.