Morgunblaðið - 16.01.2018, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 2018
✝ Einar Þór Ein-arsson fæddist
á Sjúkrahúsi Akra-
ness 12. apríl 1980.
Hann lést af slys-
förum 3. janúar
2018.
Einar var einka-
barn foreldra sinna
sem eru Guðríður
Haraldsdóttir,
blaðamaður og
prófarkalesari,
fædd 12. ágúst 1958, og Einar
Guðjónsson atvinnubílstjóri, f.
17. febrúar 1958, eiginkona
hans er Björk Jóhannesdóttir.
Einar bjó á Akranesi fyrstu
tvö ár ævi sinnar.
Hann gekk í
Austurbæjarskóla,
síðar Vesturbæjar-
skóla og Haga-
skóla. Hann vann
síðan ýmis störf en
eftir að hann flutti
til Akraness árið
2007 hóf hann nám
við tölvubraut Fjöl-
brautaskóla
Vesturlands sem
hann stundaði með hléum og
hugði á frekara nám.
Útför Einars fer fram frá
Akraneskirkju í dag, 16. janúar
2018, klukkan 15.
Elsku Einar. Skrítið hvernig
eitt augnablik getur sett allt á
hvolf. Ég var alltaf á leiðinni til þín
aftur í heimsókn að horfa á boltann
með þér. Maður er góður í að
fresta hlutum og heldur að maður
hafi endalausan tíma til að gera
það seinna. En nei, eitt augnablik
og tækifærið til að hlæja með þér
farið. Tækifærið til að ræða fram-
tíðina farið og tækifærið til að
öskra yfir fótbolta með þér farið.
Við tengdumst mikið í gegnum fót-
boltann og þegar okkar lið voru að
spila gerði það leikinn miklu
skemmtilegri. Hinn 4. febrúar
mætast okkar lið og það verður lík-
lega erfitt að horfa á hann vitandi
það að við deilum ekki um dómara
og rangstöður eftir leik.
Ég man að ég spurði mömmu
alltaf sem barn og unglingur hvort
Gurrí og Einar kæmu ekki örugg-
lega um jólin því það var nokkuð
sem var mér mikilvægara en mat-
urinn og pakkarnir.
Þú talaðir um að ferðast í fram-
tíðinni og ég man að Kanada heill-
aði þig mikið. Ég vil trúa því að
núna hefjist ferðalagið þitt og þeg-
ar minn tími kemur hlakka ég til að
hitta þig og heyra ferðasögurnar.
Þinn frændi,
Davíð Sævarsson.
Elsku besti Einar. Það er svo
erfitt að trúa því að þú hafir verið
tekinn svona snögglega frá okkur.
Við vorum að ræða framtíðarplön-
in þín og nýju vinnuna bara núna á
aðfangadag. Partur af mér er
staðfastur á því að þetta sé ekki
rétt og þú sért á fullu að vinna að
þessum plönum en á sama tíma
veit ég að svo er ekki. Síðustu
daga hefur minningin um hlátur
þinn verið mjög sterk, þennan
skemmtilega og stundum púka-
hlátur, brosandi með hálflokaðan
munn, ég vona að sú minning
hverfi aldrei. Það var svo gaman
að vera með þér og ég vildi að
stundirnar hefðu verið mun fleiri.
Minningin um þig þegar við vor-
um lítil og lofuðum að við myndum
ekki rífast neitt svo við gætum
leikið aðeins lengur með jólagjöf-
ina mína hefur líka verið mér of-
arlega í huga. Mæður okkar vissu
vel að það væru kannski tvær mín-
útur í næsta rifrildi en við trúðum
því einlægt að þær væru bara
rugludallar og könnuðumst ekki
við nein rifrildi. Þá stóðum við sko
saman. Þú stóðst líka alltaf með
mér og Davíð, verndaðir okkur ef
eitthvað kom upp á. Algjör stóri
bróðir og maður vissi alltaf að
Einar frændi myndi passa mann.
Þú hafðir svo sterka réttlætis-
kennd, varst svo hjálpsamur og
umhyggjusamur, máttir helst
ekkert aumt sjá.
Ég verð þér líka alltaf þakklát
fyrir það sem þú kenndir mér þeg-
ar ég var með smá unglingaveiki
og ætlaði að klaga mömmu í stóra
frænda fyrir að láta mig alltaf
mæta heim í kvöldmat. Þú sagðir
ákveðinn eitthvað á þessa leið:
„Mamma þín er svo góð, við eigum
að vera þakklát fyrir mæður
okkar.“ Veikin snarlagaðist því ég
tók alltaf mark á þér, elsku Einar,
og þú meintir þetta svo innilega.
Enda varstu þakklátur fyrir hana
Gurrí og samband ykkar svo ein-
stakt.
Það var síðan svo dásamlegt
hvað þú varst ánægður með að
flytja á Akranes, fara í skóla þar
og flytja í íbúðina þína, varst alltaf
Skagamaður inn við beinið. Þá
gastu líka verið nálægt Gurrí og
hjálpað henni þegar þurfti. Þegar
Yehya kom svo til hennar varstu
alveg einstaklega góður við hann.
Það verður óendanlega erfitt
og skrítið að hitta þig ekki aftur
og sérstaklega að hafa þig ekki
hjá okkur á jólunum en minning-
arnar um þig lifa áfram og ég mun
varðveita þær. Ég veit að þú áttir
mikið í móður minni og ég mun
gera mitt allra besta til að fá að
eiga eins mikið í Gurrí og þú í
Hildu. Vera til staðar fyrir hana,
Yehya og auðvitað hann Mosa
þinn.
Faðir minn láttu lífsins sól
lýsa upp sorgmætt hjarta.
Hjá þér ég finn frið og skjól.
Láttu svo ljósið þitt bjarta
vekja hann með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni
(Bubbi Morthens)
Þín
Ellen.
Það er eitthvað svo óraunveru-
legt að standa frammi fyrir því að
þú, yndislegi systursonur minn,
sért farinn. Á svipstundu breyttist
allt. Enginn fyrirvari, allt í góðu
gengi og svo kemur höggið, fyrir-
varalaust. Þá standa þó sterkar
allar góðu minningarnar um þig,
elsku Einar. Þegar þú varst ný-
fæddur gat ég endalaust horft á
þig og dáðst að þér. Vinir mínir
hlógu oft að mér þegar ég var að
lýsa augunum í nýfædda frænda
mínum því ég hafði svo mörg „m“ í
lýsingunum diiimmmmmmmmm-
blá augu, en þau voru einstaklega
falleg. Þú varst kraftmikið barn
og mjög skemmtilegur og fjörug-
ur.
Það voru háar brekkur og mörg
fjöll sem þú þurftir að klífa á ævi-
skeiði þínu, glímdir við veikindi til
margra ára en undanfarin tíu ár
voru búin að vera svo góð hjá þér.
Þú varst sáttur við þá ákvörðun að
flytja á Akranes og þar leið þér
svo vel. Fyrst hjá Gurrí og ykkur
mæðginum samdi einstaklega vel
og voruð kærir vinir. Þú hugsaðir
svo vel um hana þegar hún þurfti
að vinna mikið, eldaðir matinn og
hélst öllu í horfinu, það kunni
Gurrí vel að meta. Eftir að þú
fluttir í Einigrundina varstu samt
duglegur að koma í heimsókn og
alltaf boðinn og búinn að aðstoða
Gurrí. Þegar Yehya kom svo inn í
líf ykkar fyrir 10 mánuðum varstu
svo góður við hann, þennan yndis-
lega fósturdreng sem saknar nú
Einars síns sárt. Þú gerðir allt
fyrir hann. Strákadagar, út að
hjóla, í bíltúr, í bíó eða bara bauðst
honum í heimsókn þar sem þið
spiluðuð tölvuleiki og fleira
skemmtilegt. Dagurinn endaði oft
á því að borða saman hjá Gurrí
sem gerði góðan dag enn betri. Þú
varst honum ómetanlegur og það
sýndi svo vel þinn karakter hvað
þú varst ljúfur, hjálpsamur og
góður við hann.
Þú tókst Gurrí aldrei sem sjálf-
sögðum hlut og ég man þegar þú
sagðir mér að þú teldir þér ekki
hefðu getað tekist að ná bata og
komast á svona góðan stað í lífinu
nema með ómetanlegum stuðn-
ingi frá Gurrí. Þú sagðist vera svo
þakklátur fyrir hana. Framtíðar-
plönin þín voru góð og allt var svo
bjart fram undan. Maður skilur
ekki hvernig á að takast á við
þetta en ég mun ylja mér við allar
góðu minningarnar. Það er líka
ómetanlegur styrkur að verða
vitni að samhug, hjálpsemi og ein-
stöku fólki sem styður með gjöf-
um, bakstri, heimsóknum, símtöl-
um, kveðjum og fallegum
hugsunum. Ég er orðlaus yfir góð-
mennsku og kærleika þessa fólks
og er full þakklætis.
Ég sendi Einari, Björk og fjöl-
skyldum þeirra innilegar samúð-
arkveðjur. Megi ljós lífsins og
kærleikans umvefja okkur öll og
gefa okkur styrk og þá sérstak-
lega henni Gurrí minni sem er öll-
um svo góð, alltaf. Ég heiti þér,
elsku Einar minn, að passa vel
upp á elsku Gurrí okkar og vera til
staðar fyrir hana og Yehya.
Svanhildur Sif
Haraldsdóttir.
Einar Þór var ungur að árum
þegar hann kom inn í líf okkar,
prinsinn bjarthærði, sonurinn
hennar Gurríar, sem við kynnt-
umst fyrst þegar þau bjuggu á
Vesturgötunni. Hann var yngstur
í hópi margra barna okkar vin-
kvennanna, Gurríar, Önnu, Borg-
hildar og Elfu, og nánustu fjöl-
skyldna okkar og saman uxu þau
úr grasi og við hin eldri fylgdumst
með þeim vaxa úr grasi og breyt-
ast, ár frá ári, afmæli eftir afmæli,
jólaboð eftir jólaboð. Krakkarnir í
hópnum léku sér saman þegar
mömmurnar hittust hver hjá ann-
arri og síðan þegar svokölluð
sunnudagskvöld voru tekin upp,
alla vega fyrstu árin. Þetta var
þéttur og kátur hópur sem alltaf
átti góðar stundir saman.
Þessi fríði barnahópur fór í
ýmsar áttir en alltaf hittumst við
af og til og fylgdumst með gleði og
sorgum – hæðum og lægðum og
ekkert breytir ævilangri vináttu.
Ævin hans Einars Þórs átti að
verða svo miklu lengri og svo
miklu auðveldari, en það var samt
svo margt bjart sem vert er að
minnast.
Hæfileikar og hjálpsemi eru
orð sem við höfum alltaf getað
tengt við Einar Þór. Við Anna og
Einar Þór áttum sameiginlegan
áhugann á myndlist og tölvum og
á báðum sviðum sýndi hann um-
talsverða hæfileika, sem fundu sér
stundum ágætan farveg, einkum
tölvukunnátta hans. Myndlistin
hefur án efa gefið honum góðar
stundir af því þar hafði hann ótví-
ræðan neista.
Flestir vita að hann átti sterka
stoð í lífinu vegna þess að hann
átti einstaka móður, hana Gurrí,
en hún átti líka hjálpsaman son
sem fann ótal leiðir til að verða
henni að liði í hversdeginum, sem
stundum er flókinn hjá jafn dug-
legri og skapandi konu og Gurrí
er. „Einar Þór var búinn að gera
þetta þegar ég kom heim …“
Hversu oft höfum við vinkonurnar
ekki heyrt eða séð þessi orð falla?
Hann eignaðist líka nýverið fóst-
urbróður, Yehya, og það var án
efa til heilla fyrir þá báða, enda
bjó Einar Þór ekkert langt frá
móður sinni og fósturbróður á
Akranesi. Hann var mikill dýra-
vinur og eins og hann hafði fengið
að upplifa í uppeldinu launa dýrin
okkur vel eftir því sem þeim er
sinnt. Það var svo sannarlega í
hans anda að á sorgarstundu þeg-
ar mömmu hans bárust tíðindin
um lát hans, þá gleymdi hún ekki
að hugsa fyrir því að kötturinn
hans Einars yrði sóttur.
Fyrir nokkrum árum var Einar
Þór virkur í grasrótinni í stjórn-
málastarfi um skeið. Þótt skoðan-
ir okkar lægju ekki að öllu leyti
saman fundum við hvað það efldi
bæði hann og samverkafólk hans
að skiptast á skoðunum í mikil-
vægri samfélagsumræðu og reyna
að koma góðu til leiðar. Umræður
um grundvallarmál þjóðfélagsins
og réttlætiskennd Einar Þórs áttu
þar góðan tíma saman. Þegar Ein-
ari þótti samverkafólkið ekki vera
að þróast á rétta braut skildi leiðir
og þar skildum við afstöðu Einars
Þórs fullkomlega, enn var það
réttlætiskenndin sem vísaði hon-
um leiðina.
Við hefðum eflaust öll viljað að
Einar Þór hefði fengið úthlutaða
ögn auðveldari og lengri ævi, en
samt var svo margt gott og fallegt
í kringum hann og þannig verður
minningin um hann ávallt í okkar
huga, björt.
Anna, Hanna og fjölskyldur.
Einar Þór
Einarsson
✝ Friðrik Sóf-usson fæddist á
Eskifirði 10. júní
1927. Hann lést á
hjúkrunarheimilinu
Skógarbæ í Reykja-
vík 4. janúar 2018.
Foreldrar Frið-
riks voru hjónin
Oddur Sófus Eyj-
ólfsson sjómaður, f.
20.1. 1892, d. 21.9.
1971, og Þórdís
Guðjónsdóttir húsfreyja, f. 10.9.
1903, d. 22.2. 1992.
Friðrik átti þrjú systkini. Þau
eru María Kristín, f. 23.6. 1923, d.
7.5. 1956, Svava, f. 3.3. 1934,
maki Jóhann Björn Sveinbjörns-
son, og Hákon Viðar, f. 31.3.
1936, maki Sigrún Valgeirs-
dóttir.
Hinn 24.6. 1950 kvæntist hann
Ingunni Hlín Björgvinsdóttur, f.
24.6. 1931, sjúkraliða. Foreldrar
hennar voru Björgvin Sigurjóns-
son verkamaður og Sigmunda
Ólafsson og sambýliskona Arn-
ars er Dagmar Svövudóttir. 4)
Guðný Hlín, sambýlismaður Karl
Ómar Guðbjörnsson. Sonur Karls
er Hörður Björn. 5) Friðgerður
María, sambýlismaður Ófeigur
Guðmundsson. Börn hennar eru
Andri Einarsson, Birna Péturs-
dóttir og Sigurður Már Péturs-
son. Börn hans eru Jóhanna og
Oddný. Barnabarnabörn eru níu.
Friðrik ólst upp á Eskifirði en
fluttist ungur að árum til Reykja-
víkur. Hann fór snemma í sveit
upp á Hérað, á bæinn Bót. Fjór-
tán ára fór hann á sjó á bát sem
hét Stjarnan. Friðrik stundaði
sjómennsku í mörg ár upp frá því
og starfaði einnig sem verkamað-
ur við höfnina í Reykjavík. Árið
1964 festi Friðrik kaup á sendi-
ferðabíl og starfaði sem sendibíl-
stjóri til starfsloka.
Friðik hafði mjög gaman af
spilamennsku og skák og tefldi í
fjölda ára í Skákfélagi Reykja-
víkur.
Útför Friðriks fer fram frá
Bústaðakirkju í dag, 16. janúar
2018, og hefst athöfnin klukkan
13.
Steinvör Sigmunds-
dóttir húsfreyja.
Friðrik og Ing-
unn eignuðust fimm
börn: 1) Björgvin
Steinar, maki Adda
Björk Jónsdóttir.
Dætur þeirra eru
Andrea Stefanía og
Karen Björk. Sam-
býlismaður Andreu
er Karl Elinías
Kristjánsson og
maki Karenar er Adam Clinton
Reeve. 2) Þórdís Soffía, f. 3.3.
1953, d. 28.9. 1993, maki Karel
Kristjánsson, f. 9.6. 1950, d. 1.8.
2014. Börn þeirra eru Friðrik
Ingi og Þórdís. Eiginkona Frið-
riks er Sigrún Ammendrup og
sambýlismaður Þórdísar er Ein-
ar Andrésson. 3) Friðrik Marinó,
maki Gunnrún Gunnarsdóttir.
Börn þeirra eru Guðrún Inga
Grétarsdóttir, Ingunn Hlín, Arn-
ar Már og Gunnar. Maki Guð-
rúnar Ingu er Ólafur Óskar
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Hvíl í friði, elsku pabbi og
tengdapabbi.
Friðrik Marinó og Gunnrún.
Kæri mágur. Nú að lokinni
lífsgöngu þinni er komið að
kveðjustund, eftir nálega sextíu
og tveggja ára vináttu okkar
sem aldrei rofnaði. Það var árið
1956 sem ég smeygði mér inn í
fjölskyldu þína, við góðar mót-
tökur.
Síðan hefur samspil okkar
verið hið ágætasta, bæði á
vinstri kanti sparkvallar lífsins
og utan hans. Margs er að minn-
ast frá þessum árum. Oft verður
mér hugsað til þrítugsafmælis
þíns í fegursta veðri 10. júní
1957, þegar nokkrir söngglaðir
veislugestir, þú, Björgvin
tengdafaðir þinn, Villi svili þinn,
Siffi mágur þinn og ég, fundum
þörf fyrir að tjá okkur með söng
úti í guðsgrænni náttúrunni við
Höfða. Flutt voru ættjarðarljóð,
með bæði þýðum rómi og drynj-
andi, sem sumir sögðu að heyrst
hefði alla leið til Akraness.
Saga þín er saga manns sem
frá unga aldri vann sín verk af
samviskusemi, bæði á sjó og á
landi. Þú eignaðist góða konu,
Ingunni Björgvinsdóttur, sem
annaðist þig af mikilli alúð þegar
heilsan bilaði. Saman eignuðust
þið börnin Björgvin, Þórdísi
Soffíu, Friðrik Marinó, Frið-
gerði Maríu og Guðnýju Hlín.
Líf ykkar var samt ekki eintóm
sæla, því árið 1993 kvaddi sorgin
dyra hjá ykkur þegar Þórdís
Soffía dóttir ykkar lést, aðeins
fertug að aldri. Minning hennar
lifir í hjörtum fjölskyldunnar.
Eskifjörður og Eskfirðingar
voru þér alltaf hugstæðir, og
gaman var á góðri stundu að
spjalla við þig um æsku- og ung-
lingsár þín, því þú varst stál-
minnugur. Svava systir þín
minnist þín sem hjartahlýs bróð-
ur sem sýndi Maríu systur ykk-
ar fádæma umhyggju í veikind-
um hennar. Hún lést í maí 1956
aðeins 33 ára gömul.
Á þínum yngri árum þegar
von var á þér heim á Eskifjörð á
vorin að lokinni vetrarvertíð,
ríkti alltaf mikil tilhlökkun hjá
yngri systkinum þínum, þeim
Svövu og Hákoni, sem þótti
mjög vænt um stóra bróður,
sem alltaf kom líka færandi
hendi.
Þar sem við gengum samstiga
undir fána sem ber sama lit og
blóðið í æðum okkar, baðstu allt-
af um að fá að tala við Jóa, þeg-
ar þú og Svava systir þín spjöll-
uðu saman í síma. Þá voru málin
rædd. Mál sem valdhafar voru
með á döfinni, en hvorugum
okkar geðjaðist að.
Kæri Frissi, bróðir, mágur og
vinur. Að lokum þökkum við
samfylgd þína, og allt sem þú
hefur gefið fjölskyldum okkar.
Farðu í friði yfir í tilveru þar
sem tíminn er týndur og engan
sársauka er að finna.
Ingunni og fjölskyldum þínum
sendum við samúðarkveðjur.
Svava, Jóhann og
fjölskyldur.
Friðrik Sófusson
Elskulegur faðir minn, tengdafaðir, afi og
langafi,
VILHJÁLMUR GRÍMUR SKÚLASON
prófessor emeritus,
Arnarhrauni 30, Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
fimmtudaginn 11. janúar.
Karólína M. Vilhjálmsdóttir Steinar Gíslason
Vilhjálmur Skúli Steinarsson Eva Rún Helgadóttir
Sonja Hrund Steinarsdóttir Eyþór Ingi Gunnarsson
Davíð Atli Steinarsson
og barnabarnabörn
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
HELGI ODDSSON,
Karlagötu 6, Reykjavík,
lést fimmtudaginn 11. janúar.
Útförin fer fram í Dómkirkjunni þriðjudaginn
23. janúar klukkan 13.
Haraldur Helgi Helgason Esther Halldórsdóttir
Katrín Helgadóttir Bjarni K. Þorvarðarson
barnabörn og barnabarnabarn
MARGRÉT GUÐNADÓTTIR
prófessor
lést á Landspítalanum 2. janúar.
Hún verður jarðsungin frá Neskirkju
föstudaginn 19. janúar klukkan 11.
Eydís Franzdóttir
Guðni Franzson og fjölskylda