Morgunblaðið - 16.01.2018, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 2018
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
SKATTADAGUR FLE
Ráðstefna um skattamál
Föstudag 19. janúar 2018,
Gullteigur á Grand Hóteli Reykjavík
Ráðstefnustjóri: Sara Henný Arnbjörnsdóttir, endurskoðandi
Kl. 8:00-8:30 Skráning og kaffisopi
Kl. 8:30-8:45 Setning ráðstefnu
H. Ágúst Jóhannesson, formaður FLE
Skattastefna stjórnvalda, þróun
og framtíðarsýn
Bjarni Benediktsson, fjármála- og
efnahagsráðherra
Smart Government „Snjallstjórnsýsla“
samnorrænt greiningarverkefni.
Nýjungar í flæði fjárhagsgagna milli
hins opinbera og einkaaðila
Jón Bjarki Gunnarsson,
Liðstjóri viðskiptagreiningar og vöruhúsa
gagna hjá Deloitte
Kl. 9:55-10:15 Kaffihlé
Nýlegir úrskurðir og dómar
Steinþór Haraldsson,
skrifstofustjóri RSK Hellu
Af borði Ríkisskattstjóra
Skúli Eggert Þórðarson, ríkisskattstjóri
Nýlegar breytingar á lögum um tekju-
skatt, virðisaukaskatt, reglugerðir og
fleira þeim tengt
Símon Þór Jónsson, lögfræðingur EY
Kl. 12:30 Ráðstefnulok
Þátttökugjald: kr. 24.000 fyrir félagsmenn FLE og starfsfólk,
en kr. 32.000 fyrir aðra. Ráðstefnan gefur 4 einingar í
skatta- og félagarétti.
Ráðstefnan er opin öllum. Vinsamlegast skráið þátttöku á
www.fle.is
Félagsstarf eldri borgara
Gerðuberg Opin handavinnustofa kl. 8.30-16, keramik málun kl. 9-12,
glervinnustofa með leiðbeinanda kl. 13-16, leikfimi Maríu kl. 10-10.45,
leikfimi gönguhóps kl. 10-10.30, gönguhópur um hverfið kl. 10.30.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 10 stólaleikfimi, kl. 13 handavinna, kl.
13 hreyfi- og jafnvægisæfingar, kl. 13.30 alkort, kl. 14 hreyfi- og jafn-
vægisæfingar, kl. 16 dans.
Grafarvogskirkja Opið hús fyrir eldri borgara í kirkjunni kl. 13-15.30.
Í upphafi er söngstund í kirkjunni með Hilmari Erni ásamt gesti. Þá er
í boði handavinna, spil og spjall fyrir þau sem vilja, samverunni lýkur
með kaffiveitingum kl. 15.
Grensáskirkja Kyrrðarstund kl. 12.
Gullsmári Myndlist kl. 9, botsía kl. 9.30, ganga kl.10, málm- og silfur-
smíði kl.13, kanasta kl.13, tréskurður kl. 13.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9,
morgunleikfimi kl. 9.45, hádegismatur kl. 11.30, Bónusbíllinn kl. 12.15.
gönguhópur kl. 13 þegar veður leyfir, félagsvist kl. 13.15, kaffi kl.14.15.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og
spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, morgunleikfimi kl.
9.45, jóga kl. 9 hjá Ragnheiði, morgunleikfimi kl. 9.45, hádegismatur
kl. 11.30, helgistund kl. 14, eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Fótaaðgerðir
588-2320, hársnyrting 517-3005.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnuð kl. 8.50, við hringborðið kl.
8.50, thai chi kl. 9, myndlistarnámskeið hjá Margréti Zophoníasdóttur
kl. 9, leikfimin með Guðnýju kl. 10, spekingar og spaugarar, Bónusbíll
kl. 12.40, postulínsmálun kl. 13, brids kl. 13, enskunámskeið, tal, kl.13,
bókabíll kl. 14.30, síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir óháð aldri,
nánari í síma 411-2790.
Korpúlfar Sundleikfimi kl. 7.30 og 14.10 í Grafarvogssundlaug. List-
málun kl. 9 í Borgum, botsía í Borgum kl. 10 og 16, helgistund kl.
10.30 í Borgum og heimanámskennsla kl. 16.30.
Neskirkja Krossgötur kl. 13. Halldór Friðrik Þorsteinsson, rithöfund-
ur: Rétt undir sólinni. Ferðasaga frá Afríku. Kaffiveitingar.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, listasmiðja kl.
9-16, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11, opin listasmiðja með
leiðbeinanda kl. 13-16, ganga með starfsmanni kl.14, botsía, spil og
leikir kl. 15.30. Uppl. í s. 4112760.
Selið, Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-16 og upp úr kl. 10 er
boðið upp á kaffi þar sem fólk kemur saman í spjall og kíkir í blöðin.
Hádegisverður er kl. 11.30-12.30 og kaffi og meðlæti er selt á vægu
verði kl. 14.30-15.30. Allir eru hjartanlega velkomnir í Selið. Nánari
upplýsingar hjá Maríu Helenu í síma 568-2586.
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.15, kaffispjall í krókn-
um kl. 10.30, Pútt í Risinu Eiðistorgi kl. 10.30, kvennaleikfimi í Hreyfi-
landi kl. 12, brids í Eiðismýri 30, kl. 13.30. Ath. Á MORGUN MIÐVIKU-
DAG 17. JANÚAR kl. 20 býður SELKÓRINN Í SÖNG, súkkulaði og
sætabrauð í FÉLAGSHEIMILI SELTJARNARNESS við Suðurströnd.
Það eru allir hjartanlega velkomnir.
Stangarhylur 4, Skák kl. 13, umsjón Garðar og Finnur. Íslendinga-
sögur, námskeið hefst föstudaginn 19. janúar kl. 13, kennari Baldur
Hafstað. Spjaldtölvu / iPad námskeið verða reglulega - fyrsta iPad
námskeiðið hefst mánudaginn 22. janúar kl. 13.30. Næsta námskeið
hefst síðan 29. janúar kl. 13.30. Kennt er á mánudögum og fimmtu-
dögum, leiðbeinandi Kristrún Heiða Hauksdóttir.
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9, jóga með Hildi kl. 9.30 (stóla-
jóga og frítt inn), gönguhópur leggur af stað kl. 10.15, vatnsleikfimi í
Vesturbæjarlaug kl. 10.50, postulínsmálun og Tálgað í tré-hópurinn
mætir í hús kl. 13.
Árskógar Leikfimi með Maríu kl. 9, smíðar, útskurður, pappamódel
með leiðbeinanda kl. 9-16, Bónusbíllinn fer frá Árskógum 6-8 kl.12.30,
handavinna með leiðbeinanda kl. 12.30-16, kóræfing, leshringur með
Heiðrúnu kl. 11, Kátir karlar kl. 13, MS fræðslu- og félagsstarf kl. 14-16,
opið fyrir innipútt, hádegismatur kl. 11.40-12.45, kaffisala kl. 15-15.45.
Heitt á könnunni, Allir velkomnir. S. 535-2700.
Bólstaðarhlíð 43 Yngingar jóga hjá Lilju Steingríms kl. 9-9.50, allir
velkomnir, opin handverksstofa kl. 9-16, morgunkaffi kl. 10-10.30, Eva
hjúkrunarfræðingur kl. 11, botsía kl. 10.40-11.20, Bónusrútan kemur kl.
14.40, leshópur kl. 13, opið kaffihús kl. 14.30-15.15.
Dalbraut 18-20 Félagsvist kl. 14.
Fella- og Hólakirkja Kyrrðarstund kl. 12 í umsjá Kristínar Kristjáns-
dóttur djákna og Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Eftir stundina er
boðið upp á súpu og brauð á vægu verði. Eldri borgara starfið verður
á sínum stað og við eigum góða samveru saman. Allir eru velkomnir.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Postulínsmálun kl. 9, opin hand-
verksstofa kl. 13, landið skoðað með nútímatækni kl. 13.50, kaffiveit-
ingar kl. 14.30. Allir velkomnir!
Garðabær Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá klþ
9.30-16. Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara í síma 617-
1503, vatnsleikfimi Sjálandi kl. 8.20/15.15, qi gong Sjálandi kl. 9.
Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10, botsía Sjálandi kl. 11.40, karlaleik-
fimi Sjálandi kl. 13, Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 14.45, línudans í
Kirkjuhvoli kl. 13.30/14.30, félagsvist í Jónshúsi kl. 20.
Félagslíf
EDDA 6018011619 I
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Askalind 4, Kóp.
Sími 564 1864
www.vetrarsol.is
B&S mótor með rafstar, 249cc
Dreing 1 – 10 metrar
69cm vinnslubreidd
Með ljósum og á grófum dekkjum
Frábær í mikinn og erðan snjó
Snow Blizzard snjóblásari
Þjónusta
Faglærðir málarar
Tökum að okkur öll almenn
málningarstörf. Tilboð eða
tímavinna. Sími 696 2749 -
loggildurmalari@gmail.com
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Ýmislegt
Fyrir bóndann á BÓNDADAGINN
ARIZONA teg 00 51 701 í
stærðum 36-48 á kr. 8.950,-
ARIZONA teg. 00 51 461 í
stærðum 36-48 á kr. 10.900,-
ARIZONA teg. 05 52 111 í
stærðum 36-48 á kr. 12.750,-
Laugavegi 178, sími 551 2070.
Opið mán. - fös. kl. 10–18,
Laugardaga kl. 10 - 14
Laugardaga 10 - 14.
Bátar
Flatahrauni 25 - Hafnarfirði
Sími 564 0400
www.bilaraf.is
Mikið úrval í bæði
12V og 24V.
Bílar
Mercedes Benz Sprinter Maxi
316 CDi. Framl. 07.2016. Ekinn 11
þús km. 4x4. Hátt og lágt drif. Bakk
myndavél. Vegakort. Flott innrétting.
Fjaðrandi og upphitað bílstjórasæti.
Rafmagsspeglar upphitaðir. Fjar-
hitari. Dráttarbeisli. Hliðarvinds-
hjálpari o.fl.
Uppl. kaldasel@islandia.is
og sími 820 1071
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VANTAR
ÞIG
PÍPARA?
Íslensku
þjónustufyrirtækin
eru á gagnvart fólkinu á staðnum, eink-
um gagnvart hinum yngri sem
höfðu tíðum meiri áhuga á forseta-
bílnum en sjálfum forsetanum.
Myndin af Þorvaldi með tugi
krakka í kringum sig í hrókasam-
ræðum um bílinn og embættið skín
skært í minningunni. Það voru í ár-
anna rás þúsundir sem hann ræddi
við á þennan hátt; ávallt brosandi
og hlýr; heiðursmaður sem var í
essinu sínu meðal fólksins í land-
inu.
Þótt skyldur forsetaembættis-
ins séu vissulega þungamiðja
fylgja því líka forréttindi og meðal
þeirra voru hin góðu örlög að
kynnast Þorvaldi Ragnarssyni,
mannkostum hans og trúnaði við
sérhvert verk. Hann var í raun
engum líkur; úrvalsmaður sem
aldrei gleymist; miðlaði trú á hið
besta í fari mennskjunnar.
Á kveðjustundu þökkum við
Dorrit og fjölskyldan öll Þorvaldi
hans góðu gjafir og samverustund-
ir á langri leið; vottum dætrum
hans og afkomendum einlæga
samúð.
Ólafur Ragnar Grímsson.
Margar minningar liðins tíma
leituðu sterkt á hugann þegar ég
spurði lát Þorvaldar Ragnarsson-
ar, gamals samstarfsmanns og vin-
ar. Hann var um svo margt ein-
stakur maður.
Ekki kæmi mér á óvart að fleiri
samferðamönnum hans væri líkt
innanbrjósts. Þorvaldur er ekki
einasta eftirminnilegur heldur
hygg ég að hann hafi líka verið öll-
um kær sem voru svo lánsamir að
kynnast honum.
Um Þorvald Ragnarsson má
segja að hann hafi verið hógvær og
mildur í háttum og fasi. Nærvera
hans var bæði sterk og hlý. Sam-
viskusemi hans var aukinheldur
viðbrugðið. Það verður ekki bein-
línis sagt um Þorvald að hann hafi
verið aðsópsmikill í framgöngu en
hann hafði að geyma því traustari
innri mann.
Leiðir okkar lágu saman í
tveimur ráðuneytum. Skömmu eft-
ir að ég settist í fjármálaráðuneyt-
ið kom Þorvaldur þangað sem bíl-
stjóri ráðherra. Hann hafði þá
þegar drjúga reynslu í því starfi en
ég var að stíga mín fyrstu skref
innan stjórnarráðsveggjanna í
Arnarhváli. Þaðan fórum við síðar
saman yfir í forsætisráðuneytið.
Eftir það varð hann bílstjóri for-
seta Íslands.
Reyndur bílstjóri gat vissulega
ráðlagt óreyndum ungum ráð-
herra ýmislegt. En umfram allt
tókst strax með okkur Þorvaldi
gott samstarf og heilsteypt vinátta.
Hann var einhvern veginn þeirrar
gerðar að öðru vísi gat það ekki
verið. Þorvaldur varð í reynd
heimilisvinur sem fjölskyldan öll
minnist enn með hlýju og þakk-
læti.
Þorvaldur gegndi starfi sem er í
senn vandasamt og viðkvæmt.
Ráðherrar koma og fara. Þeir hafa
ekki einasta ólíkar stjórnmála-
skoðanir heldur eru þeir yfirleitt
ólíkir að upplagi og hafa mismun-
andi skaphöfn. Að því leyti getur
starfið verið býsna umhleypinga-
samt. Af sjálfu leiðir að það er ekki
öllum gefið að byggja upp það
traust sem verður að ríkja í sam-
vinnu af þessu tagi. Þar stóð Þor-
valdur Ragnarsson í fremstu röð.
Hann var umtalsfrómur maður
og hélt trúnað við þá sem hann
hafði áður starfað með. Lipurð
hans og ósérhlífni gerði hann að
einstökum samstarfsmanni sem
hafði ánægju af starfa sínum. Síð-
ustu árin hafa aftur á móti verið
þrautaganga erfiðra veikinda, sem
hann hefur nú fengið hvíld frá.
Þorvaldur Ragnarsson stýrði
margri vegferð á happadrjúgum
starfsferli. Í dag er hann borinn þá
síðustu. Á þeirri stundu fléttast
þakklæti fyrir liðinn tíma samúð
með börnum hans og fjölskyldu.
Þorsteinn Pálsson.
Fleiri minningargreinar
um Þorvald Ragnarsson bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.