Morgunblaðið - 16.01.2018, Side 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 2018
– fyrir dýrin þín
Eigum mikið
úrval af
hundabeislum
Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | sími 511-2022 | www.dyrabaer.is
Mér finnst virkilega gaman að sjá þessa ungu stráka sem eru aðkoma inn í hópinn,“ segir Kristján Þór Gunnarsson fram-kvæmdastjóri um íslenska handboltalandsliðið sem er að
keppa á EM. Kristján, sem fagnar 60 ára afmæli sínu í dag, keppti lengi
fyrir HK í handbolta eða fram á fertugsaldurinn. Hann spilaði einnig
fótbolta í yngri flokkunum og varð margoft Ís-
landsmeistari með Breiðabliki og einnig í hand-
bolta.
Hann stefnir á að fara á HM í fótbolta í Rúss-
landi næsta sumar. „Ég er ákveðinn í að láta á
það reyna, það væri gaman að sjá fyrsta leikinn,
gegn Argentínu, en draumurinn er að sjá ein-
hvern leik úti. Það sem er mér minnisstæðast í
íþróttunum er að hafa séð fyrsta leik Íslands á
stórmóti, þegar ég sá þá spila við Portúgal á EM
2016, og ég fór þá tvær ferðir út. Ég hef einnig
tvisvar farið á HM. Eiginkona mín gaf mér tvo
miða í fertugsafmælisgjöf á opnunarleikinn á
HM í Frakklandi árið 1998 og sá ég með syni
mínum Brasilíu vinna Skotland. Það var ógleymanlegt þegar við vorum
undir Eiffelturninum með Skotunum máluðum í skotapilsunum og
manni fannst þetta vera það næsta sem kæmist Íslandi. Ekki datt mér í
hug að við Íslendingar myndum spila sjálfir á HM, tuttugu árum síðar.
Seinna skiptið sem ég sá leik á HM var undanúrslitaleikurinn árið
2006 á Arena-leikvanginum í München. Þá sáum við dóttir mín Zidane
skora sigurmark Frakka úr vítaspyrnu gegn Portúgölum. Við sátum
fyrir aftan markið og leikvangurinn var svo brattur að okkur fannst við
geta snert skallann á Zidane.“
Auk íþrótta hefur Kristján áhuga á veiði og kirkjustarfi, en hann
starfar í ýmsum hópum innan kirkjunnar og er með vikulegan spjallþátt
á útvarpsstöðinni Lindinni: „Létt spjall með Krissa“. „Velferð fjölskyld-
unnar er númer eitt. Hún kemur í heimsókn til mín í kvöld og við ætlum
að fá okkur að borða saman. Ég hélt upp á 30 ára, 40 ára og 50 ára af-
mælið en ætla ekki að halda formlega upp á það núna. Svo erum við fjöl-
skyldan að fara öll saman til Tenerife í lok mars og verðum þar í ellefu
daga.“
Kristján er framkvæmdastjóri fiskútflutningsfyrirtækisins SIAL, og
flytur fisk út til Ameríku, undir merkjum Thorfish, sem kemur frá út-
gerðarfyrirtækinu Þorbirni. „Þetta er sjófrystur fiskur, þorskur, ýsa og
ufsi og er hágæðavara. Íslenskur fiskur veiddur innan 200 mílna land-
helgi í einum ómengaðasta sjó í heimi og er með vottunarmerkið ISF,
Icelandic Sustainable Fisheries. Er hægt að hugsa sér hollari vöru en
það? Við fjölskyldan fórum út að borða eitt sinn á veitingastað þar sem
Þorbjarnarufsi var uppi á borðum og það var gaman að því að labba inn
á veitingastað þar sem maður fékk sér fisk sem maður flutti út sjálfur.“
Kristján hefur rekið þetta fyrirtæki ásamt konu sinni í tólf ár, en hann
var umsvifameiri á árum áður og rak fyrirtækið Fisco en seldi það árið
2004.
Eiginkona Kristjáns er Guðrún Hulda Birgisdóttir, formaður sókn-
arnefndar Hjallakirkju og situr í héraðsnefnd. Börnin þeirra eru Helga,
Sindri Þór, Aldís Eva og Karen Eva og barnabörnin eru átta.
Framkvæmdastjóri
Kristján Þór.
Stefnir á sitt þriðja HM
Kristján Þór Gunnarsson er sextugur í dag
E
lma Guðmundsdóttir
fæddist í Neskaupstað
16.1. 1943, ólst þar upp
og átti þar heima alla
tíð fram til 2012 er hún
flutti til Reykjavíkur.
Elma gekk í barnaskóla Neskaup-
staðar og var einn vetur í Gagn-
fræðaskólanum á Eiðum.
Elma hefur verið mikil félags-
málamanneskja og kom víða við á
því sviði. Hún æfði sjálf og keppti í
ýmsum íþróttagreinum eins og í
handbolta, golfi og blaki og starfaði
lengi í forystusveit Íþróttafélagsins
Þróttar í Neskaupstað. Hún var for-
maður Þróttar á árunum 1970-71 og
1981-82, og sat auk þess í stjórn
Golfklúbbs Norðfjarðar um skeið.
Einnig gegndi hún margvíslegum
störfum fyrir Ungmenna- og
íþróttasamband Austurlands og var
Hulda Elma Guðmundsdóttir, fyrrv. bæjarfulltr. og ritstjóri – 75 ára
Fjölmennur hópur Elma með öllum sínum afkomendum. Myndin var tekin á heimili sonar hennar nú um jólin.
Mikill félagsmálafröm-
uður í Neskaupstað
Sigursælar langmæðgur Hulda Elma Guðmundsdóttir, Hulda Elma Ey-
steinsdóttir og Petrún Björg Jónsdóttir, UMFÍ meistarar í blaki árið 2001.
Flateyri Skarphéðinn Snær
Konráðsson fæddist 16. jan-
úar 2017 kl. 5.07 í Reykjavík
og hann á því eins árs af-
mæli í dag. Skarphéðinn vó
15 merkur og var 51 cm
langur. Foreldrar hans eru
Jóhanna Maggý Kristjáns-
dóttir og Konráð Ari
Skarphéðinsson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is