Morgunblaðið - 16.01.2018, Side 29

Morgunblaðið - 16.01.2018, Side 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 2018 Hraðþrif á meðan þú bíður Hraðþrif opin virka daga frá 8-18, um helgar frá 10-17. Engar tímapantanir. Bæjarlind 2, 201 Kópavogur | SÍMI 577-4700 | bilalindin.is Verð frá 4.300,- (fólksbíll) Bíllinn er þrifinn létt að innan á u.þ.b. 10 mínútum. Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það er stundum erfitt að greina kjarnann frá hisminu en það er nauðsyn- legt að þú gerir það. Nú er rétti tíminn til að víkka sjóndeildarhringinn og læra eitt- hvað nýtt. 20. apríl - 20. maí  Naut Gættu þess að fara ekki yfir strikið í samskiptum við vini eða fjölskyldu, ekki síst við börn eða sakleysingja. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú átt í samskiptum við sterkar persónur, og það finnst þér sérlega spenn- andi. Undirbúðu þig vandlega og vertu málefnaleg/ur. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú finnur hjá þér sterka hvöt til þess að sýna þitt rétta andlit. Hugmyndir hans eru djarfar og hann hikar ekki við að koma þeim áleiðis. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Flestir fá 1-2 frábærar hugmyndir á dag – þú færð alla vega fimm. Ekki stinga þeim lengur undir stól því þær hverfa ekki. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Gefðu þér tíma til að leysa málin áður en þau vaxa þér yfir höfuð. Einhver ákveður að stappa fætinum í gólfið og standa með sjálfum sér. 23. sept. - 22. okt.  Vog Einhvern tímann var sköpunarþráin þín kæfð af jarðbundinni manneskju sem skildi þig ekki. Stattu því klár á því hvað það er sem þú vilt. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Aflaðu þér upplýsinga um yf- irmanninn eða fyrirtækið, þú færð stöðu- hækkun með því að sýna frumkvæði. Allt sem viðkemur fjölskyldu og heimili fer senn að ganga betur. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Einhver færir þér hugsanlega gjöf í dag sem gerir þér kleift að sækja námskeið eða setjast aftur á skólabekk. 22. des. - 19. janúar Steingeit Vertu miðlari, þeir semja ekki aðeins um frið, heldur njóta alls þess besta sem lífið hefur að bjóða. Farðu þangað sem hugmyndirnar streyma að þér. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Nú máttu beinlínis ekki byrgja sköpunarþrána lengur inni. Notaðu orðið ómögulegt eins lítið og þú getur, eða helst alls ekki. 19. feb. - 20. mars Fiskar Einhver í fjölskyldunni mun senni- lega koma þér á óvart í dag. Reyndu að sýna vini, sem fer í taugarnar á þér, þol- inmæði. Ígær birtist hér í Vísnahornibjartsýnislimra eftir Ólaf Stef- ánsson með þeirri athugasemd hans, að „við göngum hlæjandi mót vorinu, er það ekki, Sigrún?“ „Jú, þetta er allt í rétta átt, Ólaf- ur,“ svaraði hún: Innan tíðar fés mitt fer að falla í réttar skorður því sæta, gula sólin er að silast hingað norður. Fía á Sandi sagðist hafa fundið þessa í dagbókinni og passaði við daginn í dag: Ljóma svell og lindin auð og ljósbrot skína í pollum Vetrarsólin situr rauð suður á heiðakollum. Einar K. Guðfinnsson skrifaði á fésbókarsíðu á föstudagsmorgun: „Bjarni Har., móðurbróðir minn, er aftur farinn að láta eldsneytisdæl- urnar ganga á Króknum; líkt og þær hafa gert frá árinu 1933, eða í um 85 ár. Það er fagnaðarefni og ástæða til að færa þakkir til allra þeirra sem hlut áttu að farsælli lausn. Heilbrigðisnefnd Norður- lands vestra, Sveitarfélagið Skaga- fjörður og OLÍS. Skagfirskir hag- yrðingar láta ekki sitt eftir liggja. Haraldur Sigurðsson á Sleitustöð- um kom í búðina hjá Bjarna frænda í morgun og lagði meðfylgjandi vísu á búðarborðið: Ef þarftu að fylla þitt á kar, þá ferðu í Norðurbæinn. Aftur fæst bensín hjá Bjarna Har, sem býður þér góðan daginn. Og í kjölfarið mætti Árni Gunn- arsson, hagyrðingur og kvik- myndagerðarmaður, en hann gerði skemmtilega og fína heimild- armynd um Verslun Haraldar Júl- íussonar og Bjarna Har. sjálfan. Allt er komið í eðlilegt far, eftirlitsmaðurinn þagnaður. Bensínið rennur hjá Bjarna Har. og bisnessinn alveg magnaður.“ Í kjölfarið bættust við þessar vís- ur af sama tilefni: Ólafur Sigurgeirsson: Vinskapur hefur viðmót hlýtt svo versla mun ég áfram þar. Allt er nú sem orðið nýtt: Eldsneytið og Bjarni Har. Björn Líndal: Hann átt hefur ævina langa er ennþá að seðja hinn svanga. Hann Bjarni minn Har á alltaf til svar, og enn lætur dæluna ganga. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Það birtir og bensín hjá Bjarna Har. SÖLUMAÐUR FYRIR SJÓÐI LEITAR SÉR AÐSTOÐAR „MÁ ÉG GISKA: FÓRSTU AÐ HEIMAN ÁN ÞESS AÐ VERA MEÐ VESKIÐ ÞITT?“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... opna sameiginlegan bankareikning. GETTU HVAÐ, GRETTIR? ÉG SKIPTI YFIR Í KOFFÍNLAUST ÉG MYNDI SLÁ ÞIG UTAN UNDIR EN ÉG HEF EKKI ORKUNA TIL ÞESS HRÓLFUR! ÞÚ SKILDIR VEGGINN EFTIR HÁLFMÁLAÐAN! KLÁRARÐU EINHVERN TÍMANN ÞAÐ SEM ÞÚ BYRJAR Á!? JÁ! EKKI HAFA ÁHYGGJUR – HUGSAÐU TIL LENGRI TÍMA Yfir köldustu og myrkustu mánuðiársins, meira að segja á versta degi ársins eins og dagurinn í gær var víst nefndur, er alltaf hægt að finna sér eitthvað sem gleður. Eitt- hvað sem yljar manni um hjartaræt- urnar, veitir von og dregur jafnvel fram bros. Eða alla vega smáglott. Víkverji er ekki ónæmur fyrir áhrif- um skammdegisins og tekur því öll- um litlum gleðigjöfum fagnandi. Þeir geta verið alls konar og alls kyns; óvæntur liðstyrkur til uppáhaldsfót- boltaliðsins, góður matur í mötu- neytinu, skemmtilegt uppátæki barnanna eða bara gott lag í útvarp- inu. x x x Lífið væri óneitanlega mun fátæk-legra án tónlistar. Neysla hennar í dag er þó allt öðruvísi en margir áttu áður fyrr að venjast. Á sínum sokkabandsárum gat Víkverji leyft sér að sökkva sér niður í hverja plöt- una á fætur annarri í rólegheitum í sófanum heima. Núna er búið að skil- yrða hlustun að mestu við misgóð heyrnartól og streymisþjónustur með tilheyrandi skorti á gæðum. x x x Fátt er þó svo með öllu illt að ei boðigott og í staðinn hefur Víkverji náð að búa sér til gæðastundir á tíð- um ferðum sínum í bílnum. Reyndar man Víkverji sjaldnast eftir því að undirbúa sig og finna til plötur eða hlaðvörp til að hlusta á en það gefst þó alla vega friður til að hlusta á eitt- hvað. Og það var það sem Víkverji gerði í vikunni. Fyrir valinu varð Gullbylgjan, stöð þar sem Víkverji hefur getað sótt sér gleði í gamla slagara sem reyndar tilheyra kyn- slóðinni fyrir ofan. Gömlu fólki. x x x Það er því nokkuð vægt til orðatekið að segja að komið hafi á Víkverja þegar um bílinn ómaði lag sem er nú ekkert svo langt síðan kom út. Alla vega í minningunni. Vík- verja finnst hreint ekkert svo langt síðan Eyfi var heitasta poppstjarnan og dældi út smellunum. En það er sennilegast aldarfjórðungur og nú var kallanginn bara kominn á Gull- bylgjuna. Og Víkverji með honum. vikverji@mbl.is Víkverji Þú, Drottinn, ert góður og fús til að fyrirgefa, gæskuríkur öllum sem ákalla þig. (Sálm: 86:5)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.