Morgunblaðið - 16.01.2018, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 16.01.2018, Qupperneq 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 2018 Nutrilenk vörurnar fást í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana. Göngur og hlaup án verkja „Ég sleit krossband fyrir mörgum árum og hef farið í nokkrar liðþófaaðgerðir, þegar ég byrjaði að hlaupi fyrir alvöru fyrir ca. fimm árum var ég alltaf með verki í hnjánum og í upphafi síðasta árs voru verkirnir þannig að ég gat ekki stigið í fótinn. Ég tók mér pásu og byrjaði aftur en alltaf komu verkirnir aftur og það var svo komið að ég gat ekki stigið í fótinn nema að finna fyrir verkjum, ég vaknaði á nóttinni með verki. Fyrir ca. Ári byrjaði ég að taka Nutrilenk að staðaldri og smám saman gat ég farið að ganga eðlilega og hlaupa aftur. Núna get ég gengið og hlaupið verkjalaus og finn ekkert fyrir verkjum eftir mikil átök og get hlaupið aftur, kláraði hálft maraþon og fjallahlaup án verkja nú í sumar og þessu þakka ég NUTRILENK“. Jóhann Gunnarsson – sölustjóri hjá Pennanum Þetta var tími þegar fólk varbæði óskaplega opið ogdramatískt í samskiptumen einnig lokað og sýndi mikla hörku hvað við annað,“ segir Bjarni Jónsson, leikgerðarsmiður Himnaríkis og helvítis, í viðtali í leikskrá sýningarinnar. Þetta er skörp athugasemd og gefur kannski innsýn í hvers vegna þríleikur Jóns Kalmans Stefánssonar og þó sérstaklega fyrsta bók hans, sam- nefnd sýningunni, hefur eignast sess sinn í hjarta lesþjóðarinnar. Hér eignast einstakur tónn og nálg- un Jóns á skáldskapinn (ég vil síður kalla það „stíl“) heimili þar sem eig- inleikar hans og tjáningarmáttur njóta sín í fullkomnu samræmi við umfjöllunarefnið. Persónur Jóns njóta þess einmitt hvernig hann gef- ur þeim færi á að vera opnar og dramatískar á áhrifaríkan hátt, fyrir utan hversu skáldlega og upphafið sögumaðurinn lýsir einatt þeirra innra lífi. Og harkan, hrjóstrugt yf- irborð persóna sem neita eða geta ekki lifað opnar, heilla einatt þennan höfund og kalla fram margt það magnaðasta sem hann skrifar. Þrátt fyrir að þríleikurinn – einkum fyrsta bindið – hafi hitt þjóðina í hjartastað hefur hann lík- lega ekki búið þar nógu lengi til að þola, eða verðskulda, galgopalega póst-dramatíska þeytivindu í anda Þorleifs Arnar Arnarssonar eða Yönu Ross. Það gæti að minnsta kosti verið ein skýring þess hve hlutlaus afstaða er tekin til efnisins í sýningu Borgarleikhússins. Mögu- lega er ósanngjarnt að kalla verk þeirra Bjarna og Egils Heiðars Ant- ons Pálssonar leikstjóra „gamal- dags“, en það er sannleikskjarni í því líka. Örlítið meira afstöðupúður hefði ekki sakað, sýnist mér úr sæti eftiráskýrandans. Þetta bitnar ekki síst á þorpsbúunum, þar sem hin skýri dilkadráttur höfundar í góða og slæma fólkið er ýktur og engum gráum flötum hleypt að. Fyrir vikið afhjúpast viss klisjutilhneiging í persónugalleríinu. Í þriðja hluta kviknar sú hugsun að það sé engu líkara en Charles Dickens hafi ákveðið að leggja frá sér Nickolas Nickleby og skrifa frekar Heimsljós eftir sínu höfði. Fyrir utan orðspor bókanna og fegurð textans er erfitt að koma auga á kosti þríleiksins sem efnis í leiksýningu, og það verður að við- urkennast að sýning Borgarleik- hússins nær ekki fyllilega að gera þá augljósa. Dramað, átökin í Himna- ríki og helvíti og Harmi englanna eru fyrst og fremst við náttúruöflin; veðurofsa, sjó og snjó, nokkuð sem leikhúsið er ekki á heimavelli við að lýsa, og þegar togstreitur innan mannlegs samfélags taka við í Hjarta mannsins þá siglir Jón hættulega nálægt melódramanu, nokkuð sem getur verið leikhúsinu skeinuhætt, nú á öld kaldhæðni og efasemda. Hitt er líka erfiðleikum bundið hvað vitundarmiðja bálksins, strák- urinn sem lifir af sjóferðina örlaga- ríku, kemst undir verndarvæng sterkra og sjálfstæðra kvenna og tekur að lokum örlög sín í eigin hendur, er kyrrstæð persóna. Hann birtist nánast fullþroskaður í upp- hafi sýningar, nývaknaður í verbúð- inni. Opinn, greindur, skapheitur, listelskur, leitandi, hugrakkur og ástríkur. Síðan fylgjumst við með honum takast á við heiminn með þessum vopnum sem honum eru fengin á fyrstu síðu. Sem gengur mun betur upp á pappír en sviði. En þá kemur til kasta Þuríðar Blævar Jóhannsdóttur. Sköpun hennar á stráknum er ekki hægt að kalla neitt annað en leikhústöfra. Algerlega sannfærandi túlkun og þrungin út- geislun sem staðsetur strákinn æv- inlega í miðri athygli áhorfandans. Það er auðveldara að sætta sig við það hvað aðrar persónur eru kyrr- stæðar og eintóna, þetta er jú saga stráksins. Allar þessar myndir eru skýrar og skarpar, vel studdar af fallegum, viðeigandi en óneitanlega ansi ófrumlegum búningum Helgu I. Stefánsdóttur. Valur Freyr Einars- son hreppir gjarnan, og brillerar í, hlutverkum illgjarnra ríkisbubba og fór áreynslulaust með Friðrik, en skapar líka eina af áhugaverðari og dýpri týpum sýningarinnar úr hrúð- urkarlinum Pétri. Katla Margrét Þorgeirsdóttir er Andrea kona hans, sem strákurinn „bjargar“ úr öm- urlegum aðstæðum, fallega teiknuð persóna en sérkennilegt að hafa þessa brotnu konu svona fagra og beina í baki – hefði ekki verið áhugaverðara að láta strákinn einan um að sjá í henni fegurðina? Það geislar líka af tálkvendinu Ragn- heiði og hinni elskuðu Álfheiði í meðförum Birnu Rúnar Eiríks- dóttur, eins og maklegt er. Stoltar og fagrar eru þær líka stöllurnar Helga og Geirþrúður og Sigrún Edda Björnsdóttir og Mar- grét Vilhjálmsdóttir fara létt með að sýna á þeim þessa einu hlið. Kol- beinn blindi, bitastæðasta hlutverk Haraldar Ara Stefánssonar, er frek- ar þreytandi í sínum hrópum. Var virkilega ekki pláss fyrir senu með stráknum að lesa fyrir hann? Það hefði stækkað mynd þeirra beggja í sýningunni, dýpkað skilning okkar á aðalpersónunni. Bárður var skemmtilega lífsglaður hjá Birni Stefánssyni og dauði hans hálfu átakanlegri fyrir vikið. Það kom mér svolítið í opna skjöldu að það er hin sérkennilega og sviðsetningarlega vandasama miðbók, Harmur englanna, sem rís hæst í sýningunni. Þar blómstrar umgjörð Egils Ingbergssonar, dúk- urinn stóri sem leikhópurinn magn- ar með illviðrið, skápallurinn, kröft- ugar teikningar Þórarins Blöndal og lýsing Þórðar Orra Péturssonar auk hljóðvinnslu Baldvins Þórs Magn- ússonar. Þarna gengur leikhúsið af einurð og heiðarleika á hólm við verkefni sem ekki er sjálfgefið að takist, og sigrar. Þarna í hríðinni kemst sýningin líka næst því að gefa persónu áhuga- vert dramatískt líf í Jens pósti, þökk sé tveimur atriðum. Annarsvegar þar sem hann opnar sig fyrir stráknum í svaðilförinni miklu um ástæður þess að hann verði, og muni, halda lífi, og síðan þar sem ferðafélagarnir liggja í vari við lík- kistu Ástu heitinnar og hann útlistar ástarmál sín. Allt eru þetta þó frá- sagnir af dramatík utan sviðs, líkt og í frönskum sautjándu aldar harmleik. Bergur Þór Ingólfsson er firnagóður Jens, sérstaklega í ein- talinu magnaða um systur sína. Hannes Óli Ágústson kröftugur Hjalti vinnumaður, en á sitt stærsta og besta hlutverk í hinum ógæfu- sama Gísla skólastjóra sem nær mögulega einhverskonar landi í leikslok. Ekki endilega frábær hug- mynd samt að láta Hannes Óla syngja einsöng. Grunnhugmynd að baki tónlistabeitingu, með hljóð- færaskipan og lagaval er snjöll, þau Pétur Eggertsson og Sólrún Ylfa Ingimarsdóttir spiluðu hnökralaust og allir sungu hreint. Nýju lögin hans Hjálmars H. Ragnarssonar voru falleg og í réttum anda um leið og þau báru skýr höfundareinkenni. Leikgerðarhöfundur og leikstjóri vinna með viðteknar aðferðir skáld- sagnaleikgerða í þessari sýningu. Framvindunni er ágætlega skýrt til skila haldið frá upphafi til enda, og aðdáendur orðlistar Jóns Kalmans fá fylli sína. Fyrir utan að skila sín- um leikhlutverkum, flestir fleiri en einu, með þeim takmörkunum sem aðferðin setur djúpri og innlifaðri persónusköpun, gegnir leikhópurinn hlutverki sviðsmanna og sögu- manns. Umbreytingar og sviðsetn- ing er meira og minna fumlaus en ég hef efasemdir um þá ákvörðun að leggja drjúgan hluta sögumanns- texta í munn talkórs leikaranna. Það þarf í það minnsta að útfæra betur. Hópurinn hljómaði oftast meira eins og illa samstilltur söfnuður að fara með trúarjátninguna í sunnudags- messu en fagmenn að beita úthugs- uðu listrænu stílbragði. Kannski var það meiningin. Vera má að kórinn slípist, en er þetta ekki óþörf upp- hafning textans? Almennt þykir mér hér stigið full- varlega til jarðar. Ljóst er að þrí- leikur Jóns er efniviður sem nýtur sín ekki sjálfkrafa til fullnustu í leik- rænum búningi. Engu að síður er honum mikið til hlíft við þeirri rót- tæku rannsókn sem kröftugar leik- gerðasýningar undanfarinna ára hafa byggst á. Útkoman er ekki nægilega sjálfstætt listaverk. Það er augljóslega meðvituð listræn ákvörðun og skilar bæði styrkleika og ágöllum sýningarinnar. Leikgerðin afhjúpar veikleika þessa metnaðarfulla þríleiks. Meló- dramað, grunnskreiða samfélags- greiningu og skort á þróun persóna. Sýningin nær engu að síður þegar best lætur að skila og gera sér mat úr umtalsverðum styrkleikum skáldskapar Jóns Kalmans og þeim innblæstri sem í hann má sækja. Þarna munar mikið um eftirtekt- arverða frammistöðu Þuríðar Blæv- ar. Áhorfendur verða líka vitni að áhrifaríkri beitingu meðala og tækni sviðsins til að skapa aðstæður og virkja ímyndunarafl áhorfandans til að horfast í augu við náttúruöflin og kraftana innra með okkur. Listin að lifa af Ljósmynd/Grímur Bjarnason Leikhústöfrar „Sköpun [Blævar] á stráknum er ekki hægt að kalla neitt annað en leikhústöfra. Algerlega sannfær- andi túlkun og þrungin útgeislun sem staðsetur strákinn ævinlega í miðri athygli áhorfandans,“ segir í rýni. Borgarleikhúsið Himnaríki og helvíti bbbmn Eftir Jón Kalman Stefánsson í leikgerð Bjarna Jónssonar. Leikstjórn: Egill Heið- ar Anton Pálsson. Leikmynd og kvik- mynd: Egill Ingibergsson. Teikningar og kvikun: Þórarinn Blöndal. Búningar: Helga I. Stefánsdóttir. Lýsing: Þórður Orri Pétursson. Tónlist og hljóðmynd: Hjálmar H. Ragnarsson. Hljóð: Baldvin Þór Magnússon. Leikgervi: Helga I. Stef- ánsdóttir og Árdís Bjarnþórsdóttir. Hljóðfæraleikarar: Pétur Eggertsson og Sólrún Ylfa Ingimarsdóttir. Leikarar: Bergur Þór Ingólfsson, Birna Rún Eiríks- dóttir, Björn Stefánsson, Hannes Óli Ágústsson, Haraldur Ari Stefánsson, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Margrét Vilhjálmsdóttir, Sigrún Edda Björns- dóttir, Valur Freyr Einarsson og Þuríður Blær Jóhannsdóttir. Frumsýning á Stóra sviði Borgarleikhússins 11. janúar 2018. ÞORGEIR TRYGGVASON LEIKLIST

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.