Morgunblaðið - 16.01.2018, Side 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 2018
Nutrilenk vörurnar fást í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana.
Göngur og hlaup
án verkja
„Ég sleit krossband fyrir mörgum árum og hef farið í
nokkrar liðþófaaðgerðir, þegar ég byrjaði að hlaupi fyrir
alvöru fyrir ca. fimm árum var ég alltaf með verki í
hnjánum og í upphafi síðasta árs voru verkirnir þannig
að ég gat ekki stigið í fótinn. Ég tók mér pásu og
byrjaði aftur en alltaf komu verkirnir aftur og það var
svo komið að ég gat ekki stigið í fótinn nema að finna
fyrir verkjum, ég vaknaði á nóttinni með verki. Fyrir ca.
Ári byrjaði ég að taka Nutrilenk að staðaldri og smám
saman gat ég farið að ganga eðlilega og hlaupa aftur.
Núna get ég gengið og hlaupið verkjalaus og finn
ekkert fyrir verkjum eftir mikil átök og get hlaupið aftur,
kláraði hálft maraþon og fjallahlaup án verkja nú í
sumar og þessu þakka ég NUTRILENK“.
Jóhann Gunnarsson – sölustjóri hjá Pennanum
Þetta var tími þegar fólk varbæði óskaplega opið ogdramatískt í samskiptumen einnig lokað og sýndi
mikla hörku hvað við annað,“ segir
Bjarni Jónsson, leikgerðarsmiður
Himnaríkis og helvítis, í viðtali í
leikskrá sýningarinnar. Þetta er
skörp athugasemd og gefur kannski
innsýn í hvers vegna þríleikur Jóns
Kalmans Stefánssonar og þó
sérstaklega fyrsta bók hans, sam-
nefnd sýningunni, hefur eignast
sess sinn í hjarta lesþjóðarinnar.
Hér eignast einstakur tónn og nálg-
un Jóns á skáldskapinn (ég vil síður
kalla það „stíl“) heimili þar sem eig-
inleikar hans og tjáningarmáttur
njóta sín í fullkomnu samræmi við
umfjöllunarefnið. Persónur Jóns
njóta þess einmitt hvernig hann gef-
ur þeim færi á að vera opnar og
dramatískar á áhrifaríkan hátt, fyrir
utan hversu skáldlega og upphafið
sögumaðurinn lýsir einatt þeirra
innra lífi. Og harkan, hrjóstrugt yf-
irborð persóna sem neita eða geta
ekki lifað opnar, heilla einatt þennan
höfund og kalla fram margt það
magnaðasta sem hann skrifar.
Þrátt fyrir að þríleikurinn –
einkum fyrsta bindið – hafi hitt
þjóðina í hjartastað hefur hann lík-
lega ekki búið þar nógu lengi til að
þola, eða verðskulda, galgopalega
póst-dramatíska þeytivindu í anda
Þorleifs Arnar Arnarssonar eða
Yönu Ross. Það gæti að minnsta
kosti verið ein skýring þess hve
hlutlaus afstaða er tekin til efnisins í
sýningu Borgarleikhússins. Mögu-
lega er ósanngjarnt að kalla verk
þeirra Bjarna og Egils Heiðars Ant-
ons Pálssonar leikstjóra „gamal-
dags“, en það er sannleikskjarni í
því líka. Örlítið meira afstöðupúður
hefði ekki sakað, sýnist mér úr sæti
eftiráskýrandans. Þetta bitnar ekki
síst á þorpsbúunum, þar sem hin
skýri dilkadráttur höfundar í góða
og slæma fólkið er ýktur og engum
gráum flötum hleypt að. Fyrir vikið
afhjúpast viss klisjutilhneiging í
persónugalleríinu. Í þriðja hluta
kviknar sú hugsun að það sé engu
líkara en Charles Dickens hafi
ákveðið að leggja frá sér Nickolas
Nickleby og skrifa frekar Heimsljós
eftir sínu höfði.
Fyrir utan orðspor bókanna og
fegurð textans er erfitt að koma
auga á kosti þríleiksins sem efnis í
leiksýningu, og það verður að við-
urkennast að sýning Borgarleik-
hússins nær ekki fyllilega að gera þá
augljósa. Dramað, átökin í Himna-
ríki og helvíti og Harmi englanna
eru fyrst og fremst við náttúruöflin;
veðurofsa, sjó og snjó, nokkuð sem
leikhúsið er ekki á heimavelli við að
lýsa, og þegar togstreitur innan
mannlegs samfélags taka við í
Hjarta mannsins þá siglir Jón
hættulega nálægt melódramanu,
nokkuð sem getur verið leikhúsinu
skeinuhætt, nú á öld kaldhæðni og
efasemda.
Hitt er líka erfiðleikum bundið
hvað vitundarmiðja bálksins, strák-
urinn sem lifir af sjóferðina örlaga-
ríku, kemst undir verndarvæng
sterkra og sjálfstæðra kvenna og
tekur að lokum örlög sín í eigin
hendur, er kyrrstæð persóna. Hann
birtist nánast fullþroskaður í upp-
hafi sýningar, nývaknaður í verbúð-
inni. Opinn, greindur, skapheitur,
listelskur, leitandi, hugrakkur og
ástríkur. Síðan fylgjumst við með
honum takast á við heiminn með
þessum vopnum sem honum eru
fengin á fyrstu síðu. Sem gengur
mun betur upp á pappír en sviði. En
þá kemur til kasta Þuríðar Blævar
Jóhannsdóttur. Sköpun hennar á
stráknum er ekki hægt að kalla neitt
annað en leikhústöfra. Algerlega
sannfærandi túlkun og þrungin út-
geislun sem staðsetur strákinn æv-
inlega í miðri athygli áhorfandans.
Það er auðveldara að sætta sig við
það hvað aðrar persónur eru kyrr-
stæðar og eintóna, þetta er jú saga
stráksins. Allar þessar myndir eru
skýrar og skarpar, vel studdar af
fallegum, viðeigandi en óneitanlega
ansi ófrumlegum búningum Helgu I.
Stefánsdóttur. Valur Freyr Einars-
son hreppir gjarnan, og brillerar í,
hlutverkum illgjarnra ríkisbubba og
fór áreynslulaust með Friðrik, en
skapar líka eina af áhugaverðari og
dýpri týpum sýningarinnar úr hrúð-
urkarlinum Pétri. Katla Margrét
Þorgeirsdóttir er Andrea kona hans,
sem strákurinn „bjargar“ úr öm-
urlegum aðstæðum, fallega teiknuð
persóna en sérkennilegt að hafa
þessa brotnu konu svona fagra og
beina í baki – hefði ekki verið
áhugaverðara að láta strákinn einan
um að sjá í henni fegurðina? Það
geislar líka af tálkvendinu Ragn-
heiði og hinni elskuðu Álfheiði í
meðförum Birnu Rúnar Eiríks-
dóttur, eins og maklegt er.
Stoltar og fagrar eru þær líka
stöllurnar Helga og Geirþrúður og
Sigrún Edda Björnsdóttir og Mar-
grét Vilhjálmsdóttir fara létt með að
sýna á þeim þessa einu hlið. Kol-
beinn blindi, bitastæðasta hlutverk
Haraldar Ara Stefánssonar, er frek-
ar þreytandi í sínum hrópum. Var
virkilega ekki pláss fyrir senu með
stráknum að lesa fyrir hann? Það
hefði stækkað mynd þeirra beggja í
sýningunni, dýpkað skilning okkar á
aðalpersónunni. Bárður var
skemmtilega lífsglaður hjá Birni
Stefánssyni og dauði hans hálfu
átakanlegri fyrir vikið.
Það kom mér svolítið í opna
skjöldu að það er hin sérkennilega
og sviðsetningarlega vandasama
miðbók, Harmur englanna, sem rís
hæst í sýningunni. Þar blómstrar
umgjörð Egils Ingbergssonar, dúk-
urinn stóri sem leikhópurinn magn-
ar með illviðrið, skápallurinn, kröft-
ugar teikningar Þórarins Blöndal og
lýsing Þórðar Orra Péturssonar auk
hljóðvinnslu Baldvins Þórs Magn-
ússonar. Þarna gengur leikhúsið af
einurð og heiðarleika á hólm við
verkefni sem ekki er sjálfgefið að
takist, og sigrar.
Þarna í hríðinni kemst sýningin
líka næst því að gefa persónu áhuga-
vert dramatískt líf í Jens pósti, þökk
sé tveimur atriðum. Annarsvegar
þar sem hann opnar sig fyrir
stráknum í svaðilförinni miklu um
ástæður þess að hann verði, og
muni, halda lífi, og síðan þar sem
ferðafélagarnir liggja í vari við lík-
kistu Ástu heitinnar og hann útlistar
ástarmál sín. Allt eru þetta þó frá-
sagnir af dramatík utan sviðs, líkt
og í frönskum sautjándu aldar
harmleik. Bergur Þór Ingólfsson er
firnagóður Jens, sérstaklega í ein-
talinu magnaða um systur sína.
Hannes Óli Ágústson kröftugur
Hjalti vinnumaður, en á sitt stærsta
og besta hlutverk í hinum ógæfu-
sama Gísla skólastjóra sem nær
mögulega einhverskonar landi í
leikslok. Ekki endilega frábær hug-
mynd samt að láta Hannes Óla
syngja einsöng. Grunnhugmynd að
baki tónlistabeitingu, með hljóð-
færaskipan og lagaval er snjöll, þau
Pétur Eggertsson og Sólrún Ylfa
Ingimarsdóttir spiluðu hnökralaust
og allir sungu hreint. Nýju lögin
hans Hjálmars H. Ragnarssonar
voru falleg og í réttum anda um leið
og þau báru skýr höfundareinkenni.
Leikgerðarhöfundur og leikstjóri
vinna með viðteknar aðferðir skáld-
sagnaleikgerða í þessari sýningu.
Framvindunni er ágætlega skýrt til
skila haldið frá upphafi til enda, og
aðdáendur orðlistar Jóns Kalmans
fá fylli sína. Fyrir utan að skila sín-
um leikhlutverkum, flestir fleiri en
einu, með þeim takmörkunum sem
aðferðin setur djúpri og innlifaðri
persónusköpun, gegnir leikhópurinn
hlutverki sviðsmanna og sögu-
manns. Umbreytingar og sviðsetn-
ing er meira og minna fumlaus en ég
hef efasemdir um þá ákvörðun að
leggja drjúgan hluta sögumanns-
texta í munn talkórs leikaranna. Það
þarf í það minnsta að útfæra betur.
Hópurinn hljómaði oftast meira eins
og illa samstilltur söfnuður að fara
með trúarjátninguna í sunnudags-
messu en fagmenn að beita úthugs-
uðu listrænu stílbragði. Kannski var
það meiningin. Vera má að kórinn
slípist, en er þetta ekki óþörf upp-
hafning textans?
Almennt þykir mér hér stigið full-
varlega til jarðar. Ljóst er að þrí-
leikur Jóns er efniviður sem nýtur
sín ekki sjálfkrafa til fullnustu í leik-
rænum búningi. Engu að síður er
honum mikið til hlíft við þeirri rót-
tæku rannsókn sem kröftugar leik-
gerðasýningar undanfarinna ára
hafa byggst á. Útkoman er ekki
nægilega sjálfstætt listaverk. Það er
augljóslega meðvituð listræn
ákvörðun og skilar bæði styrkleika
og ágöllum sýningarinnar.
Leikgerðin afhjúpar veikleika
þessa metnaðarfulla þríleiks. Meló-
dramað, grunnskreiða samfélags-
greiningu og skort á þróun persóna.
Sýningin nær engu að síður þegar
best lætur að skila og gera sér mat
úr umtalsverðum styrkleikum
skáldskapar Jóns Kalmans og þeim
innblæstri sem í hann má sækja.
Þarna munar mikið um eftirtekt-
arverða frammistöðu Þuríðar Blæv-
ar. Áhorfendur verða líka vitni að
áhrifaríkri beitingu meðala og tækni
sviðsins til að skapa aðstæður og
virkja ímyndunarafl áhorfandans til
að horfast í augu við náttúruöflin og
kraftana innra með okkur.
Listin að lifa af
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Leikhústöfrar „Sköpun [Blævar] á stráknum er ekki hægt að kalla neitt annað en leikhústöfra. Algerlega sannfær-
andi túlkun og þrungin útgeislun sem staðsetur strákinn ævinlega í miðri athygli áhorfandans,“ segir í rýni.
Borgarleikhúsið
Himnaríki og helvíti bbbmn
Eftir Jón Kalman Stefánsson í leikgerð
Bjarna Jónssonar. Leikstjórn: Egill Heið-
ar Anton Pálsson. Leikmynd og kvik-
mynd: Egill Ingibergsson. Teikningar og
kvikun: Þórarinn Blöndal. Búningar:
Helga I. Stefánsdóttir. Lýsing: Þórður
Orri Pétursson. Tónlist og hljóðmynd:
Hjálmar H. Ragnarsson. Hljóð: Baldvin
Þór Magnússon. Leikgervi: Helga I. Stef-
ánsdóttir og Árdís Bjarnþórsdóttir.
Hljóðfæraleikarar: Pétur Eggertsson og
Sólrún Ylfa Ingimarsdóttir. Leikarar:
Bergur Þór Ingólfsson, Birna Rún Eiríks-
dóttir, Björn Stefánsson, Hannes Óli
Ágústsson, Haraldur Ari Stefánsson,
Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Margrét
Vilhjálmsdóttir, Sigrún Edda Björns-
dóttir, Valur Freyr Einarsson og Þuríður
Blær Jóhannsdóttir. Frumsýning á Stóra
sviði Borgarleikhússins 11. janúar 2018.
ÞORGEIR
TRYGGVASON
LEIKLIST