Morgunblaðið - 16.01.2018, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 2018
Uppfærsla LeikhópsinsLottu á Galdrakarlinum íOz í Elliðaárdalnum fyrirtæpum áratug er ein
fárra sýninga hópsins sem rýnir
hafði ekki séð. Það var því með mik-
illi tilhlökkun sem leiðin lá í Tjarn-
arbíó um helgina þar sem Lotta hef-
ur hafið þá vegferð að sýna gömlu
verkin sín í réttri tímaröð innandyra
að vetri til ásamt því að frumsýna
áfram ný verk á sumrin. Líkt og með
sumarsýningar hópsins er ætlunin
að ferðast um landið með vetrarsýn-
ingarnar og á Lotta hrós skilið fyrir
hversu vel hún sinnir ungum áhorf-
endum hringinn um landið – og hef-
ur gert um árabil.
Saga L. Frank Baum um Dóró-
theu og vini hennar þrjá í Oz er flest-
um börnum kunn. Ef ekki úr bókinni
sjálfri eða einhverri af ótal endur-
sögnum hennar, þá úr kvikmyndinni
goðsagnarkenndu frá árinu 1939.
Rauði þráðurinn er frásögnin af
Dórótheu sem ásamt Tótó, hund-
inum sínum, lendir í hvirfilbyl sem
feykir þeim alla leið frá Kansas til
ævintýraheima Oz. Þar er Dórótheu
tjáð að sá eini sem geti hjálpað henni
að komast heim sé galdrakarlinn
sem býr í Smaragðsborg og því
stefnir hún strax þangað. Á leiðinni
hittir hún heilalausa fuglahræðu,
hjartalausan pjáturkarl og huglaust
ljón sem slást í för með henni í von
um að galdrakarlinn geti líka hjálp-
að þeim að öðlast það sem þau þrá
mest, heila, hjarta og hugrekki.
Í leikgerð sinni einfaldar Ármann
Guðmundsson söguna nokkuð þann-
ig að hún rúmist innan þess klukku-
tíma sem sýningar Lottu vanalega
eru. Þrautunum er fækkað til muna,
vængjuðu öpunum er alfarið sleppt
sem og gula tígulsteinsveginum, en
það kemur ekki að sök því meg-
insagan er skýr. Persónur eru
kynntar til leiks með skemmtilegum
lögum (úr smiðju Ármanns, Baldurs
og Snæbjörns Ragnarssona, Egg-
erts Hilmarssonar og Rósu Ásgeirs-
dóttur) og átökin við vondu vestan-
nornina, sem ásælist silfurskó vondu
austannornarinnar sem Dóróthea
klæðist eftir að hafa óvart drepið
eigandann, komast vel til skila. Rýn-
ir saknaði þess aðeins að gjöfum
galdrakarlsins væri sleppt þegar
hann útskýrir fyrir fuglahræðunni,
pjáturkarlinum og ljóninu að þau
bjuggu öll allan tímann yfir því sem
þau leituðu.
Líkt og í fyrri sýningum Leik-
hópsins Lottu er leikgleðin mikil og
orkustigið hátt sem þjónar verkinu
og heldur vel athygli ungra leik-
húsgesta. Ágústa Skúladóttir er
ekki aðeins flinkur leikstjóri heldur
einnig afbragðs danshöfundur og út-
færir í samvinnu við leikhópinn
fantaflott dansnúmer og listrænar
slagsmálasenur, en þar ber hæst
glímu fuglahræðunnar við hina sof-
andi vondu vestannorn.
Einföld og stílhrein sviðsmynd
Móeiðar Helgadóttur og Sigsteins
Sigurbergssonar nýtur sín vel í
Tjarnarbíói þar sem fjöldi fleka á
hjólum rennur áreynslulaust um
sviðið og breytir leikrýminu í ólíka
staði. Lýsing Kjartans Darra Krist-
jánssonar er töfrandi og á stóran
hluta í ævintýrastemningunni á svið-
inu þar sem fiðrildi fljúga um og
hvirfilbyljir birtast fyrirvaralaust.
Hljóðmynd Baldurs Ragnarssonar
og Kjartans Darra Kristjánssonar
var prýðilega unnin. Líkt og í fyrr-
nefndri kvikmynd er farin sú leið í
leikmynd og búningum að hafa Kan-
sas í svart/hvítu meðan Oz einkenn-
ist af mikilli litagleði. Útfærsla Rósu
Ásgeirsdóttur og Sigsteins Sigur-
bergssonar á útliti persóna er góð og
kemst á flug í nornunum þremur.
Rósa Ásgeirsdóttir er yndisleg í
hlutverki sínu sem Dóróthea og nær
að heilla leikhúsgesti með góðvild
sinni og ráðsnilli. Baldur Ragnars-
son er skemmtilega fattlaus sem
fuglahræðan og sýnir ótrúlega fimi í
átökum sínum við nornina. Sigsteinn
Sigurbergsson er dásamlegur sem
pjáturkarlinn sem telur sig vera
hjartalausan en grætur samt sem
áður sáran þegar hann stígur óvart á
snigil. Skert hreyfigeta pjáturkarls-
ins er einnig sniðuglega útfærð.
Anna Bergljót Thorarensen nýtur
sín vel í hlutverki huglausa ljónsins
og fer á kostum þegar hún reynir að
flýja af hólmi og leitar ásjár hjá
áhorfendum. Rýnir saknaði þess þó
að ljónið skyldi ekki tala um sjálft
sig í kvenkyni þegar búningurinn
tók af allan vafa um hvers kyns það
væri. Huld Óskarsdóttir er hæfilega
grimmúðleg sem vestannornin
vonda en heiðríkjan ein sem norðan-
og sunnannornirnar. Að sama skapi
er hún skemmtilega vandræðaleg
sem hliðvörður í Smaragðsborg og
sjálfur galdrakarlinn í Oz. Allir
nema Rósa léku fleira en eitt hlut-
verk og á köflum var óskiljanlegt
hversu snögg þau gátu verið í bún-
ingaskiptum sínum.
Aðdáendur Leikhópsins Lottu
verða ekki fyrir vonbrigðum með
Galdrakarlinn í Oz sem minnir okk-
ur á að ferðalagið er oft mikilvægara
en sjálfur áfangastaðurinn og vin-
áttan er dýrmætasta veganestið.
Ljósmynd/Birta Rán Björgvinsdóttir
Hrós „Leikhópurinn Lotta [á] hrós skilið fyrir hversu vel hann sinnir ungum
áhorfendum hringinn um landið – og hefur gert um árabil,“ segir í rýni.
Vinir gegnum súrt og sætt
Tjarnarbíó
Galdrakarlinn í Oz bbbbn
Eftir L. Frank Baum í leikgerð Ármanns
Guðmundssonar. Leikstjórn: Ágústa
Skúladóttir. Tónlist: Ármann Guð-
mundsson, Baldur Ragnarsson, Eggert
Hilmarsson, Rósa Ásgeirsdóttir og
Snæbjörn Ragnarsson. Söngtextar:
Anna Bergljót Thorarensen, Ármann
Guðmundsson, Baldur Ragnarsson og
Snæbjörn Ragnarsson. Leikmynd:
Móeiður Helgadóttir og Sigsteinn Sig-
urbergsson. Búningar: Rósa Ásgeirs-
dóttir og Sigsteinn Sigurbergsson. Lýs-
ing: Kjartan Darri Krisjánsson. Hljóð:
Þórður Gunnar Þorvaldsson. Hljóð-
mynd: Baldur Ragnarsson og Kjartan
Darri Kristjánsson. Dansar: Ágústa
Skúladóttir og hópurinn. Leikarar: Anna
Bergljót Thorarensen, Baldur Ragnars-
son, Huld Óskarsdóttir, Rósa Ásgeirs-
dóttir og Sigsteinn Sigurbergsson.
Leikhópurinn Lotta frumsýndi í
Tjarnarbíói 6. janúar 2018, en rýnt í 4.
sýningu 13. janúar 2018 kl. 15.
SILJA BJÖRK
HULDUDÓTTIR
LEIKLIST
Dolores O’Riordan, söngkona írsku
rokksveitarinnar The Cranberries,
lést í gær, 46 ára að aldri. Frá þessu
greindi talskona hennar í tilkynn-
ingu til fjölmiðla.
O’Riordan var í London ásamt
öðrum meðlimum sveitarinnar við
upptökur.
Cranberries skaut upp á stjörnu-
himininn árið 1993 með plötunni
Everybody Else Is Doing It, So Why
Can’t We? Hljómsveitin hefur selt
yfir 40 milljónir platna.
Dánarorsök O’Riordan hefur
ekki verið gefin upp, en hljóm-
sveitin varð að aflýsa fjölda tón-
leika í Evrópuferð sinni í maí síð-
astliðnum vegna slæmrar heilsu
söngkonunnar. Hún greindi síðan
frá því á facebooksíðu sveitarinnar
í síðasta mánuði að hún hefði náð
heilsu og væri farin að koma fram
að nýju.
Söngkona írsku
rokksveitarinnar
Cranberries látin
AFP
Dolores látin Írska söngkonan Dolores
O’Riordan á tónleikum með hljómsveitinni
The Cranberries 7. júlí 2016.
Mörg karlmódel hafa sakað tvo af
allra þekktustu og eftirsóttustu
tískuljósmyndurum síðustu ára-
tuga, Mario Testino og Bruce We-
ber, um kynferðislega áreitni. Hafa
lögfræðingar beggja hafnað ásök-
ununum. Verk þeirra Testiono og
Weber hafa verið áberandi á síðum
Vogue-tímaritanna og segja stjórn-
endur þeirra að ljósmyndurunum
verði ekki falin fleiri slík.
Dagblaðið The New York Times
var fyrst til að birta frásagnir af
ásökunum á hendur ljósmynd-
urunum. Fimmtán karlmenn sem
höfðu setið fyrir hjá Bruce Weber í
tískuþáttum og auglýsingum fyrir
virt tískufyrirtæki lýsa þar áreitni
ljósmyndarans. Og þrettán karl-
menn stíga fram og lýsa ósæmilegu
og kynferðislegu athæfi Testino.
Í kjölfarið hefur Condé Nast-
útgáfan, sem gefur út Vogue og
fleiri rit, lýst yfir að hér eftir vinni
tískuljósmyndarar á þeirra vegum
eftir nákvæmum siðareglum.
Saka Weber og Testino um áreitni
AFP
Ásakanir Anna Wintour, ritstjóri Vogue,
og Mario Testino á tískusýningu. Vogue
hættir að birta ljósmyndir hans.
ICQC 2018-20
BÍÓ
áþriðjudögum í Laugarásbíó
750
á allarmyndir nema íslenskar
kr.
FRÍ
ÁFYLL
ING
Á GOS
I
Í HLÉI
SÝND KL. 5.30
SÝND KL. 5.30SÝND KL. 5.30, 10SÝND KL. 8SÝND KL. 7.50, 10.30
SÝND KL. 8, 10.15
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Fallegar vörur
fyrir heimilið
Stóll á snúningsfæti
í ítölsku nautsleðri
75 cm á breidd
Verð frá 120.000 kr.