Morgunblaðið - 16.01.2018, Qupperneq 36
ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 16. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. „Ég ætlaði bara í vinnuna“
2. Leiðinlegt vetrarveður á leiðinni
3. Lést í kjölfar rútuslyssins
4. Köstuðu upp vegna fnyksins
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Gítartríóið Camper Giorno kemur
fram á Kex hosteli við Skúlagötu í
kvöld kl. 20.30. Það er skipað mönn-
um af yngri kynslóð íslenskra djass-
tónlistarmanna; Bjarna Má Ingólfs-
syni, Sigmari Þór Matthíassyni og
Skúla Gíslasyni. Þeir spila frum-
samda tónlist auk laga eftir nokkrar
helstu gítargoðsagnir samtímans.
Lög gítargoðsagna
og þeirra sjálfra
Sagnfræði-
stofnun Háskóla
Íslands efnir í
dag. kl. 16 til 18 til
málþings í stofu
101 í Odda um rit-
ið Líftaugar
landsins – Saga
íslenskrar utan-
ríkisverslunar
900-2010. Frummælendur eru Orri
Vésteinsson, Hannes Hólmsteinn
Gissurarson, Hrefna Róbertsdóttir,
Gunnar Karlsson og Gylfi Zoëga.
Málþing um Líf-
taugar landsins
Um 100 manns taka þátt í flutn-
ingi Sinfóníuhljómsveitar Íslands á
Svo mælti Zaraþústra eftir Richard
Strauss undir stjórn Davids Danz-
mayrs í Eldborg á fimmtudag. Þá
leikur Alban Gerhardt
sellókonsert nr. 1 eftir
Shostakovitsj. Nýjasti
hljómdiskur Gerhardts,
sem hljóðritaður var
fyrir Deutsche Grammo-
phon, var valinn einn
af diskum mánaðar-
ins hjá Gramo-
phone.
Risavaxin hljómsveit
Á miðvikudag Norðaustlæg eða breytileg átt 3-10 m/s, skýjað
með köflum og stöku él, einkum norðvestantil. Frost 2-12 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðvestan hvassviðri eða stormur með
snjókomu og éljum norðan- og vestanlands, fyrst á Vestfjörðum,
en hægari vindur og úrkomulítið syðra og eystra. Dregur úr vindi
og ofankomu í kvöld, en hvessir um tíma allra syðst. Frost 0-7 stig.
VEÐURÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Tindastóll frá Sauðárkróki vann
bikarinn í meistaraflokki karla í
körfubolta á laugardaginn var.
Þetta var í fyrsta sinn sem Tinda-
stóll vann svo stóran titil í meist-
araflokknum. Kári Marísson körfu-
boltamaður á að öðrum ólöstuðum
stóran hlut í velgengni Tindastóls.
„Ég er bara hluti af heildinni,
þjálfa nú í yngri flokkum og styð
við bakið á öllu og öllum,“ sagði
Kári. Hann sagði marga hafa lagt
sitt af mörkum og auk sigurliðsins
hefði stjórn Tindastóls staðið sig
frábærlega við fjáröflun og stjórn
félagsins.
„Ég er búinn að vera viðloðandi
körfubolta í Skagafirði síðan vorið
1978. Þá byrjaði ég að þjálfa hér og
hef verið við þetta síðan,“ sagði
Kári. Hann flutti í Skagafjörð til að
vera bóndi og ræktaði holdanaut og
var með eggjabú í Sólheimum í
Blönduhlíð í 17 ár. Um leið var
hann kennari og skólastjóri í
grunnskólanum í Héðinsminni. Kári
er nú húsvörður í Árskóla á Sauð-
árkróki.
Tindastóll komst í efstu deild
1986 og þá tók Valur Ingimund-
arson við sem þjálfari og Kári varð
aðstoðarþjálfari. Hann þjálfaði líka
meistaraflokk kvenna og yngri
flokka Tindastóls. Af liðsmönnum
sigurliðsins þjálfaði Kári þá Pétur
Rúnar Birgisson, Hannes Inga
Másson, Finnboga Bjarnason og
fleiri í yngri flokkum. Þeir urðu
bikarmeistarar í 9. flokki árið 2011
undir stjórn Kára.
Axel, sonur Kára, er einnig í sig-
urliðinu. Hann er nýlega fluttur
heim frá Danmörku þar sem hann
lærði dýralækningar og lék körfu-
bolta. Þá varð Arnar Snær, sonur
Kára, bikarmeistari með Tindastóli
2011 og Íslandsmeistari í drengja-
og unglingaflokki. Hann lék einnig
með KR. Kristín Björk, uppeldis-
dóttir Kára, lék körfubolta með KR
og varð Íslandsmeistari þrisvar.
María, dóttir Kára, lék einnig með
KR og Haukum. Kári á nú tvö ung
börn, fjögurra ára og 18 mánaða.
„Þessi fjögurra ára gekk inn með
Axel í Höllina á laugardag, ég vona
að það hafi kveikt eitthvað í henni,“
sagði Kári og hló.
Á félagssvæði Tindastóls búa um
4.000 manns. Kári sagði starfið hafa
fengið mikla athygli og góða um-
fjöllun í gegnum árin. Það hjálpaði
til við að afla nýliða.
„Fólkið vill þetta og krakkarnir
hafa viljað koma og æfa. Mér finnst
þó aðeins vera orðin breyting, tölv-
urnar taka orðið meiri tíma en áð-
ur,“ sagði Kári.
Körfuboltapabbi á Króknum
Kári Marísson
körfuboltaþjálfari
fagnaði sigrinum
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Körfuboltafeðgar Kári Marísson (t.h.) og Axel sonur hann með bikarinn sem Tindastóll vann um helgina með stór-
sigri gegn KR. Kári byrjaði ungur í fótbolta en svo tók körfuboltinn við og hefur verið hans líf og yndi síðan.
Kári Marísson fæddist 1951.
Hann á að baki langan feril í
körfuboltanum. Kári lék fyrsta
leik sinn í meistaraflokki árið
1967 með KFR, sem síðar sam-
einaðist Val. Leikurinn fór fram í
Hálogalandi fyrir 51 ári. Tveimur
árum síðar lék hann sinn fyrsta
landsleik og á Kári 35 landsleiki
að baki.
Kári lék svo með Njarðvík í
þrjú ár. Hann flutti í Skagafjörð-
inn 1978, fyrir 40 árum, og fór
þá að leika með Tindastóli og
einnig með Smáranum í Varma-
hlíð. Hann þjálfaði hjá báðum
liðunum, ýmist sem aðalþjálfari
eða aðstoðarþjálfari meist-
araflokka og yngri flokka. Hann
var 55 ára þegar hann kom síð-
ast inn á í leik Tindastóls gegn
Njarðvík og er hann líklega ald-
ursforseti leikmanna í meist-
aradeildinni í körfubolta.
Meira en hálfrar aldar ferill
KÁRI MARÍSSON – KÖRFUBOLTAMAÐUR AF LÍFI OG SÁL
Guðjón Valur Sigurðsson segir að það sé ótrúlega gaman og gefandi að fara
í leik eins og gegn Serbum í kvöld þar sem liðin leika til úrslita um sæti í milli-
riðli Evrópumótsins í handbolta.
Serbarnir eru óútreiknanlegir og Geir Sveinsson hefur varla tölu á öllum
þeim varnaraðferðum sem þeir hafa beitt í keppninni.
Björgvin Páll Gústavsson sneri sig á ökkla en góðar líkur
eru á að hann geti varið mark Íslands í leiknum gegn Serbum.
Þórey Rósa Stefánsdóttir, Halldór Jóhann Sigfússon og
Guðlaugur Arnarsson fara yfir frammistöðu íslenska liðsins á
EM til þessa og velta vöngum yfir möguleikunum í keppninni.
Þau eru bjartsýn á að liðið komist áfram úr sínum riðli. Íslenska
liðið þarf samt að virkja betur horna- og línumenn, sýna heil-
steyptari leik og draga úr sveiflum. Tæknifeilarnir hafa verið of
margir og oftast þeir sömu.
Óvænt úrslit urðu á EM í gærkvöld þegar Tékkar lögðu Dani að velli og
dramatíkin var gríðarleg þegar Þjóðverjar jöfnuðu gegn Slóvenum löngu eftir
að leiktímanum lauk.
Hvað þarf að gerast í Split í kvöld til að Ísland komist áfram?
Allt um EM í Króatíu