Morgunblaðið - 08.02.2018, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2018
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Setjum undir á staðnum
Dráttarbeisli
undir flestar tegundir bíla
Leita nú allra leiða fyrir Sunnu
Lögmaður telur meðferðina á Sunnu Elviru varða við lög Segir að hún líði fyrir meinta aðild eigin-
manns síns að fíkniefnamáli Utanríkisráðuneytið segist ekki geta gripið inn í rannsókn á málinu
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Spænskur lögmaður Sunnu Elviru Þorkels-
dóttur, sem liggur lömuð á sjúkrahúsi á
Malaga á Spáni eftir fall þann 19. janúar, leit-
ar nú allra leiða til að hún fái viðeigandi
læknishjálp. Þetta segir Páll Kristjánsson,
sem er lögmaður Sunnu hér á landi. Hann
segir að sú meðferð sem Sunna hefur þurft
að sæta af hendi lögreglu hljóti að varða við
lög og undrast afskiptaleysi alþjóðadeildar
ríkislögreglustjóra og íslenska utanríkisráðu-
neytisins.
Sunna féll á milli hæða á heimili sínu í
Malaga og var eiginmaður hennar handtekinn
í kjölfarið. Honum var fljótlega sleppt úr
haldi, þá fór hann til Íslands og var handtek-
inn við komuna til landsins vegna gruns um
aðild að stórfelldu fíkniefnasmygli og í fram-
haldinu úrskurðaður í gæsluvarðhald. Í gær
var hann síðan úrskurðaður í áframhaldandi
fjögurra vikna gæsluvarðhald.
Páll segir að þær aðstæður og sú læknis-
hjálp sem Sunna fær nú sé í engu samræmi
við alvarleika áverka hennar, en hún skað-
aðist á mænu. Hún liggi á sjúkrahúsi með
lágmarksþjónustu, hálfgerðri heilsugæslu,
þar sem hún fái ekki meðferð við hæfi.
Sjúkratryggingar Íslands hafi samþykkt að
greiða kostnað við flutning hennar á hátækni-
sjúkrahús í Toledo en spænska lögreglan
hindri það með því að neita að afhenda vega-
bréf hennar og noti ástand hennar til að
pressa á hana að gefa upplýsingar um áður-
nefnt fíkniefnamál. „Ég fæ ekki betur skilið
en að hún líði fyrir meinta aðild eiginmanns
síns að fíkniefnamáli. Ég veit ekki til þess að
hún sé sakborningur í málinu og það hlýtur
að vera brot á mannréttindum að hún fái ekki
þá læknishjálp sem hún þarf á að halda. Ég
get ekki séð að það skipti lögreglu neinu máli
á hvaða sjúkrahúsi hún liggur, hún hefur
svarað spurningum hennar og ef það er þörf
á frekari skýrslutökum er væntanlega hægt
að gera það hvar sem er.“
Hefur ekki fengið nein svör
Páll segir það hafa komið sér verulega á
óvart hversu lítið embætti ríkislögreglustjóra
og utanríkisráðuneytið hafi beitt sér í málinu.
„Þegar þetta kom upp hafði ég samband við
alþjóðadeild ríkislögreglustjóra og bað um að
þau myndu beita sér fyrir því að Sunna kæmi
heim. Ég hef ekki fengið nein svör. Mér datt
satt best að segja ekki annað í hug en að
þessir aðilar myndu gera allt sem þeir gætu
til að íslenskur ríkisborgari fengi þá læknis-
hjálp sem hann þarf á að halda.“ Hann segir
að röðin sé komin að stjórnvöldum að beita
sér í málinu. „Utanríkisráðuneytið þarf að
grípa inn í með meira afgerandi hætti en það
hefur gert.“
Spurður um líðan Sunnu segir Páll að hún
hugsi fyrst og fremst um að geta hafið endur-
hæfingu. „Þó að mikið hafi verið fjallað í fjöl-
miðlum um meint tengsl mannsins hennar við
fíkniefnamál, þá einblínir hún á sína eigin
heilsu. Hún á erfitt með að skilja hvers vegna
hún þarf að þola þessa meðferð.“
Hafa aðstoðað fjölskylduna
Urður Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi
utanríkisráðuneytisins, segir að ráðuneytið
hafi aðstoðað fjölskyldu Sunnu frá því að mál-
ið kom upp og hafi m.a. verið í samskiptum
við spænsk stjórnvöld, haft milligöngu um
lögfræðiaðstoð og verið í samskiptum við
heilbrigðisyfirvöld á Spáni. Spurð hvort ráðu-
neytið geti með einhverju móti gripið inn í
kyrrsetningu Sunnu á sjúkrahúsinu segir
Urður svo ekki vera. „Við getum ekki gripið
inn í rannsókn á máli eða neinu öðru sem lög-
regla er að fást við, ekki frekar en yfirvöld
annarra landa gætu haft afskipti af rannsókn
hér á landi.“
Frá alþjóðadeild ríkislögreglustjóra feng-
ust þær upplýsingar að deildin hefði verið í
sambandi við spænsk lögregluyfirvöld vegna
máls Sunnu. „Frekari upplýsingar verða ekki
gefnar að svo stöddu,“ segir í skriflegu svari
alþjóðadeildar.
Ljósmynd/Af Facebook-síðu Sunnu.
Biðstaða Óútskýrt er hvers vegna Sunna
Elvira Þorkelsdóttir fær ekki flutning heim.
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
Stjórn Fangavarðafélags Íslands
(FVFÍ) sendi ályktun dags. 5. febr-
úar sl. til allra þingmanna þar sem
lýst er yfir áhyggjum af niður-
skurði. Fram kemur m.a. í álykt-
uninni að öryggi starfsmanna fang-
elsa sem og fanga verði ekki lengur
tryggt vegna manneklu en einnig að
aðbúnaður og tæki fangavarða séu
úr sér gengin.
„Við höfum nýlegt dæmi þar sem
aðeins einn fangavörður var á næt-
urvakt yfir 23 föngum, en hann
veiktist alvarlega og uppgötvaðist
það ekki fyrr en dagvaktin mætti til
vinnu,“ segir Jón Ingi Jónsson, for-
maður FVFÍ, sem vill ekki þurfa að
hugsa til enda hvað hefði getað farið
úrskeiðis á meðan.
Jón Ingi segir fangelsin sneisafull
nema á Hólmsheiði, en þar sé ekki
hægt að fullnýta hina nýju aðstöðu
að sökum skorts á fangavörðum.
„Skorið hefur verið niður í mála-
flokknum, en á sama tíma er auknu
fé varið til lögreglu og dómstóla án
þess að hugsa um það hvernig vinn-
an þar skilar sér í fangelsin.“
Komið að sársaukamörkum
Páll Winkel fangelsismálastjóri
tekur undir áhyggjur FVFÍ. „Við
höfum fengið fleiri fangelsi, rafrænt
eftirlit o.þ.h. en niðurskurður á
grunnheimildum hefur verið á
bilinu 20-25% og við höfum þurft að
bregðast við með að draga úr
starfsmannafjölda. Talsvert er síðan
við komum að sársaukamörkum og
út frá öryggissjónarmiðum er ekki
hægt að fjölga föngum á Hólms-
heiði, þeir eru nú 30 þó að pláss sé
fyrir 56.“
Áhyggjur af niðurskurði
Fangaverðir telja ekki lengur hægt að tryggja öryggi
fanga og starfsfólks Ekki hægt að fjölga á Hólmsheiði
Morgunblaðið/Hari
Hólmsheiðarfangelsi Ekki hægt
að fullmanna sökum niðurskurðar.
Fulltrúar Pri-
mera air mættu
ekki á fund sem
ríkissáttasemjari
hafði boðað í dag í
kjaradeilu félags-
ins og Flug-
freyjufélags Ís-
lands. Er þetta
sjötti fundur rík-
issáttasemjara
sem fulltrúar fé-
lagsins virða að vettugi. Deilan snýst
um kaup og kjör starfsmanna Pri-
mera Air, en flugfélagið hefur ekki
viljað gera kjarasamning við Flug-
freyjufélagið og greiðir því ekki
samkvæmt íslenskum kjarasamn-
ingum. Primera air telur að rík-
issáttasemjari hafi ekki lögsögu í
málinu, meðal annars vegna þess að
félagið starfi ekki á íslenskum mark-
aði. Þá telur Primera air Flugfreyju-
félagið ekki hafa umboð til að semja
fyrir hönd flugfreyja þeirra og
þjóna, enda séu þeir ekki meðlimir í
félaginu. Flugfreyjufélagið hefur
þegar hafið undirbúning að verkfalli
hjá félaginu.
Hunsuðu
sáttafund
Primera Hafnar ís-
lenskri lögsögu.
Mættu ekki hjá
ríkissáttasemjara
„Hver vegur að heiman er vegur heim,“ orti
Snorri Hjartarson. Þessar klassísku ljóðlínur
kunna að hafa hljómað í kolli þessa vel búna hjól-
reiðamanns sem tókst á við vetrarfærðina síð-
degis í gær. Þó snjóþungt hafi verið við Elliða-
árnar gat hann huggað sig við að daginn er farið
að lengja og fyrr en varir verður hægt að fara á
fulla ferð á ný og finna lykt af vorinu. Og jafnvel
að minnka farangurinn á bakinu.
Hjólað heim í hægum takti
Morgunblaðið/Hari
Tekist á við vetrarfærðina