Morgunblaðið - 08.02.2018, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 08.02.2018, Blaðsíða 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2018 www.gilbert.is FRISLAND 1941 TÍMALAUS GÆÐI VIÐ KYNNUM Rafport ehf • Auðbrekka 9-11 • 200 Kópavogur • Sími 580 1900 • rafport@rafport.is Merkivélarnar frá Brother eru frábær lausn inná hvert heimili og fyrirtæki Komdu og kíktu á úrvalið hjá okkur Boðið verður upp á röð viðburða í Bókasafni Kópa- vogs í Hamra- borg 6a á næst- unni þar sem ljósi er varpað á barnabókina fyrr og nú, en við- burðirnir eru hluti af dagskrá fullveldisafmæl- isins. Í dag kl. 16 verður opnuð barnabókasýn- ing þar sem reynt er að kom- ast að því hvaða sögur hafa heill- að börn í gegnum tíðina. Sýning- arstjóri er Guð- finna Mjöll Magnúsdóttir og stendur sýningin til 28. mars. Á laugardag kl. 13 verður boðið upp á ofurhetjusögustund með Sig- rúnu Eldjárn, sem skrifar hefur um ofurhetjuna Sigurfljóð. Þriðjudag- inn 13. febrúar kl. 17 flytur Guð- mundur Oddur Magnússon erindi um myndskreytingar barnabóka. Beinir hann sér- staklega sjónum að myndlýs- ingum Muggs, Nínu Tryggva- dóttur og Tryggva Magn- ússonar. Mið- vikudaginn 14. febrúar kl. 12.15 rifjar Gerður Kristný upp bæk- ur æsku sinnar og ræðir jafn- framt þær áskor- anir sem barna- bókahöfundar standa frammi fyrir við störf sín. Þriðjudaginn 20. febrúar kl. 17 segir Helga Birg- isdóttir frá að- dráttarafli Nonnabókanna, vin- sældum þeirra og nostalgíunni sem þeim fylgir. Þriðjudaginn 27. febr- úar kl. 17 veltir Dagný Kristjáns- dóttir því fyrir sér hvort það megi tala um heimsendi við börn og hvort eitthvað sé leyfilegt í þeim efnum nú sem áður var bannað. Sjónum beint að barnabókinni í 100 ár Sigrún Eldjárn Gerður Kristný Dagný Kristjánsdóttir Guðmundur Oddur Magnússon Það hefur kraumað hjá mér í nokk- urn tíma að gera eitthvað með þetta efni, þótt ljósmyndirnar hafi ekki verið teknar með það fyrir augum að þær yrðu að svona verki. Þær voru teknar sem fjölskyldumyndir og svo eru hinar og þessar skyndimyndir hér með,“ segir Orri Jónsson ljós- myndari um verkin á sýningunni með ljósmyndum hans sem verður opnuð í i8 galleríi við Tryggvagötu í dag, fimmtudag, klukkan 17. Þar gefur að líta tæplega fimmtíu mis- stórar ljósmyndir, nokkrar í lit en flestar handstækkaðar af Orra í svarthvítu – og lunginn sýnir fjöl- skyldu hans á ólíkum tímabilum. „Þetta eru ljósmyndir frá síðustu þremur áratugum eða síðan ég kynntist Þórdísi Valdimarsdóttur, konunni minni. Þær eru af henni og krökkunum okkar, í bland við lands- lags- og borgarmyndir frá þeim stöðum sem við höfum búið á, hér á Íslandi, í Kanada, Bandaríkjunum og Mexíkó,“ segir hann. Myndirnar eru hluti af stærra verki sem er væntanlegt á bók sem hið virta þýska forlag Steidl mun gefa út eftir rúmt ár en Steidl gaf ár- ið 2011 út bók Orra Interiors, með litmyndum sem hann tók á stórar blaðfilmur í eyðibýlum. Þetta hér er gjörólíkt verk þar sem hversdag- urinn í lífi fjölskyldunnar er efnivið- urinn. Orri segir að þessi myndröð sem sjá má flæða um veggi i8 sé eng- in dagbók eða fyrirfram ákveðið verkefni heldur myndir sem hann hafi farið að taka saman fyrir um tveimur árum. „Engin þessara mynda var tekin með það fyrir aug- um að sýna þær,“ segir hann. „Og nú hafa þær farið gegnum margar síur. Fyrst fór ég gegnum kontaktblöðin mín og valdi myndir sem hreyfðu við mér, prentaði þær og fór svo aftur gegnum bunkann og prentaði fleiri – þetta hefur verið langt ferli – og þá var ég kominn með bunka um 200 mynda sem neituðu að láta mig í friði. Hingað til hefur vinnuferlið mest snúist um flæði í bók en svo frestaðist útgáfa Steidl og í stað þess að fresta þessari sýningu hér líka leit ég svo á að þetta væri tækifæri til að koma að verkefninu frá öðru sjónarhorni. Lögmál sýningar er allt annað en bókar. Ég áttaði mig fljótlega á því að myndirnar kölluðu á mismunandi stærðir. Möguleikarnir í upphengi eru nokkurn veginn endalausir en ég leyfi mér að hoppa fram og til baka í tíma og stefna saman myndum sem tengjast bara myndrænt.“ Þetta verkefni er gjörólíkt eyði- býlunum formhreinu sem Orri myndaði á 13 ára tímabili. „Já, þetta er gjörólíkt og vinnu- ferlið allt annað. Við eyðibýlin var ramminn utan um myndefnið mjög skýr og þar af leiðandi bæði sýning- arupphengi og vinnan við bókina mun einfaldari. Þetta hér er allt margræðara og flóknara – og auðvit- að líka persónulegra, sem mér finnst frábært,“ segir Orri. efi@mbl.is Morgunblaðið/Einar Falur Ljósmyndarinn „Engin þessara mynda var tekin með það fyrir augum að sýna þær,“ segir Orri Jónsson, sem er hér í sýningarsal i8 gallerís. Önnur útgáfa verkefnisins mun koma út á bók hjá hinu virta þýska forlagi Steidl. Möguleikarnir endalausir  Hátt í þrír áratugir í lífi og upplifunum fjölskyldunnar er viðfangsefnið í ljósmyndum Orra Jónssonar í i8 galleríi Bandaríski kvikmyndaleikstjórinn Quentin Tarantino hefur verið nokkuð til umfjöllunar í vikunni og það ekki af góðu. Fyrst birtust fréttir af því að hann hefði látið leikkonuna Umu Thurman keyra bíl á ofsahraða við tökur á Kill Bill, í stað þess að nota áhættubílstjóra, með þeim afleiðingum að Thurman keyrði á tré og slasaðist. Tarantino hefur beðist afsökunar á þessu dómgreindarleysi sínu fyrir 15 ár- um. Þá hefur hann réttlætt þá ákvörðun sína að sjá sjálfur um að hrækja framan í leikkonuna og strekkja keðju um háls hennar við tökur á sömu mynd. Í fyrradag hófu ýmsir fjölmiðlar svo að fjalla um ummæli sem Tar- antino lét falla í útvarpsviðtali árið 2003 um leikstjórann Roman Pol- anski en í því sagði hann að það að hafa mök við 13 ára stúlku, líkt og Polanski gerði árið 1977, væri ekki nauðgun. Tarantino var gestur í þætti Howards Sterns og sagði að stúlkan, Samantha Geimer, hefði viljað hafa mök við Polanski og ver- ið til í að skemmta sér með honum. Polanski játaði að hafa haft sam- ræði við ólögráða einstakling og sat í fangelsi í 42 daga í Bandaríkjun- um fyrir glæpinn. Að lokinni af- plánun fór hann úr landi og hefur bandarískum yfirvöldum ekki enn tekist að fá hann framseldan. Tarantino sagði í viðtalinu við Stern að Polanski hefði ekki gerst sekur um nauðgun heldur samræði við ólögráða einstakling og að það væri ekki sami glæpurinn. Taran- tino sagðist þó viðurkenna að Pol- anski hefði brotið lög. Tarantino hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir þessi ummæli sín og þá m.a. á Twitter af ýmsum þekktum einstaklingum og má af þeim nefna Melissu Silverstein, stofnanda Women and Hollywood, baráttusamtaka fyrir kynjajafn- rétti og fjölbreytni í Hollywood. AFP Á hálum ís Tarantino og Thurman á kvikmyndahátíðinni í Cannes árið 2014. Ósmekkleg ummæli Tarantinos og vafasamar aðferðir rifjaðar upp

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.