Morgunblaðið - 08.02.2018, Síða 13
Forbes, og getgátur eru um að það
fari á almennan hlutabréfamarkað
innan fárra ára.
Þegar spurnir bárust af morð-
inu á Versace flykktist fólk að
morðstaðnum til að heiðra minningu
hans, blómvendir og aðrar smágjaf-
ir voru lögð á tröppurnar fyrir
framan húsið og fréttir af morðinu
voru á forsíðum blaða um allan
heim. Hönnun hans var ekki allra
og það var síður en svo á færi al-
mennings að kaupa hana. Engu að
síður snerti andlát hans heims-
byggðina djúpt og núna, rúmum 20
árum síðar, er ekkert lát á áhug-
anum á lífi og andláti Giannis
Versaces sem stundum var kallaður
maðurinn sem hannaði 10. áratug-
inn.
onur
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2018
Þeir sem hafa ánægju
af að skrifa og ganga
kannski með rithöfund
í maganum ættu að
hafa bæði gagn og
gaman af ritlistar-
námskeiðinu Orða-
gulli, sem hefst kl. 17
í kvöld, fimmtudags-
kvöldið 8. febrúar, í
Borgarbókasafninu
Menningarhúsi í
Spönginni og stendur
yfir til kl. 18.30.
Orðagull er hefð-
bundið ritlistar-
námskeið þar sem
jafnframt er notast við óhefð-
bundnar aðferðir við að opna fyrir
flæði og hugmyndaflug. Þetta er
þriðja ritlistarnámskeiðið sem
haldið er í Spönginni
og hafa þau jafnan
vakið mikla lukku.
Námskeiðið er átta
fimmtudaga kl. 17-
18.30 og því lýkur
22. mars. Umsjónar-
maður er Ólöf Sverr-
isdóttir leikkona,
sögukona og ritlistar-
nemi.
Allir velkomnir,
byrjendur sem lengra
komnir, skúffuskáld
jafnt og þau sem eru
komin upp úr skúff-
unni. Hægt er að
skrá sig á námskeiðið með því að
senda tölvupóst á olof.sverrisdott-
ir@reykjavik.is eða í síma 411-
6230.
Ritlistarnámskeið í Borgarbókasafninu Spönginni
Orðagull fyrir skúffuskáld og þau
sem eru komin upp úr skúffunni
Ólöf Sverrisdóttir
Þættirnir um morðið á Gianni Ver-
sace, The Assassination of Gianni
Versace: American Crime Story,
eru byggðir á bók bandaríska
blaðamannsins og rithöfundarins
Maureen Orth, Vulgar Favors, sem
kom fyrst út árið 1999. Í þátt-
unum, sem Sjónvarp Símans sýn-
ir, fer Edgar Ramírez með hlutverk
Giannis Versaces, Penélope Cruz
leikur Donatellu systur hans og
söngvarinn Ricky Martin leikur
Antonio D’Amico, sem var sam-
býlismaður Versaces. Darren Criss
leikur morðingjann Andrew Cun-
anan. Reyndar eru þættirnir að
mestu leyti um Cunanan og hvað
varð til þess að hann framdi þessi
voðaverk.
Þegar fjölskylda Versaces fékk
veður af því að þættirnir væru í
bígerð sendi hún frá sér yfirlýs-
ingu um að ekkert samráð hefði
verið haft við neitt þeirra við gerð
þáttanna og þau hefðu ekki lagt
blessun sína yfir bókina sem þeir
byggjast á né gerð þeirra. Því væri
ekki hægt að skilgreina þættina á
annan hátt en sem hreinasta
skáldskap og varast skyldi að taka
innihald þeirra sem sannleika.
Banamaður Versaces, Andrew
Cunanan, hafði líf a.m.k. fjögurra
annarra á samviskunni og var á
lista FBI yfir tíu mest eftirlýstu
glæpamennina þegar hann myrti
Versace. Cunanan hafði frá barns-
aldri lent í vandræðum vegna
þess að hann átti erfitt með að
greina á milli lygi og sannleika,
hann var sagður raunveruleika-
firrtur og sagði gjarnan lygasögur
af kynnum sínum af frægu fólki.
Hann var samkynhneigður eins og
Versace, hann var heltekinn af
honum og fullyrti að þeir hefðu
átt í nánum kynnum. Reyndar
stundaði Cunanan vændi um hríð
og fram kom eftir dauða Versaces
að hann hefði keypt blíðu karl-
manna, en ekkert bendir til þess
að Versace hafi keypt vændi af
Cunanan.
Átta dögum eftir morðið á Ver-
sace fannst Cunanan látinn. Hann
skaut sig í höfuðið með sömu
byssu og hann banaði Versace og
fleiri fórnarlömbum með.
Fjölskylda Versaces segir þætt-
ina vera hreinasta skáldskap
VAR MYRTUR AF RAUNVERULEIKAFIRRTUM FJÖLDAMORÐINGJA
AFP
Leikarar Frá vinstri: Darren Criss, Penelope Cruz, Edgar Ramirez og Ricky Martin.
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Kynntu þér greinaflokk Ara Skúlasonar á Umræðu Landsbankans um
áhrif hækkandi meðalaldurs á samfélagið. Landsbankinn.is/lengra-lif.
Landsbankinn og Landssamband eldri borgara efna til opins
fundarumsamfélagsbreytingar vegnahækkandimeðalaldurs
þjóðarinnar. Fundurinn verður haldinnmánudaginn12. febrúar
kl. 16–17í sal Félags eldri borgara í Reykjavík við Stangarhyl 4.
HLUTFALL ÍSLENDINGA ELDRI EN 65 ÁRA
Dagskrá fundar
Eldra fólk er unglingar nútímans
—samfélagsbreytingar vegna
hækkandi meðalaldurs
Ari Skúlason, hagfræðingur
í Hagfræðideild Landsbankans.
Af lágum launum á lítil eftirlaun
—reynslusaga
Sigríður J. Guðmundsdóttir, formaður
Félags eldri borgara Selfossi.
Opinn fundur
um langlífi og
samfélags-
breytingar
ÁRIÐ
2017
ÁRIÐ
2036
ÁRIÐ
2049