Morgunblaðið - 08.02.2018, Side 8

Morgunblaðið - 08.02.2018, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2018 Margt er rætt við Austurvöllundir liðnum störf þingsins sem mætti að ósekju liggja órætt. Í gær gerðist það þó að þingmaðurinn Óli Björn Kárason flutti ræðu sem skipti máli og verður þingheimi vonandi brýning til betri verka.    Óli Björn vísaði ífrétt á vef Við- skiptaráðs þar sem fram kom að frá árinu 2007 hefðu verið gerðar 267 breytingar á skattkerfinu hér á landi, eða 24 á ári. 200 þessara breytinga hefðu verið hækkanir, eða 75%.    Vinstristjórnin frá 2009 til 2013var stórtækust í þessu, en ber þó ekki ein ábyrgðina, því að við síð- ustu fjárlagagerð voru samþykktar 19 skattahækkanir en aðeins 3 lækk- anir, sem þýðir að hlutfallið er aftur orðið svipað og það var í tíð Jóhönnu og Steingríms. Óli Björn benti á að hlutur hins opinbera af þjóðarkökunni væri að stækka, sem væri áhyggjuefni. Hann hefði tekið þátt í því að greiða at- kvæði með skattkerfisbreytingunum um síðustu áramót, sem hefði verið erfitt, til dæmis að hækka fjár- magnstekjuskatt.    Þetta hefði hann gert „í því traustiað við værum að fara inn í tíma- bil þar sem við myndum ná fram lækkun á neðra þrepi tekjuskattsins, hugsanlega umbylta tekjuskatts- kerfinu, og ég tala nú ekki um að lækka hressilega tryggingagjaldið. Það eru loforð sem voru gefin og það eru loforð sem ég tek hátíðlega og voru forsenda þess að ég tók þátt í að greiða hér atkvæði með hækkun skatta fyrir áramót“.    Þurfa skattgreiðendur nokkuð aðóttast að þessi loforð verði svik- in? Óli Björn Kárason Hvað líður skattalækkunum? STAKSTEINAR Veður víða um heim 7.2., kl. 18.00 Reykjavík -1 snjóél Bolungarvík -1 skýjað Akureyri -1 léttskýjað Nuuk -13 snjókoma Þórshöfn 6 rigning Ósló -3 heiðskírt Kaupmannahöfn -2 heiðskírt Stokkhólmur -3 alskýjað Helsinki -10 snjókoma Lúxemborg -1 þoka Brussel 0 heiðskírt Dublin 3 rigning Glasgow 2 alskýjað London 4 léttskýjað París -1 þoka Amsterdam 2 heiðskírt Hamborg -1 heiðskírt Berlín 0 heiðskírt Vín 0 þoka Moskva -8 alskýjað Algarve 12 heiðskírt Madríd 4 skýjað Barcelona 10 léttskýjað Mallorca 9 skýjað Róm 9 rigning Aþena 15 skýjað Winnipeg -20 heiðskírt Montreal -12 snjókoma New York -1 þoka Chicago -8 snjókoma Orlando 24 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 8. febrúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 9:46 17:39 ÍSAFJÖRÐUR 10:04 17:31 SIGLUFJÖRÐUR 9:48 17:13 DJÚPIVOGUR 9:19 17:05 Launamunur kynja hjá Kópa- vogsbæ er enginn þegar bornir eru saman einstakl- ingar í sambæri- legum störfum, á sama aldri, með sömu starfs- reynslu og færni. Þetta kemur fram í nýrri launarannsókn sem Rann- sóknamiðstöð Háskólans á Akureyri (RHA) vann fyrir Kópavogsbæ og kynnt var í gær á fundi jafnréttis- og mannréttindaráðs. Rannsóknin var unnin upp úr launabókhaldi Kópavogsbæjar á mánaðartímabili, unnið var með launagögn allra starfsmanna í yfir 40% starfshlutfalli, alls 1.891 starfs- manns sem eru 80% allra starfs- manna Kópavogsbæjar. Niðurstaðan er sú að þegar leið- rétt hefur verið fyrir áhrifaþáttum á laun; aldri, starfsaldri, menntun, sviði og vinnutíma, er ekki mark- tækur munur á launum kynja. Síðast þegar sambærileg rannsókn var gerð var kynbundinn launamunur 3,25% körlum í vil. Enginn munur á launum  Kynjamunur skoð- aður í Kópavogi Blöndulína hefur verið felld niður sem varnarlína vegna dýrasjúkdóma með ákvörðun atvinnuvega- og ný- sköpunarráðuneytisins. Varnarlínan þykir ekki þjóna tilætluðum tilgangi í núverandi mynd en hún hefur ekki verið fjárheld frá því Blönduvirkjun var reist og ekki fæst fjármagn til að halda henni fjárheldri, segir í til- kynningu frá Matvælastofnun. Við þessa breytingu sameinast Húnahólf og Skagahólf í eitt varnar- hólf sem kallast Húna- og Skagahólf og verður varnarhólf nr. 9. Hólfið mun afmarkast af Vatnsneslínu, Miðfjarðarlínu og Tvídægrulínu að vestan, Kjalarlínu að sunnan og Héraðsvatnalínu að austan. Síðasta riðutilfelli kom upp í Skagahólfi árið 2016 en varnarhólf telst sýkt í 20 ár frá síðasta stað- festa tilfelli. Því mun nýja hólfið teljast sýkt svæði til 31. desember 2036, að því gefnu að engin ný til- felli komi upp. Helstu áhrif samein- ingar hólfanna á bændur eru að gildistími hafta innan fyrrverandi Húnahólfs lengist um að minnsta kosti níu ár en síðasta tilfelli riðu þar var 2007. Aðrar breytingar á varnarhólfum eru að Eyjafjarðarlína hefur verið færð úr stað og liggur nú eftir Eyjafjarðará sunnan að Mjaðmá að Skjónafelli og að Miklafelli í Hofs- jökli. Varnarlínan þjónaði ekki tilgangi  Blöndulína felld niður  Húnahólf og Skagahólf sameinuð í eitt varnarhólf Morgunblaðið/Eggert Sauðfé Ekki er heimilt að flytja jórturdýr til lífs yfir varnarlínu. Skál fyrır hollustu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.