Morgunblaðið - 08.02.2018, Qupperneq 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2018
Leikritið Skugga-Sveinn eft-ir þjóðskáldið MatthíasJochumsson, sem skóla-piltar Latínuskólans frum-
fluttu í febrúarmánuði fyrir 156 ár-
um, mun vera eitt mest leikna leikrit
íslenskrar leiklistarsögu þótt það sé
núorðið ekki oft sett upp. Þessi al-
þýðlegi gamanleikur með söngvum
telst til sígildra íslenskra leikbók-
mennta og flestallir þekkja persónur
á borð við Skugga-Svein, Ketil skræk
og Grasa-Guddu hvort sem þeir hafa
séð þær ljóslifandi á leiksviðinu eða
ekki.
Karl Ágúst Úlfsson leitar innblást-
urs í Skugga-Svein í fjölskyldusöng-
leiknum Í skugga Sveins sem Gafl-
araleikhúsið frumsýndi um liðna
helgi. Í stórum dráttum fylgir Karl
Ágúst söguþræði Matthíasar þar
sem lýst er handtöku útlaga sem haf-
ast við í óbyggðum samhliða því sem
sögð er ástarsaga bóndadótturinnar
Ástu í Dal og Haraldar, ungs pilts
sem er í slagtogi með útilegumönn-
unum en reynist óvænt vera af góð-
um ættum.
Karl Ágúst þekkir söguna eins og
lófann á sér enda hefur hann leikið
ýmis hlutverk í verki Matthíasar á
löngum leikaraferli sínum. Hann ger-
ir efniviðinn algjörlega að sínum með
ýmsum útúrdúrum, breytingu á
tengslum lykilpersóna og stór-
skemmtilegum vísunum jafnt í nú-
tímann og hefðina. Við kynnumst
persónum sem eru vegan, farið er í
látbragðsleiki í anda Útsvars, elsk-
endur á borð við Rómeó og Júlíu ber
á góma auk þess sem vitnað er í per-
sónur úr Spaugstofunni. Hér fá því
allir eitthvað við sitt hæfi. Ungir
áhorfendur geta hæglega fylgt
grunnsögunni og njóta nútímalegra
vísana sem og prumpubrandaranna
sem reykvélarnar bjóða upp á, með-
an hinir eldri skilja betur dásam-
legan spuna höfundar með menning-
ararfinn.
Skugga-Sveinn býr yfir fjölskrúð-
ugu persónugalleríi, en sumar af lit-
ríkustu persónum verksins skipta
ekki sköpum fyrir framvinduna. Því
hefði Karl Ágúst hæglega getað
sleppt Galdra-Héðni, Gvendi smala
og Jóni sterka án þess að kæmi að
sök. Hann fer hins vegar þá leið að
halda öllum persónum inni og teflir
þar djarft í ljósi þess að aðeins þrír
leikarar fara með öll hlutverk sýning-
arinnar, en í öruggum höndum
Ágústu Skúladóttur leikstjóra
heppnast þessi nálgun fullkomlega.
Í meðförum leikhópsins fær frá-
sagnarlistin að njóta sín til fulls og
slegið er á létta strengi þegar fá-
mennið veldur einstaka töfum í ann-
ars snörpu flæði. Leikararnir Krist-
jana Skúladóttir og Karl Ágúst
Úlfsson leiða áhorfendur í gegnum
sýninguna í hlutverkum tveggja
sögumanna, sem bregða sér síðan í
hátt á annan tug hlutverka auk þess
sem leikararnir sjálfir blanda sér inn
í framvinduna. Kristjana og Karl
Ágúst fara létt með að vinda sér milli
ólíkra hlutverka og hafa þar ekkert
annað en framúrskarandi leiktækni
að vopni í bland við meistaralegar
grímur og leikgervi úr smiðju Völu
Halldórsdóttur. Notast var við hluta
fyrir heild, þar sem skegg táknaði
Sigurð stórbónda í Dal, blómakrans
Ástu dóttur hans, heilmikið tágarhár
Grasa-Guddu og tignarleg hárkolla
og vasapeli Lárenzíus sýslumann.
Rýnir sá Kristjönu síðast á leik-
sviði fyrir um fimmtán árum í upp-
færslu Vesturports á Rómeó og Júl-
íu. Hún býr yfir miklum sviðssjarma,
hefur góða rödd og nákvæmni í
hreyfingum sem nýtist jafnt í hlut-
verki Ástu, sem er yndisleikinn upp-
málaður, snobbaða sýslumannsins
Lárenzíusar og einfeldningsins Ket-
ils skræks. Óskandi væri að Krist-
jana sæist oftar á leiksviði. Það sama
gildir raunar um Karl Ágúst, sem er
einn besti gamanleikari sinnar kyn-
slóðar. Hann var dásamlegur Har-
aldur, sem enn átti svo margt ólært
um samskipti kynjanna og ástina,
sprenghlægilegur Jón sterki og fór
hreinlega á kostum í aðdraganda að-
fararinnar að Skugga-Sveini þar sem
hann brá sér í óteljandi hlutverk í
mýflugumynd með aðstoð tveggja
ærhorna og sýndi ótrúlega fimi sem
hinn fótfúni Methúsalem við mikla
kátínu leikhúsgesta.
Eyvindur Karlsson er höfundur
tónlistar og flytur hana í gervi
Skugga-Sveins. Stærstan hluta sýn-
ingar er hann staðsettur í helli sem
skapaður er með ljósum að tjalda-
baki. Hann var ábúðarmikill með at-
geirinn/gítarinn á lofti og ógnvekj-
andi grímu fyrir andlitinu, en varð
skyndilega mannlegur í dýflissu
sýslumanns. Útsetningar hans á tón-
listinni voru flottar og smart að láta
gítarinn duna í anda spaghettí-
vestranna sem byggði upp tilheyr-
andi spennu. Söngtextar Karls
Ágústs hljómuðu vel í eyrum og
bættu miklu við bæði persónusköpun
og framvindu.
Einfaldleikinn ræður ríkjum í stíl-
hreinu útliti sýningarinnar. Í leik-
mynd sinni vinnur Guðrún Öyahals
annars vegar með kolla í mismunandi
stærðum sem klæddir eru gervigrasi
í ólíkum jarðarlitum svo minnir á þúf-
ur í landslagi og hins vegar leiktjöld
sem Skúli Rúnar Hilmarsson málar á
með glæsilegri lýsingu sinni þar sem
kröftugir litir fá að njóta sín til fulls.
Svartir búningar Guðrúnar þjóna vel
sem grunnur fyrir allar persónur
verksins. Með aðeins örfáum undan-
tekningum samanstanda leikmunir
af beinum í mismunandi stærðum
sem þjóna allt frá prjónum og penna
til riffils og ýmissa matvæla auk þess
sem beinin voru nýtt með flottum
hætti til tónsköpunar.
Uppfærsla Gaflaraleikhússins á Í
skugga Sveins býður upp á fyrirtaks
skemmtun fyrir unga jafnt sem
aldna. Hér ræður leikgleðin ríkjum
undir hugmyndaríkri leikstjórn og
sjónræn útfærsla öll gleður augað.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gleður augað „Uppfærsla Gaflaraleikhússins á Í skugga Sveins býður upp á fyrirtaks skemmtun fyrir unga jafnt
sem aldna. Hér ræður leikgleðin ríkjum undir hugmyndaríkri leikstjórn og sjónræn útfærsla öll gleður augað.“
Gaflaraleikhúsið
Í skugga Sveins bbbbm
Eftir Karl Ágúst Úlfsson sem einnig
semur söngtexta. Leikstjórn: Ágústa
Skúladóttir. Tónlist: Eyvindur Karlsson.
Leikmynd og búningar: Guðrún Öyahals.
Grímur, leikgervi og förðun: Vala Hall-
dórsdóttir. Lýsing: Skúli Rúnar Hilmars-
son. Aðstoð við grímugerð: Katrín Þor-
valdsdóttir. Hljóðblöndun: Guðjón
Guðmundsson. Leikarar: Karl Ágúst
Úlfsson, Kristjana Skúladóttir og
Eyvindur Karlsson. Frumsýning í Gafl-
araleikhúsinu 4. febrúar 2018.
SILJA BJÖRK
HULDUDÓTTIR
LEIKLIST
Margt býr í þokunni
Hugarflug, árleg ráðstefna Listahá-
skóla Íslands um rannsóknir á
fræðasviði lista, fer fram í húsnæði
skólans á Laugarnesvegi 91 á morg-
un. Hugarflug er að þessu sinni
haldin í sjöunda sinn og taka yfir 50
listamenn, hönnuðir og fræðimenn
þátt í ráðstefnunni með ýmsum
hætti. Meðal þess sem boðið verður
upp á í ár er málstofa um gjörninga
og pallborðsumræður um innsæi í
leikstjórn sem fram fer í stofu 55
milli kl. 15.15 og 16.45.
Erindi flytja Jóní Jónsdóttir,
Steinunn Ketilsdóttir og Sveinbjörg
Þórhallsdóttir. Í pallborðsumræð-
unum taka þátt leikstjórarnir Una
Þorleifsdóttir, Bergur Þór Ingólfs-
son, Charlotte Bøving, Gréta Kristín
Ómarsdóttir og Vignir Rafn Val-
þórsson. Meðal þeirra spurninga
sem velt er upp er hvað innsæi sé,
hvernig það sé notað og hver sé hlut-
ur hins tilfinningalega andspænis
hinu rökræna í skapandi ferli.
Umræður um innsæi í leikstjórn
Charlotte
Bøving
Bergur Þór
Ingólfsson
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Fös 16/3 kl. 20:00 Frums. Fös 6/4 kl. 20:00 6. s Fös 20/4 kl. 20:00 11. s
Sun 18/3 kl. 20:00 2. sýn Lau 7/4 kl. 20:00 aukas. Lau 21/4 kl. 20:00 aukas.
Mið 21/3 kl. 20:00 aukas. Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Sun 22/4 kl. 20:00 12. s
Fim 22/3 kl. 20:00 aukas. Mið 11/4 kl. 20:00 aukas. Fim 26/4 kl. 20:00 13. s
Fös 23/3 kl. 20:00 3. s Fim 12/4 kl. 20:00 aukas. Lau 28/4 kl. 20:00 25. s
Lau 24/3 kl. 20:00 4. s Fös 13/4 kl. 20:00 aukas. Mið 2/5 kl. 20:00 26. s
Sun 25/3 kl. 20:00 5. s Lau 14/4 kl. 20:00 8. s Fim 3/5 kl. 20:00 27. s
Þri 27/3 kl. 20:00 aukas. Sun 15/4 kl. 20:00 9. s Fös 4/5 kl. 20:00 28. s
Mið 4/4 kl. 20:00 aukas. Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Lau 5/5 kl. 20:00 29. s
Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Fim 19/4 kl. 20:00 10. s Sun 6/5 kl. 20:00 30. s
Besta partý sem þú munt nokkurn tímann upplifa.
Elly (Stóra sviðið)
Fös 9/2 kl. 20:00 66. s Lau 24/2 kl. 20:00 aukas. Sun 4/3 kl. 20:00 aukas.
Lau 10/2 kl. 20:00 67. s Sun 25/2 kl. 20:00 aukas. Fös 9/3 kl. 20:00 aukas.
Lau 17/2 kl. 20:00 68. s Fim 1/3 kl. 20:00 aukas. Lau 10/3 kl. 20:00 aukas.
Sun 18/2 kl. 20:00 69. s Fös 2/3 kl. 20:00 aukas. Sun 11/3 kl. 20:00 aukas.
Fös 23/2 kl. 20:00 aukas. Lau 3/3 kl. 20:00 aukas. Lau 17/3 kl. 20:00 aukas.
Sýningar haustið 2018 komnar í sölu.
Himnaríki og helvíti (Stóra sviðið)
Fim 8/2 kl. 20:00 13. s Fim 15/2 kl. 20:00 15. s Fim 22/2 kl. 20:00 Lokas.
Sun 11/2 kl. 20:00 14. s Fös 16/2 kl. 20:00 16. s
Allra síðustu sýningar!
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Sun 11/2 kl. 13:00 Lokas.
Allra síðasta sýning sunnudaginn 11. febrúar.
Skúmaskot (Litla sviðið)
Lau 10/2 kl. 13:00 aukas. Sun 11/2 kl. 13:00 aukas.
Búðu þig undir dularfullt ferðalag!
Brot úr hjónabandi (Litla sviðið)
Fös 9/2 kl. 20:00 51. s Mið 21/2 kl. 20:00 54. s Lau 3/3 kl. 20:00 Lokas.
Sun 11/2 kl. 20:00 52. s Lau 24/2 kl. 20:00 55. s
Lau 17/2 kl. 20:00 53. s Fös 2/3 kl. 20:00 56. s
Síðustu sýningar komnar í sölu.
Lóaboratoríum (Litla sviðið)
Lau 10/2 kl. 20:00 7. s Sun 18/2 kl. 20:00 9. s
Fim 15/2 kl. 20:00 8. s Fim 22/2 kl. 20:00 Lokas.
Í samvinnu við Sokkabandið.
Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið)
Lau 24/3 kl. 20:00 Frums. Lau 7/4 kl. 20:00 6. s Lau 14/4 kl. 20:00 12. s
Sun 25/3 kl. 20:00 2. s Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Sun 15/4 kl. 20:00 13. s
Þri 27/3 kl. 20:00 3. s Þri 10/4 kl. 20:00 8 .s Mið 18/4 kl. 20:00 14. s
Mið 4/4 kl. 20:00 4. s Mið 11/4 kl. 20:00 9. s Fim 19/4 kl. 20:00 15. s
Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Fim 12/4 kl. 20:00 10. s Fös 20/4 kl. 20:00 16. s
Fös 6/4 kl. 20:00 5. s Fös 13/4 kl. 20:00 11. s
Það er alveg öruggt að þetta fer úrskeiðis!
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Mið 21/2 kl. 19:30 Fors Lau 3/3 kl. 19:30 5.sýn Lau 24/3 kl. 19:30 11.sýn
Fim 22/2 kl. 19:30 Fors Fim 8/3 kl. 19:30 Auka Sun 25/3 kl. 19:30 12.sýn
Fös 23/2 kl. 19:30 Fors Fös 9/3 kl. 19:30 6.sýn Lau 7/4 kl. 19:30 13.sýn
Lau 24/2 kl. 19:30 Frums Lau 10/3 kl. 19:30 7.sýn Sun 8/4 kl. 19:30 14.sýn
Sun 25/2 kl. 19:30 2.sýn Lau 17/3 kl. 19:30 8.sýn Fös 13/4 kl. 19:30 15.sýn
Fim 1/3 kl. 19:30 3.sýn Sun 18/3 kl. 19:30 9.sýn Lau 14/4 kl. 19:30 16.sýn
Fös 2/3 kl. 19:30 4.sýn Fös 23/3 kl. 19:30 10.sýn
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Risaeðlurnar (Stóra sviðið)
Lau 10/2 kl. 19:30 20.sýn Lau 17/2 kl. 19:30 21.sýn Fös 16/3 kl. 19:30 22.sýn
Grátbroslegt og ágengt nýtt verk um litla þjóð í stórum heimi .
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Sun 11/2 kl. 13:00 Sun 4/3 kl. 13:00
Sun 18/2 kl. 13:00 Sun 4/3 kl. 16:00
Fjölskyldusöngleikur eftir Góa!
Hafið (Stóra sviðið)
Fös 9/2 kl. 19:30 LOKA
Kraftmikið átakaverk, beint úr íslenskum veruleika
Faðirinn (Kassinn)
Sun 11/2 kl. 19:30 22.sýn Mið 28/2 kl. 19:30 24.sýn Fös 16/3 kl. 19:30 27.sýn
Mið 14/2 kl. 19:30 Auka Mið 7/3 kl. 19:30 25.sýn
Sun 18/2 kl. 19:30 23.sýn Fim 15/3 kl. 19:30 26.sýn
Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk.
Efi (Kassinn)
Fim 8/2 kl. 19:30 Auka Lau 17/2 kl. 19:30 12.sýn Sun 4/3 kl. 19:30 15.sýn
Fös 9/2 kl. 19:30 Auka Fim 22/2 kl. 19:30 Auka Fös 9/3 kl. 19:30 16.sýn
Lau 10/2 kl. 19:30 10.sýn Fös 23/2 kl. 19:30 13.sýn Lau 10/3 kl. 19:30 17.sýn
Fim 15/2 kl. 19:30 Auka Lau 24/2 kl. 19:30 Auka Lau 17/3 kl. 19:30 18.sýn
Fös 16/2 kl. 19:30 11.sýn Lau 3/3 kl. 19:30 14.sýn Sun 18/3 kl. 19:30 19.sýn
Margverðlaunað og spennandi verk !
Ég get (Kúlan)
Sun 11/2 kl. 13:00 9.sýn Sun 11/2 kl. 15:00 10.sýn Sun 18/2 kl. 13:00 11.sýn
Ljóðræn leiksýning fyrir yngstu börnin, um það sem er mitt og þitt og okkar
Pétur og úlfurinn (Brúðuloftið)
Lau 10/2 kl. 13:00 Lau 17/2 kl. 15:00 Lau 3/3 kl. 13:00
Lau 10/2 kl. 15:00 Lau 24/2 kl. 13:00 Lau 3/3 kl. 15:00
Lau 17/2 kl. 13:00 Lau 24/2 kl. 15:00
Brúðusýning
Mið-Ísland - Á tæpasta vaði! (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 8/2 kl. 20:00 Sun 18/2 kl. 21:00
Konudagur
Lau 3/3 kl. 20:00
Fös 9/2 kl. 20:00 Fim 22/2 kl. 20:00 Lau 3/3 kl. 22:30
Fös 9/2 kl. 22:30 Fös 23/2 kl. 20:00 Sun 4/3 kl. 20:00
Lau 10/2 kl. 20:00 Fös 23/2 kl. 22:30 Fim 8/3 kl. 20:00
Lau 10/2 kl. 22:30 Lau 24/2 kl. 20:00 Fös 9/3 kl. 20:00
Fim 15/2 kl. 20:00 Lau 24/2 kl. 22:30 Fös 9/3 kl. 22:30
Fös 16/2 kl. 20:00 Sun 25/2 kl. 20:00 Lau 10/3 kl. 20:00
Fös 16/2 kl. 22:30 Fim 1/3 kl. 20:00 Lau 10/3 kl. 22:30
Lau 17/2 kl. 20:00 Fös 2/3 kl. 20:00
Lau 17/2 kl. 22:30 Fös 2/3 kl. 22:30
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200