Morgunblaðið - 08.02.2018, Síða 6

Morgunblaðið - 08.02.2018, Síða 6
Í könnun, sem skóla- og frí- stundasvið Reykjavíkur lagði ný- verið fyrir foreldra allra grunn- skólabarna í borginni, er spurt um hvernig barnið skilgreinir kyn sitt. Svarmöguleikarnir eru: a) stúlka, b) drengur og c) á ann- an hátt. Þetta er í fyrsta skiptið sem þessi háttur er hafður á, en í síðustu foreldrakönnun, sem send var út fyrir tveimur árum, var þriðji valmöguleikinn, auk stúlku og drengs, „vil ekki svara“. Kolbrún Hrund Sigurgeirs- dóttir er verkefnisstjóri jafn- réttisskóla Reykjavíkur og segir að þetta nýja fyrirkomulag sé í samræmi við mannréttinda- stefnu borgarinnar. „Í Reykja- vík, eins og annars staðar, eru börn sem hvorki skilgreina sig sem dreng eða stúlku. Þau þurfa að geta skilgreint sig eins og önnur börn og við viljum ekki að þau upplifi að verið sé að úti- loka þau.“ Kolbrún segir að verið sé að endurskoða öll eyðublöð og skráningarform sem gefin séu út á vegum borgarinnar þannig að auk karl- og kvenkyns geti fólk skilgreint kyn sitt á annan hátt. Foreldrum leikskólabarna hef- ur einnig gefist kostur á að skil- greina kyn barnsins á sama hátt og í grunnskólakönnuninni. Kol- brún segir að nokkuð hafi verið um það að foreldrar hafi haft samband við borgina vegna þessa fyrirkomulags. „Þetta kemur ein- hverjum spánskt fyrir sjónir. En mér heyrist það vera almenn skoðun fólks að allir fái að vera eins og þeir eru,“ segir Kolbrún. annalilja@mbl.is „Stúlka, drengur eða á annan hátt“  Fleiri möguleikar á að skilgreina sig 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2018 greiðslu og tóku þátt í góðgerð- arbingói. Allir fá þeir 1.000 kr. rukkun senda í heimabanka, er vitaskuld í sjálfsvald sett hvort þeir greiða en reiknað er með góð- um viðtökum. Vilji fólk styðja við bakið á nem- endum er hægt að leggja inn á reikning Hugins: 162-5-261521. Kennitalan er 470997-2229. Ísak nefndi að þegar 700 þúsund kr. hafa safnast ætli stúlka í skólanum að láta krúnuraka sig og eftir að loforð verða komin upp fyrir 800 þús. kr. muni Jón Már Héðinsson skólameistari mæta í kattarbúningi í vinnuna! gengur hópur nemenda yfir Vaðla- heiði með sjúkrabörur. Mikill snjór er á heiðinni svo varla verður þessi 25 km ganga auðveld, en þungi fullorðinnar manneskju verður á börunum. „Þeir fengu björg- unarsveitina Súlur í lið með sér svo allt fari örugglega vel,“ sagði Ísak Grant, varaformaður skóla- félagsins Hugins, í gær. Hægt verður að fylgjast með ferðinni í beinni útsendingu á Facebook. Ísak segir mikla stemningu í skólanum fyrir góðgerðarvikunni. Nemendur fengu að kasta þeyttum rjóma á pappadiskum framan í stjórnarmenn gegn 500 kr. Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Árleg góðgerðarvika stendur yfir í Menntaskólanum á Akureyri og er markmið nemenda að safna einni milljón króna til styrktar Aflinu, samtökum gegn kynferðis- og heimilisofbeldi á Akureyri. Fyrsta góðgerðarvika MA-inga var á síðasta ári þegar nemendur tóku upp á því að ýta fólksbifreið Eyjafjarðarhringinn. Í ár grípa þeir til ýmissa ráða; tveir nem- endur vörðu t.d. gærdeginum í uppblásinni sundlaug í Kvosinni, samkomusal skólans, og á morgun Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Góðgerðarbleyta Gísli Laufeyjarson Höskuldsson, til vinstri, og Gunnar Freyr Þórarinsson – sem heldur á Sigmari sundlaugarverði – vörðu námstímanum í gær í uppblásinni sundlaug. Fyrir aftan eru nokkrir bekkjarfélagar Gísla. Ætla að safna milljón  Góðgerðarvika í MA  Nemendur styrkja Aflið á Akureyri BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Innflutningur grænmetis jókst verulega á síðasta ári og flutningur á ýmsum tegundum berja yfir hafið margfaldaðist. Framboð af þessum vörum í verslun Costco í Garðabæ er talið aðalskýringin á breytingum á markaðnum. Formaður garðyrkju- bænda segir að innflutningurinn komi illa við innlenda framleiðend- ur. Innflutningur á tómötum jókst um 23% á síðasta ári. Virðist hann eiga mestan þátt í því að innlenda fram- leiðslan dróst saman. Samdrátturinn er þó minni en aukning í innflutningi. Meira en helmingur þeirra tómata, sem borðaðir eru hér á landi, er nú fluttur inn. Innlend framleiðsla á gúrkum hef- ur annað markaðnum að mestu und- anfarin ár. Á síðasta ári hófst inn- flutningur að einhverju marki og svarar nú til um 6% af markaðnum. Það eru greinileg Costco-áhrif, að sögn viðmælenda, því innfluttar gúrkur hafa lítið sést í öðrum versl- unum. Innflutningur á jarðarberjum tvö- faldaðist og mikil aukning varð jafn- framt í ýmsum öðrum berjategund- um. Enn eru Costco-áhrifin greinileg. Kristín Linda Sveinsdóttir, mark- aðsstjóri Sölufélags garðyrkju- manna, staðfestir að tilkoma versl- unar Costco sé helsta skýringin á auknum innflutningi á grænmeti og berjum. Ekki hafi orðið neinar þær breytingar á framleiðslu og sölu á milli ára sem kallað hafi á þennan aukna innflutning. Nefnir hún að innlend framleiðsla á gúrkum hafi annað eftirspurninni á markaðnum allt árið. Innflutningur á gúrkum sé eingöngu vegna innflutnings til Costco. Eins og alkunna er var mikið að gera í verslun Costco í upphafi. Fólk keypti mikið inn. Það hafði þau áhrif að þær verslanir sem leggja meiri áherslu á íslenskt grænmeti seldu minna. „Við fundum fyrir þessum áhrifum fyrrihluta sumars en úr þeim dró seinnihluta sumars og í vet- ur. Íslensku verslanirnar tóku vel við sér, fóru að stilla íslensku grænmeti betur upp og auglýsa þá sérstöðu sérstaklega,“ segir Kristín Linda. 85 millj. minna fyrir tómata Aukin samkeppni jók þrýsting á verð innlendu framleiðslunnar. Sölu- verðmæti grænmetisbænda minnk- aði, sérstaklega þar sem verulega dró úr sölu. Á það ekki síst við um tómata og jarðarber. Sölutekjur tómataframleiðenda minnkuðu þannig um 85 milljónir kr. á milli ára. „Hömlulaus innflutningur hefur áhrif á afkomu bænda. Menn selja minna og verð á innlendu fram- leiðslunni lækkar,“ segir Gunnar Þorgeirsson, formaður Sambands garðyrkjubænda. Hann segir að innfluttu vörurnar hafi forgang í verslunum. Kaupmaðurinn sé búinn að kaupa það innflutta en bændur sitji uppi með afföllin af sinni fram- leiðslu. Því sé innlendu framleiðsl- unni gjarnan haldið til baka í versl- unum, þegar mikill innflutningur er. Munur á kolefnisspori „Þegar staðan er sú að við flytjum yfir hafið fullt af vörum og hendum þeim íslensku fer maður að velta fyrir sér kolefnisspori innflutnings í samanburði við innlenda fram- leiðslu. Við Íslendingar viljum gjarnan jafna okkar kolefnisspor en hvernig ætlum við að gera það með óheftum innflutningi?“ spyr Gunn- ar. Sem dæmi um áhrif aukins inn- flutnings nefnir Gunnar berjarækt- ina sem hér hefur verið þróuð, meðal annars með lýsingu seinnihluta vetr- ar til að lengja tímann sem jarðarber eru á markaðnum. „Verðið hefur lækkað og ég veit ekki hvort bændur leggja í það að lýsa í vetur. Hugs- anlegt er að þeir noti bara sólarljósið í sumar.“ Costco-áhrif á grænmetismarkaði  Stóraukinn innflutningur á grænmeti og berjum á síðasta ári  Aukinn innflutningur á tómötum og jarðarberjum leiddi til samdráttar í innlendri framleiðslu og nokkurrar tekjulækkunar hjá bændum Innflutningur grænmetis og berja 2016-17 Nokkrar tegundir, magn innflutnings í tonnum og aukning í % 2016 2017 1.500 1.250 1.000 750 500 250 0 Tonn Paprika Tómatar Sveppir Gúrkur Vínber Jarðar- ber Trönuber, bláber Plómur Hindber, brómber Kirsuber 6% 23% 22% 1.262% 3% 94% 33% 29% 432% 500% Heimild: Hagstofan, bráðabirgða- tölur, og Bændasamtök Íslands Innlend framleiðsla 2016-2017 Innlend framleiðsla Innflutningur Heimild: MatvælastofnunInnlend fram- leiðsla, tonn Breyting 2016-17 Gúrkur 2016 2017 tonn % 1.867 1.832 -34 -2% Tómatar 2016 2017 tonn % 1.435 1.292 -144 -10% Paprika 2016 2017 tonn % 191 190 -1 0% 6% 53% 89% 2024 SLT L IÐLÉ T T INGUR Verð kr 2.790.000 Verð með vsk. 3.459.600 Austurvegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.