Morgunblaðið - 08.02.2018, Síða 16

Morgunblaðið - 08.02.2018, Síða 16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2018 ÁSKRIFTARHAPPDRÆTTI MORGUNBLAÐSINS Tel Aviv Drögum alla fimmtudaga í 10 vikur og nöfn vinnings­hafa verða birt í Morgunblaðinu á föstudögum. T el Aviv er um margt borg heillandi andstæðna. Allt um kring eru magnaðir sögustaðir, staðsetningar sem voru vettvangur atburða sem mótuðu mannkynssöguna; en um leið er borgin kraumandi pottur nýsköpunar og sprotafyrirtækja, að því marki að sé Kísildalur í Kali- forníu frátalinn er hvergi í veröld- inni jafn mikið af frumkvöðlum og tæknifyrirtækjum með aðstöðu á einum og sama staðnum. Auk þess er Tel Aviv fjármála- og tækni- miðstöð Ísraels. Fortíð og framtíð mætast þarna í líflegum, litríkum og heillandi nútíma. Ung borg í æva- gömlu umhverfi Tilfellið er nefnilega að þótt ár- þúsunda saga umljúki Tel Aviv og nágrenni, í landi þar sem íhalds- semi er almennt í hávegum höfð, er staðreyndin engu að síður sú að þriðjungur borgarbúa er á bilinu 18 til 35 ára. Hún er fyrir bragðið talsvert frjálslyndari í háttum en aðrar borgir í Ísrael. Í borginni er líka allt til alls til að halda í æsku- fjörið; gullfallegar strendur, iðandi mannlíf (að ekki sé minnst á bráð- fjörugt næturlífið!), margir af fremstu háskólum landsins – allt miðar þetta að því að draga að ungt fólk og stemningin er eftir því. Það eru meira að segja fleiri barir en sýnagógur (bænahús gyð- inga) í Tel Aviv; þarf að segja meira um málið? Tímasetningar á skemmtanalíf- inu er auk þess nokkurn veginn á pari við það sem Íslendingar hafa vanið sig á. Hér fer mannskapurinn sjaldnast á pöbbinn fyrr en um tíu- leytið, margir vinsælustu klúbbarn- ir toppa í stemningunni um tvöleyt- ið eftir miðnætti. Flestir barirnir eru opnir fram á morgun og sumir klúbbarnir spila músíkina fram yfir dagrenningu. Vettvangur sögunnar Þrátt fyrir ungan anda Tel Aviv eru ógleymanlegir sögustaðir hvar- vetna innan seilingar, staðir þar sem atburðir gerðust sem mann- kynið hefur lesið um og leitt hug- ann að í þúsaldir. Sjálf Jerúsalem er til að mynda aðeins í um 45 mín- útna fjarlægð, með ótal einstökum stöðum til að skoða. Þar eru Grát- múrinn, Golgatahæð og gröf Davíðs konungs að ótöldum fjölmörgum spennandi mörkuðum sem gaman er að gleyma sér á. Flestum sögu- stöðum borgarinnar helgu má ná í góðri dagsferð og kjörið að taka einn dag ferðarinnar í heimsókn ásamt leiðsögumanni um Jerúsal- em. Einnig er hægt að bregða sér í ógleymanlegt eyðimerkursafarí í Júdeueyðimörkinni eða skoða Mas- ada, kastalann sem var vetrardval- arstaður Heródesar konungs forð- um daga. Kastalinn hefur varðveist ótrúlega vel og það má meira að segja dást að flísamynstrinu á veggjum svefnherbergis hans. Í alvöru talað. Strönd, slökun og snyrtivörur Það tekur um tvær klukkustund- ir að aka frá Tel Aviv til Dauða- hafsins og það er býsna áhugaverð- ur kostur fyrir þá sem sækja í hreina og klára slökun. Fyrir utan hefðbundna hvíldarlegu í góða veðrinu á ströndinni er vitaskuld ómissandi að fljóta um í sjálfu haf- inu, en eins og þekkt er er salt- magnið í Dauðahafinu slíkt að mannslíkaminn flýtur þar rétt eins og vindsæng væri. Þar að auki eru margir álitlegir kostir til dekurs á ýmsum spa-hótelum sem er að finna í næsta nágrenni, vilji gestir gera sérstaklega vel við sig á sviði slökunar, dekurs og vellíðunar. Svo er einkar sterkur leikur að festa kaup á húð- og snyrtivörum sem unnar eru úr svörtu leðjunni sem er að finna á botni vatnsins, en hún er sérlega rík af steinefnum og hef- ur á sér orð fyrir góða virkni fyrir húðina. Svo má auðvitað ekki gleyma að við sjálfa Tel Aviv er hin langa og listafallega Jerúsalem- sandströnd. Maturinn sem vert er að prófa Ólíkt því sem almennt þekkist varðandi matarupplifun í helstu borgum heims – að öruggast er oft- ast að leita sælkeramatar á við- urkenndum veitingastöðum – þá kveður heldur við annan tón í Tel Aviv. Hér í borg, sem og víðar í Ísrael, er götumaturinn (e. street food) oftar en ekki álitinn sá besti sem völ er á. Hvarvetna er hægt að fá ódýran mat á borð við falafel- bollur, shawarma-vefjur, hummus, schnitzel og sambousek, sem eru ljúffengar smábökur, ýmist hálf- mánar eða þríhyrningar, oftast fylltir með kjöti en einnig með feta- osti og grænmeti. Slíkt götugóðgæti er að finna um alla borg en til að benda áhuga- sömum sælkerum á einn stað til að byrja á er óhætt að mæla með Port Sa’id við Har Sinai 5, við hliðina á stóra bænahúsinu í borginni (e. The Great Synagogue). Þar er ekki bara boðið upp á dásamlega ljúf- fengan mat af matseðli sem breyt- ist frá degi til dags, heldur líka óviðjafnanlegt andrúmsloft, plötu- snúð í horninu sem leikur „hipp og kúl“ músík fyrir viðstadda og kúnnahóp sem samanstendur mest- anpartinn af svalasta fólki Tel Aviv. Ef þú ert einn þeirra sem bara verða að smakka besta hamborg- arann í hverri borg leggðu þá leið þína til Vitrina, við 54 Ibn Gabirol; þar á bæ eru grillaðir borgarar sem fá munnvatnið til að renna og frönsku kartöflurnar eru þær bestu í borginni. Loks er gaman að geta þess að unnendur gæðakaffis eru á heima- velli í Tel Aviv því borgarbúar taka kaffipásur sínar mjög alvarlega. Fyrir bragðið er gæðastaðallinn á kaffi almennt með hæsta móti um alla borg. „Graffiti“ og gott netsamband Sem fyrr sagði er andinn á margan hátt ungæðislegur í Tel Aviv, samanborið við Ísrael al- mennt, þar sem fornar hefðir eru almennt í hávegum hafðar. Þetta sést ekki síst á hinni líflegu veggja- listarsenu í borginni. Því hefur ver- ið fleygt að væri Ísrael Lund- únaborg, þá myndi Tel Aviv vera Shoreditch-hverfið; listræn, lifandi, og svolítið á eigin forsendum. Þar af leiðir að veggjalistin lifir sérlega góðu lífi á veggjum Tel Aviv og þangað flykkjast „graffiti“- listamenn hvaðanæva til að sýna eigin verk og sjá annarra. Á þriðju- dögum er meira að segja hægt að fá þriggja tíma skoðunarferð með leiðsögumanni um staðina þar sem öll helstu og merkustu listaverkin er að finna. Meðal þeirra sem hafa komið við í borginni og skilið eftir sig ódauðlega veggjalist eru enginn annar en Banksy, án vafa sá þekkt- asti í heimi á sínu sviði, og Mr. Di- Maggio hinn ítalski sem kemur reglulega við í borginni. Af heima- mönnum má nefna Jonathan Kis- Lev, Addam Yekutieli sem spreyjar undir nafninu Know Hope, Nitzan Mintz og Adi Sened. Langi gesti og gangandi svo að instagramma lista- verkin sem á vegi þeirra verða er það hægur vandi því næstum hvert einasta kaffihús borgarinnar er með ókeypis wi-fi-nettengingu og auk þess býður Tel Aviv upp á rúmlega 80 tengistaði (e. hot spots) þar sem komast má í öfluga net- tengingu án endurgjalds. Sem er vel því í borginni er endalaust af upplifunum og áhuga- verðum stöðum sem fyrir augu ber. Þar sem fortíð og framtíð mætast Borgin Það er fallegt að horfa yfir borgarmynd Tel Aviv með Jerúsalem-ströndina í forgrunni.Veðrið er milt, sandurinn hreinn og sjórinn tær. Kaffíhús Borgarbúar taka kaffipásur sínar afskaplega alvarlega og sleppa þeim helst aldrei nokkurn tíma. Fyrir bragðið er kaffihúsaeigendum ekki stætt á öðru en að bjóða aðeins upp á fyrsta flokks kaffi. Brimsalt Saltmagnið er slíkt í Dauðahafinu að líkaminn hreinlega flýtur. Hér er hægt að fljóta og ná fullkominni slökun og það án flotholta. Næturlífið Íbúar Tel Aviv eru ekki ósvipaðir Íslendingum þegar kemur að skemmtanalífinu. Þeir kalla ekki allt ömmu sína þegar djammið er annars vegar, fara frekar seint af stað og dansa svo fram á rauðamorgun.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.