Morgunblaðið - 08.02.2018, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 08.02.2018, Qupperneq 23
Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is Vandaðar innréttingar Hjá Parka færðu hágæða innréttingar, sérsniðnar að þínum óskum og þörfum. Bjóðum aðeins það besta fyrir þig! ingar. Sagt að við höfum brugðist fólkinu. Við erum sannarlega að vinna fyrir fólkið í þessu félagi og gerum fátt annað alla daga enda erum við ráðin og sum okkar kosin til þess. Það voru margir starfsmenn borgarinnar sem ég hafði samband við í tengslum við þetta mál og margir urðu himinlifandi rétt fyrir jól þegar þeim var tilkynnt að þeir ættu von á nokkur hundruð þús- und krónum inn á reikninginn sinn, en borgin greiddi út leiðrétt- inguna 22. desember. Um er að ræða 468 starfsmenn sem við vit- um að áttu að fá leiðréttar launa- greiðslur. Flestir hafa nú fengið leiðréttingar en borgina vantar bankaupplýsingar hjá nokkrum að- ilum sem eru hættir störfum. Málið byrjaði með ósköp venju- legu símtali frá félagsmanni sem starfar hjá Reykjavíkurborg. Hann spurði hvort hann væri í réttum launaflokki. Þegar leið á símtalið upplýsti félagsmaðurinn mig um að hann væri í tímavinnu og fengi líka borgað vaktaálag. Ég sagði honum strax að þetta gæti ekki staðist því ef hann væri ráðinn í tímavinnu væri skýrt í kjarasamningi að hann ætti að fá dagvinnu á dag- vinnutímabili og yfirvinnu utan þess og um helgar. Þegar félags- maðurinn kom síðan með launa- seðla sína til mín kom í ljós að hann fékk greitt vaktaálag utan dagvinnutímabils og um helgar. Þetta varð síðan að deilumáli milli Eflingar og Reykjavíkurborgar, þar sem borgin féllst ekki á túlkun Eflingar sem hafði verið óumdeild árum saman. Ég vann málið sem sérfræðingur í opinberum kjara- samningum með sérþekkingu á samningum borgarinnar ásamt lög- mönnum Eflingar. Málið sýnir í hnotskurn vel hve mikilvægt er að félagsmenn leiti til Eflingar eftir aðstoð ef á þarf að halda. Það er gríðarlega mikilvægt að launamenn sem telja sig ekki vera að fá réttar launagreiðslur hafi samband við okkur. Það verður þess vegna aldrei of vel brýnt fyrir félagsfólki í Eflingu að leita til skrifstofu félagsins ef það hefur grun eða vitneskju um að eitthvað sé bogið við laun eða réttindi. Við teljum okkur vera vel á verði og að á skrifstofu Eflingar starfi reynslumikið og duglegt starfsfólk. En þessari baráttu lýk- ur aldrei. »Dæmi voru um að starfsmönnum væru greidd leiðrétt laun sem námu yfir 600 þúsund krónum á mann. Höfundur er gjaldkeri Eflingar og frambjóðandi uppstillingarnefndar, stjórnar og trúnaðarráðs í væntan- legu stjórnarkjöri til félagsins á næst- unni. Hann hefur verið félagsmaður Eflingar síðan 1984. Ragnar var trún- aðarmaður vörubílstjóra Vélamið- stöðvar Reykjavíkurborgar og aðal- trúnaðarmaður Eflingar hjá borginni þangað til hann hóf störf á skrifstofu félagsins árið 2006. UMRÆÐAN 23 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2018 Það hefur gerst að ég hafi skrifað minn- ingargreinar um látna samferðamenn sem hafa gefið af sér, verið mér og mínum góðir og látið gott af sér leiða. Mig langar lítið að skrifa þessa næstum minningargrein. En ég verð að leggja mitt fram þegar á að loka og leggja niður apparatið sem hjálpaði mér að bjarga mér sjálfum og sparaði kerfinu fullt af pengingum um leið. Nú á að loka Geðheilsu – Eft- irfylgd til þess að auka þjónustu við þá sem eru í flækju með heils- una í höfðinu og hjartanu. Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar að hjartað sé órjúfanlegur hluti af okkur mönnunum (og kannski dýr- um) með heilabúinu þegar kemur að tilfinningum og geði. Sjálfur hef ég reynt á eigin skinni að lenda í verulegum erf- iðleikum með hausinn (og hjartað) á mér en nokkrir svo nefndir ban- vænir (eða þar um bil) sjúkdómar bönkuðu upp á hjá mér á svipuðum tíma. Þess vegna var ég úr leik. Nokk- uð lengi. Kom til Íslands eftir tæp- lega tveggja ára sjúkralegu erlend- is, hafði reyndar fengið þá flugu að mennta mig betur en það var veru- lega slagsíða á skútunni. Vel að merkja þá var þetta ekki aum- ingjaskapur þótt ég á stundum sé óttalegur aumingi. Í júlí 2011 kom ég í Borgartúnið hjá Geðheilsu – Eftirfylgd og Hug- arafli og þar kom ég á mínum for- sendum, labbaði inn, réði mér sjálf- ur og fékk líka að vita að það væri alveg hægt að laga þennan halla án þess að liggja á stofnun, geyma sig heima og fylla sig af lyfjum o.s.frv. Verða síðan veikur að atvinnu vegna þess að þetta dýr sem við stundum köllum kerfið (sem er reyndar fólk) hafði engan áhuga á því að ég yrði læknaður eða næði bata (þannig er það nú því miður á mörg- um stöðum og ég þarf enn að kljást við þetta dýr á stund- um). Reyndar hafði ég verið hjá góðum lækni á Íslandi fyrr. En það er önnur saga og hún er góð. Þarna fékk ég „nesti og nýja skó“, reis úr öskustónni og allt þetta undir vængjabarðinu hjá Auði Axels- dóttur og hennar fólki, þ.m.t. Hug- araflsfólkinu en vel að merkja und- ir húsi hjá Geðheislu – Eftirfylgni. Nú á að loka sjoppunni og senda allt þetta fólk í „miklu betri þjón- ustu á þremur mismunandi stöðum í Reykjavík“. Þetta er afar dapurt vegna þess að blanda Hugarafls (sem Geð- heilsa –Eftirfylgd er órjúfanlegur hluti af) er það sem gerir árang- urinn svona góðan. Það er fullt af fólki, sem eins og ég er ekki lengur sjúklingar, veikt, stimplað út og fast í búri geðveiki (með dyggri að- stoð yfirvalda). Oft finnst mér og sérstaklega í þessu að „fagfólk“ sé hrokafullt, þykist vita betur og hafi fundið upp nýtt skipulag sem á að vera miklu betra. En það er bara engin eining um þetta. Ég þekki ekki einn einasta notanda sem er sammála þessu. Svo ég er öskufúll yfir því að ráðherra berji hausnum við stein- inn og hlusti ekki og taki ákvörðun byggða á notendum. Þetta má ekki gerast. Þá deyr fólk. Það er ekkert flóknara. Og kerfið og fagfólkið ber aldei ábyrgð. Ef þetta væri bara í sögu þá myndum við kalla alla til vopna. Berjast. Hvað sem tautar og raul- ar. En það eina sem ég og mínir geta sýnt fram á er bati. Ég klár- aði mitt nám, fór aftur í víking til útlanda og er mjög svo vinnufær í dag. Eiginlega bara að gera fína hluti. Þetta þakka ég Geðheilsu – Eft- irfylgd og Hugarafli sem ég sé sem eina heild. Þetta byrjaði allt í Grasagarð- inum og nú er þetta allt saman að breytast í illgresi, fálkinn missti flugið og er að brotlenda. Ekki gera þessi mistök. Það bara má ekki. Og ef þið ráðamenn og -konur gerið það samt þá er best að halda því til haga að við munum öll sem eitt fylgjast mjög vel með enda eru þið búin að lofa okkur, og þar með talið ráð- herrann, að þetta verði betra. Við höldum að svo verði bara alls ekki. En ábyrgðin verður ykkar. Alla leið. Það er jú þess vegna sem þið eruð í pólitík en ekki ég. Til að taka ábyrgð á okkur, gera betra samfélag og fara vel með pening- inn (en Borgartúnsbatteríið er hræódýrt). Eins og góður forsætisráðherra sagði þegar átti að leggjast á blað- bera: „Svona gerir maður bara ekki!“ Minning um geðheilbrigðis- lausn sem virkaði of vel? Eftir Jóhann Valbjörn Long Ólafsson Jóhann V.L. Ólafsson »Nú á að loka sjopp- unni og senda allt þetta fólk í „miklu betri þjónustu á þremur mis- munandi stöðum í Reykjavík“. Höfundur er deildarstjóri viðskiptaþróunar hjá erlendu skiparekstrarfyrirtæki. SMARTLAND MÖRTUMARÍU www.VBL.is REYKJAVÍK Krókháls 5F 110 Reykjavík Sími: 414-0000 AKUREYRI Baldursnes 2 603 Akureyri Sími: 464-8600 KEÐJUVIÐGERÐAREFNI OG KEÐJUTANGIR Keðjurnar eru til í mörgum gerðum og í öllum mögulegum stærðum á vinnuvélar, vöru- og flutningabifreiðar, dráttarvélar og lyftara FRAMÚRSKARANDI NORSKAR KEÐJUR Hlekkir • Keðjulásar • Krækjur • Krókar Krossbandakeðjur • Ferkantakeðjur • Þverbandakeðjur Mottukeðjur • Zik-zak keðjur • Zik-zak keðjur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.