Morgunblaðið - 08.02.2018, Page 25

Morgunblaðið - 08.02.2018, Page 25
atvinnuvegur fjórðungsins. Það er því mikið í húfi. Okkur tekst ekki á skömmum tíma að byggja upp eða styrkja aðrar atvinnugreinar til að mæta þeim skelli sem gæti orðið ef þessi stoð væri skorin niður. Sam- þjöppun fyrirtækja? Viljum við að eitt stórt fyrirtæki sem hefur enga tengingu við samfélagið reki allan sjávarútveg? Hraða aðgerðum Fyrirtæki í sjávarútvegi hafa ekki mótmælt því að greiða gjald af auð- lindinni, enda hreyfðu þau ekki mót- mælum þegar vel gekk. En gjaldið þarf að vera sanngjarnt og taka mið af afkomu nær í tíma og af fleiri þátt- um í rekstri, eins og tíðkaðist með af- slætti vegna vaxta og framkvæmda. Þjóðin græðir ekki á afgjöldum af auðlindinni ef það kostar okkur rótgróin fyrirtæki. Við verðum að hraða aðgerðum. Litróf sjávarútvegsfyrirtækja í land- inu má ekki verða einsleitt. Það er öll- um byggðarlögum hollt að rekin séu sterk og fjölbreytt fyrirtæki sem fylgja hjarta samfélagsins. »Mikil hækkun á veiðigjöldum er íþyngjandi fyrir mörg smærri og meðalstór útgerðarfélög og er ekki útséð með afdrif þeirra. Samþjöppun fyrirsjáanleg. Höfundur er þingmaður Framsókn- arflokksins í NV-kjördæmi. hallasigny@althingi.is UMRÆÐAN 25 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2018 ur þykir svo sjálfsagt í dag. Það var sólskin í Ósló þennan dag. Mikill gleðidagur fyrir alla Íslendinga og ekki síður ánægjulegur dagur fyrir Odvar Nordli og Knut Frydenlund, utanríkisráðherra hans. Nokkrum mánuðum síðar tilkynntu Norð- menn að þeir myndu færa sína fisk- veiðilögsögu út í 200 sjómílur. Eftir að Odvar lét af þing- mennsku varð hann fylkisstjóri í Árið 1960 hélt ég til Bandaríkjanna á ráðstefnu samtak- anna Young democra- tic leaders within NATO. Ég var þar sem fulltrúi Sam- bands ungra sjálfstæðismanna, en með mér í för voru Jón Rafn Guðmunds- son, formaður Sam- bands ungra framsóknarmanna, og Sigurður E. Guðmundsson, frá ungum jafn- aðarmönnum. Ferðalagið um Bandaríkin var okkur öllum minn- isstætt, en þar fengum við meðal annars að hitta Dwight D. Eisenho- wer forseta í garðinum við Hvíta húsið. Eftir ráðstefnuna ferðuðumst við til Kanada, en einnig um Bandarík- in í þremur hópum og hittumst loks í Chicago að ferðalagi loknu. Okkar hópur fór til Oklahoma City og Tulsa. Við höfðum komið okkur saman um það í mínum hópi að franskur þingmaður Gaulista, Pierre Mahias, yrði talsmaður okk- ar. Hann talaði alltaf frönsku. Með mér í hópnum var Odvar Nordli, fulltrúi norska Verka- mannaflokksins, en við kynntumst vel í þessari ferð. Við Odvar fund- um það út einn daginn að franski þrjóturinn kunni ensku! En hvað sem því leið þá skildum við sumir frönskuna hans en mislíkaði mjög að hann minntist aldrei á litlu ríkin innan NATO þegar verið var að þakka fyrir. Talaði bara um Frakk- land, Bretland og Vestur-Þýska- land. Ég sagði við Odvar að hann ætti að biðja um orðið að lokinni næstu þakkarræðu Frakkans og minnast á litlu ríkin. Nema hvað Odvar vildi miklu frekar að ég gerði það, sem ég og gerði suður í Tulsa. Við færðumst þarna nær hvor öðrum sem fulltrúar tveggja norrænna ríkja innan NATO og þetta varð upphaf ævilangrar vin- áttu. Næstu áratugina átti ég oft leið um Ósló, ýmist á vegum Sölu- miðstöðvar hraðfrysti- húsanna eða verka- lýðshreyfingarinnar, og jafnan hittumst við Odvar Nordli í Stór- þinginu þegar ég hafði þar viðkomu. Hann var einlægur stuðnings- maður vestrænnar samvinnu, en innan norska Verkamanna- flokksins voru alltaf öfl sem börðust gegn aðild Noregs að Atlantshafsbandalaginu. Sagan hef- ur sannað mikilvægi NATO sem bandalags friðar og öryggis í okkar heimshluta. Ríki austan járntjalds voru loks frelsuð undan oki komm- únismans með friðsamlegum hætti. Samstarf vestrænna ríkja hafði borið ríkulegan ávöxt. Odvar Nordli var þingmaður á norska Stórþinginu í tvo áratugi, 1961-1981 og forsætisráðherra 1976-1981. Hann var forsætisráð- herra þegar samningar voru undir- ritaðir í Ósló við Breta um útfærslu fiskveiðilögsögunnar í 200 mílur. Þegar við samninganefndin lentum á Fornebu-flugvelli urðu miklir fagnaðarfundir með okkur Odvar og er kom að undirskrift samning- anna hvíslaði hann rólega að mér: „Við leggjum fram okkar tillögur um 200 mílur í haust, svo þurfum við bara að koma okkur saman um miðlínur.“ Norðmennirnir höfðu þrýst á um lausn deilunnar og samstarfið innan NATO var grundvallaratriði í þessu. Deilunni hafði lokið með fullnaðarsigri Íslendinga sem lagði grunninn að því samfélagi sem okk- Heiðmörk og sinnti því starfi til ársins 1994. Hann var alla tíð traustur bandamaður Íslendinga og hvikaði aldrei í baráttunni fyrir sameiginlegum hagsmunum ríkjanna. Hann lést 9. janúar síð- stliðinn níræður að aldri. Blessuð sé minning Odvar Nordli. Odvar Nordli – Góðs vinar minnst Eftir Guðmund H. Garðarsson » Odvar var alla tíð traustur bandamað- ur Íslendinga og hvikaði aldrei í baráttunni fyrir sameiginlegum hags- munum ríkjanna. Höfundur er fyrrverandialþingismaður. Morgunblaðið/Eggert Á ráðstefnu Guðmundur og Odvar Nordli í Washington sumarið 1960 á ráðstefnu ungra leiðtoga lýðræðisflokka í aðildarríkjum NATO. Guðmundur H. Garðarsson Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lif- andi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notk- un og tryggir öryggi í samskiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru send- ar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf not- andinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Nánari upplýsingar veitir starfs- fólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18. Atvinna Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Vandaðar íslenskar innréttingar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.