Morgunblaðið - 08.02.2018, Síða 44

Morgunblaðið - 08.02.2018, Síða 44
FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 39. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. „Ég held ég hafi fengið taugaáfall“ 2. Sunna enn föst í Malaga 3. Tóku myndir af dóttur hennar 4. Eldsneytisverðið tvö- eða þrefaldast »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Sönghópurinn Raddbandafélag Reykjavíkur flytur þjóðlög og svo- nefnd „barbershop“-lög á hádegis- tónleikum í Fríkirkjunni í Reykjavík. Tónleikarnir hefjast kl. 12 og taka um hálfa klukkustund. Miðar eru seldir við innganginn. Morgunblaðið/Ómar Raddbandafélag Reykjavíkur syngur  Uppistands- hátíðin Scotch on Ice hefst í dag og stendur til laugar- dags. Meðal þeirra sem fram koma eru Jojo Suther- land, Tom Stade, Bylgja Babýlons og Ari Eldjárn. Dagskráin, sem fer öll fram á ensku, er ekki sú sama öll kvöldin og fer fram á Gauknum, í Gamla bíói og Hörpu. Nánari upplýsingar á gauk- urinn.is, tix.is og harpa.is. Uppistandshátíðin Scotch on ice hefst  Árni Heimir Ingólfsson fjallar um kirkjusöng á mótum tvennra tíma og veltir fyrir sér hvað hafi verið sungið í íslenskum kirkjum um miðja 16. öld í erindi á vegum Miðaldastofu í Lög- bergi 101 í dag kl. 16.30. Beinir hann sjónum sérstaklega að brotum úr tveimur íslenskum söng- bókum sem geyma kaþ- ólska kirkjusöngva við íslenska texta og bregða ljósi á kirkjusöng á Ís- landi á fyrstu ára- tugum eftir siða- skipti. Fjallar um kirkjusöng á mótum tveggja tíma Á föstudag Suðvestlæg átt, allhvöss eða hvöss suðvestan til með snjókomu eða éljum, en allhvöss norðaustanátt og snjókoma norð- vestan til. Mun hægari og úrkomulítið eystra. Frost 0 til 8 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 2-15 m/s með éljum, en létt- skýjað á Norðaustur- og Austurlandi. Frost 0 til 8 stig, kaldast í innsveitum norðaustanlands. VEÐUR Eyjakonur leika í Laugar- dalshöll í mars í undan- úrslitum Coca Cola- bikarsins í handbolta eftir að hafa slegið út Stjörnuna í TM-höllinni í Garðabæ með þriggja marka sigri, 27:24. Áður höfðu Haukar, Fram og 1. deildar lið KA/ Þórs tryggt sér sæti í und- anúrslitunum sem fram fara 8. mars í Laugardals- höll. Úrslitaleikurinn verður 10. mars. »3 ÍBV í undanúrslit bikarkeppninnar „Ég sá þennan möguleika vel fyrir mér, að komast á Vetrarólympíuleikana, í byrjun tímabilsins eftir að mér gekk vel á móti í Finnlandi, og nú er ég mættur til Pyeongchang. Ég veit ekki hversu langt ég get náð en ég vonast til þess að geta komist í hóp 30 bestu og keppt þar með í 30 manna úrslitum,“ segir Ísak Pedersen, sem keppir í sprettgöngu fyrir Íslands hönd á Vetraról- ympíuleik- unum. » 1 Ísak stefnir á þrjátíu manna úrslit í Kóreu Enn virðist algjörlega óráðið hvar og hvernig framtíðarþjóðarleikvangur Ís- lands fyrir frjálsar íþróttir verður. Nýr völlur ÍR í Mjódd leysir ekki vandann en segja má að Frjálsíþróttasambandið sé á vergangi því viðhaldi á Laugardals- velli hefur ekki verið sinnt sem skyldi og áætlanir Knattspyrnusambandsins gera ráð fyrir að ekki verði hlaupabraut á nýjum leikvangi. »1 ÍR-völlur kemur frjáls- um ekki af vergangi ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Gunnar Karl Jóhannesson flytur til Wales á morgun og verður á meðal keppenda í breska meistaramótinu í rallakstri í ár. „Þetta er stærsta tækifæri mitt til þessa og ég ætla að reyna að standa mig eins og best verður á kos- ið,“ segir rallökumaðurinn sem er 21 árs. Fyrir um þremur árum fór Gunnar Karl til Englands og keppti í fyrsta sinn í ralli erlendis. Þar kynntist hann Matthew Edwards, einum fremsta rallökumanni Bretlands, sem keppir fyrir heimsmeistarana, M Sport. „Hann bauð mér að koma núna og vera undir sínum verndarvæng,“ segir ökumaðurinn ungi. „Ég verð lærlingur hjá honum og læri allt sem við- kemur íþróttinni. Ég þarf að halda mér í góðu líkamlegu formi, fara yfir mataræðið, læra leiða- nótugerð, gera bílinn keppnisfæran, fara yfir dekk, stilla fjöðrun, þrífa bílinn eftir keppni og fleira. Þetta hljómar kannski einfalt en þau eru mörg smáatriðin sem þarf að huga að og margt sem ég á ólært.“ Í því sambandi bendir hann á að hann komi til með að keppa á framdrifsbíl með læstu fram- drifi í fyrsta sinn og gírkassi án kúplingar sé einnig nýmæli hjá honum. „Ég keppi líka í fyrsta sinn á malbiki, í Belgíu,“ segir Gunnar Karl, sem ekur Ford Fiesta R2-bifreið í Cadet- flokki, sem er fyrir ökumenn 25 ára og yngri. Aðstoðarmenn hans verða Ísak Guðjónsson og George Gwynn. Reynsluakstur um helgina Foreldrar Gunnars, Jóhannes V. Gunnarsson og Linda Karlsdóttir, voru í rallinu og Gunnar Karl ólst upp við íþróttina. „Ég byrjaði í ralli með það fyrir augum að keppa erlendis,“ segir hann. Þegar hann var 15 ára, árið 2011, byrjaði hann í akstursíþróttum, í unglingaflokki í rallí- krossi, þar sem hann keppti í tæp þrjú ár og varð meðal annars meistari. „Þegar ég tók bíl- prófið fór ég yfir í rallið og hef keppt í því síð- an.“ Í raun kemst nánast ekkert að nema rall hjá Gunnari Karli. „Ég veit ekkert skemmtilegra og get ekki ímyndað mér mig í neinu öðru,“ segir hann. Á unglingsárunum æfði hann og spilaði handbolta með Haukum í Hafnarfirði en segir að hugurinn hafi fljótlega beinst alfarið að rall- inu. „Mér fannst mjög gaman í handbolta en eft- ir að ég fór í rallið hef ég ekki litið til baka og ég sé mig ekki ná árangri í annarri íþrótt.“ Rallið er erfið íþrótt og Gunnar Karl segist hafa lært það á liðnu sumri að menn verði að vera rólegir en þó ekki of rólegir og ekki megi missa einbeitinguna eina sekúndu í akstri. „Við Ísak Guðjónsson, einn besti ökumaður landsins, vorum í keppni fyrir norðan, æfðum vel og unnum fyrstu leiðina. Vorum síðan á góðu róli á annarri leiðinni, þegar ég missti einbeit- inguna í smástund með þeim afleiðingum að ég fór of hratt í beygju og endaði á hliðinni.“ Fyrsti reynsluaksturinn verður um helgina og síðan tekur breska meistaramótið við í Skot- landi, Englandi, Belgíu, Írlandi og á eyjunni Mön, en endar á heimsmeistaramótinu í Wales 6. október. Gunnar Karl er með upplýsingasíður á netinu (www.gunnarkarlrallydriver.com, ww.facebook.com/GunnarKarlrallydriver/) og segir að eftirvæntingin sé mikil en það sé líka frábært að keppa á Íslandi, sérleiðirnar séu þær bestu í heimi og keppnin hörð. „Ég á eftir að sakna íslensku veganna og keppendanna en markmiðið er að verða bestur á Íslandi og jafn- vel eitthvað meira en það,“ segir hann og leggur áherslu á að það sé langt því frá sjálfgefið. Ætlar að verða bestur Keppni Gunnar Karl og Ísak á leið um Mælifellsdal í Ljómaralli í Skagafirði í fyrra.  Gunnar Karl Jóhannes- son keppir í breska meist- aramótinu í rallakstri Ökumenn George Gwynn og Gunnar Karl.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.