Morgunblaðið - 09.02.2018, Side 6

Morgunblaðið - 09.02.2018, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2018 VIÐTAL Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Það er enginn bilbugur á okkur. Ég hef trú á að það rætist úr þessu og það opnist góðir markaðir. Ég hef því fulla trú á framtíð íslenskrar sauðfjárræktar,“ segir Jón Grét- arsson, bóndi á Hóli í Sæmundar- hlíð í Skagafirði. Sauðfjárbú þeirra hjóna, Jóns og Hrefnu Hafsteins- dóttur, var annað afurðahæsta sauðfjárbú landsins á síðasta ári samkvæmt niðurstöðum skýrslu- halds í sauðfjárrækt sem Ráð- gjafarmiðstöð landbúnaðarins held- ur utan um. Bú Eiríks Jónssonar í Gýgjarhólskoti var með langmestar afurðir að meðaltali eftir hverja á í fyrra, 48,1 kg. Með því sló hann eig- ið Íslandsmet frá árinu 2015 sem var 44,9 kg. Þótt Hólsbúið sé með nærri 8 kílóum minna kjöt eftir hverja á en búið í Gýgjarhólskoti er saman- burðurinn fyrrnefnda búinu ekki óhagstæður þegar litið er til að- stæðna. Eyjólfur Ingvi Bjarnason, ráðunautur í sauðfjárrækt, bendir á að munurinn á þessum tveimur bú- um liggi fyrst og fremst í fram- leiðslukerfunum sem notuð eru. Ei- ríkur noti kálbeit og slátri seint. Lömbin hans eru að meðaltali 169 daga gömul við slátrun en meðal- talið yfir landið er 138 dagar. Jón og Hrefna á Hóli slátra sínum lömbum að meðaltali 135 daga gömlum. Þarna munar rúmum mán- uði. Eyjólfur segir að vaxtarhraðinn sé sambærilegur á þessum tveimur búum. Beint af fjalli í sláturhús Jón og Hrefna leggja áherslu á ræktun fjárstofns síns þannig að ærnar mjólki vel og þau geti slátrað meginhluta lambanna strax og þau koma af fjalli. Ekki þurfi að bata þau á káli. Það gera þau með því að láta sæða ær og nota þannig úrvals- hrúta sæðingastöðvanna og kaupa einnig hrúta af Ströndum. Þá leita þau ráða hjá ráðunautum. „Göngur eru hjá okkur fyrstu helgina í september og aðrar göng- ur strax helgina á eftir. Við lógum lömbum fyrir Bandaríkjamarkað í lok ágúst en flestum lömbunum um miðjan september. Alltaf verða þó eftir einhver lömb sem þarf að gera betur við,“ segir Jón. Hrun varð í tekjum sauðfjár- bænda á síðasta ári þegar afurða- stöðvarnar lækkuðu það verð sem þær greiða bændum fyrir lömbin. Það var vegna erfiðleika við útflutn- ing. Jón telur að ekki megi slá slöku við í ræktunarstarfinu þótt tekj- urnar minnki. Ræktunin hjálpi mönnum að komast út úr vandan- um. Jón og Hrefna eru einnig með gott kúabú sem um árabil var í efstu sætum yfir afurðahæstu kúabú landsins. Þau eru með há- tæknifjós sem byggt var árið 2014 og hafa verið að auka framleiðsluna, bæði á mjólk og kjöti. Jón segir að þau séu nú komin með meðalbú, með um 70 mjólkandi kýr og um 400 þúsund lítra greiðslumark. Saman í öllum verkum Þótt grunnur tekjuöflunar heim- ilisins sé í kúabúskapnum segir Jón að þau Hrefna vilji ekki gera upp á milli kindanna og kúnna. „Við höf- um gaman af öllum búskap. Við hjónin erum bæði í þessu á fullu og tökum jafnan þátt í öllum verkum. Við erum bara tvö og skiptum auð- vitað með okkur verkum. Í hey- skapnum slær hún öll tún, ég rúlla, hún rakar og ég keyri heim,“ segir Jón. Ekki má slá slöku við í ræktunarstarfi  Hólsbúið er með afurðahæstu búum bæði í mjólk og kjöti Afurðahæstu sauðfjárbúin 2017 Bú með fleiri en 100 ær Heimild: rml.is 25,8 27,7 Nr. Nafn Býli Fjöldi áa Kjöt (kg) Fædd lömb á hverja á 1 Eiríkur Jónsson Gýgjarhólskot 1 285 48,1 2,02 2 Jón og Hrefna Hóll 142 40,4 1,92 3 Elín Anna og Ari Guðmundur Bergsstaðir 409 39,2 2,13 4 Gunnar og Gréta Efri-Fitjar 689 38,3 2,12 5 Félagsbúið Lundur Lundur 499 38,2 1,89 6 Guðbrandur og Lilja Bassastaðir 224 37,5 2,09 7 Sigvaldi og Björg María Hægindi 207 37,3 1,96 8 Sveinn Guðmundsson Lýtingsstaðir 107 37,0 2,40 9 Gunnar og Doris Búðarnes 228 36,8 1,99 10 Inga Ragnheiður Magnúsd. Svínafell 3 359 36,7 1,97 11 Elín Heiða Valsdóttir Úthlíð 363 36,4 2,08 12 Ragnar og Sigríður Heydalsá 1 og 3 557 36,3 2,05 13 Eyþór og Þórdís Sólheimagerði 126 36,1 2,09 14 Gunnar og Matthildur Þóroddsstaðir 370 35,9 2,04 15 Félagsbúið Ytri-Skógar 199 35,8 1,99 16 Indriði og Inga Skjaldfönn 143 35,8 1,76 17 Ásgeir Arngrímsson Brekkubær 275 35,7 2,08 18 Þórður Jónsson Árbær 203 35,7 1,85 19 Guðbrandur Björnsson Smáhamrar 2 295 35,6 1,92 20 Árni og Guðrún Ytri-Villingadalur 119 35,6 1,97 Meðalafurðir 28 27 26 25 kg - reiknaðar afurðir eftir kind (kg) 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 Réttadagur Fjölskyldan á Hóli í Sæmundarhlíð á leið í Staðarrétt, Pétur Steinn Jónsson, Jóhanna Grétarsdóttir, Ingimar Hólm Jónsson, Sveinn Jóns- son, Hrefna Hafsteinsdóttir og Jón Grétarsson. Féð gengur á afrétt í Staðarfjöllum. Réttað er snemma og lömbin strax send í sláturhús. Meðalafurðir voru 27,7 kg eftir hverja fullorðna á árið 2017. Er það 0,6 kg minna en árið 2016 sem var metár. Eyjólfur Ingvi Bjarnason, ráðu- nautur í sauðfjárrækt hjá RML, getur þess að árið 2016 hafi verið fá- dæma gott. Hann telur einnig að hrun í tekjum sauðfjárbænda sl. haust hafi leitt til þess að sumir bændur hafi stokkið til og slátrað lömbunum fyrr og léttari en ella til að njóta þeirra yfirborgana sem voru í boði. Eyjólfur veltir því fyrir sér hvaða áhrif lækkun afurðaverðs hafi á ákvarðanir bænda. Hann reiknar með að menn reyni að spara við sig, meðal annars í kaupum á þjónustu. Það geti bitnað á ræktun. Hann segist heyra að margir ætli að bíða eins lengi og þeir geti með að panta áburð. Ef menn spari of mikið minnki fóðurgæðin. Það geti haft áhrif á frjósemi og afurðasemi fjárins og bitni þá á mönnum árið 2019. Minni afurðir en á metárinu UPPGJÖR SKÝRSLUHALDS FYRIR ÁRIÐ 2017 LED lausnir frá Lýsing fyrir götur, göngustíga og bílastæði. Ráðgjöf og nánari upplýsingar má fá hjá sölumönnum. Smart City lausnir Jóhann Ólafsson & Co. Krókháls 3, 110 Reykjavík 533 1900 sala@olafsson.is Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Tölur um brottfall úr skólum hér á landi eru sláandi í samanburði við hin norrænu löndin. Nýjar tölur eru birtar í skýrslu Norrænu ráð- herranefndar- innar sem kynnt var í gær. Með- altal brottfalls í Evrópu er 10,7% og nágranna- þjóðir okkar eru margar undir því meðaltali. Á Ís- landi er brottfall hins vegar nær tvöfalt meira en þetta meðaltal, eða 19,8%. Brottfall í Danmörku er 7,2%, í Svíþjóð er það 7,4% og í Finnlandi er það 7,9%. Norðmenn rétt skríða yfir Evrópumeðaltalið með 10,9%. En hverju sætir þetta? „Stuðningi við námsmenn er öðruvísi háttað á Íslandi en annars staðar á Norðurlöndum. Mörg ungmenni hafa auðvelt aðgengi að vinnu og verða að vinna til að fjár- magna nám og uppihald. Það eyk- ur líkurnar á því að þau ljúki ekki námi,“ segir í skýrslu Norrænu ráðherranefndarinnar. Víða meira stutt við námsmenn Arnór Guðmundsson, forstjóri Menntamálastofnunar, tekur undir þessa skýringu: „Við höfum verið að vinna að því verkefni að draga úr brotthvarfi úr skólum. Það er alveg rétt að þessi þáttur skiptir máli hér, hversu greiðan aðgang nemendur hafa að vinnumarkaði. Víða á Norðurlönd- um er meiri stuðningur við náms- menn en hér í gegnum námsstyrki og námsgögn. Það hefur klárlega áhrif á Íslandi.“ Annað áhyggjuefni sem lesa má um í umræddri skýrslu er það hversu mikill munur er á frammi- stöðu nemenda eftir því hvort þeir eru fæddir hér á landi eða hafa flust hingað. Einkunnir nemenda reyndust 23% hærri hjá innfædd- um en þeim aðfluttu. Þessi munur er hvergi meiri. „Það er mjög sláandi munur þarna á, sá mesti á Norðurlöndum. Þarna er brýnt að grípa til að- gerða. Mér skilst að innflytjenda- ráð sé að skoða þessi mál og greina fyrir stjórnvöld,“ segir Arn- ór, forstjóri Menntamálastofnunar. En hvað er til ráða? „Það þarf að byggja upp þjón- ustu fyrir þennan hóp sem hefur farið mjög stækkandi. Þetta eru um tíu prósent nemenda í grunn- skólum og hefur fjölgað mjög und- anfarin ár. Menn hafa ekki verið viðbúnir þessari fjölgun. Það þarf að horfa til þess hvað gert hefur verið á Norðurlöndum varðandi móttöku nemenda og hvernig stutt er við þá í skólanum.“ Háskólamenntuðum fjölgar Jákvæðu fréttirnar úr þessari skýrslu er fjölgun háskólamennt- aðra eftir hrun. Rakið er í skýrsl- unni hvernig háskólamenntuðum Svíum á aldrinum 30-34 ára hafi fjölgað umtalsvert í kjölfar kreppuára á tíunda áratugnum. Hið sama hafi gerst hér á landi eftir hrun. Í kringum 2008 hafi um 40% fólks á aldrinum 30-34 verið með háskólamenntun en árið 2016 hafi sú tala verið komin nærri 50%. Tvöfalt meira brottfall hér en í nágrannalöndum  Betur stutt við námsmenn ytra og margir vinna með skóla Arnór Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.