Morgunblaðið - 09.02.2018, Side 10

Morgunblaðið - 09.02.2018, Side 10
BAKSVIÐ Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is „Það er ekki sjens fyrir mig að fara út á leigumarkaðinn eins og staðan er í dag. Ég hefði aldrei efni á því, ástandið er algjör klikkun.“ Þetta segir Sigfús Bergmann Svavarsson sem búsettur er í neyð- arúrræði Reykjavíkurborgar fyrir húsnæðislaust fólk í húsi sem áður hýsti elliheimili og síðar heimili fyrir hælisleitendur í Víðinesi á Kjalarnesi. Hann hefur verið húsnæðislaus meira eða minna frá árinu 2014, þegar hann missti einbýlishús sitt vegna skulda. Hann er í hópi mörg hundruð Íslend- inga sem eru heimilislausir. Í þessum hópi er líka Svanur Elías- son, sem einnig býr í Víðinesi. Hann tekur undir orð Sigfúsar um hátt leiguverð og telur að lítið sé gert fyrir húsnæðislaust fólk. „Þessi ráðstöfun, að koma okkur fyrir í Víðinesi, er fyrst og fremst til að stjórnmála- mennirnir og þeir sem stjórna í Reykjavík haldi andlitinu,“ segir Svanur. Þeir hafa verið á hrakhólum um nokkurra ára skeið og bjuggu m.a. báðir á tjaldsvæðinu í Laugardal áður en þeir fluttu í Víðines. Ekki er vitað með vissu hversu margir Íslendingar eru heimilis- lausir. Í skýrslu, sem kom út í fyrra- haust, var fjöldi heimilislausra Reyk- víkinga áætlaður um 350. Í skýrsl- unni segir að líklega tilheyri talsvert fleiri þessum hópi og þar kemur líka fram að fjöldinn tvöfaldaðist á fimm ára tímabilil frá árinu 2012-’17. Þess- ar tölur eiga eingöngu við um Reykjavík og heildartölur fyrir landið allt liggja ekki fyrir. Í desember síðastliðnum var ákveðið að nýta húsið í Víðinesi, sem er í eigu Reykjavíkurborgar, sem tímabundið neyðarúrræði fyrir heim- ilislaust fólk alls staðar að af landinu. Leigan er 50.000 á mánuði, kostn- aðurinn við búsetu hvers og eins er þó talsvert hærri eða um 86.000 krónur og greiðir félagsþjónusta viðkomandi sveitarfélags mismuninn. Ekki liggur fyrir hversu lengi húsið í Víðinesi verður notað á þennan hátt enda hef- ur nýtingin verið lítil. Í húsinu er pláss fyrir 14 manns, mesta nýting hefur verið sjö og nú búa þar fimm. Sárt að missa húsið Sigfús hefur verið í húsnæðis- vandræðum frá árinu 2014. Áður átti hann einbýlishús í úthverfi Reykja- víkur sem hann byggði sjálfur með aðstoð vina og vandamanna og missti það vegna skulda. „Það var virkilega erfitt. Mér þótti vænt um húsið. Ég hafði gert svo mikið sjálfur og fékk mikla aðstoð frá pabba mínum sem dó fyrir nokkrum árum. Já, þetta var sárt.“ Síðan þá hefur Sigfús verið á hús- næðishrakhólum. Hann hefur m.a. fengið lánaðar íbúðir hjá vinum og kunningjum og bjó úti á landi um skeið þar sem hann starfaði við bú- skap. Hann er menntaður rafvirki en starfaði lengst af við sölu- og mark- aðsmál. Nú hefur hann ekki verið á vinnumarkaði í nokkur ár. Áður en hann flutti í Víðines svaf hann í bíl sínum á tjaldsvæðinu í Laugardal en leigði síðan hjólhýsi þar. „Auðvitað ætti enginn að vera heimilislaus. En það er engu að síður þannig,“ segir Sigfús. „Ég er bara þannig gerður að ég kvarta sjaldan. Mér fannst t.d. ekkert sérlega slæmt að búa á tjaldsvæðinu og þegar verið var að lýsa þessum aðstæðum í fjöl- miðlum fannst mér stundum gert helst til mikið úr hvað þetta væri erf- itt og ömurlegt.“ Hefurðu mætt fordómum vegna þess að þú ert heimilislaus? „Nei, ég hef ekki upplifað það.“ Þegar Sigfúsi var boðið að búa í „Auðvitað ætti enginn að vera heimilislaus“  Fáir vilja búa í neyðarúrræði fyrir húsnæðislausa í Víði- nesi  Sagt upp leigu vegna hunds  Húsnæðislaus maður segist ekki hafa upplifað fordóma vegna stöðu sinnar Morgunblaðið/Eggert Víðines Reykjavíkurborg keypti húsið 2014. Þar var áður hjúkrunarheimili og húsnæði hælisleitenda. Nú er þar neyðarúrræði fyrir húsnæðislausa. Morgunblaðið/Eggert Svanur Elíasson „Ég tók hana að mér fyrir lífstíð,“ segir hann um tíkina Kleópötru, en honum var sagt upp leigu og lenti á götunni vegna hundsins. 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2018 Jóna Guðný Eyjólfsdóttir, deild- arstjóri hjá Velferðarsviði Reykja- víkurborgar, segir að í Víðinesi sé húsrými fyrir allt að 14 manns. Það hefur þó aldrei verið fullnýtt. „Við tókum ákvörðun um að út- hluta ekki öllum herbergjunum í einu, sem við gerum gjarnan þegar við opnum ný úrræði,“ segir Jóna. Hún segir að flestir sem búa í Víði- nesi hafi fengið húsnæðinu út- hlutað í gegnum þjónustu- miðstöðvar Reykjavíkurborgar eða annarra sveitarfélaga og þá hefur verið nokkuð um að fólk sæki sjálft um að fá að búa þar. Hún segir að búsetan í Víðinesi henti ekki öllu húsnæðislausu fólki því þeir sem þar búa þurfa að hafa færni og getu til að halda heimili og búa með öðrum. „Þetta er hugsað fyrir húsnæðislausa, en ekki fólk í neysluvanda. Það er reyndar ekki gerð krafa um edrú- mennsku, en neyslan má ekki vera vandamál. Úrræðið er fyrir ein- staklinga og pör og hentar ekki barnafjölskyldum.“ Lögregla tvisvar kölluð til Jóna segir að miðað sé við að há- marksdvalartími sé sex mánuðir, gerðir eru dvalarsamningar til tveggja mánaða í senn og þeir sem þarna búa þurfa að vera í sam- skiptum við félagsþjónustuna í sínu sveitarfélagi á meðan. Þá þurfa íbúar að vera sjálfbjarga með ferðir til og frá staðnum og ekki er boðið upp á ferðir frá staðnum. Flestir íbúanna eru með eigin bíl. Tvisvar sinnum hefur þurft að kalla til lögreglu á þeim tæplega tveimur mánuðum sem liðnir eru frá því að Víðines var opnað. Spurð um ástæðu fyrir því segir Jóna að í byrjun hafi verið eitthvað um einstaklinga í Víðinesi sem ekki réðu við að búa í þessum að- stæðum. Hentar líklega ekki öllum Víðines er á Kjalarnesi, í um kíló- metra fjarlægð frá sorpurð- unarstöðinni í Álfsnesi. Engin þjónusta af neinu tagi er í ná- grenninu og fjórir kílómetrar eru í næstu strætóstoppistöð. Spurð hvort þetta sé besta úrræðið sem hægt sé að bjóða húsnæðislausu fólki segir Jóna að vissulega henti þetta ekki öllum, enda sé um neyðarúrræði að ræða. Sumir séu hinsvegar ánægðir með staðsetn- inguna. „Þarna getur fólk t.d. verið með gæludýrin sín, sem er víða ekki hægt,“ segir Jóna. Neyðarúrræði og hámarks- dvalartími er sex mánuðir FJÓRIR KÍLÓMETRAR ERU Í NÆSTU STRÆTÓSTÖÐ www.securitas.is BÚÐUÞIG UNDIR HEIMAVÖRN FRAMTÍÐAR SAMSTARFSAÐILI E N N E M M / S ÍA / N M 8 5 6 8 9

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.