Morgunblaðið - 09.02.2018, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 09.02.2018, Blaðsíða 11
Víðinesi leist honum fyrst í stað ekk- ert sérlega vel á hugmyndina. „Ég sagði bara „nei, takk“ og það var fyrst og fremst út af staðsetningunni, það er svo langt í allt héðan. Í Laug- ardalnum var t.d. stutt í kaffistofu Samhjálpar þangað sem ég fer oft.“ Hann ákvað þó að láta slag standa og segir að sér hafi liðið vel á staðnum frá fyrsta degi. Fyrir nokkrum vikum greindu fjöl- miðlar frá því að illa væri búið að íbúum í Víðinesi og að þar væri fólki með geðraskanir komið fyrir sem ylli usla. Sigfús segir þetta ekki vera sína upplifun og segir að sambýlið í Víð- inesi gangi að öllu jöfnu vel. „Það voru samskiptavandræði sem strax voru leyst. Hér er gott að vera og mér líður vel. En ég myndi gjarnan vilja sjá fleiri hérna. Hér eru laus herbergi á meðan fólk er húsnæðislaust.“ Staðsetningin slæm „Hér er pláss fyrir miklu fleiri en kerfið er svo svifaseint. Á meðan ver- ið er að fara yfir pappíra og skjöl sef- ur fólk í ruslageymslum og á bekkj- um,“ segir Svanur. Hann var fyrsti íbúinn í Víðinesi og flutti þangað með tíkinni sinni henni Kleópötru þegar húsið var opnað heimilislausum um miðjan desember. Svanur starfaði áður við skrúð- garðyrkju en er öryrki eftir vinnuslys og hefur ekki verið á vinnumarkaði síðan. Hann hefur verið af og til á göt- unni undanfarin ár en var kominn í leiguíbúð sem honum var svo sagt upp í júlí í fyrra. Hann segir að ná- grannar hafi kvartað undan hunda- haldi hans og leigusalinn sett honum úrslitakosti – annaðhvort myndi hann losa sig við Kleópötru eða flytja út. Svanur segir að það hafi ekki komið til greina. „Ég tók hana að mér fyrir lífstíð og ég stend við það.“ Eftir þetta bjó Svanur á tjald- svæðum víða á höfuðborgarsvæðinu, fyrst í bíl sínum en keypti sér svo húsbíl. Hann settist síðan að á tjald- svæðinu í Laugardal síðasta haust. „Það var svo sem allt í lagi nema að það var alltaf vesen með rafmagnið.“ Hann lætur ágætlega af búsetunni í Víðinesi en segir staðsetninguna ekki hentuga. Íbúarnir hafi beðið um að boðið verði upp á ferðir í bæinn en þær beiðnir hafi lítinn hljómgrunn fengið. Þetta er alls engin lausn Svanur er ósáttur við hvernig búið er að húsnæðislausu fólki á Íslandi. Hann segir að sú ráðstöfun að bjóða fólki að setjast að í Víðinesi hafi ekki verið gerð með hag húsnæðislausra í huga. „Það var mikil neikvæð umfjöll- un í fjölmiðlum um að fólk byggi á tjaldsvæðum. Ég held að þeim sem ráða í borginni hafi þótt staðan vera óþægileg og ekki okkar vegna, heldur fyrst og fremst sín vegna. Það er alls engin lausn að koma fólki fyrir í Víði- nesi, úr alfaraleið.“ Sérðu fram á að vera hérna áfram? „Nei, það geri ég ekki. Mér skildist áður en ég flutti hingað að þetta ætti að vera fyrsti staðurinn og síðan yrði manni hjálpað við að finna annað hús- næði. Ég hef ekki fengið neina slíka aðstoð síðan ég flutti hingað. En ég myndi vilja það og komast annað því þetta er svo langt út úr.“ Morgunblaðið/Eggert Sigfús Bergmann Svavarsson „Ég myndi gjarnan vilja sjá fleiri hérna. Hér eru laus herbergi á meðan fólk er húsnæðislaust.“ FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2018 Um átta manns hafa haft búsetu á tjaldsvæðinu í Laugardal frá því að Víðines var opnað. Allir nema einn eru Íslendingar, fólkið býr ýmist í hjólhýsum eða húsbílum og sumir eru líka með tjald sem þeir nota sem geymslu. Þeir sem lengst hafa búið þarna hafa verið á tjaldsvæðinu í nokkra mánuði. „Við erum ekki félagsþjónusta, heldur tjaldstæði og það er í sjálfu sér ekki verkefni okkar að leysa þennan brýna vanda, heldur er það verkefni sveitarfélaganna. Það fólk sem býr á tjaldsvæðinu er þar að eigin vilja, það hefur ekki viljað fara í Víðines og við höfum verið í sam- skiptum við Reykjavíkurborg um hvernig best sé hægt að leysa þetta,“ segir Sigríður Ólafsdóttir, fram- kvæmdastjóri tjaldsvæðisins í Laug- ardal. Samrýmist ekki túrismanum Þeir sem hafa fasta búsetu á svæð- inu greiða 38.000 krónur í leigu á mánuði. Þar af er 300 króna gisti- náttaskattur á hverja nótt, samtals um 9.000 krónur á mánuði. Innifalið í leigunni er aðgangur að aðstöðu í farfuglaheimilinu í Laugardal þar sem eru m.a. þvottavélar, bað- aðstaða, setustofa og eldunar- aðstaða. Rafmagn er innifalið í leiguverðinu. Að sögn Sigríðar þarf fólkið að yfirgefa tjaldsvæðið í vor þegar ferðamönnum fer að fjölga þar. Ekki hefur verið tekin endanleg ákvörð- un um hvenær það verður, en það verður að öllum líkindum í apríl. „Þessi búseta samrýmist ekki hlut- verki tjaldsvæðisins sem er fyrst og fremst skammtímagisting fyrir ferðamenn,“ segir Sigríður. Ekki draumastaðan í lífinu Nokkrir íbúar tjaldsvæðisins voru heima við þegar blaðamann og ljósmyndara Morgunblaðsins bar að garði í fyrradag. Þeim bar sam- an um að umfjöllun fjölmiðla um aðstæður þeirra, sem hafa búið á tjaldsvæðinu, hefði valdið þeim talsverðum ama, m.a. hefði talsvert af fólki komið til að forvitnast um hagi þeirra. Umfjöllunin hefði orðið til þess að koma neikvæðu orði og fátækrastimpli á íbúana. Einn íbúinn féllst á að ræða stutt- lega við blaðamann, en var ekki tilbúinn til að koma fram undir nafni. Hann sagði að hann hefði ákveðið að setjast að á tjaldsvæðinu í skamman tíma til að spara sér leigu, en áður leigði hann íbúð í miðbæ Reykjavíkur á 200 þúsund krónur á mánuði. Hann sagði að þarna hefði hann allt til alls, þetta væri þó alls ekki „draumastaðan í lífinu“. „Ég er með sjálfstæðan rekstur, fer m.a. talsvert á fundi og þess- háttar og ég vil ekki að allir sem ég á í samskiptum við viti að ég bý hérna á tjaldsvæðinu. Það hefur verið svo neikvæð umræða um þá sem búa hérna,“ sagði íbúinn. „En þetta er fjölbreyttur hópur og mis- munandi ástæður fyrir búsetunni.“ Morgunblaðið/Eggert Í Laugardal Á tjaldsvæðinu býr fólk, ýmist í hjólhýsum eða húsbílum. Tjaldsvæði, en ekki félagsþjónusta Eftirlitsmyndavélar sem lögreglan hefur umráð yfir verða settar upp í Lindahverfi í Kópavogi. Áætl- aður kostnaður við slíkan búnað er um 10 milljónir króna. Þetta var ein af 37 tillögum sem íbúar í Kópavogi kusu um og samþykktu í nýafstöðnum íbúakosningum sem nefnast Okkar Kópavogur. Þessi tillaga um rafrænan eftir- litsbúnað hlaut flest atkvæði í Lindahverfi í kosningunum eða 632 atkvæði en kosningunum var skipt niður eftir svæðum sem eru fimm talsins. Samtals verður varið um 200 milljónum króna í verk- efnin 37. Framkvæmdir við þau hefjast í vor en þeim lýkur á næsta ári. Eftirlitsmyndavélar verða í Lindahverfi Laugavegi 77, 101 Reykjavík - Sími: 551 3033 Flo ttir í fötu m Frímúrarar – Oddfellowar Frábæru kjólfötin okkar komin aftur Verð 76.900,- með svörtu vesti Opið 11-16 í dag Við erum á facebook Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Kvarterma- bolir kr. 5.900,- Str. S-3XL Fleiri litir Ný sending Verið velkomin • Peysur • Bolir • Túnikur • Leggings • Kjólar Vinsælu velúrgallarnir alltaf til í mörgum litum og í stærðum S-4XL Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.