Morgunblaðið - 09.02.2018, Page 14

Morgunblaðið - 09.02.2018, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2018 GÓÐ HEYRN GLÆÐIR SAMSKIPTI! Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is Með þeim heyrist talmál sérstaklega vel vegna þess að þau þekkja tal betur en önnur tæki. Tæknin sem þekkir tal Nýju ReSound LiNX 3D eru framúrskarandi heyrnartæki ReSound LiNX3 BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Hæstiréttur dæmdi í desember að Sigríður Á. Andersen dómsmálaráð- herra hefði ekki farið að stjórnsýslu- lögum við skipan dómara í Lands- rétt. Nánar tiltekið taldi Hæstiréttur ráðherrann ekki hafa sinnt rann- sóknarskyldu í málinu. Á hinn bóginn hafa lagabreytingar dregið úr þessari skyldu ráðherra. Þá hafa verið uppi sjónarmið um að ráðherra fái of skamman tíma til að yfirfara niðurstöður dómnefndar um umsækjendur um dómarastöður. Ekki minni kröfur til ráðherra Forsaga málsins er að tveir um- sækjendur um embætti dómara við Landsrétt, Ástráður Haraldsson og Jóhannes Rúnar Jóhannsson, stefndu ríkinu. Töldu þeir ráð- herrann ekki hafa farið að lögum við skipan dómara í Landsrétt. Í bréfi til forseta Alþingis rök- studdi Ástráður það meðal annars með vísun í sjónarmið í dómi Hæsta- réttar frá 14. apríl 2011 í máli nr. 412/ 2010. Það leiddi af dóminum að ekki yrðu „gerðar minni kröfur til ráð- herra en dómnefndarinnar [um dóm- araefni] um rökstuðning og innbyrðis samanburð umsækjenda“. „Rökstuðningur ráðherra getur ekki verið á almennum nótum eða tekið til hóps manna sameiginlega eins og dómsmálaráðherra hefur teflt fram. Ráðherra verður að rök- styðja sérstaklega fyrir hvern nafn- greindan umsækjanda sem dóm- nefnd hefur talið hæfastan hvers vegna ráðherra leggur til að viðkom- andi verði ekki skipaður og gera rök- studda tillögu um annan nafngreind- an umsækjanda í staðinn ... Geti ráðherra ekki lagt fram fullnægjandi gögn eða skýringar á að undirbún- ingur og meðferð málsins hafi verið í samræmi við lög ber að hafna tillögu ráðherra,“ skrifaði Ástráður m.a. Mat dómnefndar væri 117 síður Sambærileg sjónarmið komu fram í áliti minnihluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis. „Ljóst má vera að ráðherra telur rökstuðning sinn jafngilda fullnægj- andi rannsókn en ekki er sýnt í rök- stuðningi ráðherra að sambærileg sérfræðiþekking liggi að baki mati ráðherra á umsækjendum og mati dómnefndar. Þá ber að nefna að mat dómnefndar er allítarlegt, 117 blað- síður, þar sem farið er yfir hæfni ein- staklinga í ólíkum matsþáttum og birt röð að loknum hverjum þætti en mat ráðherra er fjórar blaðsíður sem byggjast að miklu leyti á upplýsing- um úr dómnefndaráliti um reynslu umsækjenda af dómarastörfum.“ Skyldan lögð á aðrar herðar Fjallað er um rannsóknarskyldu ráðherra í dómum Hæstaréttar í málum áðurnefndra umsækjenda. „Með 3. og 4. mgr. 12. gr. laga nr. 15/1998 var rannsóknarskyldu þeirri sem mælt er fyrir um í 10. gr. stjórn- sýslulaga við skipun í embætti hér- aðsdómara að verulegu leyti létt af ráðherra og skyldan þess í stað lögð á herðar sjálfstæðrar og óháðrar dóm- nefndar sem skipuð var með tilliti til þess að tryggt yrði að sérþekking væri þar fyrir hendi um mat á hæfni umsækjenda um dómaraembætti,“ sagði í umræddum dómum. Þá var vísað til dómstólalaga um að ráðherra megi víkja frá tillögu dómnefndar ef Alþingi samþykkir til- lögu ráðherra um heimild til þess. Veitingarvaldið hjá ráðherra Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar tók fyrir hlutverk og veitingarvald ráðherra í þessu efni. „Fyrir nefndinni var rætt að skipt- ar skoðanir hafa verið um hvort ráð- herra eigi að vera bundinn af umsögn slíkra dómnefnda, en með því mundi dómnefnd í raun ráða hverjir verði skipaðir dómarar. Ef ráðherra væri undantekningarlaust skylt að fara eftir áliti dómnefndar væri ábyrgðin á skipun dómara hjá stjórnvaldi sem er ekki ábyrgt gagnvart þinginu en slík tilhögun hefur sums staðar þótt orka tvímælis. Meirihlutinn tekur fram að með þeirri tilhögun sem samþykkt var með lögum á Alþingi um að ráðherra sé óheimilt að skipa í dómaraembætti mann sem dómefnd hefur ekki talið hæfastan meðal umsækjenda, nema Alþingi samþykki tillögu ráðherra um heimild til að skipa í embættið annan nafngreindan umsækjenda sem fullnægir að mati dómnefndar Ráðherra hafi fengið of lítinn tíma  Samhljómur í máli ráðherra og full- trúa minnihlutans í Landsréttarmálinu Morgunblaðið/Hanna Landsréttur Nýi dómstóllinn er við Vesturvör í Kópavogi. Áformað er að síðar verði hann í miðborg Reykjavíkur. Skipan dómara

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.