Morgunblaðið - 09.02.2018, Síða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2018
Sterkir í stálinu
Skipastál • Lunningajárn • Bakjárn
Kælirör • Fíber- og galvanhúðaðar ristar
Svört- og ryðfrí rör og fittings
Ál • Ryðfrítt stál • PVC plötur
POM öxlar • PE plötur
Lokar af ýmsum gerðum
Opið virka daga kl. 8-17
Skútuvogi 4, Rvk
Rauðhellu 2, Hafnarfirði
Sími 568 6844 | ga@ga.is | ga.is
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 n Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 n Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 n alnabaer.is
Stýrðu birtunni heima hjá þér
MYRKVA GLUGGATJÖLD
Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu
Íslensk framleiðsla eftir máli
Hringdu núna og bókaðu tíma í máltöku
OPIÐ: VIRKA DAGA FRÁ 10-18
alnabaer.is
9. febrúar 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 101.06 101.54 101.3
Sterlingspund 140.22 140.9 140.56
Kanadadalur 80.65 81.13 80.89
Dönsk króna 16.748 16.846 16.797
Norsk króna 12.878 12.954 12.916
Sænsk króna 12.64 12.714 12.677
Svissn. franki 107.44 108.04 107.74
Japanskt jen 0.9258 0.9312 0.9285
SDR 146.48 147.36 146.92
Evra 124.67 125.37 125.02
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 150.9288
Hrávöruverð
Gull 1311.05 ($/únsa)
Ál 2180.5 ($/tonn) LME
Hráolía 67.2 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Nefnd um skipu-
lag bankastarfsemi
á Íslandi, sem fjár-
mála- og efnahags-
ráðherra skipaði á
síðasta ári, telur að
skynsamlegt sé að
draga varnarlínu um
hvað fjárfestingar-
bankastarfsemi á
grunni beinnar og
óbeinnar stöðutöku
geti vaxið mikið hjá kerfislega mikilvægum
bönkum.
Nefndin hefur skilað skýrslu til ráðherra
en henni var falið að taka afstöðu til þess
hvort ástæða væri til að gera breytingar
á núverandi skipan mála og eftir atvikum
leggja fram tillögur. Í nefndinni sátu Frosti
Sigurjónsson, Hjördís Dröfn Vilhjálms-
dóttir, Sigrún Ragna Ólafsdóttir, Sigurður
B. Stefánsson og Guðjón Rúnarsson, sem
jafnframt var formaður.
Nefnd telur að tak-
marka eigi stöðutökur
Nefnd Vill tak-
marka stöðutökur.
STUTT
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Trésmiðja GKS, sem hefur um árabil
verið atkvæðamikil á innréttinga-
markaði hér á landi, hyggst gera sig
meira gildandi á einstaklingsmark-
aði síðar á árinu. Þó að GKS hafi selt
til einstaklinga í gegnum árin, þá
hefur fyrirtækið mest unnið með
verktökum og tekið þátt í fjölda
stórra verkefna með þeim. Þar má
nefna þrjár
blokkir í Skugga-
hverfinu, sem
innréttaðar eru í
hólf og gólf með
innréttingum frá
GKS, allar inn-
réttingar í núver-
andi uppbygg-
ingu í
Bryggjuhverfinu
í Grafarvogi, um
200 íbúðir, á ann-
að hundrað íbúðir í Urriðaholti og
um 200 íbúðir í fjölbýlishúsi Búseta í
Einholti og Þverholti. Þá er fyrir-
tækið með allar innréttingar í nýju
fjölbýlishúsunum sem eru í bygg-
ingu við Jaðarleiti, beint á móti Út-
varpshúsinu.
Samstarf við Nobilia frá 2016
Arnar Aðalgeirsson, fram-
kvæmdastjóri GKS, segir í samtali
við Morgunblaðið að auk þess að
framleiða eigin innréttingar, bæði
staðlaðar sem og sérsmíðaðar, allt
frá hurðum að bað- og eldhúsinnrétt-
ingum, þá hafi fyrirtækið byrjað að
vinna með þýska eldhúsinnréttinga-
risanum Nobilia fyrir tveimur árum,
en fyrirtækið er hið stærsta á sínu
sviði í Evrópu. „Innréttingarnar frá
þeim hafa slegið í gegn. Þær passa
mjög vel inn á íslenska markaðinn,
bæði fyrir verktaka og einstaklinga.
Vörulínan frá þeim er mjög breið,
gæðin mikil og verðið hagstætt, og
þær fara mjög vel með okkar eigin
framleiðslu,“ segir Arnar.
Í dag kl. 16 verður opnaður nýr
300 fermetra sýningarsalur GKS á
Funahöfða 19 að viðstöddum tveim-
ur fulltrúum frá Nobilia. „Þeir eru
spenntir að koma, enda trúa þeir
varla sölutölunum héðan,“ segir
Arnar og brosir.
Aukning á þessu ári
Hann segir að nýi sýningarsalur-
inn eigi eftir að nýtast vel. „Það vilja
allir þreifa á og skoða það sem þeir
eru að velta fyrir sér að kaupa. Það
er alltaf stór ákvörðun að kaupa nýja
innréttingu.“
Arnar segir að fyrirtækið hafi inn-
réttað um 500 íbúðir í fyrra og útlit
sé fyrir aukningu á þessu ári.
Stefna á einstak-
lingsmarkaðinn
Morgunblaðið/Eggert
Salur Eldhúsinnréttingar Nobilia prýða nýja sýningarsalinn.
Innréttingar
» Nobila framleiðir 3.000 eld-
húsinnréttingar á dag.
» Fyrsta Svansvottaða ein-
býlishús á Íslandi er með inn-
réttingar frá GKS.
» GKS er tilkomið með sam-
runa Gamla kompanísins,
Kristjáns Siggeirssonar, Stein-
ars stálhúsgagnagerðar og
Trésmiðjunnar Eldhúss og
baðs.
» 35 starfa hjá GKS.
Vinna með stærsta fyrirtæki Evrópu 500 íbúðir í fyrra
Arnar
Aðalgeirsson
Samkeppniseftirlitið hefur hafið
rannsókn á fyrirhugaðri gjaldtöku
ISAVIA af hópferðabílum á svoköll-
uðum ytri stæðum við flugstöðina á
Keflavíkurflugvelli, að því er fram
kemur í tilkynningu frá rútufyrir-
tækinu Gray Line. Upphaf málsins
má rekja til þess að Gray Line kærði
áform ISAVIA í janúar sl. Í tilkynn-
ingu Gray Line segir að frummat
Samkeppniseftirlitsins sýni að fyrir-
huguð gjaldtaka muni að óbreyttu
leiða til mikillar verðhækkunar á far-
þegaflutningum til og frá Keflavík-
urflugvelli.
Kæra Gray Line kom í kjölfarið á
því að Hópbílar og Kynnisferðir áttu
hagstæðari tilboð en Gray Line í
áætlunaraksturinn frá flugstöðinni,
og hefja þjónustu sína frá stæðunum
við flugstöðina 1. mars nk. Sama dag
á gjaldtaka af ytri stæðunum að hefj-
ast.
Guðjón Ármann Guðjónsson,
framkvæmdastjóri Hópbíla, undrast
rannsókn Samkeppniseftirlitsins og
segir í samtali við Morgunblaðið að
það sé sérstakt að eingöngu sé verið
að fjalla um gjaldtöku af ytri stæð-
unum en ekki heildargjaldtöku fyrir
aðstöðu rútubíla. Þannig sé Sam-
keppniseftirlitið, að hans sögn, að
taka upp mál fyrir aðila sem þarf ein-
göngu að greiða lítið hlutfall af því
sem Hópbílar og Kynnisferðir þurfa
að greiða en ætli sér samt að bjóða
svipaða þjónustu. Hann segir að með
þessu sé verið að skekkja samkeppn-
isstöðu Hópbíla og Kynnisferða sem
borgi mun hærri gjöld en Gray Line
fyrir sín stæði. „Þetta er svolítið sér-
stakt allt saman. Það er eins og það
sé ekki verið að horfa á heildar-
myndina, en Hópbílar og Kynnis-
ferðir þurfa að greiða mun hærri
gjöld til ISAVIA en Grayline mun
þurfa að gera á ytri stæðunum,“ seg-
ir Guðjón Ármann. tobj@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Stæði Gjaldið er 7.900 fyrir minni
bíla en 19.900 fyrir stærri bíla.
Rannsaka gjald-
töku ISAVIA
Segir sérstakt
að fjallað sé bara
um ytri stæðin