Morgunblaðið - 09.02.2018, Síða 20

Morgunblaðið - 09.02.2018, Síða 20
20 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2018 Vöðva eða liðverkir? Voltaren Gel er bæði verkjastillandi og bólgueyðandi Voltaren 11,6 mg/g hlaup. Inniheldur díklófenaktvíetýlamín. Staðbundnir bólgukvillar. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. 15% afsláttu r af 100g og 150 g Voltare n Gel www.apotekarinn.is - lægra verð Voltaren Gel - njótum þess að hreyfa okkur Galapagos-eyjar, sem tilheyra Ekvador í Suður-Ameríku, eru eftirsóttur ferðamannastaður enda er þar einstakt dýralíf. Stjórnvöld í Ekvador reyna að takmarka fjölda þeirra sem ferðast til eyjanna en á sama tíma hafa þau gripið til ráð- stafana til að laða erlenda ferða- menn til landsins. Ferðaþjónusta á heimsvísu óx um 7% á síðasta ári og hafa mörg lönd, þar á meðal Ísland, notið þess. Þeim hefur líka fjölgað sem heim- sækja Galapagos-eyjar. Á síðasta ári komu þangað um 245 þúsund ferðamenn og ríkisstjórn Ekvadors segir að eyjarnar þoli ekki meiri fjölda. „Galapagos-eyjar eru krúnu- djásnið og við verðum að vernda þær,“ segir Enrique Ponce de Leon, ferðamálaráðhera Ekvadors, við AFP-fréttastofuna. „Við verð- um að vera föst fyrir.“ Í Galapagos-eyjaklasanum, sem er um 1.000 km vestur af Ekvador, eru 19 stórar eyjar auk tuga smá- 200-700 þúsund króna á mann. Galapagos-eyjarnar voru gerðar að þjóðgarði árið 1959 og árið 1978 var eyjaklasinn skráður á heims- minjaskrá UNESCO. Nú búa þar um 26 þúsund manns. Þeir eru háð- ir vöruflutningum frá meginlandinu og lítið er um vatnsuppsprettur. Stjórnvöld reyna að tryggja að íbú- unum fjölgi ekki. Lögum samkvæmt eru Ekvador- búar frá meginlandinu flokkaðir sem útlendingar á Galapagos og til að fá dvalarleyfi á eyjunum verður fólk að hafa verið gift heimamanni í að minnsta kosti áratug. Stjórnvöld hafa lengi takmarkað byggingar- leyfi og hvatt íbúa til að nota endur- nýjanlega orkugjafa, svo sem sólar- orku og vindorku. Þá eru plast- pokar bannaðir á eyjunum. Efnahagsástandið í Ekvador hef- ur ekki verið upp á það besta að undanförnu vegna minnkandi tekna af olíu og skuldasöfnunar. Því horfa margir hýrum augum til ferðaþjón- ustu og stjórnvöld hafa gert ýmsar ráðstafanir til að laða þangað ferða- menn. Á síðasta ári fjölgaði erlend- um ferðamönnum um 14%, voru 1,6 milljónir talsins. Og margir þeirra vilja gjarnan skreppa til Galapagos. tegundanna. Nokkur lítil hótel eru á eyjunum og ferjur sigla á milli þeirra. Flug þangað frá Ekvador kostar jafnvirði um 40 þúsund króna og vikudvöl á hóteli jafnvirði eyja og skerja. Enski náttúrufræð- ingurinn Charles Darwin heimsótti eyjarnar á 19. öld og rannsóknir hans á dýralífinu þar urðu grund- völlur kenninga hans um uppruna Reynir á þanþol Galapagos-eyja  Stjórnvöld í Ekvador segja að eyjaklasinn þoli ekki fleiri ferðamenn en koma þangað nú AFP Sældarlíf Iguana-eðla sólar sig við hlið ferðamanna á strönd Tortugaflóa á Galapagos-eyjunni Santa Cruz. Hópur vísindamanna er nú við rannsóknarstörf í Dhofar-eyðimörkinni í Óman til að undirbúa hugsanlega mannaða geimferð til reikistjörn- unnar Mars. Vísindamennirnir, sem eru frá ýms- um löndum, eru þarna á vegum geimvísindaráðs Austurríkis og stjórnvalda í Óman. Þeir klæðast geimbúningum þrátt fyrir hitann og eru óneitan- lega sérkennileg sjón í ljósbrúnum eyðimerkur- sandinum. AFP Æft fyrir ferðalag til Mars Óman Það hefur færst mjög í vöxt í Dan- mörku að fjarlægja þurfi nýrna- steina úr börnum. Ástæðan er sögð óhollt mataræði og mikil neysla á gosdrykkjum og sælgæti. Rannsókn sem gerð var á vegum Sygehus Lillebælt sýnir að á síðasta ári voru nýrnasteinar fjarlægðir úr 61 barni en úr 12 árið 2014. „Þetta er vandamál. Nýrna- steinar eru mjög kvalafullir og þeir geta haft áhrif á nýrnastarfsemina til lengri tíma, jafnvel lífshættu- leg,“ segir Palle Osther, yfirlæknir á þvagfæraskurðdeild sjúkrahúss- ins í Vejle, við danska ríkis- útvarpið. Læknar á sjúkrahúsinu í Vejle eru þeir einu í Danmörku sem hafa leyfi til að fjarlægja nýrnasteina úr börnum undir 18 ára aldri því sér- stakan búnað og þekkingu þarf til að gera slíkar aðgerðir. Osther segir að meginástæður nýrnasteina í börnum séu tvenns konar. Annars vegar geti þeir tengst erfðum og hins vegar lífsstíl og mesta aukningin stafi af slæm- um neysluvenjum. Aukin neysla á sætindum og óhollu fæði auki einn- ig hættu á að börn fái sykursýki og háan blóðþrýsting. Nýrnastein- ar hrjá dönsk börn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.