Morgunblaðið - 09.02.2018, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 09.02.2018, Blaðsíða 21
FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2018 EXPLORE WITHOUT LIMITS ® ARCTIC TRUCKS ÍSLAND EHF. KLETTHÁLSI 3 110 REYKJAVÍK SÍMI: 540 4900 NETFANG: info@arctictrucks.is www.arctictrucks.is DEKKJAÞJÓNUSTA TÍMABÓKANIR Í SÍMA 540 4900 JEPPADEKK fyrir íslenskar aðstæður VÖNDUÐ OG HLJÓÐLÁT DEKK UNDIR FLESTAR GERÐIR JEPPA OG JEPPLINGA. 10% afsláttur 10% afsláttur af trúlofunar- og giftingarhringa- pörum CARAT Haukur gullsmiður | Hátúni 6a | Sími 577 7740 | carat.is Sendum frítt um allt land Skoðaðu úrvalið á carat.is Tugir almennra borgara létu lífið þegar sýrlenski stjórnarherinn gerði loftárásir í gærmorgun á svæði sem uppreisnarmenn ráða í Austur-Ghouta, skammt austur af Damaskus, höfuðborg Sýrlands. Var þetta fjórði dagurinn í röð sem stjórnarherinn gerði loftárásir á svæðið. Að minnsta kosti 36 létu lífið í árásunum í gær, að sögn sýr- lenskra mannréttindasamtaka. Hafa þá alls 185 óbreyttir borgarar látið lífið í loftárásunum frá því á mánudag. Frá því að síðasta hrina átaka í Sýrlandi hófst hefur stjórnarherinn verið sakaður um að beita efna- vopnum, m.a. í Austur-Ghouta, sem hefur verið í herkví hersins mán- uðum saman. Árás á herflokka Þá gerði hernaðarbandalag undir forystu Bandaríkjamanna árásir á miðvikudag á vopnaða hópa hlið- holla Sýrlandsstjórn. Bandarískir embættismenn segja að árásirnar hafi verið gerðar eftir að vopnaðar sveitir réðust á olíu- og gaslindir við Khasham í Deir Ezzor-héraði sem er undir yfirráðum Kúrda. Bandaríkjamenn segja að um 100 stríðsmenn hafi látið lífið í þessum árásum. Tyrknesk stjórnvöld tilkynntu í gær að þau myndu boða til fundar með Rússum og Írönum um leiðir til að reyna að binda enda á átökin í landinu. Að minnsta kosti 340 þús- und manns hafa látið lífið þar frá árinu 2011 og milljónir hrakist frá heimilum sínum. Mikið mann- fall í Sýrlandi  Loftárásir fjórða daginn í röð AFP Á flótta Sýrlendingar á flótta undan loftárásum sem gerðar voru á borgina Jisreen skammt frá Damaskus, höfuðborg Sýrlands, á miðvikudag. ÍRAK TYRKLAND JÓRDANÍA LÍ B. 50 km DAMASKUS SÝRLAND Deir Ezzor Aleppo Khasham Bandaríski samskiptavefurinn Twitter tilkynnti í gær að hagnaður hefði orðið af rekstrinum á síðasta fjórðungi ársins 2017. Er það í fyrsta skipti frá því Twitter fór á hluta- bréfamarkað árið 2013 sem rekst- urinn skilar hagnaði. Twitter, sem er með höfuðstöðvar í San Francisco í Kaliforníu, skilaði 91 milljónar dala hagnaði á síðustu þremur mánuðum ársins, jafnvirði 9,3 milljarða króna. Tekjur námu 732 milljónum dala, jafnvirði 75 milljarða króna. Gengi hlutabréfa Twitter hækkaði við þessar fréttir um 26% í upphafi viðskipta á banda- rískum hlutabréfamörkuðum í gær. Twitter hefur tapað miklu fé frá því fyrirtækið var skráð á markað. Þótt fjöldi þekkts fólks, stjórnmála- manna og blaðamanna nýti sér þennan samskiptavef til að koma á framfæri fréttum og skoðunum hef- ur Twitter ekki náð viðlíka út- breiðslu meðal almennings og t.d. Facebook. Hagnaður hjá Twitter í fyrsta skipti frá 2013 AFP Twitter Um 330 milljónir manna nota Twitter að jafnaði á mánuði. Stjórnvöld í Íran boðuðu sendiherra Suður-Kóreu í Teheran á sinn fund í gær til að mótmæla því, sem þau sögðu vera óheiðarlega framkomu suðurkóreska raftækjaframleiðand- ans Samsung. XXIII. vetrarólympíuleikarnir verða settir í Pyeongchang í Suður- Kóreu í dag. Allir þeir sem keppa á leikunum fá sérstaka ólympíuútgáfu af Galaxy Notes 8-síma frá Samsung að gjöf, nema keppendur frá Norður- Kóreu og Íran. Sagði talsmaður fram- kvæmdastjórnar leikanna við AFP- fréttastofuna að ástæðan væri við- skiptaþvinganir sem Sameinuðu þjóð- irnar hafa gripið til gagnvart þessum tveimur þjóðum. Ekki var ljóst hvort stjórnendur Samsung eða stjórnvöld í Suður-Kóreu hefðu tekið þessa ákvörðun. Í bága við ólympíuandann Opinber fréttastofa Írans sagði að Kim Seung-Ho, sendiherra Suður- Kóreu í Íran, hefði verið kallaður í ut- anríkisráðuneytið í gær og honum af- hent formleg mótmæli vegna þessa. Sagði fréttastofan að um væri að ræða óheiðarlega framkomu sem væri í andstöðu við anda Ólympíuleik- anna. Bæðist Samsung ekki afsökun- ar myndi málið hafa mikil áhrif á sam- skipti Samsung Group og Lýðveldisins Írans. Vörur frá Sam- sung eru nokkuð áberandi í Íran. Flestum alþjóðlegum viðskipta- þvingunum gagnvart Íran var aflétt árið 2015 eftir að þarlend stjórnvöld gerðu samning við vesturveldin um að hægja verulega á kjarnorkuáætlun sinni. Enn eru þó í gildi takmarkanir á viðskiptum með vopn og tækni. Íran sendir fjóra keppendur á leik- ana í Pyeongchang. Deilt um farsíma á Ólympíuleikum  Íþróttamenn frá Norður-Kóreu og Íran fá ekki síma AFP ÓL-hringir Ólympíumerkið á keppn- issvæðinu í Pyeongchang í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.