Morgunblaðið - 09.02.2018, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 09.02.2018, Qupperneq 23
23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2018 Glaðar Stúlkur festa augnablikið á mynd nálægt Sólfarinu, listaverkinu við Sæbraut, með borgina við sundin blá í bakgrunni. Eggert Ögmundur Jónas- son, fyrrv. ráðherra, hafði á dögunum frum- kvæði að komu Zoe Konstantopoulou, fyrr- verandi forseta gríska þingsins, og Diamantis Karanastasis leikstjóra til að kynna málstað Grikkja. Skuldafjötr- arnir sem lagðir voru á þá eftir fjármálakrepp- una haustið 2008 hafa ekki linast. Hádegisfundur með Grikkjunum í Safnahúsinu við Hverfisgötu laug- ardaginn 3. febrúar var fjölsóttur. Zoe Konstantopoulou, gagn- menntaður lögfræðingur, gekk til liðs við Alexis Tsipras og vinstri- sinnuðu Syriza-hreyfinguna og var kjörin á þing árið 2012. Hún helgaði sig mannréttindamálum og vænti þess að verða dómsmálaráðherra þegar Tsipras myndaði stjórn eftir kosningasigur snemma árs 2015. Hún var þess í stað kjörin þing- forseti og sat á forsetastóli þar til síðsumars 2015. Þá sagði hún skilið við Tsipras vegna andstöðu hans við niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu sem hann boðaði til að fá stuðning þjóðarinnar við yfirlýsta stefnu sína um að losa hana undan klafa neyð- arlána þríeykisins: Seðlabanka evr- unnar, framkvæmdastjórnar ESB og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Zoe Konstantopoulou flytur mál sitt tæpitungulaust. Þegar hún var spurð um kúvendingu Tsipras og stuðning hans við lánardrottnana þrátt fyrir úrslit þjóðaratkvæða- greiðslunnar svaraði hún með einu orði: Völd. Til að halda völdum varð hann að fara að vilja þríeykisins. Hún var spurð hvort hún berðist fyrir úr- sögn Grikkja úr ESB að fordæmi Breta. Sagði hún það ekki koma til greina. Bretar vildu semja við ESB. Grikkir gætu aldrei sest að samningaborði með kúgurum sínum. Til að losna undan al- ræði ESB yrðu Grikkir að berjast fyrir frelsi sínu. Hún sagði að með því að ganga að kröfum þríeykisins hefðu grískir ráðamenn ritað undir dauðadóm yfir eigin þjóð. Honum yrði að rifta. Zoe Konstantopoulou flutti skýr rök fyrir máli sínu að hætti lögfræð- inga. Gagnrýni hennar í garð grískra ráðamanna og Evrópusam- bandsins er mjög þung. Hún er nú í forystu fyrir nýjum stjórnmála- flokki: Leið til frelsis. Hún beitir öll- um ráðum til að afla málstað sínum fylgis jafnt innan Grikklands sem utan. Í því skyni stjórnar Diamantis Karanastasis til dæmis nú nýrri frjálsri sjónvarpsstöð til að færa Grikkjum óritskoðaðar innlendar og erlendar fréttir. Þau sögðu alræðið setja miðlun frétta og skoðana skorður. Sannleiksnefnd um skuldir Zoe Konstantopoulou vék í ræðu sinni oft að 30 manna alþjóðlegri nefnd sem hún beitti sér fyrir að var skipuð í febrúar 2015 til að rannsaka eðli skuldakreppu Grikkja. Á ensku bar hún heitið Greek Debt Truth Commission – Sannleiksnefnd um grískar skuldir. Markmiðið var að sannreyna fyrir gríska þingið og rík- isstjórn hvort þríkeykið hefði beitt lögmætum aðferðum við skuldsetn- ingu grísku þjóðarinnar. Lauk nefndin störfum á tveimur mán- uðum en Tsipras og félagar gerðu ekkert með niðurstöðurnar. Nýlega birtist á netinu viðtal eftir Michael Nevradakis við Éric Touss- aint, fræðilegan stjórnanda nefnd- arinnar. Hann segir að markmið þríeykisins hafi verið að bjarga er- lendum og innlendum bönkum frá gjaldþroti með því að færa skuldir þeirra yfir á gríska skattgreiðendur. Þar hafi hagsmunir bankanna ráðið en ekki almennings sem hafi verið neyddur til að ábyrgjast greiðslu nýrra lána með skilyrðum sem brutu gegn alþjóðasamningum um efna- hagsleg, félagsleg, menningarleg, borgaraleg og stjórnmálaleg rétt- indi. Þríeykinu hafi verið þetta ljóst frá upphafi því að það hafi gefið grískum stjórnvöldum fyrirmæli um breytingar á lögum, nýja lagasetn- ingu, niðurskurð lífeyrisréttinda og einkavæðingu. Þríeykið hafi ekki verið samverkamaður heldur stjórn- andi aðgerða – hvatamaður lög- brota. Niðurstaða Toussaints er að gríska ríkisstjórnin hafi fullan rétt til að fresta að greiða skuldina, efast um réttmæti hennar og hafna greiðslu á ólögmætum hluta hennar. Rúmlega 90% af neyðarlánunum til Grikkja hafi farið út úr Grikklandi til að gera upp við einkabanka og opinbera lánveitendur eða til að bjarga grískum bönkum. Innan við 10% nýttist til létta undir með gríska ríkinu á fjárlögum. Toussaint segir að grípa verði til aðgerða vegna grískra skuldabréfa í Seðlabanka evrunnar (SE). Bankinn keypti þessi skuldabréf árin 2010, 2011 og 2012 með 30% afföllum. Síð- an voru grísku skuldabréfin niður- skrifuð árið 2012 en SE neitaði aðild að þeirri aðgerð. Nú krefst SE end- urgreiðslu bréfanna á nafnverði auk hárra vaxta, 6,5%. Á sama tíma hef- ur SE lánað einkabönkum fé vaxta- laust. Skuldabréfin lúta grískri lög- gjöf og því getur gríska þingið, að mati Toussaints, ákveðið að niður- skrifa bréfin um 50 til 80% með þeim rökum að fé skorti í þágu grísks al- mennings. Toussaint telur víst að yrði þessi leið farin yrðu Grikkir úthrópaðir sem aldrei fyrr. Ástæðulaust sé að kippa sér upp við það. Þeir hafi sætt stöðugum ádrepum undanfarin sjö ár, sagðir „latir“ og „óskilamenn“ vegna skatta. Með vísan til fjárhags- mála sé varla unnt að valda grísku þjóðinni meiri sársauka en gert hafi verið. Deilan vegna Makedóníu Undir lok ræðu sinnar í Safnahús- inu vék Zoe Konstantopoulou að úti- fundi og mótmælum sem voru boðuð sunnudaginn 4. febrúar á Syntagma- torgi við þinghúsið í Aþenu til að mótmæla að nágrannaríki Grikk- lands beri heitið Makedónía. Margir Grikkir eru þeirrar skoðunar að með þessu vakni kröfur um að héraðið Makedónía í Grikklandi verði tekið undan grískum yfirráðum. Deilan um heitið á nágranna- ríkinu hefur áratugum saman snert þjóðerniskennd Grikkja og árið 1992 söfnuðust meira en milljón manns saman á fundi í Þessalóníku, höfuð- borg hins gríska Makedóníuhéraðs, til að mótmæla boðaðri málamiðlun sem fól í sér ríkjaheitið: Lýðveldið Makedónía. Þetta leiddi til stjórnar- kreppu í Aþenu. Forsætisráðherra íhaldsmanna, Konstantinos Mitso- takis, leysti harðlínumanninn og ut- anríkisráðherrann, Antonis Sam- aras, frá embætti en varð síðan að segja af sér sjálfur. Samaras, sem síðar varð forsætisráðherra, tók þátt í mótmælunum 4. febrúar. Lögregla telur að þar hafi verið um 140.000 manns. Í ræðu sinni setti Zoe Konstant- opoulou mótmælafundinn 4. febrúar í stærra samhengi, hann snerti ekki aðeins Makedóníumálið heldur kynni að verða upphaf að baráttu al- mennings gegn ríkisstjórninni sem leiddi til afsagnar hennar eins og varð 1992. Vonir stóðu til að jafnvel fleiri sæktu þennan mótmælafund nú en í Þessalóníku árið 1992. Þá hafði aldrei verið haldinn fjölmenn- ari andstöðufundur í Grikklandi frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar. Stendur það met enn þann dag í dag. Alexis Tsipras forsætisráðherra hrósaði sigri eftir mótmælin í Aþenu og sagði í yfirlýsingu: „Það reyndist óskhyggja hjá skipuleggjendum að ímynda sér að þeir fengju milljón mótmælendur. Yfirgnæfandi meiri- hluti Grikkja telur að öfgar eigi ekki að ráða við úrlausn utanríkismála.“ Hvort þetta sé upphaf endaloka hjá Tsipras og stjórn hans eða enda- loka baráttu Zoe Konstantopoulou og félaga gegn honum og ESB- valdinu kemur í ljós. Eftir Björn Bjarnason »Markmið þríeykisins að bjarga erlendum og innlendum bönkum frá gjaldþroti með því að færa skuldir þeirra yfir á gríska skattgreið- endur. Björn Bjarnason Höfundur er fyrrv. ráðherra. Skuldafjötrarnir hvíla enn á Grikkjum Þeir sem hafa tekið til máls að undanförnu um skip- an dómara virðast hafa verið sammála um að velja beri hæfasta umsækjandann. Hæfni manna til að gegna dómarastöðu er metin á grundvelli einstak- lingsbundinnar hæfni. Við skoðum feril þeirra og verk og leggjum mat á hæfni þeirra. Margir þeirra sem tjá sig telja aðra reglu gilda auk reglunnar um hæfni. Sú regla kveður á um að kynja- hlutföll dómara í fjölskipuðum dómstól skuli vera sem næst jöfn. Þeir virðast sumir telja að þetta sjónarmið eigi að víkja fyrrnefndu reglunni um einstaklings- bundna hæfni til hliðar. Öllum ætti að vera ljóst að síðari reglan gerir upp á milli manna eftir kynferði þeirra. Hún mælir nefni- lega fyrir um að hæfari einstaklingur kunni að þurfa að víkja fyrir öðrum, sem ekki er jafn hæfur, ef sá síð- arnefndi er af því kyni sem þarf til að ná jafnvægi milli kynjanna í fjölda dómaranna við hinn fjölskipaða dómstól. Sjálf stjórnarskráin segir að síðari reglan sé óheim- il. Kveðið er á um þetta í 65. gr., þar sem segir: „Allir skulu vera jafnir fyrir lögum og njóta mann- réttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti. Konur og karlar skulu njóta jafns réttar í hví- vetna.“ (leturbr. mínar) Þegar karl er tekinn fram yfir konu við val milli umsækjenda um dómarastöðu í þeim eina tilgangi að jafna fjölda dómara eftir kynferði, jafnvel þó að konan teljist hæfari til starfsins, er verið að brjóta gegn hinni stjórnarskrárbundnu reglu um jafnrétti kynjanna. Mér er ekki grunlaust um að fyrir hafi komið að ósanngirni hafi stundum verið beitt í hæfnismati í þeim tilgangi að jafna stöðu kynjanna við þá stofnun sem um ræðir. Þetta er þá gert án þess að hafa orð á því. Það getur ekki verið heimilt. Skondið en ekki mjög skemmtilegt. Jón Steinar Gunnlaugsson Tvær reglur sem kunna að rekast á Höfundur er lögmaður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.