Morgunblaðið - 09.02.2018, Side 27

Morgunblaðið - 09.02.2018, Side 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2018 ✝ Jón MarvinGuðmundsson, kennari í Laugar- nesskóla og ham- skeri, fæddist á Húnstöðum í Fljót- um 2. september 1922. Hann and- aðist á Droplaug- arstöðum 28. jan- úar 2018. Eftirlifandi eig- inkona hans er Margrét Sæmundsdóttir. Þeirra heimili hefur verið Helluland 22 í Fossvogi frá 1969. Foreldrar Jóns voru Sigur- björg Stefanía Hjörleifsdóttir, f. 10. mars 1898, í Svarfaðardal, d. 22. október 1975, og Guðmund- ur Guðmundsson, f. 29. ágúst 1886 að Hákoti í Fljótum, d. 11. febrúar 1966. Börn þeirra eru: 1) Sigurrós, f. 21. febrúar 1919, d. 5. maí sama ár. 2) Haraldur Ingvar, f. 28. apríl 1920, d. 17. júní 2001. 3) Sigurrós Lára, f. 16. júlí 1921, d. 15. desember 2012. 4) Jón Mar- vin, f. 2. september 1922, d. 28. janúar 2018. 5) Leifey Rósa, f. 18. apríl 1924, d. 1. apríl 1970. 6) Guðmundur, f. 27. maí 1925, d. 15. nóvember 2005. 7) Anna Freyja, f. 18. október 1926, d. 7. júlí 2013. 8) Hjörleifur Bjarki, f. varð uppstoppun hans aðalstarf og áhugamál. Hann var íþrótta- maður góður en aðallega lagði hann stund á fimleika. Hann var mikill náttúrunnandi og áhuga- maður um skot- og stangveiði. Einnig var hann mikill skák- áhugamaður. Jón kvæntist hinn 1. júní 1963 Margéti Sæmundsdóttur, dóttur hjónanna Sæmundar Sæmunds- sonar frá Lækjarbotnum og Helgu Fjólu Pálsdóttur úr Reykjavík. Börn Jóns eru: 1) Sif, f. 16. nóvember 1960, hún er dóttir Laufeyjar sem lést 10. nóv- ember 2012. Sambýlismaður hennar er Jón Arnar Sigurjóns- son. Börn Sifjar eru Clara Vif og Tandri og eru barnabörn henn- ar þrjú. 2) Guðmundur, f. 5. des- ember 1963. Sambýliskona hans er Jenny Margaretha Johans- son. Börn Guðmundar eru Guð- mundur Gunnar, Glódís Mar- grét, Ísabella og Gabríella. Barnabörn hans eru fjögur. 3) Sæmundur, f. 5. desember 1963. Eiginkona hans er Guðlaug Kristinsdóttir. Börn þeirra eru Margét, Hrefna, Sigríður Theo- dóra, Kristinn og Sigurður Mar- vin. 4) Páll Marvin, f. 11. októ- ber 1966. Eiginkona hans er Eva Sigurbjörg Káradóttir. Synir þeirra eru Jón Marvin og Valur Marvin. Útför Jóns fer fram frá Bústaðakirkju í dag, 9. febrúar 2018, og hefst athöfnin kl. 11. Jarðsett verður í Skarðskirkju- garði í Landsveit. 14. september 1928, d. 10. janúar 2010. 9) Guðrún Hulda, f. 22. júlí 1930, d. 15.júní 2014. 10) Gestur, f. 21. október 1931. 11) Ragnar, f. 16 desember 1933, d. 16. september 1980. 12) Snjólaug Birna, f. 13 apríl 1936. 13) Vilhelm Jónatan, f. 8 desember 1937, d. 6. október 2013. 14) Aðalheiður, f. 21. júlí 1940. Vorið 1928 fluttist fjölskyldan frá Húnstöðum í Fljótum að Gullbringu í Svarfaðardal og ólst Jón Marvin, þar upp í fjöl- mennum systkinahóp og var oft- ast kallaður Nonni. Fjölskyldan bjó í Gullbringu til ársins 1947 er hún fluttist að Karlsá á Ufsa- strönd sem er um 3 km norðan við Dalvík. Jón Marvin stundaði nám í Íþróttakennaraskólanum á Laugarvatni og einnig lauk hann prófi frá Handíða- og myndlistaskólanum í Reykjavík. Síðar lærði hann uppstoppun í Malmö Museum í Svíþjóð. Jón starfaði sem íþrótta- og hand- menntakennari í Laugarnes- skóla til ársins 1983 en eftir það Elsku pabbi minn. Í dag kveð ég þig í hinsta sinn með söknuði, en ég veit að þú ert hvíldinni feg- inn. Líkaminn var búinn að missa sinn styrk og þú gast ekki verið lengur heima þar sem þér leið best, í Hellulandinu. Við erum bú- in að eiga góðar stundir saman, sérstaklega síðustu tvö ár þar sem borðuðum reglulega saman og fórum í göngutúra í Fossvogs- dalnum þegar þér leið ekki vel að fara einn. Að geta búið heima hjá sér til tæplega 95 ára aldurs eru forrétt- indi og pabbi naut þess. En í sum- ar fór hjartað að gefa sig og við greiningu í haust kom í ljós að ekkert var hægt að gera. Hann tók öllu með einstakri ró og vildi aldrei láta hafa fyrir sér, en ást og væntumþykja skein í gegn í öllum okkar samskiptum. Hann talaði oft um Svarfaðardal þar sem hann fæddist og hugurinn leitaði oft norður síðustu ár að Gullbringu og að Karlsá. Þá sagði hann mér frá því þegar hann byrjaði að kenna sund í Sundskála Svarfdæla 17 ára að aldri en kennsla varð svo hans ævistarf ásamt því að vera með eigin rekstur sem hamskeri. Fjöl- skyldan var mikilvæg og var pabbi alltaf til staðar. Hann naut þess að dvelja í sumarbústaðnum og hann elskaði að veiða. Ég elska þig, pabbi. Sif. Þegar ég kynntist Jóni tengda- föður mínum fyrir 25 árum var hann kominn á eftirlaun frá kenn- arastörfum en þó þekki ég engan sem vann eins mikið og hann. Frá því snemma á morgnana þar til seint á kvöldin var hann í vinnu- herberginu sínu við að stoppa upp dýr af öllum tegundum, stór og smá. Vissulega kom hann fram öðru hverju til að fá sér kaffibolla og leggja einn kapal eða svo en aldrei mátti hann vera að því að stoppa lengi. Hið sama má segja um það þegar hann brá sér að heiman, hann mátti aldrei vera að því að stoppa, hann þurfti að flýta sér heim að vinna. Geymslan þar sem hann geymdi öll uppstoppuðu dýrin var mikill ævintýraheimur fyrir börnin okkar Sæma, sem yf- irleitt voru ekki fyrr komin inn um dyrnar á Hellulandinu en þau báðu afa að sýna sér dýrin og allt- af gerði hann það með glöðu geði og mikilli þolinmæði. Jón var stoltur af börnunum sínum og afkomendunum öllum. Hann fylgdist með og sýndi áhuga á því sem barnabörnin sýsluðu í tómstundum og reglulega spurði hann þau út í skólagöngu þeirra. Jón var góður og hlýlegur mað- ur, ekki margorður en hugsaði þeim mun meira. Ég hafði alltaf gaman af því hvernig hann datt stundum út úr umræðunum af því að hann var eitthvað að hugsa og spá í umræðuefnið og datt svo inn aftur með einhverjar pælingar sem komu eins og þruma úr heið- skíru lofti því að samræður hóps- ins höfðu þá leiðst út í einhverja allt aðra sálma. Frá því ég hitti hann fyrst vildi hann alltaf ólmur gefa mér kaffi og alltaf kom hann jafnmikið af fjöllum þegar Magga tilkynnti honum (með tímanum með óþol- inmæði) að ég drykki ekki kaffi. Þó bar svo við fyrir u.þ.b. tveimur til þremur árum, þegar alzheim- ersjúkdómurinn var farinn að herja á hann, að ég kom við í Hellulandinu og hann spurði auð- vitað hvort ég vildi kaffi, en áður en ég náði að svara sagði hann: „Nei, þú drekkur víst ekki kaffi!“ Elsku Jón. Það er erfitt að kveðja en það er þó huggun að vita að þú lifðir ekki bara löngu en líka innihaldsríku og góðu lífi og lengst af heilsuhraustur, umvafinn fólki sem þótti innilega vænt um þig. Þín tengdadóttir, Guðlaug Kristinsdóttir. Tengdapabbi er nú horfinn á braut á 96. aldursári. Þó svo að síðustu tvö ár hafi heilsu hans hrakað smátt og smátt og hvíldin honum orðin kærkomin þá er allt- af sárt að kveðja og erfitt að skilja við þennan góða mann. Þó að það sé alltaf sárt að kveðja verður maður að þakka fyrir árin þó svo að síðustu tvö ár hafi smátt og smátt farið að halla undan fæti. Jón tengdapabbi byrjaði tiltölu- lega seint að eignast börn, held að allir séu sammála sem til þekktu að hann var ekkert að æsa sig yfir hlutunum þótt oft hafi mikið geng- ið á í Hellulandi hjá drengjunum hans þremur. Hann var ávallt heilsuhraustur og það kom ekki að sök. Hann hélt sér ávallt í fanta- formi, gekk á höndum á sjötugs- aldri ef svo bar undir, synti og fór í reglulega göngur, gekk fram á síð- ustu ár, en var hann var mikill íþróttamaður og áhugamaður um allar íþróttir, var í fimleikasýn- ingaflokki sem sýndi m.a. á Norð- urlöndum, íþróttakennari þar sem hann byrjaði þann feril sem sund- kennari í Sundskála Svarfdæla. Ég var svo heppin að fá að fara með honum nokkrar ferðir norður en síðustu ferð fórum við þegar hann var 93 ára. Alltaf gat hann þulið upp alla bæi í Svarfaðardal þegar við keyrðum hringinn og hverjir bjuggu á hvaða bæ. Hann rifjaði m.a. upp þegar hann við annan dreng gekk í Fljót- in úr Svarfaðardal til að fara að vinna við Skeiðsfossvirkjun, en þá var hann unglingspiltur, eða þeg- ar fjölskyldan flutti úr Fljótunum og gekk til Ólafsfjarðar þegar hann var 6 ára og tók þaðan bát yf- ir á Dalvík. Þessar sögur hans voru ekki bara skemmtilegar og fræðandi heldur líka minntu mann á þvílíkar breytingar hann og hans kynslóð hefur upplifað. Hann var mikill útivistarmaður og elskaði að veiða með tengda- pabba sínum, Sæmundi Sæ- mundssyni, og strákunum sínum en Veiðivatnaferðir voru árlegir viðburðir sem beðið var með eft- irvæntingu eftir og rennt í allar ár sem fyrir voru á ferðalögum. Hann fylgdist með barnabörn- unum af miklum áhuga og þau áttu alltaf hauk í horni þar sem hægt var að ganga að honum vís- um á sínum stað að stoppa upp nú síðustu árin. Jón var hæglátur og traustur maður og börnunum sín- um var hann góð fyrirmynd. Ég kveð tengdapabba með miklum söknuði og minnist hans með mik- illi virðingu og hlýju enda góður maður og heilsteyptur. Eva S. Káradóttir. Elsku afi okkar gerði ávallt allt sem hann gat fyrir fjölskyldu sína og bjóst aldrei við neinu til baka. Hann var klár og góður maður. Þegar við lítum aftur í tímann koma helst upp í hugann öll upp- stoppuðu dýrin hans. Við munum eftir því hvað það var alltaf mikið ævintýri að koma og kíkja á safnið hans afa og sjá hvaða nýju og skrýtnu og skemmtilegu dýr voru þar. Afi hefur lifað löngu og góðu lífi þar sem hann var elskaður af öllu hjarta. Guð geymi þig, elsku afi. Þín verður sárt saknað. Margrét, Hrefna, Sigríður Theodóra, Kristinn og Sigurður Marvin. Í dag fylgjum við Jóni afa okkar í hinsta sinn. Maður fárra orða, en ávallt hnyttinn og hlýr. Vandvirk- ur blíður maður með nákvæmt auga. Það var ævintýraheimur fyrir okkur systkinin að sjá hvern- ig honum tókst að gefa dýrunum líf aftur, sýna okkur aðferðina og kenna okkur nöfnin á dýrunum. Það var alltaf gott að koma í Hellulandið til ömmu og afa, frost- pinnar í frystinum, síðan seinna meir kaffi á könnunni og meðlæti með góðu spjalli. Afi tók vel á móti strákunum mínum síðasta sumar þegar við komum í heimsókn. Þetta eru orkumiklir strákar sagði hann glaður í bragði, enda vanur maður. Takk fyrir að vera fasti punkt- urinn í lífi okkar, takk fyrir þolin- mæðina og stöðugleikann. Takk fyrir ævintýraheiminn sem var vinnustofa þín full af dýrum. Takk fyrir samfylgdina. Þín Clara Víf og Tandri. Mig langar í örfáum orðum að minnast Jóns M. Guðmundssonar, Jóns hennar Möggu, eins og hann var yfirleitt kallaður innan fjöl- skyldunnar. Ég var 6 ára gömul þegar ég hitti hann fyrst og verð að játa það á mig að ekki leist mér vel á kappann í fyrstu, mættur í sveitina með minni uppáhalds- frænku, þau búin að gifta sig og Magga ófrísk að tvíburunum. Mér fannst hreinlega þessi maður hafa tekið bestu frænkuna mína frá mér. En, fljótt breyttist sú skoðun mín. Það var mikill kærleikur og samgangur milli heimila systr- anna, mömmu og Möggu og marg- ar ferðirnar komu þau heim að Skarði og þegar sveitafólkið fór til Reykjavíkur var alltaf komið til Jóns og Möggu. Þegar kom að því að ég færi í skóla til Reykjavíkur kom aldrei annað til greina en ég yrði hjá þeim í Hellulandinu. Þá var ég svo sannarlega búin að kynnast Jóni sem kærleiksríkum föður, kvik- myndatökumanninum sem ávallt var með upptökuvélina í gangi og fangaði augnablikið, sérstaklega á yngri árum strákanna, málarans sem málaði húsin í Skarði, Skarðs- kirkju og fleira. Þegar ég kom til fyrstu vetr- ardvalar hjá þeim kynnist ég Jóni enn betur, orðin unglingur að fara í gagnfræðaskóla. Þá sá ég heim- ilisföðurinn sem vakti alla og kom í skólann, gekk nú misjafnlega að ná fólkinu á fætur en aldrei man ég eftir að hann hækkaði róminn, hækkaði frekar í útvarpinu og tók jafnvel undir sjálfur og fannst manni músíkin heldur gamaldags, en hún þjónaði tilgangi sínum og rak mann á fætur. Alltaf keyrði Jón sitt fólk í skólann áður en hann fór sjálfur til kennslu. Kynntist ég einnig hamskeranum Jóni sem stoppaði upp hvert dýrið af öðru og var það svo vel gert að eftir var tekið. Listamanninum Jóni og er mér sérstaklega minni- stætt steinlistaverkið sem hann gerði í stofunni þeirra. Oft minnast synir mínir allra heimsóknanna í Hellulandið og eru þær þeim dýrmætar minning- ar. Í þau örfáu skipti sem ekki hafði gefist tími til að koma við í Hellulandinu áður en haldið var aftur af stað austur, þá spurðu þeir: – „Vorum við ekki að fara til Reykjavíkur?“ Þó að Jón hafi aldrei farið hátt, þá hef ég ekki, að öllum ólöstuð- um, kynnst duglegri og iðnari manni. Ég vil að leiðarlokum þakka mínum aldna vini góð kynni og allt sem hann hefur gert fyrir mig og mína. Ég bið Guð að varðveita Möggu móðursystur mína og fjölskylduna alla. Blessuð sé minning Jóns. Helga Fjóla Guðnadóttir, Skarði. Látinn er í hárri elli nágranni minn í hartnær hálfa öld, Jón Marvin Guðmundsson. Leiðir okkar lágu saman við byggingu raðhúss okkar í Fossvoginum á sínum tíma. Við frekari kynni kom fram að báðir vorum við Norð- lendingar og kennarar. Jón var íþrótta- og handmenntakennari við Laugarnesskólann í Reykja- vík. Hann var farsæll og vel met- inn kennari af nemendum sínum, foreldrum og samkennurum, enda var hann léttur í lund, gamansam- ur og hjálplegur. Jón hafði lært hamskurð á sínum yngri árum við Málmeyjarsafnið í Svíþjóð. Með- fram kennslunni vann hann að uppstoppun á fuglum og öðrum dýrum. Var hann löngum talinn einn besti hamskeri landsins. Eiga mörg söfn uppstoppuð dýr frá honum. Jón var einn af betri skákmönn- um meðal kennara á Reykjavík- ursvæðinu. Kom hann oft á ská- kæfingar kennara og margir skákmenn sóttu hann heim til æf- inga og skemmtunar. Eftir að kennsluferlinum lauk vann Jón á verkstæði sínu heima. Þá stundaði hann tíðar gönguferð- ir, oft allt að þrjár á dag. Var gengið um Fossvogsdalinn og oft upp í Kópavog. Hann var léttur á fæti, teinréttur og bar sig vel. Var oft gaman að fylgja honum smá spöl og spjalla. Nú er göngunni lokið auk nokk- urra mánaða á sjúkraheimilum. Eftir stendur minning um góðan og heilsteyptan mann. Varla er hægt að hugsa sér betri nágranna en Jón og hans góðu konu, Mar- gréti Sæmundsdóttur. Margréti og börnum þeirra og öðrum að- standendum vottum við hjónin hluttekningu á þessum erfiðu tímamótum. Karen og Þorvaldur. Hann afi gamli, oftar en ekki kallaður Jón eða Jón Marvin, hef- ur einmitt alltaf verið það í minn- ingunni, það er að segja gamall. Þegar við bræður fæðumst er hann 70 og 74 ára og í okkar fyrstu minningum um hann er hann auð- vitað ennþá eldri en það. Fyrstu minningar okkar bræðra af honum eru þar sem hann stendur með veiðistöng í hendi og sixpensara á hausnum, en hann var veiðimaður góður sem sýndi bráðinni alltaf mikla virð- ingu sem líklega má rekja til þess að hann var uppstoppari mikill og eru örfáar tegundir á landinu og þótt víðar væri leitað sem ekki hafa haft fulltrúa undir hans hnífi, þar má telja flestar tegundir fugla, fiska og spendýra, þ.m.t. fjöldann allan af húsdýrum. Merkilegustu afrek hans í þeim geira eru samt líklegast hestur og ísbjörn sem honum tókst einhvern veginn að púsla saman af einstakri nákvæmni, geri aðrir betur. Þegar ferð mín lá til ömmu og afa í Hellu- landinu var hann oftar en ekki inni á verkstæði sínu að stoppa upp eitthvert furðudýrið sem hafði „flogið á rafmagnsgirðingu“ eða orðið veiðimanni að bráð. Í Hellu- landinu var hann með tvö her- bergi til þessara athafna; eitt þar sem aðgerðin sjálf fór fram og hitt sem hýsti gripina áður en þeim var svo skilað. Þessi herbergi voru reglulegar stoppistöðvar hjá okk- ur bræðrum í okkar heimsóknum og var alltaf fróðlegt að sjá hvaða dýr hann verkaði þá stundina, áhuginn dvínaði þó yfirleitt fljótt enda mikið nákvæmnisverk og ekki mikið um hamagang þar í kring fyrir orkubolta á ungum aldri. Við bræður höfum báðir hlotið þann heiður að fá að búa hjá ömmu og afa í Hellulandinu á hans síðustu árum á meðan við stund- uðum nám, ég stundaði nám í vél- stjórn og Valur, sem er enn í námi við HÍ, og stæðum við ekki jafn vel í dag ef svo hefði ekki verið og telj- um við okkur einstaklega lánsama að hafa kynnst þeim svona vel. Það er margt sem kemur upp í hugann en sérstaklega er minn- isstætt að afi fór alltaf út á morgn- ana til að skafa bílinn fyrir ömmu þó svo að ekki stæði til að nota hann. Sjálfur fékk hann alltaf bíl- prófið þar til hann var hættur að rata heim, en þá hætti hann að endurnýja það enda orðinn 92 ára ef ég man það rétt og lítill tilgang- ur í að gera sér ferð ef maður rat- ar ekki heim aftur. Í eitt skiptið er ég kom heim úr ekki svo vel heppnaðri veiðiferð gerði ég þau mistök að hengja fuglinn upp fyrir utan, eins og hefð er fyrir, sem er ekki í frásögur færandi nema þeg- ar ég kem heim stuttu seinna þá kem ég að afa gamla vera að stoppa upp. Mér til mikilla von- brigða er fuglinn farinn og grunar mig að ákveðinn aðili hafi verið þar á ferð án þess þó að fara nánar út í það hér. En nú er komið að því að við þurfum að kveðja afa gamla. Þótt maður gangi að því vísu að fólk komi og fari þá er með eindæmum erfitt að búa sig undir það þegar dauðinn loks gengur í garð og við kveðjum í hinsta sinn okkar ást- kæra afa. Ég tel okkur þó heppin að því leyti að hann afi gamli skildi eftir sig ógrynni af minningum og upp- stoppuðum dýrum til að minnast hans. Jón Marvin Pálsson, Valur Marvin Pálsson. Okkur langar í örfáum orðum að minnast Jóns M. Guðmunds- sonar fjölskylduvinar og ná- granna. Í hárri elli kveður hann þennan heim sáttur við Guð og menn. Minning um sómamann, já- kvæðan og áhugasaman um menn og málefni, lifir sterkt. Hann tók ætíð vel á móti öllum sem komu til hans, með sínu hlýlega brosi, lág- væru rödd og geislandi mann- gæsku. Jón var fagmaður og í raun listamaður á sínu sviði er hann stoppaði upp allar tegundir dýra, allt frá þeim allra smæstu upp í glæsilegan hest. Hann var heimavinnandi húsfaðir seinni hluta ævi sinnar með verkstæðið sitt á heimilinu og því kom enginn að tómum kofanum sem leit inn í Hellulandi 22. Jón var traustur sálufélagi Möggu frænku okkar og í raun órjúfanlegur hluti af þeim dúett sem þau hjón mynduðu. Nú er komið að leiðarlokum. Hann naut þeirrar gæfu að búa heima þar til fyrir fáum mánuðum og naut þar umönnunar konu sinnar og stór- fjölskyldu. Við sendum Möggu og stórfjölskyldunni allri samúðar- kveðjur með virðingu og þökk fyr- ir góð samskipti við Jón. Frár á fæti, léttur í lund leiddur nú á Drottins fund. Ævina langa átti hann, öll við kveðjum þann sómamann. (SGS) Sigríður Theodóra Guð- mundsdóttir og fjölskylda. Jón Marvin Guðmundsson Útfararþjónusta Vönduð og persónuleg þjónusta athofn@athofn.is - www.athofn.is ATHÖFN ÚTFARAÞJÓNUSTA - s: 551 7080 & 691 0919 Inger Steinsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.