Morgunblaðið - 09.02.2018, Page 37
DÆGRADVÖL 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2018
Danskur lakkrís
með súkkulaði
og lakkrískurli
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú getur tekið mjög skynsamlegar
og hagnýtar ákvarðanir í vinnunni í dag.
Leitaðu eða finndu upp leiðir sem hjálpa
vinum og fjölskyldu til þess að hugsa
stærra.
20. apríl - 20. maí
Naut Láttu ekki gömul sár hindra þig.
Notaðu kvöldið fyrir sjálfan þig. Leyfðu
vinum þínum að umvefja þig kærleika og
hlýju.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Nú er rétti tíminn til þess að
bera upp spurningu sem hefur lengi verið
að brjótast um í þér. Viðskipti sem tengj-
ast fjölskyldunni ættu að ganga vel.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Varastu að misnota góðvild vinar
þíns þótt þægilegt sé að þurfa ekki að
ganga í málin sjálfur. Leggðu þitt af mörk-
um til að styðja góð málefni.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þótt freistandi sé skaltu ekki ganga
lengra í því máli sem hæst ber í huga þín-
um. Mundu bar að vera einlægur við sjálf-
an þig.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú þarft ekki að vera svona óvæg-
inn við sjálfan þig. Hættu að hafa áhyggjur
af því hvað öðrum finnst um þig.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ert á kafi í alls kyns stússi, sem
bakar þér ómælda fyrirhöfn. Ef hindr-
anirnar virtust meiri en þær voru er
ástæðan bara aukin mótstaða af þinni
hálfu.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Einhver nákominn vill að þú
farir öðruvísi að einhverju. Ef þú getur ekki
galdrað þá upp úr skónum með gáfum þín-
um skaltu reyna að ganga fram af þeim.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Gættu orða þinna í sam-
skiptum við samstarfsmenn þína í dag.
Ekki skuldbinda þig ef þú mögulega kemst
hjá því. Passaðu upp á mannorðið.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú ert óvenju vel upplagður
þessa dagana og ættir því að nota tæki-
færið og láta gamminn geisa. Nú er tími
fyrir gleðskap.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Vinátta þarfnast kannski meiri
fyrirhafnar en þú ert til í að leggja á þig.
Haltu áfram að hlusta á tilfinningar þínar
og treystu innsæinu.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Að eltast við hamingjuna er örugg-
asta aðferðin til þess að fæla hana í burtu.
Vertu þolinmóður því hún stendur nær þér
en þú heldur.
Ólafur Stefánsson skrifar„hraðsoðið“ á Leirinn og velt-
ir fyrir sér borgarstjórnarkosn-
ingum:
Það gustar um landið og grefst allt í
fönn,
þó góan sé eftir og þorrinn að hálfu.
Á þinginu málin vart þokast um
spönn,
þar er mest keppt um að fá af sér
„sjálfu“.
Gengið er ótækt, menn gráta í kór,
ganga til samninga fölir á vangann.
Stjórnendavandinn er víðáttustór,
vont er að hafa pöpulinn svangan.
Einhverjir skammta sér sköruleg laun,
skilja sig þannig frá ótíndum lýðnum.
Aðrir sér berja og blása í kaun,
á berangri standa í krókölduhryðjum.
Til kosninga’ er blásið í borg jafnt og
sveit,
beðið í ofvæni fjölmargra lista.
Hrók-valda Dagur og Hjálmar hvern
reit,
harðneita Eyþóri’ að koma og gista.
Barátta harðnar, menn brýna sín tól,
bíta þeir frá sér, sem við katlana sitja.
Hver fær að verma hér stjórnandans
stól,
standa í forsvari, velja sér bita?
Á Ráðhússins tröppum mun ráðast
það stríð,
hvort riðlast nú fylking hins fjórlaufa
smára.
Dagur mun verjast dável um hríð,
en dugir það upphlaup til fjögurra
ára?
4. febrúar stendur skrifað á fés-
bókarsíðu Jóns Ingvars Jónssonar:
„Til að koma í veg fyrir misskiln-
ing vil ég taka fram að ég var sex-
tugur í gær og 61 í dag. En, kær-
ar þakkir, vinir mínir, fyrir góðar
kveðjur ykkar.“ Halldór Þor-
steinsson svaraði um hæl:
Í gær varstu sextugur satt er um það
en sextíu og eins árs í dag
aldur þinn virkar sem óskrifað blað.
Jón Ingvar svo er nú það
Hamingjuósk barst líka frá Sím-
oni Jóni Jóhannssyni, – „rifja upp
eina gamla í tilefni dagsins“:
Yrkir kvæði og ástundar,
allt sem glæðir vonirnar.
Stundar fræði stílþrautar,
strákur gæða, Jón Ingvar.
Og Hjálmar Jónsson:
Jón að öllum háska hlær
með harla léttum brag.
Sextugur hér sást í gær
en sjötugur í dag.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Hraðsoðið – sextugur
og degi betur
Í klípu
„EF ÞÚ VILT HORFA Á BJÖRTU HLIÐARNAR,
ÞÁ FÉKK ÉG TÍU Í RUSLVÍSINDUM.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„LESTU ÞETTA SJÁLFUR! ÞAÐ STENDUR:
„TÓLF EGG, BRAUÐ, MJÓLK OG
SÚKKULAÐIBITASMÁKÖKUR.““
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... hola í höggi!
ER LISTIN AÐ EIGA
SAMRÆÐUR LÍFS EÐA LIÐIN?
ÉG TALDI FINGURNA Á MÉR
ÞRISVAR OG FÉKK ÞRJÚ
MISMUNANDI SVÖR
VIÐ ÞURFUM
ÞAGNARSTUND, TAKK
ÞÚ ÁTT AÐ VERA
SIGLINGAFRÆÐINGUR! HVERS
VEGNA ERUM VIÐ EKKI KOMNIR Á
ÁFANGASTAÐ!?
ÞAÐ HEFUR VERIÐ
SKÝJAÐ Í VIKU! ÉG GET
EKKI STÝRT ÁN ÞESS AÐ
SJÁ STJÖRNURNAR!
KANNSKI HJÁLPAR
ÞETTA TIL!
BANKI
Væntingavísitalan rýkur nú vænt-anlega upp hjá samlöndum Vík-
verja þegar Guðmundur Þ. Guð-
mundsson hefur verið ráðinn
landsliðsþjálfari karla í handbolta.
x x x
Nú verður sjálfsagt einungisformsatriði að vinna til verð-
launa á stórmótum. Eins og hjá öll-
um íþróttaþjálfurum hefur gengið
misjafnlega hjá Guðmundi en topp-
arnir eru aðdáunarverðir. Þjóð-
arsálin mun miða við þá þegar hún
gerir sér vonir um árangur lands-
liðsins á næstu árum.
x x x
Handboltalandsliðið er eitt af þvísem hægt er að nota til að taka
púlsinn á þjóðarsálinni. Annað dæmi
er Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva sem nú fer að hefjast
hérlendis. Þegar undankeppninni,
sem furðu mikið umstang er í kring-
um, lýkur þá verður einungis forms-
atriði að vinna aðalkeppnina.
x x x
Framlag Íslands verður geysilegasigurstranglegt að sjálfsögðu.
Þegar íslenski hópurinn verður kom-
inn út munu okkur berast fregnir af
því að hann hafi hvarvetna heillað
fjölmiðlafólk og aðdáendur. Íslenska
lagið fái einnig góðan hljómgrunn og
verði betra með hverri æfingunni.
x x x
Löngu áður en niðurstaðan verðurljós munum við taka umræðuna
um hvar skuli halda keppnina hér-
lendis árið 2019 og hvernig eigi að
fara að því.
x x x
Þegar lokakeppni Söngvakeppnievrópskra sjónvarpsstöðva lýk-
ur þá styttist í að þjóðarsálin fyllist
bjartsýni vegna HM karla í knatt-
spyrnu. Þar sem Ísland náði 8-liða
úrslitum á EM verður ekki hægt að
búast við neinu minna á HM. Takist
okkur ekki að vinna HM þá verður
hægt að reikna út hvort við höfum
unnið höfðatölukeppnina.
x x x
Þjóðarsálin er í sínu besta formiþegar Íslendingar keppa í ein-
hverju. vikverji@mbl.is
Víkverji
Orðið varð hold. Í upphafi var Orðið og
Orðið var hjá Guði og Orðið var Guð.
(Jóh: 1.1)