Morgunblaðið - 09.02.2018, Síða 39

Morgunblaðið - 09.02.2018, Síða 39
Ísnálina 2017 hljóta rithöfundurinn Ann Cleeves og þýðandinn Snjólaug Bragadóttir fyrir glæpasöguna Hrafnamyrkur (e. Raven Black). Þetta var tilkynnt við hátíðlega at- höfn í Gunnarshúsi í gær þar sem verðlaunin voru afhent í fjórða sinn. Verðlaunin eru veitt fyrir bók þar sem saman fer góð glæpasaga og góð þýðing sem út kom á árinu 2017. Að verðlaununum standa Iceland Noir- glæpasagnahátíðin, Hið íslenska glæpafélag og Bandalag þýðenda og túlka. Dómnefnd skipuðu Katrín Jak- obsdóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Jóhann R. Kristjánsson og Ragnar Jónasson. Hrafnamyrkur er fyrsta bókin í syrpu sem gerist á Hjaltlands- eyjum og það var mat dómnefndar að „í bókinni færi saman mjög spenn- andi og vel uppbyggð glæpasaga frá einum fremsta glæpasagnahöfundi Bretlands og afburðagóð íslensk þýð- ing frá afar reyndum þýðanda“, segir í umsögn. Snjólaug Bragadóttir veitti verðlaununum viðtöku í gær. Hrafnamyrkur verðlaunuð Morgunblaðið/Hari Ísnálin 2017 afhent í Gunnarshúsi í gær Með útgáfu þessararáhugaverðu skáldsögusvissneska rithöfund-arins Max Frisch (1911- 1991), Loftslag, var ýtt úr vör nýrri ritröð Þýðingaseturs Háskóla íslands, „Fagurbókmenntir Þýðingaseturs“. Samkvæmt texta Gauta Kristmanns- sonar í upphafi bókar verður lögð áhersla á „vand- aðar þýðingar bókmenntaverka, eldri og yngri, sem líkast til kæmu seint eða ekki fyr- ir augu lands- manna að öðrum kosti.“ Hann segir upplag bókanna verða takmarkað en sérstaklega vandað til verka og fá allar þýðing- arnar ritstjórn sérstaks ritstjóra en að þessu sinni er það Ástráður Eysteins- son – sjálfur þýddi hann ásamt Ey- steini Þorvaldssyni hina skáldsöguna eftir Frisch sem komið hefur út á ís- lensku, Homo Faber, sem kom út hér árið 1987. Þá hafa nokkur leikrita Frisch verið þýdd á íslensku og verið sett hér á svið eða flutt í útvarpi. Í vandaðri og forvitnilegri sam- antekt þýðandans, Jóns Bjarna Atla- sonar, í sextán síðna eftirmála, kemur fram að Frisch hafi unnið að þessari stuttu skáldsögu í ein sjö ár. Hún varð eitt síðasta útgefna verk hans og kom fyrst á prent 1979. Það tók höfundinn langan tíma að festa hendur á því formi sem honum fannst rétt og henta frásögninni. Upphaflega ætlaði Frisch að kalla söguna Klima, eða Loftslag, en féll frá því og nefnist hún á frummálinu Der Mensch erscheint im Holozän (Mað- urinn kemur fram á hólósen). Hefur þó verið ákveðið að nota upphaflega heitið á þýðinguna nú, þótt fullmikil áhersla sé þar með lögð á loftslags- þáttinn í frásögninni. Bókin fjallar um líf og hugsanir karlmanns á áttræðisaldri, Geisers að nafni, sem hefur einangrast í af- skekktu svissnesku fjallaþorpi í fögr- um dal innrömmuðum af tignarlegum fjöllum þar sem óveður geisar dögum saman. Hann er líka að einangrast í samfélagi mannanna vegna minnis- glapa sem lesandinn áttar sig smám saman á; sagan er sögð í þriðju per- sónu en þó er fylgst með hugsunum Geisers þar sem hann glímir við að halda í mynd sína af heiminum og minningar um liðna tíma. Saga þróun- ar lífs á jörðinni er honum hugleikin, bergmyndanir, veðurfar sem risaeðlur og jafnframt endalok lífsins – og end- urspegla þær pælingar ástand hans sjálfs. Þær hugleiðingar allar eru for- vitnilega settar fram í sögunni með fjölda innskota, tilvitnana í hin ýmsu fræðiverk um jarðsöguna sem trúar- lega texta, sem eru birt á gráum grunni. Einnig eru birtar hugleiðingar og listar sem Geiser á að skrifa á rúðu- strikuð blöð og eru þau prentuð á slík- um grunni með handskrift en í ljós kemur að þá lista alla festir Geiser upp á veggi heimilisins sem og texta- tilvitnanirnar sem hann klippir út úr hinum ýmsu bókum. Tvær endurminningar skera sig úr í frásögninni og gegna vissum lykilhlut- verkum í myndinni af lífsgöngu Gei- sers og lífssýn undir ævilok. Önnur er minning hans um fjallgöngu á Matter- horn ásamt bróður sínum mörgum áratugum áður, ferðalag sem fór illa. Hin er stutt minning um Íslandsferð þremur áratugum fyrr. Þar er lýst hrjúfri og ósnortinni náttúru með jökl- um sem munu bráðna en þegar „ís norðurskautsins bráðnar fer New York á kaf,“ segir þar. Samkvæmt eftirmála þýðandans fór Frisch sjálfur í slíka ævintýraferð um Ísland sum- arið 1977 og er birt færsla í gestabók þar sem hann segist bíða spenntur eft- ir því að sjá hvernig áhrifin af landinu muni „magnast í sögu“. Það er ljóst hér. Geiser heldur í sögunni í enn eitt ferðalag á fjöll og gengur við það mjög nærri sér en endalokin eru nærri og er afar vel um þessa sívaxandi ein- angrun og veikindi sögupersónunnar fjallað í þessari athyglisverðu og vel mótuðu skáldsögu. Loftslag kemur út í lítilli kilju sem fer vel í vasa. Útlitið er smekklegt með ljósmynd af færslu Frisch í dagbók hér á landi og þar hnykkt á Íslands- tengingu sögunnar. Hins vegar eru bagalegir ágallar á setningu textans. Sums staðar eru þrengingar of miklar í línum, svo orð renna saman, en verra er að letrið með skýringarmyndum og í textarömmunum sem Geiser klippir út, í heimildaskrá og í tilvitnunum í eftirmála, er alltof lítið og illlæsilegt. Ég þurfti að hafa stækkunargler við höndina til að geta áreynslulaust gleypt í mig allan textann sem vita- skuld er ekki í lagi. Lífi og hugsunum Geigers er lýst á formlegan og fallegan hátt og er þýð- ing Jóns Bjarna sýnilega hin vand- aðasta; textinn er lipur og rennur mjög vel. Þá er ástæða til að hrósa hinum góða og upplýsandi eftirmála sem bætir talsverðu við upplifunina og skilninginn á þessu athyglisverða verki. Skáldsaga Loftslag bbbbm Eftir Max Frisch. Jón Bjarni Atlason þýddi og ritar eftirmála. Þýðingasetur Háskóla Íslands, Reykjavík 2017. Kilja, 138 bls. EINAR FALUR INGÓLFSSON BÆKUR Slæmt væri að tapa minninu Max Frisch Loftslag var eitt síðasta verk hans, afar athyglisverð saga. Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is Rocky Horror (Stóra sviðið) Fös 16/3 kl. 20:00 Frums. Fös 6/4 kl. 20:00 6. s Fös 20/4 kl. 20:00 11. s Sun 18/3 kl. 20:00 2. sýn Lau 7/4 kl. 20:00 aukas. Lau 21/4 kl. 20:00 aukas. Mið 21/3 kl. 20:00 aukas. Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Sun 22/4 kl. 20:00 12. s Fim 22/3 kl. 20:00 aukas. Mið 11/4 kl. 20:00 aukas. Fim 26/4 kl. 20:00 13. s Fös 23/3 kl. 20:00 3. s Fim 12/4 kl. 20:00 aukas. Lau 28/4 kl. 20:00 25. s Lau 24/3 kl. 20:00 4. s Fös 13/4 kl. 20:00 aukas. Mið 2/5 kl. 20:00 26. s Sun 25/3 kl. 20:00 5. s Lau 14/4 kl. 20:00 8. s Fim 3/5 kl. 20:00 27. s Þri 27/3 kl. 20:00 aukas. Sun 15/4 kl. 20:00 9. s Fös 4/5 kl. 20:00 28. s Mið 4/4 kl. 20:00 aukas. Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Lau 5/5 kl. 20:00 29. s Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Fim 19/4 kl. 20:00 10. s Sun 6/5 kl. 20:00 30. s Besta partý sem þú munt nokkurn tímann upplifa. Elly (Stóra sviðið) Fös 9/2 kl. 20:00 66. s Lau 24/2 kl. 20:00 aukas. Sun 4/3 kl. 20:00 aukas. Lau 10/2 kl. 20:00 67. s Sun 25/2 kl. 20:00 aukas. Fös 9/3 kl. 20:00 aukas. Lau 17/2 kl. 20:00 68. s Fim 1/3 kl. 20:00 aukas. Lau 10/3 kl. 20:00 aukas. Sun 18/2 kl. 20:00 69. s Fös 2/3 kl. 20:00 aukas. Sun 11/3 kl. 20:00 aukas. Fös 23/2 kl. 20:00 aukas. Lau 3/3 kl. 20:00 aukas. Lau 17/3 kl. 20:00 aukas. Sýningar haustið 2018 komnar í sölu. Himnaríki og helvíti (Stóra sviðið) Sun 11/2 kl. 20:00 14. s Fös 16/2 kl. 20:00 16. s Fim 15/2 kl. 20:00 15. s Fim 22/2 kl. 20:00 Lokas. Allra síðustu sýningar! Blái hnötturinn (Stóra sviðið) Sun 11/2 kl. 13:00 Lokas. Allra síðasta sýning sunnudaginn 11. febrúar. Skúmaskot (Litla sviðið) Lau 10/2 kl. 13:00 aukas. Sun 11/2 kl. 13:00 aukas. Allra síðustu sýningar um helgina! Brot úr hjónabandi (Litla sviðið) Fös 9/2 kl. 20:00 51. s Mið 21/2 kl. 20:00 54. s Lau 3/3 kl. 20:00 Lokas. Sun 11/2 kl. 20:00 52. s Lau 24/2 kl. 20:00 55. s Lau 17/2 kl. 20:00 53. s Fös 2/3 kl. 20:00 56. s Síðustu sýningar komnar í sölu. Lóaboratoríum (Litla sviðið) Lau 10/2 kl. 20:00 7. s Sun 18/2 kl. 20:00 9. s Fim 15/2 kl. 20:00 8. s Fim 22/2 kl. 20:00 Lokas. Í samvinnu við Sokkabandið. Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið) Lau 24/3 kl. 20:00 Frums. Lau 7/4 kl. 20:00 6. s Lau 14/4 kl. 20:00 12. s Sun 25/3 kl. 20:00 2. s Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Sun 15/4 kl. 20:00 13. s Þri 27/3 kl. 20:00 3. s Þri 10/4 kl. 20:00 8 .s Mið 18/4 kl. 20:00 14. s Mið 4/4 kl. 20:00 4. s Mið 11/4 kl. 20:00 9. s Fim 19/4 kl. 20:00 15. s Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Fim 12/4 kl. 20:00 10. s Fös 20/4 kl. 20:00 16. s Fös 6/4 kl. 20:00 5. s Fös 13/4 kl. 20:00 11. s Það er alveg öruggt að þetta fer úrskeiðis! Slá í gegn (Stóra sviðið) Mið 21/2 kl. 19:30 Fors Lau 3/3 kl. 19:30 5.sýn Lau 24/3 kl. 19:30 11.sýn Fim 22/2 kl. 19:30 Fors Fim 8/3 kl. 19:30 Auka Sun 25/3 kl. 19:30 12.sýn Fös 23/2 kl. 19:30 Fors Fös 9/3 kl. 19:30 6.sýn Lau 7/4 kl. 19:30 13.sýn Lau 24/2 kl. 19:30 Frums Lau 10/3 kl. 19:30 7.sýn Sun 8/4 kl. 19:30 14.sýn Sun 25/2 kl. 19:30 2.sýn Lau 17/3 kl. 19:30 8.sýn Fös 13/4 kl. 19:30 15.sýn Fim 1/3 kl. 19:30 3.sýn Sun 18/3 kl. 19:30 9.sýn Lau 14/4 kl. 19:30 16.sýn Fös 2/3 kl. 19:30 4.sýn Fös 23/3 kl. 19:30 10.sýn Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna! Risaeðlurnar (Stóra sviðið) Lau 10/2 kl. 19:30 20.sýn Lau 17/2 kl. 19:30 21.sýn Fös 16/3 kl. 19:30 22.sýn Grátbroslegt og ágengt nýtt verk um litla þjóð í stórum heimi . Fjarskaland (Stóra sviðið) Sun 11/2 kl. 13:00 Sun 4/3 kl. 13:00 Sun 18/2 kl. 13:00 Sun 4/3 kl. 16:00 Fjölskyldusöngleikur eftir Góa! Hafið (Stóra sviðið) Fös 9/2 kl. 19:30 LOKA Kraftmikið átakaverk, beint úr íslenskum veruleika Faðirinn (Kassinn) Sun 11/2 kl. 19:30 22.sýn Mið 28/2 kl. 19:30 24.sýn Fös 16/3 kl. 19:30 27.sýn Mið 14/2 kl. 19:30 Auka Mið 7/3 kl. 19:30 25.sýn Sun 18/2 kl. 19:30 23.sýn Fim 15/3 kl. 19:30 26.sýn Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk. Efi (Kassinn) Fös 9/2 kl. 19:30 Auka Fim 22/2 kl. 19:30 Auka Fös 9/3 kl. 19:30 16.sýn Lau 10/2 kl. 19:30 10.sýn Fös 23/2 kl. 19:30 13.sýn Lau 10/3 kl. 19:30 17.sýn Fim 15/2 kl. 19:30 Auka Lau 24/2 kl. 19:30 Auka Lau 17/3 kl. 19:30 18.sýn Fös 16/2 kl. 19:30 11.sýn Lau 3/3 kl. 19:30 14.sýn Sun 18/3 kl. 19:30 19.sýn Lau 17/2 kl. 19:30 12.sýn Sun 4/3 kl. 19:30 15.sýn Margverðlaunað og spennandi verk ! Ég get (Kúlan) Sun 11/2 kl. 13:00 9.sýn Sun 11/2 kl. 15:00 10.sýn Sun 18/2 kl. 13:00 11.sýn Ljóðræn leiksýning fyrir yngstu börnin, um það sem er mitt og þitt og okkar Pétur og úlfurinn (Brúðuloftið) Lau 10/2 kl. 13:00 Lau 17/2 kl. 15:00 Lau 3/3 kl. 13:00 Lau 10/2 kl. 15:00 Lau 24/2 kl. 13:00 Lau 3/3 kl. 15:00 Lau 17/2 kl. 13:00 Lau 24/2 kl. 15:00 Brúðusýning Mið-Ísland - Á tæpasta vaði! (Þjóðleikhúskjallarinn) Fös 9/2 kl. 20:00 Sun 18/2 kl. 21:00 Konudagur Fös 2/3 kl. 22:30 Fös 9/2 kl. 22:30 Fim 22/2 kl. 20:00 Lau 3/3 kl. 20:00 Lau 10/2 kl. 20:00 Fös 23/2 kl. 20:00 Lau 3/3 kl. 22:30 Lau 10/2 kl. 22:30 Fös 23/2 kl. 22:30 Sun 4/3 kl. 20:00 Fim 15/2 kl. 20:00 Lau 24/2 kl. 20:00 Fim 8/3 kl. 20:00 Fös 16/2 kl. 20:00 Lau 24/2 kl. 22:30 Fös 9/3 kl. 20:00 Fös 16/2 kl. 22:30 Sun 25/2 kl. 20:00 Fös 9/3 kl. 22:30 Lau 17/2 kl. 20:00 Fim 1/3 kl. 20:00 Lau 10/3 kl. 20:00 Lau 17/2 kl. 22:30 Fös 2/3 kl. 20:00 Lau 10/3 kl. 22:30 Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika! Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 14/2 kl. 20:00 Mið 14/3 kl. 20:00 Mið 4/4 kl. 20:00 Mið 21/2 kl. 20:00 Mið 21/3 kl. 20:00 Mið 11/4 kl. 20:00 Mið 28/2 kl. 20:00 Fim 22/3 kl. 20:00 Fesival Mið 18/4 kl. 20:00 Mið 7/3 kl. 20:00 Mið 28/3 kl. 20:00 Mið 25/4 kl. 20:00 leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2018

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.